Dagblaðið - 22.09.1979, Side 9

Dagblaðið - 22.09.1979, Side 9
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 1979. skákina farsællega til lykta og þar með hafði Álftamýrarskóli i rauninni tryggt sér sigurinn. Árni batt svo endahnútinn á verkið er hann vann sína skák af miklu öryggi. Strákarnir í Álftamýrarskóla reyndust þannig mun sterkari á svellinu, enda eru þeir allir saman þrautþjálfaðir félagar i Taflfélagi Reykjavíkur. Athygli vekur frábær frammistaða Jóhanns Hjartarsonar á 1. borði, en hann sigraði alla andstæðinga sína 5 að tölu. Árangur annarra sveitarmeð- lima varð þessi: 2. borð: Árni Á. Árnason 2 1/2 v. af 5. 3. borð: Páll Þórhallsson 3 1/2 af 5. 4. borð: Lárus Jóhannesson 4 v. af 4. 1. vara- m. Gunnar Freyr Rúnarsson 1 v. af 1. Samhliða keppninni var haldið hraðskákmót og á því sigraði Jóhann Hjartarson örugglega, hlaut 8 v. af 9 mögulegum. Sé árangur fjögurra bestu frá hverjum skóla lagður saman, kemur í Ijós að íslendingarnir eru efstir með 26 v. og Danir fylgja fast áeftir með 23 1/2 v. — Sama röð og i kappskákinni. Álftamýrarskól- inn vann því í raun tvöfaldan sigur á þessu grunnskólamóti og sannaði svo ekki verður um villst að hann hafði besta liðinu á að skipa. Fararstjórar með sveitinni voru Ólafur H. Ólafs- son og Ragnar Júliusson. Við skulum þá að lokum renna yfir tvær skákir úr keppninni. Fyrst er það I. borðs viðureign íslendinga og Dana. Hvítt: Sören Madsen (Danmörk) Svart: Jóhann Hjartarson. Sikileyjarvörn I. e4 cS 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 e6 6. a3. Hafi hvítur hug á að ná betra tafli út úr byrjuninni, þá er þetta svo sannarlega ekki rétta leiðin. E.t.v. hefur hann viljað forðast teóriuskóg- inn sem upp kemur eftir 6. Rdb5 o.s.frv. 6. —Dc7 7. Be3 a6 8. g3 d6 9. Bg2 Bd7 10. 0—0 Be7 11. f4 Rxd4 12. Bxd4 Bc6 13. Dd3 Eðlilegt framhald er 13. De2ásamt 14. Hadl. 13. —0—0 14. Bf3? Hvítur gælir við þá hugmynd að leika g3—g4 síðar meir, sem reynist vera vindhögg. 14. —b5 15. Hadl Db7 16. De3 Hfd8 17. Hfel a5! Frumkvæðið er nú greinilega i höndum svarts. 18. g4? Rd7 19. Ra2 Hroðalegur reitur fyrir riddarann, en svartur hótaði jú 19. — e5 með mannsvinningi. 19. —b4 20. De2 e5 21. fxe5 dxe5 22. Bf2 Rc5 23. axb4 axb4 24. Hxd8 + Hxd8 25. Dc4 Re6 26. c3? Bb5! 27. Db3 Rc5 28. Dxb4 Rd3 29. Db3 Rxel 30. Bxel Bc5+ 31.Kg2 Hér hefði hvitur mátt reyna 31. Khl Be2! ogsvarturvinnur. 30. —Bf 1 + og hvítur gafst upp. Haustsólargeislarnir stundum erfiðir Á mótum Seljaskóga og Breiðholtsbrautar skullu tvær bifreiðar saman i fyrradag í glampandi sólskini og er sólin talin eiga einhvern þátt i slvsinu. Valt önnur bifreiðin og eru báðar svo mikið skemmdar að flytja varð þær á brott i gálga kranabils. Konur voru einar á ferð i báðum bilunum og sluppu þær að mestu við meiðsli. -A.St. Bridge Bridgefélag Hafnarfjarðar Aðalfundur BH var haldinn laug- ardaginn 15. september að Hjalla- hrauni 9. Þar var kosin ný stjórn sem eftirtaldir menn skipa: Kristófer Magnússon Björn Eysteinsson form aður, v a r a f o r - maður, gjaldkeri, ritari, á h a 1 d a - vörður, altmulig- mand. Vetrarstarfið hefst þann 24. sept- ember, á mánudegi að venju, og verður spilað i Slysavarnahúsinu að Hjallahrauni 9. Byrjað verður á eins kvölds tvímenningi og eru allir hvattir til að mæta jafnt nýir sem gamlir félagar. Stjórnin. Sigurður Lárusson Ægir Magnússon Stefán Pálsson Aðalsteinn Jörgensen Bridgefélag Reykjavíkur Starfsemi BR hófst miðvikudaginn 12. september með eins kvölds tví- menningi í Domus Medica. Sama kvöld var landsleikur í knattspyrnu við Austur-Þjóðverja og hafði það greinilega áhrif á þátttöku. Miðvikudaginn 19. september var einnig eins kvölds tvímenningúr í Domus Medica. Fyrsta meiri háttar mót vetrarins verður hausttvímenningur sem hefst 26. september og stendur í 4 kvöld. Öllum er heimil þátttaka en spilarar eru beðnir að tilkynna þátttöku til einhvers stjórnarmanns eigi síðar en 23. september. Fyrsta kvöldið verður spilað í Hreyfilshúsinu en önnur keppni félagsins verður í Domus Medica. Keppnisstjóri í vetur verður Agnar Jörgensson. Ef að likum lætur verður stórmót BR haldið seinni hluta vetrar með þátttöku þekkts erlends pars. Pen- ingaverðlaun verða í boði en þátttaka takmörkuð og sérstakt tillit tekið til frammistöðu á mótum BR í vetur. Stjórn Bridgefélags Reykjavikur: Jakob R. Möller formaður, Sævar Þorbjörnsson sími 19253, varafor- Sigmundur Stefánsson maður, gjaldkeri, Þorgeir Eyjólfsson sími 72876, ritari, sími Jón Baldursson 76356, f jármála- Bridgefélag Breiðholts ritari, simi 77223. Fyrsta spilakvöld félagsins verður næstkomandi þriðjudagskvöld 25. sept. kl. 7.30 og er þess vænzt að sem flestir mæti. Byrjað verður á eins kvölds tvímenningi. Spilað verður í húsi Kjöts og fisks, Seljabraut 54. Fólk er beðið að mæta stundvíslega. 9 s J0N L. ARIMASON SKRIFAR UM SKÁK Árni Árnason náði aðeins 50% vinningshlutfalli, en tefldi þó manna best á köflum. Hér kemur sigurskák hans í viðureigninni við norsku A- sveitina. Hann fer sér að engu óðs- lega og þjarmar hægt og sígandi að andstæðingi sínum. Hvítt: Linar Brekken (Noregur) Svart: Árni Árnason Spænski leikurinn 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6 5.0—0 b5 6. Bb3 Be7 7. Hel d6 8. c3 0—0 9. h3 Rb8 10. d4 Rbd7 11. Rbd2 Bb7 12. Bc2 He8 13. Rfl Bf8 14. Rg3 g6 15. He2 Áætlun hvíts er óvenjuleg og eins og framhaldið leiðir i Ijós — með öllu hættulaus svörtum. 15. — c5 16. dxe5 dxeS 17. Be3 Dc7 18. Hd2 Had8 19. De2 c4 20. Hadl h6 Að þessari stöðu hefur hvítur sjálf- sagt stefnt, en hvað á nú að gera? Næstu þrír leikir hans bera ekki vott um mikinn skilning á stöðunni. 21. Kfl (?) Kh7 22. h4?! Dc8! 23. a4? Fyrsti afleikurinn var i rauninni ekki svo slæmur þvi i 22. leik gat hvitur leiðrétt mistök sín og leikið 22. Kgl. Það er hins vegar verra með peðsleiki . . . Annar afleikurinn veik- ir stöðu hvíts á kóngsvætig og þá sér- staklega g4-reitinn. Það er hins vegar ekki svo gott fyrir svartan að notfæra sér það. Þriðji afieikurinn hefur aftur á móti alvarlegar afleiðingar í för með sér. Hvíta a-peðið verður ein- faldlega skotmark svörtu mannana. 23. —b4! 24. Bbl Dc6? Ónákvæmni. Nákvæmast er 24. — a5! ásamt — Ba6 og — Dc6. 25. cxb4 Bxb4 26. Hc2 a5 27. Kgl? Hvítur hefði átt að reyna 27. Hxc4, því ekki er að sjá að svartur nái að notfæra sér skálínuna a6— f 1 til vinn- ings. 27. — Ba6 28. b3 c3 Svartur hefur vinningsstöðu. 29. Del De6 30. Ba2 Hc8 31. Bg5 Rg4 32. Hd5 Rb6 33. Hdl Kg7 34. Be3 Rd7 35. h5 Rdf6 36. hxg6 fxg6 37. Rh4 Hed8 38. Hxd8 Hxd8 39. Dcl Dc6 40. Rhf5 + gxf5 41. Rxf5+ Kh7 42. Bxh6 Bd3 43. I)g5 Hg8 44. Dh4 I)e8 45. Hcl Dh5 46. D\h5 Rxh5 47. Be3 Rxe3 48. I'xe3 Lxe4 >g hvílur gafst upp. - r ' Odýrt að gista í bama- skólanum í Ámeshreppi Minna var um ferðafólk í Árnes- hreppi í sumar en oft áður. Gisting er fyrir ferðafólk i barnaskólanum margfræga, sem Guðmundur Þ. Guðmundsson á Finnbogastöðum byggði upp á eigin spýtur árið 1929. Þá voru allir ráðandi mcnn i hreppnum á ntóti því að byggja skólahús. Ríka fólkið átti að ráða einkakennara en hinir áttu að verða útundan. Líkar fólki vel að gista i þessu hlý- lega og vinalega skólahúsi. Það eru skólastjórahjónin Torfi Guðbrands- son og Aðalbjörg Albertsdóttir sem sjá um gistiaðstöðuna. Ferðafólki finnst ódýrt að gista þarna, kostaði 1200 kr. á nóttina i sumar. Sofið er í kojum en ferðafólkið hefur einnig cldunaraðstöðu í skólaeldhúsinu. Regína Thorarensen/abj. Innritun og upplýsingar kl. 10—12 og 13—19 Símar: 20345,38126,24959,74444,39551 Nýjustu disco-dansarnir Barnadansar, Samkvæmisdansar, gömlu dansarnir ATH. Konur, munið „beat" tímana vinsælu! ncí KENNSLUSTAÐIR REYKJAVÍK Brautarholt 4 Drafnarfell 4 Félagsh. Fylkis (Árbæ) Kópavogur Hamraborg l Kársnesskóli Seltjarnarnes Félagsheimilið Hafnarfjörður Gúttó

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.