Dagblaðið - 22.09.1979, Page 5
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 1979.
5
ðnnur aðalvélin í
Júní eyðilagðist
—bilun varð við samkeyrslu aðalvéla togarans eftir klössun
og breytingar á Akureyri
—Geysilegt tjón, segir Bæjarútgerð Hafnarfjarðar
Önnur aðalvél Hafnarfjarðartog-
arans Júní er talin ónýt eftir óhapp
sem varð á Akureyri sl. laugardags-
kvöld. Togarinn hefur verið undan-
farnar vikur í klössun hjá
Slippstöðinni á Akureyri, jafnframt
því sem vélum skipsins var breytt til
brennslu á svartolíu.
Að sögn Guðmundar Tuliniusar
yfirverkfræðings Slippstöðvarinnar
lét vélin ekki að stjórn er verið var að
samkeyra hraða vélanna tveggja,
áður en kúplað var inn á gírinn. Búið
var að prófa vélarnar báðar, sína í
hvoru lagi, og var þáallt í lagi.
Við samkeyrsluna gerðist það hins
vegar að snúningshraði annarrar
vélarinnar jókst upp úr öllu valdi.
Vélstjórarnir studdu á neyðarstopp
en ekkert gerðist. Þeir ruku þá til og
ætluðu að stoppa vélina með hand-
olíugjöfinni en hún var þegar á núlli
þannig að það var ekki hægt. Það
þurfti því að loka fyrir hvern strokk
sem gæti hafa tekið um eina mínútu.
Vélin skemmdist það mikið að
hún er talin ónýt. ,,Ég get ekki sagt
hvað þarna hefur gerzt,” sagði
Guðmundur, ,,en ljóst er að
brennsluolia hefur komizt inn í
strokkana eftir að búið var að loka.
Það er ekki gott að segja til um hvað
tjónið er mikið en þetta eru tvær
1400 hestafla vélar. Ég tel engar líkur
á því að hægt sé að leiða þetta óhapp
til þeirrar viðgerðar sem við höfum
verið með um borð. Útgerð og
tryggingafélag verða síðan að ákveða
hvað gert verður.”
„Þetta er geysimikið tjón fyrir
okkur,” sagði Baldvin Hermannsson
hjá Bæjarútgerð Hafnarfjarðar, ,,en
á þessu stigi er ekki hægt að áætla
tjónið i krónum. Skipið hefur verið i
viðgerð í 5—6 vikur og ljóst er að
viðgerð tekur a.m.k. tvo mánuði.
Sigla þarf skipinu til Þýzkalands til
viðgerðar en nú eru á Akureyri sér-
Anddyri það og uppgangur á aðra hæð sem SVR fær til umráða. Þarna eiga hundruð manna að biða vagnanna á Lækjar-
torgi, án þess að geta fylgzt með vögnunum út um glugga. DB-myndir Ragnar Th.
VagnstjórarhjáSVR:
„NQTUM AÐ FLYTJA
í ÞESSA KOMPU”
—SVR fær ekkert annað en sameign hússins til umráða
„Við vagnstjórar neitum að flytja
inn í þessa kompu ef ekki verða
gerðar á henni lagfæringar,” sagði
Magnús Skarphéðinsson vagnstjóri
hjá SVR. Kompan sem Magnús
nefnir er herbergi vagnstjóra í
nýbyggingunni við Lækjartorg.
SVR hefur fengið til umráða
miðju þess húss fyrir farþega og
vagnstjóra en eins og DB greindi frá
á fimmtud. er mikil óánægja með
þetta þrönga og borulega húsnæði,
eins og skrifstofustjóri SVR kallaði
það.
,,í þessari kompu á að vera
klósett, kaffilögun og miðasala og er
plássið miklu minna en í skúrnum
sem nú er á torginu,” sagði Magnús.
„Hérna hafa 11 vagnar endastöð á
hverjum klukkutíma og á vakta-
skiptum tvöfaldast fjöldi vagnstjór-
anna og sér hver maður að þeir kom-
ast alls ekki inn.
Þetta er hreint vandræðaástand
allt saman og biðskýli farþeganna er
hreint hneyksli. Strætisvagnarnir áttu
að fá vesturhluta hússins og þar átti
að bjóða upp á svipaða þjónustu og á
Hlemmi. En nú má segja að SVR fái
aðeins sameignina í húsinu til um-
ráða, þ.e. anddyri og uppgang á aðra
hæð. Þarna koma um 16 þúsund far-
þegar á dag og á mestu annatímum
eiga hundruð manna að biða þarna i
anddyrinu, án þess að sjá hvaða
bílar eru að koma og fara.
Borgin hefur samið af sér eða eig-
andi hússins hlunnfarið yfirmenn
borgarinnar í samningum því svona
átti þetta ekki að vera. Þá má nefna
tvíverknað og handarbakavinnu-
brögð við gangstétt. Vagnstjórar fóru
fram á háa gangstétt við bílana
þannig að hægt væri að ganga beint
inn í þá. Því var ekki sinnt. Nú er
hins vegar verið að brjóta upp gang-
stéttina og á að hækka hana. Á þessu
sjást vinnubrögðin í kerfinu.”
DB hafði samband við Birgi ísleif
Gunnarsson, sem var borgarstjóri er
samið var um þetta húsnæði fyrir
strætisvagnana. Birgir sagðist ekki
muna eftir þessu máli í smáatriðum
og því ekki geta greint frá þvi en
vísaði á skjalasafn borgarinnar.
-JH.
Togbátur tekinn í landhelgi
Varðskip stóð togbátinn Sæhrímni
ÍS—lOOað meintum ólöglegum veiðum
út af Dýrafirði um fjögurleytið í
fyrrinótt þar sem báturinn var staddur
eina mílu innan við leyfileg 12 mílna
mörk þar.
í gær var málið tekið fyrir hjá
bæjarfógeta á ísafirði. Síðdegis var
niðurstaða enn óljós þar sem búast
mátti við aðsenda þyrfti matsmenn frá
ísafirði til Þingeyrar til að meta afla og
veiðarfæri Sæhrímnis. Landhelgis-
gæzlan leyfði bátnum að fara þangað
þar sem Þingeyri er heimahöfn.
-GS.
fræðingar frá þýzku MAN-verk-
smiðjunum að athuga vélarnar ásamt
tryggingarmönnum.”
Sjópróf voru vegna málsins á
Akureyri í gær en niðurstaða lá ekki
fyrir og sagðist Baldvin ekki víta á-
stæðu þess að vélin eyðilagðist.
,,Þó held ég að það sé ljóst,”
sagði hann, ,,að skiptin yfir í
svartolíuna eru þessu ekki við-
komandi þar sem vélarnar höfðu
aldrei verið keyrðar á svartolíunni er
óhappið varð. Þetta er sennilega
tryggingamál en engar bótakröfur
hafa verið ákveðnar.”
Fyrir utan kostnað við nýja vél
veldur stöðvun togarans miklu tjóni
hjá útgerðinni. „Það kemur vonandi
ekki til uppsagna vegna þessa hjá
okkur en óhappið eykur þó líkurnar á
því. Við reynum að afla okkur hrá-
efnis annars staðar frá.”
-JH.
ENGIR NEYTENDA-
FULLTRÚAR í
SEXMANNANEFND
Neytendasamtökin mótmæla manna og hagsmlinaaðila land-
„gífurlegum hækkunum á mjólkur- og búnaðarins um þátttöku neytenda í
kjötafurðum”, hvetja neytendur til að nýjustu verðhækkunum”.
athuga vandlega verð og framboð á „Það er krafa Neytendasamtakanna
matvælum og endurskoða matar- að fulltrúar neytenda fái raunveruleg
innkaup sin með hliðsjón af nýjustu áhrif á verðlagningu allra íslenzkra
ráðstöfunum. Samtökin segja að í sex- landbúnaðarafurða, sem ekki lúta
mannanefnd sitji engir fulltrúar markaðslögmálum,” segir í ályktun
neytenda, „þótt svo eigi að heita”,og stjórnarfundar samtakanna.
vísa á bug „fullyrðingum stjórnmála- -ARH.
ÞRÍR HRYGGJAR-
UDIR BROTNUÐU
— maður féll rúma 6 metra í Garðabæ
Tuttugu og fimm ára gamall maður
slasaðist mjög alvarlega á fimmtudag-
inn er hann féll af stillansi við aðal-
skemmu Garða-Héðins í Garðabæ.
Vann hann ásamt fleirum að því að
klæða skemmuna að utan er slysið varð
rétt um kl. 9 um morguninn.
Maðurinn féll rúma sex metra niður
á jörð en hann vann að klæðningunni
uppi ;ndir þaki skemmunnar.
Við læknisskoðun kom í ljós að að
minnsta kosti þrír hryggjarliðir brotn-
uðu og auk þess meiddist maðurinn
innvortis.
Hann liggur nú í gjörgæzludeild
Borgarspítalans. -ASt.
Fossvallarétt og Kaldár-
rétt á morgun—Haf ra-
vatnsrétt á mánudaginn
Fossvallarétt fyrir ofan Lögberg
verður á morgun, sunnudaginn 23.
september. Þann dag verður einnig
réttað í Kaldárrétt fyrir ofan Hafnar-
fjörð og í Gillastaðarétt.
Hafravatnsrétt verður á
mánudaginn 24. sept. og þann dag
verður einnig réttað í Fellsendarétt.
Kollafjarðarrétt verður miðviku-
daginn 26. og ölfusrétt fimmtudaginn
27. september.
-BS.
Buckminster Fuller
\ heimsókn
Buckminster Fuller, arkitekt og lífs-
filósóf, kemur til íslands á morgun og
mun halda opinberan fyrirlestur á
mánudaginn sem hann nefnir Maður-
inn í alheimi. Fuller er einkum þekktur
fyrir hin svonefndu kúluhús sem byggð
eru upp af sérstökum einingum. Hann
kom hér árið 1975 og hélt þá fyrir-
lestra. Buckminster Fuller er sjálf-
menntaður í arkitektúr og hefur hlotið
meira en fjörutíu heiðursdoktorstitla
víðsvegar um heiminn.
Fyrirlesturinn verður í Menningar-
stofnun Bandaríkjanna við Neshaga og
hefst klukkan 20.30.
-ÓG.
Skíðapartí í Dagblaðsbíói
í Dagblaðsbíói á morgun verður
sýnd söngva- og gamanmyndin
Skíðaparti. Þar koma fram frægir og
vinsælir — að minnsta kosti til skamms
tíma — amerískir söngvarar og hljóm-
sveitir, flest blökkumenn.
Sýningin er í Hafnarbíói kl. þrjú á
sunnudag.