Dagblaðið - 28.07.1979, Page 7
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ1979.
7
„Sækist ekki eft-
ir bitlingum”
—segir Ellert B. Schram og telur það skýra lága skatta sína
„Ég tel mig gera þetta heiöarlega,” segir Ellert B. Schram er hann sýnir blaöa-
manni Dagblaðsins skattaframtal sitt.
„Þetta er mitt starf og þar er
ekki um neina eftirvinnu að ræða eða
aukagreiðslur. Ég hef reynt að sinna
þessu starfi vel þannig að það yrði
ekki að einhverju gervistarfi. Ég hef
ekki heldur lagt það í vana minn að
sækjast eftir bitlingum,” sagði Ellert
B. Schram alþingismaður i samtali
við DB í gær vegna fréttar blaðsins af
sköttum þingmanna Reykvíkinga, en
þar var Ellert neðstur á blaði. Ellert
greiðir 1,5 milljón í opinber gjöld í
ár . Frá þeirri upphæð dragast síðan
barnabætur upp á 553 þúsund.
í samtalinu við Dagblaðið
upplýsti Ellert að tekjur hans á
síðasta ári hefðu verið eftirtaldar:
Þingmannslaun 4.454.183 kr.
Vegna setu í útvarpsráði 713.754 kr.
Leigaaf íbúðarhúsnæði 326.760 kr.
Tekjurbarna 434.824 kr.
Um aðrar tekjur væri ekki að
ræða. Ellert sagðist ekki gegna
lögfræðistörfum og starf hans hjá
KSÍ en þar er Ellert formaður, væri
algjörlega ólaunað. Sagðist Ellert
hafa haft útgjöld af því starfi frekar
en hitt, og færi mikill hluti af tíma
hans á sumrin í að sinna þeim
hugðarefnum sínum.
Ellert sagði það útbreiddan mis-
skilning, að þingmenn nytu einhverra
skattfríðinda. Aðeins væri ágrein-
ingur um bílastyrkinn, sem er
rúmiega 300 þús. krónur. „Flestir
þingmanna hafa samkvæmt gamalli
venju ekki talið þennan styrk fram,”
sagði Ellert, og bætti því við að það
hefði hvorki haft áhrif á útsvar né
skatta.
Um nefndarstörf hafði Ellert það
að segja, að öll nefndarstörf innan
Alþingis væru ólaunuð. Þannig
átti hann sæti í fjárveitinganefnd.
Þar hefðu verið mikil fundarhöld
bæði á kvöldin og um helgar en ekki
hefði verið greitt neitt aukalega fyrir
það. Hins vegar væri greitt fyrir
nefndarstörf utan Alþingis og væru
tekjur hans frá fjármálaráðuneyti
vegna setu í útvarpsráði af þeim toga.
DB-mynd Höröur.
,,Ég tel mig gera þetta heiðarlega
og mér þykir hart að sitja undir
þessu,” sagði Ellert og bætti því við,
að uppsetning á frétt gæfi byr þeim
orðrómi, að þingmenn væru að stela
undan skatti. -GAJ-
SANDKASSINN
RYKSUGAÐUR
Það þæfti e.t.v. mörgum bjartsýnisvcrk að ætla sér aö ryksuga upp úr heilum sand-
kassa en Kristin Eirfksdóttir barnfóstra f leikskólanum lætur sig ekki muna um það.
Báturínn á myndinni hefur gegnt hlutverki nokkurs konar sandkassa. Nú hugöust
barnfóstrurnar á leikvellinum nota góða veðríð til að mála bátinn góða og þá var ekki
um annað að ræða en að grípa til ryksugunnar.
-GAJ/DB-mynd Bj. Bj.
Skattskráin skoðuð:
Ragnhildur efst
alþingiskvenna
Það hefur sætt nokkurri gagnrýni,
að Dagblaðið skyldi sleppa fulltrúum
veika kynsins á Alþingi í umfjöllun
sinni um skatta þingmanna Reykja-
víkur í blaðinu í gær.
Til þessa lágu nokkuð augljósar á-
stæður. Þar sem ekki er um sérsköttun
hjóna að ræða þá eru þingmennirnir
Jóhanna Sigurðardóttir, Ragnhildur
Helgadóttir og Svava Jakobsdóttir ekki
í skattskránni, og þar sem aðrar reglur
gilda um sköttun útivinnandi kvenna
en karla þá þótti okkur ekki rétt að
setja þær stöllur á stall með öðrum
þingmönnum Reykjavíkur.
Hins vegar mælir að sjálfsögðu
ekkert gegn því að birta skatta eigin-
manna þessara ágætu alþingiskvenna.
Hluti þeirrar skattlagningar byggist að
sjálfsögðu á tekjum eiginkvennanna.
Jóhanna Sigurðardóttir er gift Þorvaldi
Jóhannessyni sölustjóra, Ragnhildur
Helgadóttir er gift Þór Vilhjálmssyni
hæstaréttardómara og Svava Jakobs-
dóttir er gift Jóni Hnefli Aðalsteins-
syni menntaskólakennara. Er hér með
orðið við óskum um að birta skatta
eiginmanna þeirra þriggja kvenna sem
eiga sæti á Alþingi íslendinga.
-GAJ-
að bera skatta aiþingiskvenna saman við skatta annarra alþingismanna. Myndin er
tekin I þingbyrjun og sýnir þær konur sem eiga sæti á Alþingi nú. Frá vinstrí Jóhanna
Sigurðardóttir, Svava Jakobsdóttir og Ragnhildur Helgadóttir. -DB-mynd Bj. Bj.
Tekjuskattur Eignarskattur Utsvar Barnabætur Samtals
Þorvaldur Jóhannesson
(eiginmaður Jóhönnu)
Þór Vilhjálmsson
(eiginmaður Ragnhildar)
Jón H. Aðalsteinsson
(eiginmaður Svövu)
1.314.323
3.391.994
3.163.633
0 900.200
313.798 1.492.400
64.223 1.404.700
251.646 2.142.081
100.660 5.403.917
0 4.903.364
Ryksugufloti Sovétmanna við Jan Mayen:
r
Oljóst hvort hann
veiðir f isk á
leið á Islandsmið
,,Sá kolmunni, sem rússneski
flotinn er að veiða við Jan Mayen nú,
gæti allt eins verið að ganga á
íslandsmið, en nægilegar rannsóknir
á kolmunnagöngum liggja ekki enn
fyrir til að segja ákveðið til um það,”
sagði Jakob Magnússon
jtskifræðingur í viðtali við DB er
hann var spurður hvort „ryksugu-
floti” Sovétmanna við Jan Mayen
kynni að hafa áhrif á fiskgengd við
ísland.
Sem l'yrr segir liggur það ekki
ljóst fyrir og eins og við nýtum kol-
munnann lítið nú, munu veiðarnar
vart skerða afkomu okkar eins og
stendur.
Jakob taldi afar ólíklegt að flotinn
næði þarna í þorskgöngur eða karfa-
göngur á leið frá Austur-Grænlandi
hingað.
Hins vegar er því enn ósvarað
hvort íslenzka loðnan ætlar að
„flakka” út fyrir 200 mílurnar okkar
í átt til Jan Mayen. Fari svo getur
þessi floti náð óhemju magni á
skömmum tíma. Líklegt er að hann
geti allt eins veitt loðnu og kol-
munna, og að auki eru norskir
loðnubátar í viðbragðsstöðu, ef
loðnu verður vart á svæðinu.
-GS.
Forstjóri Alþjóða orku-
málastofnunarinnar
— í heimsókn hingað til lands
í byrjun næstu viku er
væntanlegur hingað til lands dr. Ulf
I antzke.forstjóri Alþjóða orkumála-
stofnunarinnar (International Energy
Agency) í París.
Var honum boðið til viðræðna við
islenzk stjórnvöíd að frumkvæði
olíuviðskiptanefndar, en auk hennar
mun hann ræða við iðnaðarráðherra
og fulltrúa viðskipta- og iðnaðar-
ráðuneyta. Ætlunin er að i þessum
viðræðum verði bæði fjallað um
olíu- og orkumál almennt svo og um
hugsanleg samskipti íslands og Al-
þjóða orkumálastofnunarinnar i
framtíðinni.
Alþjóða orkumálastofnunin er
undirstofnun Efnahagssamvinnu-
stofnunarinnar í París (OECD), og
eru öll aðildarríki OECD þátttak-
endur í henni að fjórum undantekn-
um, og er ísland i þeim hópi. Verk-
efni stofnunarinnar eru margvisleg,
þ.á m. samræming stefnu þátttöku-
ríkja á sviði olíumála, orkusparnaðar
og rannsókna á nýjum orkulindum.
- ELA