Dagblaðið - 08.10.1979, Side 2

Dagblaðið - 08.10.1979, Side 2
 ———————— Af félagslegum íbúðum á Akureyri: EFTIRSPURN MARG- FALT MEIRIEN UNNT ER AÐ VERÐA VID Jón Hjornsson félagsmálastjóri á Akureyri skrifar: í Dagblaðinu fimmtudaginn 20. sept. sl. er beint til min undirritaðs spurningum af Guðrúnu Sigurðar- dóttur varðandi leiguíbúðir á vegum Félagsmálastofnunar Akureyrar, sem ég vil biðja um rúm til að fáaðsvara. í bréfi Guðrúnar stendur:,,Ég er gift tveggja barna móðir. Maöurinn minn er verkamaður og við höfum, sótt fimm sinnum um íbúð hjá Félagsmálastofnun og ávallt fengiö neitun.” Guðrún sótti um íbúð hjá Félags- málastofnun á árinu 1978 en fékk þá; íbúð á almennum leigumarkaði svo umsóknin féll úr gildi. 5. apríl sl. var að nýju lögð inn umsókn en Guðrún og fjölskylda hennar hefur enga íbúð fengið, enga neitun heldur, nema þá, sem felst í því að hún hefur ekki gengið fyrir við úrlausnir til þessa. Því skyldi hún lfka gera það? Nú i byrjun sept. lágu fyrir rúmlega 70 umsóknir, sumar áragamlar. Félags- málastofnun Akureyrar hefur yfir 55 íbúðum að ráða. Eftirspurn er marg- falt meiri en svo að unnt sé að sinna henni allri. Það er því leitast við að miðla þeim fáu íbúðum sem losna árlega til þeirra, sem skv. mati eiga örðugast með að afla sér, eignast eða leigja húsnæði áalm. markaði, vegna fjárhags eða annars. Gjarnan situr því eldra fólk, öryrkjar eða einstæðir foreldrar fyrir þessum íbúðum. Guðrún svarar spurningu sinni sjálf i bréfinu. Hví skyldi Félagsmálastofn- un Akureyrar láta umsókn hjóna með tvö börn á framfæri, fullfrísks fólks, að þvi ég best veit, ganga fyrir umsóknum fólks sem vegna aldurs, fjölskyldugerðar eða tekjuöflunar- möguleika standa langtum verr að vígi? Ég veit það ekki náið en ég giska á að á Akureyri séu 1—200 hjón með tvö börn á framfæri. Þetta er meðal- stærð fjölskyldu. Þessum fjölskyld- um er ætlað að leysa húsnæðismál sín sjálfum og þær gera það allajafnan með byggingu, leigu eða kaupum á íbúðum. AUajafnan ætlast þær ekki til þess að þær gangi fyrir öðrum lakar stöddum við úthlutun svo- kallaðs „félagslegs húsnæði”, eins og t.d. einstæðum foreldrum með eitt, tvö eða þrjú börn á framfæri, eða lífeyrisþegum T.R., sem verða að Verð: 27.280.- Svart leður, Ijóst leður, ekta hrá- gúmmí- sólar, sterkir og vandaðir. Póstsendum um allt land. Leugavegi 69 simi 168bO Hirsihmann Útvarps-og sjónvarpsloftnet fyrir litsjónvarpstæki,-' magnarakerfi og tilheyrandi' loftnetsefni. Odýr loftnet ofi gód. Aratuga reynsla. Heildsala Smásala. Sendum i póstkröfu. Radíóvirkinn Týsgötu 1 - Sími 10450 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 8. OKTÓBER 1979. lifa af fé sem rétt ieyfir lífsnauðsynj- ar en alls ekki háa leigu, hvað þá fjár- festingu. Að hvaða leyti er fjölskylda Guðrúnar svona „spes” að það megi ganga fram hjá svona umsóknum hennar vegna? Það væri e.t.v. betra að hið opinbera hefði yfir húsnæði að ráða sem dygði yfir alla þá sem kjósa fremur Ieigukjör heldur en sjálfseign húsnæðis en þannig er nú pólitíkin ekki rekin á íslandi en þar er við aðra að sakast en undirritaðan. Ég vil ekki fjölyrða um ásakanir Guðrúnar vegna leigu á húsnæði Akureyrarbæjar til útlendinga, en i báðum tilvikunum sem hún nefnir hallar hún réttu máli. Aðeins önnur leigan sem hún nefnir var gerð af Félagsmálastofnun, báðar voru sann- gjarnar og sjálfsagðar. Ég skal gjarnan færa rök fyrir því en ekki þó í dagblaði af skiljanlegum ástæðum. Ég veit raunar ekki hversu vel þetta orðaskak á heima á síðum dagblaðs. Það eru hliðar á þessu sérstaka máli, sem ég kýs að nefna ekki, né heldur má nefna , í dagblaði sakir þagnar- skyldu sem ég er bundinn. Finnist Guðrúnu hún órétti beitt þá legg ég til að hún snúi sér til minna yfir- manna, Soffíu Guðmundsdóttur, formanns félagsmálaráðs Akureyrar, Helga M. Bergs bæjarstjóra eða full- trúa í bæjarstjórn, sem ber þá að kanna réttmæti slíkra klögumála. í bréfi Guðrúnar stendur: „Eigum við engan rétt á fyrirgreiðslu hjá bænum þó við greiðum okkar gjöld til hans?” Guðrúnu er velkomið að leita hingað a.m.k. til ráðuneytis um það hvernig hún gæti reynt að fjár- magna íbúðarkaup. Slíkt er algengt. Og það getur hún jafnt fyrir því þó hún hafi nú einmitt ekki greitt gjöldin sín sem skyldi. Viðbót við um- mæliutan- ríkisráðheira Athugasemd frá Pétri Guðjónssyni Pétur Guðjónsson hefur beðið DB fyrir eftirfarandi viðbót við ummæli Benedikts Gröndals utanrikisráð- herra i DB 3. október. „Það duldist engum, sem fylgdust með gangi Jan Mayen málsins frá byrjun, að undirbúningur málsins var mjög takmarkaður í sögulegu og þjóðréttarlegu tilliti. Það er cins og ákveðnir aðilar hafi komið sér niður á það að Jan Mayen væri norsk, án þess athugað væri hvort nokkur skjöl væru til viðvikjandi málinu í Þjóð- skjalasafni íslands og ef til væru þá athuguð vegna réttarstöðu íslands gagnvart Jan Mayen, Svalbarða á ís- landsgrunni. Það var sameiginlegt álit mitt og Ólafs R. Grimssonar að úr þessu þyrfti að bæta og að hann færi fram á það i Landhelgisnefnd að gerð yrði itarleg könnun á málinu í sögulcgu og þjóðréttarlegu tilliti. i beinu framhaldi af beiðninni framkominni í Landhelgisnefnd fór utanríkisráðuneytið í þessa athugun sem leiddi í Ijós að margumræddur skjalapakki, „Jan Mayen 1”, kom í leitirnar. Það er hann sem hefur að geyma hið dýrmæta bréf Jóns Þor- lákssonar forsætisráðherra þar sem norsku rikisstjórninni er tilkynnt fyrsta ríkisstjómar-eignarréttaryfir- lýsingin gagnvart Jan Mayen, Sval- barðaá Islandsgrunni. Það er þvi hreint ofbeldi gagnvart íslendingum er norsk ríkisstjórn til- kynnir um innlimun þessarar eyju á íslenzku hafsvæði. Eftir fréttum að dæma á fimmtu- dag frá Noregi, sem segja frá dólgs- legum yfirlýsingum norskra þing- manna viðvíkjandi Svalbarða á íslandsgrunni, er eins og menn i Osló haldi aðártalið sé enn 1929.” Endursýn- iðFiskund- irsteini! Ásgeir skrifar: Ég vil beina þeirri áskorun til sjón- varpsins að endursýna sem fyrst sjón- varpsmyndina Fiskur undir steini. Eins og menn muna eflaust var sú mynd tekin í Grindavík fyrir nokkr- um árum. Við það tækifæri mót- mæltu þorpsbúar kröftuglega og töldu að sér veitzt. Nú er hins vegar alltaf að koma betur og betur i Ijós að fisktetrið er á sínum stað og það er megn ýldulykt af honum.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.