Dagblaðið - 28.07.1979, Side 15

Dagblaðið - 28.07.1979, Side 15
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 1979. 15 - JS Miðsumarskeppni Kvartmíluklúbbsins: „Það segir fátt af einum og konnndu nú,” heyrðist upp úr gryfjunni á púströraverkstæðinu þegar ég fór á fund Gylfa Pálssonar og innti hann eftir hvernig honum gengi með nýja bílinn sinn. Ekki vildi hann hafa stór orð um Pintóinn sinn en sagði að menn yrðu bara að sjá ti) hvað hann gæti. Í Pintóinn er Gylfi, eða Pústmann eins og hann er betur þekktur, búinn að setja vel græjaða 351 kúbika Fordvél og ætlar hann að senda hann í keppnina. Ekld ætlar Pústmann þó að keppa sjálfur, heldur ætlar hann að finna sér góða þúfu til að sitja á og fylgjast með þvi er vinur hans Páil V-áttundi, yljar andstæðingum sinum undir uggum. Ekki dreg ég í efa að Pintóinn verður skæður enda er skemmzt að minnast þess að sigurvegarinn i siðustu keppni Kvartmiluklúbbsins, og sá bíll sem beztum tima náði þá, svarta Monzan, var eitt sinn i eigu Pústmanns og setti hann flestar græjurnar, sem í henni eru, í bílinn. Margir hafa beðið óþreyjufullir eftir að fá að sjá þennan bil á kvartmíiubrautinni en i dag rætist ósk þeirn þvi að 454 Camaróinn hans örvars Sigurðssonar verður með i keppninni. DB-myndir: Myrkrahöfðinginn. En Birgir hetur ■ fleiru að snuasi en ao utbúa Grænu pödduna fyrir keppnina. Hann sér einnig um að útbúa og stilla '70 Camaróinn hans Gilberts bróður sins fyrir keppnina, auk þess sem hann aðstoðar vin sinn og skúrfélaga, Guðmund Kjartansson. vlð unriirhúnlno 410 Cv^i^ncinc Sprækustu jámfákamir Ekki verða allir keppendurnir með átta strokka vélar i bilum sínum og einn þeirra er Birgir Guðjónsson. Fyrir tveimur árum keypti hann sér fjögra strokka VW vél, sérsmiðaða fyrir kvartmíluakstur, frá Bandarikjunum. I síðustu viku fékk hann svo lánaðan VW bilinn hennar Báru vinkonu sinnar og ætlar hann að setja vélina i hann og keppa i miðsumarskeppninni. Að sögn fróðra manna borðar VW vélin eina átta strokka vél I morgunverð, aðra I hádegisverð og þá þriðju í kvöldverð. Það er eins gott fyrir amerisku kaggana að vara sig þegar Græna paddan stillir sér upp á brautinni. Guðmundur Kjartansson keppti á 429 Cycloninum i síðustu kvartmílukeppn- inni og var þá með bíiinn i Modificd Standard flokki. Gekk honum ekki of vél og má þar m.a. um kenna hversu þungur Mercuryinn cr. Guðmundur ætlar nú að skipta um flokk og keppa í Standard flokki i miðsumarskeppninni. Vinnur hann að þvi dag og nótt að setja gömiu standard hlutina aftur i 429 relluna og vonast hann til að Ijúka þvi fyrir keppnina. Hætt er við að hann nái ekki eins góðum timum og hann náði i hinni keppninni en billinn ætti þó að verða sigur- strangiegri þar sem við aðra keppinauta verður að etja. i trylltum darraðardansi Miðsumarskeppni Kvartmílu- klúbbsins verður haldin á kvartmílu- braudnni í Kapelluhrauni í dag, laugardaginn 28. júlí, og morgun, sunnudaginn 29. júlí. Keppnin tekur að þessu sinni tvo daga og fyrri daginn, í dag, hefst keppnin kl. 4 með undanrásum. í undanrásunum eða forkeppninni eru tímar bílanna teknir og fara þeir þá einir eftir brautinni en ekki tveir og tveir eins og Ef þátttakenda- fjöldinn verður mikill má búast við að tímar verði teknir af tveimur bílum í einu en eru þeir þá ekki í innbyrðis keppni. Hugsanlegt er t.d. að standard bíll og Street Alterd bíll fari saman í tímatöku. Seinni daginn verður svo sjálf aðal- keppnin og keppa bílarnir þá til úrslita. Með þessu fyrirkomulagi er vonast til að keppnin geti gengið snurðulaust og fljótt fyrir sig, vegna þess að starfsmönnum gefst þá góður ‘tími milli keppnisdaganna að sinna hinum ýmsu útreikningum sem þeir þurfa að framkvæma. Þá fá keppendurnir einnig góðan tima til að lagfæra það sem bilar í bílunum fyrri daginn og ættu því að geta mætt með þá í toppformi síðari daginn. Núna um helgina verfla allir kraftmestu bílar landsins samankomnir á kvartmílubrautinni i Kapelluhrauni og munu þeir taka þar þátt f miðsumarskeppni Kvartmíluklúbbsins. Verður timamet Birgis Jónssonar á 302 Monzunni ábyggilega slegið og má hann án efa hafa sig allan við ef hann ætlar að sigra aftur. -Jóhann Kristjánsson Keppni þessi verður sú stærsta sem Kvartmíluklúbburinn heldur í sumar ‘og búist e'r við að keppendur verði margir. Meðal þeirra eru ýmsir sem ekki gáíu lokið við að ganga frá bilum sínum fyrir fyrstu keppnina.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.