Dagblaðið - 08.08.1979, Qupperneq 5
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 1979.
5
Skattar múrarameistara skoðaðir:
Guðmundur Þengilsson
með 38 milljónir
—aðrir standa honum langt að baki
í dag könnum við skatta tuttugu
múrarameistara i Reykjavik og ná-
grenni. Guðmundur Þengilsson er lang-
efstur á blaði með rúmlega 38 milljónir
samtals í opinber gjöld. Næstur honum
er Einar S. Einarsson með 6,4 milljónir
en sex af þeim tuttugu múrarameist-
urum sem við könnuðum greiða innan
við eina milljón i opinber gjöld.
Rétt er að taka það fram, að i
sumum tilfellum eru slysatrygging, líf-
eyristrygging, aðstöðugjald og skattur
á skrifstofuhúsnæði talsverður hluti af
heildargjöldunum. Að öðru leyti ætti
listinn að skýra sig sjálfur.
-GAJ-
Árni Guömundsson, Tekjusk Eignarsk Útsvar Bamabætur Samtals
Drápuhlíð 47. Diðrík Helgason, 1.282.760 1.208.715 704.700 100.660 4.044.638
Blönduhlið 26 EinarS. Einarsson, 1.061.368 107.758 427.200 0 1.736.761
Norðurbrún 28. Guðm. Kristinsson, 2.234.231 527.195 889.400 100.660 6.404.909
Brekkuseli 31. Guðm. Þengilsson, 1.489.002 0 790.900 251.646 3.349.734
Depluhólum 5. Guðni Steingrímsson, 13.493.761 519.948 3.261.600 100.660 38.374.145
Lækjarkinn 16, Hf. Hans Blomstcrbcrg 1.810.687 88.851 751.600 100.660 4.744.867
Tunguseli 11. 0 Hjálmar Sveinbjörnsson, 0 379.100 251.646 203.473
Vitastíg 16. Jón Bergstcinsson, 57.852 0 163.200 0 244.105
Fjólugötu 19A Kárí Þ. Kárason, 1.832.705 145.961 671.800 0 2.761.240
Njörvasundi23 Njáll H. Kjartansson, 817.211 129.526 644.000 100.660 2.467.385
Selbraut 20, Seltj.n. Ólafur Pálsson, 501.525 0 391.000 0 1.189.389
Kleifarvegi 8. Ólafur G. Þórðarson, 865.287 189.641 518.600 0 1.653.755
Hlégerði 7, Kópav. Páll Þorsteinsson 667.650 135.344 433.000 553.618 1.575.904
Hjálmholti 6. Sigm. P. Lárusson, 1.149.642 206.270 742.100 0 3.151.858
Langagerði 86. Sigurbjöm Logason, 533.805 91.833 $ 612.200 0 1.722.594
Staðarseli 4. Svavar G. Svavarsson, 69.669 0 263.800 100.660 701.756
Hjaltabakka 12. Vilberg Hermannsson, 314.786 0 371.400 402.632 363.296
Blönduhlið 6. Þórður Þórðarson, 389.092 0 272.900 0 701.268
Skeiðarvogi 97 Þórír Bergsteinsson, 1.184.841 227.165 866.300 0 5.661.958
Háaleitisbraut 18. 19.129 0 371.800 0 636.865
Grafiðímiðaldanístir íBerufirði
Mun fleiri nístir en
haldið varí fyrstu
„Þetta er mun meira en við bjugg-
umst við. Rústirnar eru að minnsta
kosti 30, jafnvel fleiri,” sagði
Guðmundur Ólafsson sem stjórnar
fornleifauppgreftri að Gautavík á
Berufjarðarströnd. Ásamt
Guðmundi og öðrum mönnum frá
Þjóðminjasafni eru við uppgröftinn 5
Þjóðverjar, prófessorar við háskól-
ann í Múnster og nemendur hans sem
talsvert langt eru komnir í námi.
Þjóðverjarnir hafa verið hér i 2 vikur
og verða í eina í viðbót en íslend-
ingarnir eru búnir að vera 3 vikur og
verða2 í viðbót.
„Rústirnar í Gautavík eru frá
miðöldum, að öllum líkindum, þær
elztu frá 14. öld. En aldursgreining
er erfið enn sem komið er og þær
gætu verið eldri. Við höfum einbeitt
okkur að 3 rústum í sumar og eru
þær á þremur svæðum sem við
höfum skipt landinu í. f því sem við
köllum fyrsta svæði, og er mjög
stórt, eru 15 rústir, á öðru eru svo 8—
10 rústir en á því þriðja er óákveðinn
fjöldi enn sem komið er. Þjóðverj-
arnir byrjuðu á tveim rústum en
hættu fljótlega við aðra því hin var
svo flókin og spennandi.
Við aftur byrjuðum að grafa í rúst
þar sem við héldum að undir væri
naust. En í ljós kom hringlaga bygg-
Þessa mynd tók Dagbjartur Jónsson fljótlega eftir að uppgröftur f Gautavfk
hófst.
ing sem reist hefur verið úr múrsteini.
Þessi bygging gæti verið frá 15. öld
þó erfitt sé að segja til um þaö að
svö stöddu. Við höfum ekki hug-
mynd um hvað þetta gæti hafa verið.
Hringurinn sjálfur er um 2 metrar í
þvermál en utan um hann eru 3
hringir sem hlaðnir hafa verið úr
grjóti og jafnvel torfl. Undir þessari
byggingu er svo önnur sem við erum
ekki farnir að grafa upp ennþá.
Líklega höfum við ekki tima til þess i
sumar en við höldum áfram næsta
sumar, hvað sem verður með
Þjóðverjana,” sagði Guðmundur.
-DS.
VIÐSKIPTARAÐHERRA
REYNIR NÝJAR LEIÐIR
Fjárvöntun ríkissjóðs er öllum kunn.
Talað hefur verið um að nú vanti 5—7
milljarða i kassann, svo fjármálaráð-
herra haldi jöfnu er upp verður staðið
eftir árið.
En ráðherrarnir láta ekki deigan síga
og reyna sifellt nýjar fjáröflunarleiðir.
Þar sem vitað er að aukin skattheimta
er óvinsæl verður að reyna nýjar leiðir.
Það hefur viðskiptaráðherra nú reynt.
Til hans sást nýverið í Tívolí í Kaup-
mannahöfn, þar sem hann spilaði allt
hvað af tók á spilakassa hins fræga
skemmtistaðar.
Ekki er vitað hver útkoman var, en
tilraunin er virðingarverð.
Nýi hafnarstjórinn íKeflavík:
„Gústi hæfastur
til að hella
upp á könnuna”
„Það er kunnugt að starfslið
hafnarinnar ver mikiu af sínum tima í
kaffidrykkju. Það er því mjög mikil-
vægt að kaffið sé gott. Gústi hefur
tvímælalaust mesta reynslu af
þessum umsækjendum í að hella uþp
á könnuna. Þessu hefur ráðherrann
greinilega gert sér grein fyrir, þótt
hafnarnefnd sæist yfir það.”
Þetta innlegg i umræðu Keflvik-
inga um veitingu embættis hafnar-
stjóa þar i bæ á dögunum kemur frá
Ólafí Björnssyni, bæjarfulltrúa
Alþýðuflokksins, og birtist i Suður-
nesjatíðindum. Ragnar Arnalds veitti
Ágústi Jóhannessyni hafnarstjóra
stöðuna en hafnarstjórn mælti með
tveimur öðrum umsækjendum.
Ágúst hefur aldrei starfað
við höfnina, en gengur með flokks-
skírteini í Alþýðubandalaginu upp á
vasann.
„Mér sýnist að ráðherrann hafi
með þessu vali á hafnarstjóra lagt
höfuðáherslu á vellíöan starfsmanna
hafnarinnar, eins og vænta mátti af
manni meö hans lífsskoðun,” segir
ÓlafurBjörnsson.
„Ég tel að menn hafi ekki reynslu í
starfi nema þeir hafi gegnt því," segir
nýi hafnarstjórinn í Suðurnesja-
tiðindum, er hann er spurður hvort
ekki hafi verið gengið fram hjá
hæfari mönnum við stöðuveitinguna.
„Það væri ýmislegt hægt að segja um
þaö sem þyrlað hefur verið upp I
sorpblöðum, en ég legg mig ekki
niður við að svara þvi,” segir hafnar-
stjórinn ennfremur.
-ARH
Hættulaus galli finnst íDC-10 þotu
Flugleiða: r
ÞARFINOKKRA
DAGA VIÐGERÐ
—til að koma ívegfyrir vatnsleka í
farþegarými
„Þegar allar DC-10 þotur voru
kyrrsettar í Bandaríkjunum fram-
kvæmdu Douglas-verksmiðjurnar
lagfæringar sem þær töldu nægilegar
til að koma í veg fyrir vatnslekann í
farþegarýminu, en reynslan hefur
sýnt að ekki var nægilega aðgert þótt
dregið hafi verulega úr lekanum,”
sagði Leifur Magnússon, flug-
rekstrarstjóri Flugleiða, í viðtali við
DB í gær.
Allnokkrir hafa komið að máli við
blaðið og skýrt svo frá að vatn hafi
dropið á þá um borð i „tíunni”,
einkum nálægt dyrum.
Sagði Leifur þetta stafa af galla í
einangrun í þessari og nokkrum
öðrum þotum, sem framleiddar voru
um svipað leyti. Einnig hefði loft-
streymi um borð áhrif þar á.
Tók hann skýrt fram að leki þessi
væri aigerlega hættulaus hvað öryggi
vélarinnar snerti og væri öllum við-
komandi flugmálayfirvöldum
kunnugt um eðli hans.
Þá sagði hann að verksmiðjurnar
mundu endanlega lagfæra málið
jafnskjótt og Flugleiðir sæu sér fært
að missa vélina úr rekstri í þá þrjá til
fjóra daga, sem talið er að viðgerð
taki. Það yrði sennilega með
haustinu, að lokinni sumarumferð-
inni.
-GS
Fegrið heimilið með USTGLERl
_ blýlagt gler í ótal mynstrum og
TDvaliö i svalahurðir, forstofu-
hurðir, útihurðir og alls konar
elugga til skrauts og nytja.
Vtoumglereftirpöntunumrneð
stuttum afgreiðslufresti - Hnng
ið eða komið vestur á Granda og
kynnið ykkur liti, mynstur og
verð. Gerum föst verðtilboð.
Athugið: Blýlagt gler má tvöfalda
i verkíjjniðju eða setja fyrir mnan
tvöfalt gVr. '
Nýjung: Úrval af fallegum ljtea-
krónum með blýlögðu LIST-
GLERI
LISTGLER
^^^^&widagarð^^mi29412.