Dagblaðið - 30.08.1979, Page 12
12
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 1979.
Volvo 244 GL árg. 1979 m/vökvastýri, aflbremsur.
Litur gullsanseraður. Ekinn aðeins 9.500 km. Upp-
lýsingar í síma 43559.
Fyrst kyssirðu hús
ráðanda og síðan
ferðu úr skónum
Til áskrifenda DB
á Neskaupstað
Umboðsmaður Dagbtaðsins á Neskaupstað, Þor-
leifur G. Jónsson, er fluttur að Nesbakka 13.
Símanúmer er óbreytt, 9 7- 76 72.
Umboðið Neskaupstað
Kampútseufundur
Fundur um málcfni Kampútscu verður í kvöld kl. 20.30 í
félagsstofnun stúdenta.
Á dagskrá m.a.:
Kvikmynd frá Kampútseu sem útvarpsráð
neitaði að birta í sjónvarpinu.
Rætt verður um stuðningsstarf við baráttu
Kampútseumanna gegn hernámi Víetnama.
Undirbúningshópurinn.
Veiðileyfi
í Haukadalsá efri. Kr. 10 þús. fyrir stöngina á
dag.
Upplýsingar hjá ÍVARI, Skipholti 21, símar
23188 og 27799.
Skrifstofustarf
Öskum eftir að ráða nú þegar eða sem fyrst
starfskraft á skrifstofu. Góð vélritunarkunnátta
nauðsynleg, þarf að geta unnið sjálfstætt. Tilboð
merkt Ákveðin, sendist auglýsingadeild Dag-
blaðsins, Þverholti 11, fyrir 4. september.
Skiptinemarnir ótrúlega fljótir að ná tökum á málinu.
Einn varð efstur í íslenzku á jólapróf i á Eiðum.
Sex boðnir velkomnir sextán kvaddir
„Við stefnum að því að reyna að
auka samskiptin við þriðja heiminn.
Við reynum að vinna að þvi að nemar
þaðan komi hingað til þess að fara í
verknámsskóla hér. ísland er eitt af
fáum Evrópulöndum sem hefur mjög
góða verknámsskóla til þess að taka
við þeim,” sagði Erlendur Magnús-
son, framkvæmdastjóri skrifstofu
skiptinemasambandsins AFS á ís-
landi í spjalli við DB. Sambandið
gekkst fyrir svokölluðu ,,opnu húsi”
í Bústöðum í vikunni. Þá voru boðnir
velkomnir sex erlendir nemar sem
hingað eru komnir til ársdvalar.
Sumarnemarnir sextán, sem hér hafa
dvalið i tvo mánuði, voru kvaddir.
Þeir voru allir frá Bandaríkjunum.
Nýkomnu nemarnir eru piltur frá
Brasilíu, piltur og stúlka frá Banda-
ríkjunum, stúlkur frá Sviss, Belgiu og
Frakklandi.
Rúmlega þrjú hundruð íslenzk
ungmenni hafa farið utan á vegum
AFS. Hafa íslendingar tekið á móti
rúmlega hundrað erlendum nemum,
þar af langflestum á sl. fimm árum.
Tuttugu og þrír islenzkir skipti-
nemar verða erlendis næsta ár. Þar af
er einn í Malasíu, tveir í Frakklandi,
einn á Spáni, einn i Austurríki, einn í
Sviss og sautján i Bandaríkjunum.
Tuttugu og tveir islenzkir nemar voru'
erlendis sl. ár., allir í Bandaríkjuntim
utan einn, sem var t Hollandi. Fyrstu
íslenzku skiptinemamir fóru utan
árið 1957 og tekið var á móti fyrstu
nemunum hér á landi árið 1961. —
Formaður AFS á íslandi er Kristín
Sigurðardóttir.
Nemarnir yfirleitt
mjög ánægðir
Nær undantekningarlaust hefur
dvöl skiptinemanna mælzt mjög vel
fyrir og þeir verið fljótir að aðlagast
ólíkum aðstæðum hér á landi.
íslenzku nemarnir sem dvalið hafa
ytra hafa einnig getið sér gott orð.
Fjölskyldur bindast ævilöngum vin-
áttuböndum, þegar þær taka á móti
og annast börn hver annarrar, eins og
um eigin börn sé að ræða.
Fljótir að ná
íslenzkunni
Erlendu skiptinemarnir eru ótrú-
lega fljótir að ná tökum á íslenzk-
unni. Einn sumarnemanna, stúlka er
hér hefur dvalið undanfarna tvo
mánuði sagðist vel geta fylgzt með
samræðum á íslenzku þótt ekki geti
hún talað hana. Nemarnir eru allir í
skiptinemann og hann væri af eigin
holdi og blóði. Hann þarf að vísu að
fá eigið rúm til þess að sofa í, önnur
skilyrði eru í rauninni ekki sett.
Glöggt er gestsaugað
Sumarnemarnir sem eru nú á
förum voru látnir skrifa eins konar
ritgerðir um dvöl sína hér. Erlendur
las kafla úr nokkrum þessara rit-
smíða, sem voru sérlega skemmtileg-
ir. Skulu þeir raktir hér á eftir.
„Það fyrsta sem þú gerir, þegar þú
Það var heilmikil þröng á dansgólfinu, dynjandi diskómúsik og blikkandi Ijós.
skólum, ýmist menntaskólum eða
fjölbrautaskólum og fylgjast með
námi heimabarna.
Margir halda að skilyrði til þess að
taka við skiptinema séu mjög ströng,
að mikil fjárráð þurfi að koma til.
Þetta er mesti misskilningur. Það
þarf aðeins að vera aðstaða fyrir
hendi til þess að láta fara eins um
Sumarmenmrmr, scm nu eru a förum. rrá vinstri efti röð: Bonnie, Laura, Lynn, Mark, Jean, Ron, Christine. Frá vinstri
neðri röð: Linda, Katherine, Lisa, Kim, Patrice, Carrie og Karen. Oll frá Bandaríkjunum.