Dagblaðið - 08.10.1979, Blaðsíða 4

Dagblaðið - 08.10.1979, Blaðsíða 4
4 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 8. OKTÓBER 1979. Þarna eru eplaskifurnar að bakast á pönnunni. Vid hringdum i nokkrar búsá- haldaverzlanir i höfuðborginni. Epiaskifupönnur voru aðeins tii á einum staö sem við höfðum uppi á, hjá Biering á Laugaveginum, og kostuðu þær um 11 þúsund kr. Þær pönnur eru húðaðar að innan með teflon. Bandprjónar nauðsynlegir þegarbaka á eplaskrfur Eplaskífur eru eins konar „pönnu- kökur” frænda okkar á Norðurlönd- unum. Þeir baka gjarnan eplaskífur til að gæða heimilisfólkinu á, líkt og við pönnukökur. — Til þess að baka eplaskífur þarf að eiga þar til gerða pönnu, eplaskífupönnu, sem er gjarnan úr smíðajámi með sjö holum og er efra borðið yfirleitt emalerað. Þeir sem eru flinkastir við eplaskifu- baksturinn geta bakað kringlóttar „skífur” en það þarf nokkra leikni til þess að geta það. Verður að taka tvo bandprjóna til aðstoðar til þess að snúa „skífunum” varlega á meðan þær eru að bakast. Ef ein- hvern langar til þess að prófa að baka Þarna er ungi kokkurinn sem við fengum uppskriftina og leiðbeining- arnar hjá. Honum hefur tekizt að búa til kringlóttar eplaskifur. er hér uppskrift sem að sögn á að gefa vel kringlóttar eplaskífur. 125 g hveiti 5egg 65 g smjörl. ca 1 dl rjómi vanilla sykur salt sitróna Takið eftir að það er ekkert epli í eplaskifunum en margir láta rúsínur út í þær. Eggjarauðurnar eru þeyttar með hveitinu, bræddu smjörinu og rjóm- anum. Vanillan, örlítið af sykri og salti, safinn úr sítrónunni og rifinn börkurinn er látið út í deigið. Stíf- þeytið eggjahvíturnar og blandið þeim varlega saman við. Bezt er að hafa snör handtök við deiggerðina og baka síðan skífurnar eins og skot því deigið þolir ekki að bíða á eldhús- borðinu. Hitið pönnuna og látiá hreina feiti, annaðhvort jurtafeiti eða olíu, í hverja holu. Fyllið hverja holu alveg með deigi. Jafnóðum og þær bakast á að snúa þeim, ekki nema lítið í einu, með bandprjónum þangað til þær eru orðnar kringlóttar og bakaðar. Eplaskífurnar eru látnar á fat og eigaekki að „falla saman” ef þæreru rétt bakaðar. Þær eru siðan bornar fram annað- hvort með strásykri eða sultu. Þessi uppskrift er nokkuð dýr, því eggin eru svo mörg og svo rjóminn. En hægt er að nota ódýrari uppskrift, að sjálfsögðu. Það má nota venjulega vöffluuppskrift og deigið á að vera svipað á þykkt og vöffiudeig. - A.Bj. Ödýrar eplaskíf ur Hér er ódýrari eplaskífuuppskrift. 250 g hveiti 1/2 tsk. natrón 1/21 mjólk 25 g sykur feiti til að baka í Öllu er hrært saman. Natrónið er sigtað með hveitinu. Bakið strax úr deiginu. Gott er að hella því í könnu og hella siðan úr könnunni í epla- skifupönnuna. Fyllið holurnar alveg með deigi og bakið að öðru leyti eins og sagt er áður á síðunni. - A.Bj. Sumarfrí og gesta- gangur—eyðslan yfir 35 þús. á mann Fyrsti septembersedillinn kominn • G.E.T., húsmóðir í Reykjavík, skrifar: Þótt seint sé ætla ég að senda ykkur tölur fyrir ágústmánuð og september kemur með. Ágústmánuður er hrikalega hár og ber ýmislegt til. Við vorum 9 daga í sumarfrii, þar af 7 daga í sumarbú- stað, og vorum við sex þar. Síðan voru næturgestir og tilheyrandi gesta- gangur, m.a. ein dýr matarveizla. Við vorum því átta til jafnaðar í ágúst- mánuði. Eyðslan var lika eftir þvi,. 281.800 kr., eða 35.255 kr. á mann. September er ekki eins slæmur eða kr. 209.850, sem gerir 26.230 kr. á mann, en við erum átta i september. Eitt af því sem mér finnst að hljóti að ráða talsverðu í sambandi við Raddir neytenda matarkaup er að þar sem eru t.d. tveir í heimili og báðir útivinnandi hlýtur að vera hægt að eyða meiru í mat en ástærri heimilunum. I dag birtum við fyrsta september- seðilinn og vonumst eftir að fá frá öllum „viðskiptavinum” og mörgum nýjum sem fyrst. Þátttakan var sæmileg hjá okkur í ágústmánuði, hefði þó mátt vera meiri. Við höfum ekki lokið við loka- útreikninginn á meðaltalinu en okkur sýnist að það sé allverulega hærra en í júlí. i sambandi við það sem G.E.T. segir um fámennu heimilin, þar sem báðir eru útivinnandi, tel ég að það sé alveg laukrétt athugað. Auðvitað er frekar hægt að láta eftir sér að kaupa eitthvað dýrt í matinn þegar aðeins er keypt handa tveimur. Það gerir sennilega kostnaðinn líka oft meiri hjá fámennustu fjölskyldunum. Það getur lika stundum verið dálítið erfitt að elda skammta sem duga nákvæm- lega handa tveimur þannig að alltaf vill eitthvað fara til spillis. - A.Bj. Sími Hvaó kostar heimilishaldió? Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttakandi I upplýsingamiðluii meðal almennings um hvert sé meðalta! heimiliskostnaðar fjölskyldu af sömu stærð og yðar. Þar að auki eigið þér von I að fá fria mánaðarúttekt fyrir fjölskyldu yðar. Kostnaður í septembermánuði 1979. Matur og hreinlætisvörur kr. Annað kr. Alls kr. m i im\ Fjöldi heimilisfólks 1 til samanburðar á heimiliskostnaði Nafn áskrifanda Heimili Hérna kemur scptemherseðillinn. Fyllið hann út strax og scndið okkur við fyrstu hcntugleika. Við vorum sæmilcga ánægð mcð þátttökuna i ágúst cn vonumst eftir fleiri seðlum í scptembcr.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.