Dagblaðið - 30.08.1979, Side 2
2
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 1979.
Enn um Kastljós á Jan Mayen-málið:
HINN HOGVÆRIEINAR GAT
EKKIORÐA BUNDIZT...
Kinar Jónsson, Hraunbæ 182, skrif-
ar:
Markús B. Þorgeirsson sendir mér
kveðju sína i Dagblaðinu laugardag-
inn 25. ágúst sl., og var tilefnið gagn-
rýni undirritaðs á stjórnun Sigrúnar
Stefánsdóttur á þætti um Jan Mayen
málið. — Annars hefur griðastaður
„Markúsarguðspjallanna” löngum
verið i Þjóðviljanum, ef andað hefur
verið á einhverja lærisveina félaga
Stalíns sáluga & Samlede Venner
síðari tíma.
Um hæfni Sigrúnar til þáttastjórn-
unar mun ég fátt eitt segja að þessu
sinni, en minni þóá tvennt:
a) Einkaþátt hennar með Lúðvík
Jósepssyni á næstliðnum vetri. Sá
þáttur olli rauðglóandi simalinum hjá
sjónvarpinu (sbr. Vísi og Dagbl.),
sem von var, þar sem til umræðu var
deilumál, en Lúðvík látinn tala einn
allan tímann.
b) í annan stað minni ég á, að í Jan
Mayen þættinum gat hinn hógværi
maður Einar Ágústsson, fyrrv. utan-
ríkisráðherra, ekki orða bundizt, og
skaut inn, eftir eina langloku Ólafs
Ragnars, og sagði þá m.a.: „Ég hélt
nú, að þetta ætti að vera umræðu-
þáttur — Sýnir þetta hvernig
stjórnun þáttarins var, þegar jafn-
háttvís og prúður maður og E.A.
telur sig knúinn til gagnrýni.
Prófkjör betra en
klíkuaðferðir
Nú gæti ég látið máli mínu að
mestu lokið, enda er þess vænzt, að
lesendabréf séu stutt. En hið furðu-
lega gerist, að M.B.Þ. fer í guðspjalli
sínu að tala um hvað Alþýðuflokks-
menn hafi verið vondir við Jón Ár-
mann Héðinsson, fyrrv. alþingis-
mann. — Nú er ég ekki Alþýðu-
flokksmaður og frambjóðendaval
þeirra er mér með öllu óviðkomandi.
En hitt vil ég segja, að prófkjör til
vals á frambjóðendum virðist mér
sýnu betra en gamla klíkuaðferðin.
Kjartan Jóhannsson, sem í prófkjöri
var valinn i efsta sæti Alþýðuflokks-
ins á Reykjanesi, hefi ég aldrei séð,
svo að ég viti (nema í sjónvarpi), en
mér virðist maðurinn vera skarp-
greindur og jafnframt hófsamur i
skoðunum og víðsýnn.
Um Ólaf Ragnar verðum við
Markús líklega seint sammála, mér
virðast verk hans sum einkennast af
hroðvirkni og flumbruhætti (sbr.
landsfræga hlustendakönnun ríkisút-
varpsins, fyrir fáum árum), sem ég
„Eg hélt nú að þetta ætti að vera um-*
ræðuþáttur____” varð Einari Ágústs-
syni að orði í Kastljósþættinum að
loknum fyrirlestri Ölafs Ragnars.
hyggst gera betri skil siðar, ásamt
þeim sérstæða eiginleika að geta
hvarvetna, þar sem komið er við, efnt
til illinda (t.d. hreytt skætingi í Fær-
eyinga), enda vinsældir mannsins
tæplega í meðallagi, t.a.m. hjástarfs-
fólki alþingis.
Enn um símamálin:
Borgað fyrir þjón-
ustu sem ekki fæst
Atvinnurekandi á Suðurlandi
hringdi:
Pantað viðtal símamálastjóra við
Moggann á laugardaginn varð til að
ég legg orð í belg um símaþjónust-
una. Við á landsbyggðinni búum við
Raddir
lesenda
versnandi símaþjónustu ár frá ári.
Fólk borgar fyrir þjónustu sem það
ekki fær. Sérstakleg kemur þetta hart
niður á atvinnurekendum sem þurfa
mikið að nota sima. Hér i plássinu er
ástandið slíkt, að ef 15—20 manns
taka upp símtól í einu, þá fer allt í
kerfi. Endalaust er bætt númerum
við stöðina, sem löngu er of lítil.
' Þannig versnar þjónustan við not-
í endur stöðugt, en reksturinn verður
sifellt ódýrari fyrir Póst og síma.
Samræmdur
afgmðslutími
Frá 1. september 1979
verður almennur afgreiðslutími
innlánsstoínana sem hér segir;
Mánudaga til fostudaga
W. 9:15 - 16KX)
Auk þess verða afgreiðslur
flestra innlánsstofhana opnar alla
fimmtudaga
kL 17.-00 - 18KX)
Viðskiptabankar
og sparisjóðir
^ Komið sem oftast til Suðurnesja, er ábending lesanda til „grúppunnar”
Finns Eydal.
hans
Fínt ball hjá
Finni Eydal
Ein úr Keflavík hringdi:
Ég fór á ball í Stapa um helgina
með Hljómsveit Finns Eydal frá
Akureyri. Allir sem ég hef talað við
eru sammála um að það hafi verið
ofsaskemmtilegt ball. Ég vil bara
biðja Finn og félaga að koma sem
oftast til Suðurnesja, og sama á við
um BG-flokkinn frá ísafirði. Áður
fór ég á ball með Brunaliðinu hérna.
Það var ömurlegt. Má ég þá biðja um
meiraaf hinu!
SODASKAPUR
í HÍTARDAL
Leiðsögumaður hringdi:
Hítardalur við Hítarvatn er einn af
fallegustu stöðum á Vesturlandi.
Umgengni margra ferðamanna þar er
hins vegar slik að engu tali tekur.
Plastdrasl og úrgangur er út um allt, i
vatninu, í gjótum og á viðavangi. Ég
hlýt að gera Veiðifélagið Grettistak,
sem selur veiðileyfi í Hítarvatn, að
nokkru ábyrgt fyrir umgengninni.
Margir ganga mjög vel um, en það er
ekki nóg. Svörtu sauðirnir eru allt of
margir.
Strætóbflstjórar:
„Framúrskarandi kurteisir”
Málfríður Magnúsdóttir, Miklubraut
72, hríngdi:
Ég er mikið fötluð og hef þurft að
taka leigubíla til lækna til skamms
tíma og endist þá örorkulífeyririnn
skammt. En ég er farin að komast
með strætó þegar logn er, ef einhver
góðhjartaður hjálpar mér yfir götu.
Bílstjórar strætisvagnanna hafa sýnt
mér framúrskarandi kurteisi og
þolinmæði. Ég er þess vitandi að ég
tef áætlun þeirra, en minar innileg-
ustu þakkir.
Og hér með læt ég nafn mitt fylgja
og skammst mín ekki fyrir eins og
, .Samverjinn” virðist gera sem
skammast út í bílstjóra strætó í DB á
mánudaginn.
Ómakiega vegið að vagnstjórum
Stefán Guðjónsson hringdi:
í bréfi á lesendasiðunni á mánudag
var ráðizt að mínum dómi að stétt
strætisvagnastjóra i heild. Bréfritari
hafði greinilega lent í því að fyrirhitta
óliðlegan bílstjóra og dæmir, nafn-
laust, stéttina út frá því. Þarna finnst
mér ómaklega að farið. Að fenginni
minni reynslu eru strætisvagnstjórar
yfirleitt mjög kurteisir og einstaklega
liprir. Vagnstjórar i Reykjavík eru
mjög jafngóðir en vagnstjórar í
Kópavogi bera þó af hvað alla þjón-
ustu varðar. Þessir menn eiga hrós
skilið en ekki skammir.
.