Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 30.08.1979, Qupperneq 5

Dagblaðið - 30.08.1979, Qupperneq 5
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 1979. 5 / ------- -----------^ ........ ............ ........... ........... Töskuheildsalarnir: „Engar tillögur um breytingu nema víðtæk samstaða náist” segir Hjörleifur Guttormsson, iðnaðarráðherra „Þessi úthlutun innflutningsleyfa viðskiptaráðuneytisins er heldur hvimleið,” sagði Hjörleifur Gutt- ormsson iðnaðarráðherra i viðtali við DB. „Almennt hefur verið til umræðu oftar en einu sinni á undanförnum árum að leggja sérstakt gjald á henn- an innflutning og hann þá gefinn al- veg frjáls,” sagði ráðherra. Frétta- maður spurði hann hver afstaða iðn- aðarráðuneytisins væri til skömmt- unar innflutningsleyfa fyrir kökum, kexi og sælgæti. Viðskiptaráðherra, Svavar Gests- son, sagði í viðtali við DB fyrir skömmu að hann hefði sent þetta mál til iðnaðarráðuneytisins til athugunar og könnunar um afstöðu. „Hugmyndir um að gefa þennan innflutning frjálsan eru til,” sagði iðnaðarráðherra, ,,en þær hafa mætt andstöðu hjá innlendum framlcið- endum þessara vörutegunda. Þeir hafa talið að þá hafi vantað trygg- ingu fyrir aðföngum til sinnar fram- leiðslu, sem miðaðist við heimsmark- aðsverð. Til dæmis má í því sam- bandi nefna mjólkurduft. Verðlag á því er i höndum nefndar sem fram- leiðendur hafa ekki tryggingu frá fyrir þvi hvert verðið er eða hvert það verði,” sagði ráðherra. „Með hliðsjón af þeirri hugmynd að leggja sérstakt gjald á þennan inn- flutning ber þess að gæta, að friverzl- unarsamtökin gera ráð fyrir þvi að hætt verði að leggja gjald á þessa vöru og aðrar landbúnaðarvörur. Við höfum ekki viljað gera tillögur nema víðtæk samstaða næðist um þær. Þaðerekki vænlegt að fitja upp á tillögugerð nema góð og víðtæk samstaða sé með þeim sem málið varðar,” sagði Hjörleifur Guttorms- son. Það cr þvi Ijóst að í iðnaðarráðu- ncytinu eru engar tillögur i deiglunni sem leysi af hólmi úthlutunaraðferð- ina. Ekki virðist hcldur liklegt að þcirra sé von að öllu óbreyttu. - BS Frumleg orkuhugmynd íBqlungarvík: Ylja upp með peningalykt ,, Við höfum verið að smiða tilrauna- tæki til þess að sjá hvaða grundvöllur er fyrir þessari hugmynd,” sagði Aage Steinsson, yfirmaður tæknideildar Orkubús Vestfjarða. Þaðsem við Aage var rætt um er væntanleg fjarvarma- veita í Bolungarvík. Þessi veita er óvenjuleg að þvi leyti að i viðbót við að nota raforku á að nota orku frá Síldar- og fiskimjölsverksmiðjunni. „Hugmyndin er að reyna að ná hit- anum úr reyknum og að nota hann að einhverju leyti. Ef tilraunin, sem hafin verður fljótlega, gefur góða raun er hreint ekki um svo^Iitið mál að ræða því verksmiðjan notar um 6 megavött af orku og fer mest af henni beint út i buskann. Þar sem reisa á fjarvarma- veitu hvort eð er þegar byggðalínan kemur til Bolungarvikur ætlum við að kanna hvort þá er ekki hægt að nota eitthvað af þessari vannýttu orku," sagði Aage. -»S Ibúar Neskaupstaðar leggja yfirlcitt mikið upp úr snyrtilegu umnvern húsa sinna svo bærinn er i heild hinn snyrtilegasti. Víða er erfitt um vik eða þar sem snarbrattar hliðar cru. Ekki setja menn það þó fyrir sig þegar þeir þekja lóðir sínar, heldur negla þökurnar fastar unz þær skjóta rótum svo þær skríði ekki undan hallanum. Sundlaugin sjálf er nú galtóm og húsið mettað ste.vpu og ryki. Eftir um mánuð verður allt komið i samt lag eftir gagngerar endurbætur. DB-mynd R.Th. Hreinsunarherferð í Sundhöllinni — opnuð aftur um mánaðamót september/október Sundhöllin i Reykjavík hefur nú verið lokuð í rúma ivo mánuði vegna hreinsunar og viðgerða á húsinu. Að sögn starfsfólks við hreinsunina hefur safnazt mikill kisill og óhrein- indi á flisar, bæði á veggjum og á gólfi. Hefur fólk í bæjarvinnunni verið að þrifa flísarnar allt frá lokun sundhallarinnar i júni. Sagði ein starfsstúlkan að starfið gengi fremur seint vegna þess hve umfangsmikið verkið væri. Karla- klefinn var úr sér genginn, að sögn eins starfsmanns, og var þar allt brolið niður sem hugsazt gat. Er nú verið að múra veggi sturtuklefans og setja nýjar flisac á veggi. Kvennasturtuklcrinn verður ckki tekinn þetta árið cn hugsanlcga næsta sumar. Áætlað er að Sundhöllin vcrði opnuð al'tur hrcin og fin um ntánaðamót sept./okt. - F.I.A Streitan er allt að drepa — skipulegarað- geröirtil björgunar ákveðnar „í hinu tæknivædda þjóðfélagi fjölgar stöðugt margvíslegum sjúkdómum sem tengdir cru streitu og spennu,” sagði Geir Viðar Vilhjálmsson sálfræðingur í viðtali við DB. Hann bætti við: „í santa mæli verður stöðugt brýnni þörf fyrir sérhvern ein- stakling á jafnvægi milli álags og hvíldar, spennu og slökunar.” Á dagskrá fræðslustarfs Rann- sóknarstofnunar vitundarinnar á síðari hluta þessa árs eru nám- skeið í slökun og sjálfs- stjórn.Einnig er fyrirhuguð út- gáfa fræðslurits um þetta efni. Námskeiðin hefjast snemma i september eða við fyrstu hentug- leika, að sögn Geirs Viðars. Á þeim verður gerð grein fyrir mikilvægi slökunar og leiðum til streituleysandi lifnaðarhátta. - BS niiii " n^iiió'II*1111 . i - ■ usiupW"' ,.\vy lætum öll í sjóræningjagöllum jefum hvergi eftir! Sjóræningjadansleikur nk. laugardagskvöld kl. 23.00 - 03.00 um borð í Akraborginni. Falinn Fjársjóður um borð - góður úttektarseðill í Óðali handa þeim sem fundvísastur reynist. Miðar seldir í skrifstofunni, sími 11630, eða í Óðali á kvöldin. Kvennabúrið sneisafullt (ath. að Arabíski prinsinn og geldingarnir verða ekki með í ferðinni !!) - notið þetta einstaka tækifæri. Ýmislegt gert til skemmtunar og frábærar uppákomur fyrirhugaðar. Koddaslagur og skylmingar ef vel tekst til.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.