Dagblaðið - 30.08.1979, Side 27
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 1979.
27
BÆJARINS
BEZTU
Stutt kynning á því athyglis-
verðasta sem kvikmyndahús
borgarinnar sýna
Svartir og hvítir
Leikstjóri: Jean-Jacques Annaud, garð (Frakklandi 1976.
Sýningarstaður: Háskólabió.
Hér er á ferðinni bráðfyndin ádeilumynd sem fjallar um þörf og til-
gang styrjalda. Myndin gerist árið 1915 á Filabeinsströndinni. Þar
dvelst hópur Frakka ásamt örfáum Þjóðverjum meðal innfæddra.
AUt er í sátt og samlyndi þangað til fréttir berast þess efnis að
Þýzkaland og Frakkland heyi styrjöld sín á mUli. Það verður uppi
fótur og fit í nýlendunni og Frakkarnir ákveða að láta ekki sitt eftir
liggja og ráðast á Þjóðverjana. Þeir hafa þó ekki erindi sem erf-
iði. Myndin nær vel andrúmslofti nýlendunnar og leikstjórinn
dregur fram mjög háðska mynd af hernaðarbrölti Evrópubúanna
sem innfæddir skilja lítið í. Þessi mynd hefur víða hlotið verðlaun
og hlaut m .a. Oscarinn 1977 sem bezta erlenda myndin.
A krossgötum
Leikstjóri: Herbert Ross, gerð í Bandarikjunum 1977
Sýningarstaður Nýja bió
Emma og Dídi eru gamlar vinkonur. Þær hófu báðar nám í ballett
og störfuðu síðan saman í dansinum. En leiðir þeirra skildu fljót-
lega. Didi stofnaði heimili en Emma hélt áfram dansinum og náði
jfrægð og frama. Nú hittast þær aftur mörgum árum seinna og
ýmislegt kemur fram á sjónarsviðið sem þær höfðu geymt en ekki
gleymt öll þessi ár. Myndin fjallar um ballett meira eða minna og í
jmyndinni kemur fram hópur mjög þekktra ballettdansara. Helzti
ókostur myndarinnar er einhæfni hennar og oft á tiðum frekar
einföld sviðsmynd. Á móti vegur góður leikur þeirra Shirley
jMacLaine og Anne Bancroft. Fyrir þá sem hafa gaman af dansi og
þá sérlega ballett er myndin Á krossgötum hvalreki en þeim sem
unna bessari Iistgrein lítið er bent á að sjá eitthvað annað.
Stefnt á brattann
Leikstjóri: Michael Clinich, gerð I Bandarikjunum 1978.
Sýnbtgarstaður: Laugarósbló.
jÞeir sem sáu Linu Wertmilller myndina The Seduction of Mimi um
járið kannast eflaust við söguhetjuna i þessari mynd. Búið er að
snúa efniviðnum upp á bandariskt þjóðfélag í stað þess ítalska. Að
jöðru leyti eiga þessar myndir lítið sameiginlegt. Stefnt á brattann er
‘Richard Pryor mynd. Fyrir utan að leika þrjú hlutverk fer hann á
'kostum i þeim „eins og villtur göltur sem sleppt er lausum í garði”
jsvo vitnað sé í umsögn um myndina í Newsweek. Helzti kostur
myndarinnar er gálgahúmor hennar þar sem hann nýtur sín en oft á
tíðum er hann yfirdrifinn. Samt sem áður er um dágóða skemmtun
að ræða fyrir þásem kunnaaðmeta svona fyndni.
Þeir kölluðu manninn Hest
Leikstjóri: Irvin Kershner, gerð ( Bandarikjunum 1976.
Sýningarstaður: Tónabió.
Fyrir rúmum sjö árum frumsýndi Hafnarbíó myndina I ánauð hjá
indíánum sem fjallaði um brezka lávarðinn John Morgan en hann
var tekinn til fanga í óbyggðum Dakota af indíánum 1821 en varð
siðar höfðingi meðal þeirra. Myndin endaði þegar hann sneri aftur
til Englands. Síðan var gerð framhaldsmynd og er hún nú sýnd í
Tónabíói. Lávarðurinn undi sér illa í Englandi og lagði þvi aftur af
stað vestur yfir haf. En margt var breytt. Grávörufyrirtæki hafði
hrakið indíánana burtu. Morgan tókst að ftnna þá sem eftir voru og
leiddi þá fram til sigurs gegn andstæðingum þeirra. Framhalds-
'myndin hefur tekizt vonum framar og er bæði vel unnin og vel leik-,
in. Þeir sem sáu fyrri myndina ættu því ekki að verða fyrir von-
'jbrigðum. .
Dádýrabaninn
Lejkstjórí: Mkhael Csnino, garð I BandsrSijununi 197S.
Sýnmgarstaður: Ragnboginn
Fáar myndir hafa hlotið meira umtal undanfarin ár en Dádýraban-
inn. Þótt allir séu ekki á einu máli um ágæti myndarinnar þá hefur
hún fengið íjölda verðlauna og endurvakið umræðurnar um Viet-
namstriðið. Myndin fjallar um þrjá vinnufélaga sem eru sendir til
Víetnam. Þeir eru teknir þar til fanga af Vietcong og ganga í gegn-
um ýmsar andlegar og líkamlegar hörmungar. Þeim tekst að flýja
en fangavist þeirra hafði gert þá meira eða minna að andlegum
krypplingum. Michael Cimino er ekki alger nýliði i kvikmyndagerð.
Hann á að baki m.a. handritin að myndunum Silent Running og
Magnum Force auk þess sem hann leikstýrði Clint Eastwood mynd-
inni Thunderbolt and Lightfoot.
Lesendur eru hvattir til að senda kvik-
myndadálki DB línu, hafi þeir áhuga á ein-
hverri vitneskju um kvikmyndir og kvik-
myndaiðnaðinn. Heimilisfangið er: Kvik-
myndir, Dagblaðið, Síðumúla 12, Rvk.
«
Útvarp
Sjónvarp
i-----------------------------
LEIKRIT VIKUNNAR - útvarp kl. 20.40:
Allt gert fyrir peninga
-jafnvelkonanseld
Sparidon Nikolajevits er blaða-
maður. Hann er góður vinur Rogov
fjölskyldunnar, einkum þó konu
Rogovs, Lísu Mikhailóvnu. Hún á
raunar fleiri aðdáendur, og von er að
slikt fari í skapið á Rogov. En hann
þarf á peningum að halda og geti hann
grætt á konu sinni hikar hahn ekki við
að selja hana.
Um þetta fjallar leikrit kvöldsins,
sem flutt verður í útvarpi í kvöld kl.
20.40. Leikritið er í léttum dúr og
nefnist það Maðurinn sem seldi konuna
sína. Leikritið er byggt á sögu eftir
'Anton Tsjekhov og er þýðandi Ólafur
Jónsson.
Höfundurinn Anton Pavlovitsj
Tsjekhov fæddist í Taganrog i Suður-
Rússlandi árið 1860. Hann stundaði
nám í læknisfræði og fór snemma að
skrifa í blöð og tímarit. Tsjekhov
samdi fjögur stór leikrit og allmörg
smærri, en auk þess fjölda smásagna,
sem margar hverjar hafa verið þýddar á
íslenzku. Um margra ára skeið hafði
Tsjekhov nána samvinnu við Listaleik-
húsið í Moskvu, og ein af leikkonum
þess varð eiginkona hans.
Anton Tsjekhov veiktist af berklum
á unga aldri og barðist hann löngum
við þann sjúkdóm, unz hann lézt
sumarið 1904 i Badenweiler í Þýzka-
landi. Útvarpið hefur flutt allmörg
leikrit eftir Tsjekhov, og nokkur hafa
verið sýnd hér á leiksviði.
Leikstjóri er Helgi Skúlason og með
aðalhlutverk fara Steindór Hjörleifs-
son, Helga Bachmann, Gísli Halldórs-
son og Róbert Arnfinnsson. Gítarleik-
ari er Gunnar Jónsson. Flutningur leik-
ritsins tekur tæpar 70 mínútur. Það var
áður á dagskrá útvarpsins árið 1961.
- ELA
Helga Bachmann og Gísli Halldórsson fara með tvö af hlutverkunum I leikriti kvölds-
ins í útvarpi. Hér eru þau I leikritinu Dauðadans sem sýnt var hjá Leikfélagi Reykja-
vfkur 1976.
/-------------\
MIÐDEGISSAGAN
— útvarp kl. 14.30:
Hermaðurinn
fyrrverandi og
barátta hans
l,v>!
Dömur athugið!
Námskeið hefjast 3. sept
Leikfimi: Dag- ,og kvöldtímar, 2svar og 4
sinnum í viku.
Sturtur, sauna, ljós og sápa, sjampó, olíur
kaffi innifalið í verði.
Vigtað fyrir hvern tíma og sér eftir pöntun-
um.
10 tíma nuddkúrar án leikfimi.
Innritun í síma 42360 og 40935.
Þjátfari Svava. Sími 41569.
eba
Heilsurœktin HEBA Auðbrekku 53 sími 42360
Helgi Sæmundsson þýddi söguna Sorrell
og sonur en sonur hans, Sigurður Helga-
son, les.
„Sagan fjallar um fyrrverandi her-
mann og baráttu hans við að koma
undir sig fótunum. Kona hans er farin
frá honum og hann þarf aö ala upp son
þeirra,” sagði Sigurður Helgason, en
hann er nú um þessar mundir að lesa
bókina Sorrell og sonur eftir Warwick
Deepingí útvarpi.
„Þetta er mjög skemmtileg og góð
saga og hermaðurinn fyrrverandi reynir
allt til að sonur hans fái allt það bezta.
Það eru þó ýmsir erfiðleikar sem koma
fram viðuppeldið.
Bókin kom fyrst út árið 1944 og
hefur hún komið einu sinni út eftir það.
Helgi Sæmundsson þýddi bókina.
Önnur bók hefur verið þýdd hér á landi
eftir þennan höfund og var það Leifur
Haraldsson sem það gerði. ”
Alls verða lestrar sögunnar átján, en
það er fjórði lestur sem Sigurður les í
dag kl. 14.30. Hver lestur er hálftíma
Iangur.
- ELA
Innri-Njarðvík
Blaðbera vantar í Innri-Njarðvík. Vinsamlega
hringið í umboðsmann DB íNjarðvík, sími 2249.
ii
íBIAÐIÐ
ÖTSAIA
ínokkSga
BARNAFA TA VERZLUN
Glœsibœ, Alfhcimum 74