Dagblaðið - 08.10.1979, Page 6
6
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 8.’OKTÓBER 1979.
Tiisö/u
BMW 528 automatic árg. '77
BMW 520 árg. '77
BMW 728 árg. '78
BMW 316 árg. '78
BMW 3,0 (De Luxe) automatic árg. '75
Renault 20 TL árg. '77
Renault 16 TL árg. '76
. Renault 12 TL árg. '77
Renault station árg. '73
Renault 4 Van árg. '74 og '76 og '78
Renault 4 Van F6 árg. '77, '78 og '79
Ford Fairmont Dezer automatic árg. '78
Opið laugardaga kl. 1—6.
Kristinn Guðnason hf.
ifreiða- og varahlutaverzlun,
Suðurlandsbraut 20, sími 86633.
Rakarastofan Klapparstíg
Sími 12725
Hárgreiðsiustofa Klapparstíg
Tímapantanir
13010
Hárgreiðslustofan
DESIRÉE (Femina)
Laugavegi 19 — Sími 12274
0PIÐ
FRÁ9-6
LAUGAR
DAGA
9-2
LITANIR
TÍZKUPERMANENT
LAGNINGAR
LOKKALÝSINGAR
KLIPPINGAR
BLÁSTUR
NÆRINGARKÚRAR
0.FL.
Laus störf
Viljum ráða sem fyrst:
1. Vél- eða rafmagnsverkfræðing.
2. Símavörð á skrifstofu l/2
eða fullt starf.
3. Málmiðnaðarmann í argon suðu og fleira.
4. Iðnverkafólk til verksmiðjustarfa.
Upplýsingar á skrifstofunni.
H.F. Raftækjaverksmiðjan
Hafnarfirði.
UMBOÐSMAÐUR
Dagblaðsins í Keflavík
Nýtt heimilisfang:
Margrét Sigurðardóttir,
Smáratúni 31 Keflavík, sími 3053.
iBUUJID
Skrifstofu og
geymsluhúsnæði
Til leigu er húsið nr. ÍOI við Laugaveg frá 1.
nóv. 79, alls 170 fm. Tilboð sendist DB fyrir
12. okt. merkt „Húsnæði”.
Bomba kratanna
—menn spurðir álits á ályktun þingf lokks Alþýðuf lokksins
umstjórnarslit
Umræður manna nú um helgina hafa beinzt mjög að yfirlýsingu þingflokks Alþýðuflokksins um
að segja sig úr stjórn og að efna skuli til nýrra kosninga.
Blaðamaður DB tók nokkra vegfarandur tali í miðbænum í gær og spurði hvernig þeim litist á
yfirlýsinguna og hvort efna ætti til nýrra kosninga.
„Sjálf-
stæðis-
flokkurinn
mun sigra”
Þorsteinn Steingrímsson sagði: Ja,
ætli það hafi verið nokkuð annað
fyrir þá að gera. Þetta er hvort eð er
allt komið í óefni og verður þvi bezta
lausnin að efna til nýrra kosninga. Ég
er fylgjandi því að þjóðin fái að tjá
sig um ástand mála með nýjum kosn-
/ingum. ,,Ég veit að án efa verður það
Sjálfstæðisflokkurinn sem mun sigra
í þeim kosningum, með stórsigri.
— Hvað ætlar þú að kjósa, Þor-
steinn?
„Ég kýs auðvilað Sjálfstæðis-
flokkinn,” sagði Þorsteinn Stein-
grimsson.
- ELA / I)B-mynd Hörður.
„Vonandi
nýjar
kosningar”
Að síðustu var Stefanía Gunnars-
dóttir spurð og hún sagði: Mér lízt
vel á þessa yfirlýsingu Alþýðuflokks-
ins. Það verða vonandi nýjar kosn-
ingar í haust. Ég er viss um að það
verður Sjálfstæðisflokkurinn sem
sigrar í þeim kosningum.
— Hvað hefur þú hugsað þér að
kjósa, Stefanía? „Auðvitað Sjálf-
stæðisflokkinn,” sagði Stefania
Gunnarsdóttir.
- ELA / DB-mynd Hörður.
„Bendir allt til
nýrra kosninga”
Ingibjörg Þorleifsdóttir var síðan
spurð og sagði hún: „Það er ekki gott
að segja, mér sýnist allt benda til þess
að nýjar kosningar verði í haust. Ég
get ekki né vil spá .um kosningaúftlit
ef efnt verður til nýrra kosninga og ég
held að enginn geti neitt sagt um það
fyrirfram . hvernig þær kosningar
færu.
— Hvað mundir þú kjósa ef fram
færu kosningar?
„Ég veit það ekki, ég hef ekkert
ákveðið mig um það,” sagði Ingi-
björg Þorleifsdóttir.
- ELA / DB-mynd Hörður.
„Stjómin á ekki að
hlaupa frá nú”
Björn Sigurðsson var spurður
sömu spurninga og hann sagði: Mér
finnst þetta alveg faránlegt vegna
þess að næsti kosningasigur verður
íhaldsins. Það verður til þess að ekk-
ert verður gert fyrir verkalýðinn.
Ég vil ekki aðrar kosningar.
Stjórnin sem situr í dag á að halda
áfram en ekki hlaupa frá nú. Ég veit
að Alþýðuflokkurinn mun stórtapa
ef efnt verður til nýrra kosninga.
— Hvað myndir þú kjósa ef kosn-
ingar yrðu í haust?
„Ég myndi kjósa Alþýðubandalag-
ið eins og alltaf,” sagði Björn
Sigurðsson.
- ELA / DB-mynd Hörður.
Ályktun Iðnþings:
Hætt verði birtingu
erlendra auglýsinga
—í íslenzka sjónvarpinu
Fyrir iðnþingi liggur ályktun þess
efnis að ekki verði birtar í íslenzka
sjónvarpinu aðrar auglýsingar en þær
semgerðarhafiveriðhérlendis. ,
í greinargerð með ályktuninni segir
m.a. að aðstöðumunur sé mikill milli
íslenzkra auglýsenda og erlendra fjöl-
þjóðafyrirtækja sem senda auglýsinga-
myndir sínar um allan heim og geta
þannig dreift stofnkostnaðinum.
í Ijós hefur komið að erlendir fram-
leiðendur hafa nýtt sér þennan mögu-
leika í rikum mæli og bent er á að í
hæsta máta sé óeðlilegt að sjónvarpið, í
eigu islenzka ríkisins og styrkt af al-
mannafé, sé notað til þess að auka
eftirspurn og neyzlu á innfluttum
vörum á kostnað íslenzkrar fram-
leiðslu.
- JH