Dagblaðið - 30.08.1979, Qupperneq 17
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 1979.
17
Eftir að hafa fylgst með myndlist
Níelsar Hafstein undanfarin ár,
finnst a.m.k. undirrituðum að í
henni hafi jafnan togast á tvenns
konar sjónarmið. Annars vegar er
löngun listamannsins til að koma
áhorfendum í opna skjöldu, hrista
upp í þeim með fjarstæðum og nýj-
ungum, en hins vegar er sú árátta
hans að vinna snoturlega út frá
ákveðnu mynstri, — út frá hreinu
formfræðilegu sjónarmiði, eða setja
upp nettilegar samstæður með til-
brigðum. Vandinn er sá að mynd-
kerfi (system) slævir að nokkru leyti
viðbrögð áhorfenda, þar sem það
þrífst að vissu marki á endurtekning-
um. Stöku sinnum er þó eins og
þessir tveir þræðir nálgist hvor annan
í verkum Níelsar, t.a.m. i stykki því
sem er til sýnis i Antwerpen þessa
dagana, en oftast virðist verða tog-
streita þarna á milli.
Tréstautar
En Níels er ekki eini maðurinn sem
glímir við þetta vandamál. Hann
heldur nú fjórðu einkasýningu sína á
göngum og í porti Kjarvalsstaða og
stendur hún til 9. september. Þarna
eru að vísu fá verk sem þó sóma sér
vel, en engar skýringar eða leiðbein-
ingar fylgja þeim. Finnst mér það
vera glappaskot og beinlínis van-
virðing við áhugafólk sem af ein-
lægni vill kynnast hugmyndum
myndlistarmanna.
En hér eru þær tvær hliðar á Níelsi
sem áður var getið. Tvö verkanna eru
drög eða „makettur” úr tré, að
miklum einingaskúlptúrum sem
þyrftu ansi stórt svæði fullvaxnir.
Annað þeirra samanstendur af 223
tilbrigðum um sama stefið, strending
og misjafnlega klofinn ferning og eru
þessi tilbrigði sett upp í 9 kerfi,
Svíar hrífast
af norskri list
Nettilegar samstæður
Níels Hafstein að Kjarvalsstöðum
Svíar hafa hingað til ekki verið
ýkjá spenntir fyrir norskri myndlist,
en það orð hefur farið af Norðmönn-
um að þeir fylgdust ekki með tíman-
um í þeim málum. En nú stendur yfir
sýning á norskri nýlist í Kulturhuset í
Stokkhólmi er nefnist „Norskt 70-tal
— Tendenser” og bregður svo við að
Sviar eru uppfullir af áhuga og hrifn-
ingu yfir listhræringum í Noregi. Að
vísu er það mál þeirra sem skrifa i
sænsk blöð að sýningin sé gloppótt,
„eins og fjöll og dalir”, en þar sem
hún sé best hafi hún til að bera hugar-
flug og frumkraft sem sænska list
skorti tilfinnanlega. Okkar eigin list
er ein flatneskja, segja Sviar og dæsa.
Á sýningunni í Kulturhuset eru
margar gerðir myndlistar, en einna
mesta athygli hafa vakið verk málar-
ans Odd Nerdrum. Hann málar í
hreinum barokkstíl og minnir um
margt á Caravaggio, en myndefnið
sjálft er í hæsta máta nútímalegt og
jafnvel stórpólitískt. Fylgir hér með
mynd af málverki Nerdrums,
„Morðið á Andreas Baader”, en hér
er átt við hinn þýska hryðjuverka-
mann.
einhverra hluta vegna. Hitt „kerfis-
verkið” er mun minna og gengur út á
misjafna sneiðingu af lóðréttum
stautum eftir áætlun.
Myndræn dæmi
Sjálfsagt er hægt að rekja kerfis-
myndlist af þessu tagi allar götur
aftur til De Stijl í Hollandi (1920—
30), en nærtækust er þó endurreisn
hennar í reiknikúnstum listamanna
eins og Sol Le Witt og félaga hans í
Minimal listinni, þar sem öll áhersla
er lögð á tilfæringar með hrein þrívíð
form eftir föstum reglum.
Sjálfum finnst mér slík list oft og
tíðum heldur kaldranaleg og laus við
persónulegt svipmót, en hún hefur
hlutverki aðgegna fyrir það. Líflegri
takta er svo að finna í öðrum verkum
á sýningu Níelsar. Það er t.d. auðséð
á drumbum þeim sem liggja í portinu
,að tilviljanir og leikgleði hafa ráðið
nokkru um framvindu þess verks, —
Níels Hafstein — Verk.
einingar eru mislangar og það er
flikkað upp á þær með skærum lit-
um. Hér er sjálfsagt verið að spila
upp á hið óvænta fremur en formlega
samræmingu, — en best finnst mér
þó hið einfalda stykki sem stendur í
kaffistofu. Tveir drumbar standa
samsíða á stálgrind, en við þá eru fest
tvö sporjárn í förum sínum sem þó
eru mismunandi löguð. Einfaldleiki,
.hugkvæmni og fyndni, — allt fer
þetta saman. Um tvennu á veggnum
hef ég svo lítið að segja og finnst of
mikið við haft í útlistun á augljósu
myndrænu dæmi.
Þótt þetta sé gloppótt sýning, þá er
hún uppörvandi og vonandi merki
um það að íslenskur skúlptúr sé að
risa úröskustónni.
-AL
MMBIABIB
Umboðiö Neskaupstað óskar eftir blað-
burðarbörnum. Vinsamlegast hafið sam-
band við umboðsmann ísíma 7672.
Umboðið Neskaupstað.
PEUCEOT
Yfirbyggður sendifcrðabill, mjög lipur í akstri, gangviss og
meðaleyðsla í innanbæjarakstri 91 á 100 km.
Notaðir bíiar til sölu: 504 GL '78 — 504 GL '77
504 USA GERÐ ÁRG. '76
504 L ÁRG. '74
504 STATION ÁRG. '74.
HAFRAFELL H/F
VAGNHÖFÐA 7 SIMI 85211.
Stytkið og fegrið líkamann
Byrjum aftur eftir sumarfrí í endurbættum húsakynnum.l
Ný námskeið hefjast 3. september.
Leikfimi fyrir konur á öllum aldri.
Hressandi — mýkjandi — styrkjandi — ásamt yoga og megrandi
æfingum.
Sértimar fyrir konur sem vilja léttast um 15 kg eða meira.
Vigtun — mæling — sturtur — Ijós — gufuböð — kaffi.
Innritun og upplýsingar alla virka daga milli kl. 13 og 22 í síma
83295.
© } Júdódeild Armanns
Ármúia 32.
0tS«*flner hufi1'
LONDON
Austurstræti 14 — Sími 14260.'