Dagblaðið - 08.10.1979, Page 1

Dagblaðið - 08.10.1979, Page 1
m f i Í t i i i i i i i i i i i i i i ,5. ÁRG. — MÁNUDAGUR 8. OKTÓBER 1979 — 220. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI1 l.-AÐALSÍMI 27022. Framsókn og Alþýðubandalag vilja reyna aðrarleiðir „Fátt verra en vetrarkosningar” „Það er varla hægt að gera annað verra en efna nú til vetrarkosninga,” sagði Steingrímur Hermannsson, for- maður Framsóknarflokksins, i viðtali við DB i morgun. „Skynsamlegra væri að reyna að ná samstöðu um eitthvað fram á vorið.” Steingrímur sagði, að spurningin væri, hvort samstaða gæti náðst um miklu ákveðnari stefnu í efnahags- málum. Aðrir framsóknarmenn, sem DB ræddi við, veltu fyrir sér spurningunni um, hvort mynda mætti minnihlutastjórn eða utan- þingsstjórn til vors. Steingrímur sagði, að samkomulag væri milli stjórnarflokkanna um, að þing yrði ekki rofið nema þeir væru allir sam- máia um það. Hann kvaðst gera ráð fyrir að flokksstjórn Alþýðu- flokksins mundi í kvöld staðfesta samþykkt þingflokksins um, að Alþýðuflokkurinn hætti þátttöku i stjórn. Hins vegar mætti búast við andstöðu við þingrof hjá Framsókn og Alþýðubandalagi. Annar forystumaður Framsóknar sagði i morgun, að nú yrðu viðræður milli stjórnmálaflokkanna til að kanna, —segirStein- grímur Hermannsson formaður Framsóknar- flokksins hvort eitthvað annað kæmi til greina en kosningar i desember. Einn forystumaður Alþýðu- bandalagsins sagði í morgun, að óeðlilegt væri og ábyrgðarlaust að efna til kosninga strax í desember. -HH. Vilmundur Gylfason, Björn Jónsson, sem nú er aftur kominn til starfa, og Sighvatur Björgvinsson á fundi verkalýðsmálanefndar Alþýðuflokksins I gær. DB-mynd GTK. Staðan í MbýðufloVkitmi: GERT RAÐ FYRIR STAÐ- FESHNGU FLOKKSSTJORNAR Ýmsir verkalýðskratar styðja ríkisst jómina en konumar studdu þingf lokkinn Kunnugir reiknuðu í morgun með þvi, að flokksstjórn Alþýðu- flokksins mundi i kvöld staðfesta ákvörðun þingflokksins, þótt gert væri ráð fyrir miklum ágreiningi i flokksstjórninni. Búizt var við, að einhverjir flokksstjórnarmenn mundu koma mcð tillðgur um, að ákvörðun væri frestað, til dæmis i viku, fram yfir þing Verkamana- sambandsins. Margir studdu ríkisstjórnina á fundi verkalýðsnefndar Alþýðu- flokksins, sem haldinn var í gær, og vildu ganga gegn samþykkt þing- flokksins. Hins vegar samþykkti þing alþýðuflokkskvenna stuðning við ákvörðun þingflokksins. „Alþýðufiokkurinn getur ekki haldið áfram að bera ábyrgð á slíku efnahagslegu öngþveiti, sem gengur þvert á grundvallarviðhorf hans í efnahagsmálum og þau markmið, sem hann einsetti sér að ná fram i stjórnarsamstarfi,” segir í ályktun alþýðuflokkkvennanna. „Við slikar aðstæður styður landsfundur Sambands alþýðu- flokkskvenna að lagt verði fyrir flokksstjóm, að ráðherrar Alþýðu- flokksins hætti nú þegar störfum i rikisstjórn og að stefna hans verði lögðundirdóm kjósenda." -HH. 400 þúsund stolið í Haf narff irði —og 50 þúsundum í Garðabæ Rannsóknarlögreglan hefur nú til meðferðar kæru um þjófnað á um 400 þúsund krónum úr húsi i Hafnarfirði. Voru peningarnir geymdir í peninga- kassa i eldhúsi, en lykill að kassanum stóð í skráargati hans. Ekkert húsbrot var gert er peningarnir eru sagðir hafa horfið en ótrygg læsing er á hurð ibúðarinnar fram á stigagang. Þá hefur einnig verið kært vegna þjófnaðar á 40—50 þúsund krónum úr húsi í Garðabæ og hugsanlega banka- bók að auki. Varð þessa þjófnaðar vart er húsráðandi kom heim um helgina eftir vinnu úti á landi. Málið er hjá RLR. -A.St. Leit var haf in að 17 ára leitarmanni Seint á sunnudaginn hófst leit að 17 ára pilti úr Hverageröi, sem farið hafði í göngur en kom ekki fram á sama tíma og aðrir leitarmenn. Um fjögurleytið var farið að svipast um eftir piltinum. Smám saman tíndust að fleiri og fleiri leitarmenn, félagar úr SVFÍ deildinni á Selfossi og kúr Hjálparsveit skáta svo og sjálfboðaliðar. Litil flugvél flaug yfir leitarsvæðið og þyrla Gæzlunnar var tilbúin til leitar. Klukkan 19.15 kom svo pilturinn fram af sjálfdáðum, til Hveragerðis. Hafði hann tafizt en ekkert amaði að honum. -A.Sl. Kópavogslögreglan: Vil jum losna við þjóðvegaakstui s- hraðann af götum Képavogs- sjá bis. 13 B0MBA KRATANNA — almenningur spurður álits á stjómarslita- tillögu Alþýðuf lokks — sjá bls. 6 Vísnasöngkonan Birgitte Grimstad: „Ekki veitég hvernig mértekst íkvöld” „Það er alltaf sama fina veörið hjá ykkur,” sagði söngkonan, sem kemur hingað frá Osló „gott að fá smásumarauka.” Það var sól og blíða, þegar Bjarnleifur tók myndina klukkan þrjú á laugardaginn. ,,En ekki veit ég hvernig mér tekst með tónleikana,” (hún átti að syngja um kvöldiðj.Ég er hálfkvíðin, þvi í fyrsta lagi var ég að frétta að það er uppselt, t öðru lagi ætlar forsetinn að koma, og i þriðja lagi á að útvarpa beint frá l'yrri hlutanum.” Hún ákvað að fínna einhvern stað í Reykjavík þar sem hún fengf kröftuga máltið, og sofna á eftir, og það gerði hún. Þegar hún vaknaði heillaði hún áheyrendur með söngnum og sínum elskulega persónuleika. Það gerir hún áreiðanlega líka, þegar hún syngur öðru sinni I Norræna húsinu í kvöld, og er hætt við að þangað komist færri en vilja. -IHH DB-mynd Bjarnleifur.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.