Dagblaðið - 08.10.1979, Page 7
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 8. OKTÓBER 1979.
'7
„Hópslys” á Kef lavíkurflugvelli:
„Tókst frábær
lega vel”
,,Þetla gekk allt alveg frábærlega
vel,” sagði Guðjón Petersen fram-
kvæmdastjóri Almannavarna ríkisins
um æfingu sem haldin var á laugardag-
inn. Æfingin sem Almannavarnir stóðu
að ásamt Varnarliðinu var fólgin í
flutningi 126 „slasaðra” manna frá
Keflavíkurflugvelli og á sjúkrahús í
Reykjavik.
,,Við erum að prófa einstaka þætti
almannavarnaskipulagsins. æfingin á
laugardaginn var aðeins í þeim þætti að
flytja fólk frá vellinum og í bæinn.
Áður höfum við æft björgunina sjálfa
úr flugvél sem við ímynduðum okkur
að færist og eigum eftir að prófa
nokkra þætti til viðbótar þar á meðal
sjúkdómsgreininguna suðurfrá og
skipulag á þvi að senda hóp lækna úr
Reykjavik til Keflavíkurvallar. Öll þau
atriði höfum við prófað með fyrirfram
vitneskju þeirra sem tóku þátt i æfing-
unni.
Þegar hins vegar er lokið prófunum á
einstökum þáttum verður eitt allsherj-
arpróf á sviðsettu flugslysi. Þá mun
verða látið vita fyrirfram um vikuna
sem æfingin fer fram í en ekki daginn
eða stundina. Við látum hins vegar vjta
um vikuna svo fólk haldi ekki að aðeins
sé um æfingu að ræða verði raunveru-
legt slys og útkall í sambandi við það.
Æfingin á laugardaginn sýndi ekki
nein sérstök atriði sem segja má að séu
að. Að visu komu upp smávegis fjar-
skiptaörðugleikar eins og alltaf vilja
verða en þeir eru ekkert líkir því sem
varð er við settum á svið flugslys á
Reykjavíkurvelli. Við förum i það á
morgun að skrifa allar skýrslurnar um
málið og þá kemur betur i ljós hvað
betur má fara. En svona fljótt á litið
tókst þetta vel og við crum mjög
ánægðir,” sagði Guðjón Petersen.
- DS
19 OLÍUGEYMAR
KEFLAVIKURFLUG-
VALLAR
FJARLÆGDIR
— margir mjög illa farnir
Utanrikisráðherra hefur skipað
nefnd er gera skal tillögur um staðarval
nýrra eldsneytisgeyma fyrir Keflavikur-
flugvöll. Fyrr á þessu ári benti utan-
rikisráðherra forráðamönnum varnar-
liðsins á að ekki yrði komizt hjá þvi að
fjarlægja 19 oliugeyma Keflavikurvall-
ar sem eru i útjaðri Njarðvíkur og
Keflavíkur. Mun nefndinni einnig
ætlað að annast undirbúning að þvi að
hrinda þessu verki i framkvæmd.
Er ætlunin að byggt verði algerlega
nýtt kerfi cldsneytisgeyma fyrir flug-
völlinn á nýjum stað og verði þar mætt
ýtrustu nútimakröfum um mengunar-
varnir og annað öryggi. Framkvæmdin
verður íslendingum að kostnaðarlausu.
Utanríkisráðherra skipaði fjóra
menn i nefndina, þá Helga Ágústsson
deildarstjóra, Hjálmar R. Bárðarson
siglingamálastjóra, Hilmar Þórarins-
son, forseta bæjarsljórnar Njarðvíkur,
og Ólaf Björnsson, bæjarfulltrúa i
Keflavik. Varnarliðið mun af sinni
hálfu skipa fjóra fulltrúa í nefndina.
Þeir geymar sem hér um ræðir munu
margir hverjir rnjög illa farnir og
undanfarið hefur verið unnið að þvi að
hreinsa svartoliu úr jarðveginum við
tank nr. 13 en fleiri tonn af svartoliu
eru þar í jarðveginum.
Til marks um hve sumir tankanna
eru illa farnir má geta þess að er verið
var að vinna við sandblástur á þeim ný-
lega kom gat á einn lankinn. Ljóst ntá
því vera að tankar þessir voru orðnir
ónothæfir, a.m.k. sumir hverjir.
- GAJ
Vertíðarbragur í
Eyjum um helgina
,,Það er að verða vertíðarbragur á
lifinu hér i Eyjum og það er eins og
menn séu nú að vakna á ný eftir þjóð-
hátiðina,” sagði varðstjóri lögregl-
unnar i Vestmannaeyjum er DB innti
hann eftir fréttum af helginni.
Talsvert mikil ölvun var í Eyjum um
helgina. Þrir menn voru teknir fyrir
ölvun við akstur. Tveir þeirra höfðu þó
orðið valdir að tveimur árekstrum
hvor. Annar þeirra endaði ökuferð sína
uppi á grjóthaug og sennilega hefur
einnig æviskeið bifreiðarinnar endað
þar þvi hún var gjörónýt.
Þá var talsvert um slagsmál og rúðu-
brot og brotizt var inn á einum stað.
-GAJ
Sfldarævintýrið á Eskifirði:
STÚLKURNAR KOM-
UST í 29 ÞÚSUND
FYRSTA DAGINN
Sildarævintýrin gerast enn á ýmsum
stöðum á landinu með þvi að konur
komast í smátíma uppgrip við söltun.
Fyrir að salta i tunnu nú eru greiddar
1767 krónur fyrir tunnuna þegar um 1.
flokk er að ræða og 3—500 síldar fara í
tunnuna. Fyrir að salta sild 2. flokks,
þar sem fara 500—700 síldar i tunnuna
eru greiddar 23"'0 krónur. Fyrir ,,rúnn-
söltun” þar sem síldin er hvorki haus-
skorin né slóðadregin eru greiddar
1224 krónur fyrir betri tegund (3—"’00
sildar í tunnu) en 1585 krónur þegar
7 —900síldar fara i tunnuna.
Er saltað var á Eskifirði i gær
komust þær tvær stúlkur er mest sölt-
uðu i 28 tunnur. Þær vinna alltaf tvær
og tvæ r saman. Sé gert ráð fyrir að sild-
in hafi skipzt jafnt milli flokka hafa
stúlkurnar hvor um sig haft tæplega 29
þúsund krónur fyrir fyrsta sildardag-
inn. - A.St. / Regina, Kskifirði.
Hafskip hugleiðir jiotukaup:
Hafskip hefur fram til þessa haldið sig við flutninga á
sjó en nú skal stefnt hærra i eiginlegri merkingu.
„MALIÐIR0LEG-
UM FARVEGI”
„Málið er ekki einu sinni komið á
það stig að við séum farnir að gera
okkur grein fyrir hvað við myndum
þurfa slóra þotu,” sagði Björgúlfur
Guðmundsson framkvæmdastjóri
Hafskips í gær.
Unnið er að því um þessar mundir
hjá Hafskip að kanna hugsanleg
þotukaup á vegum fyrirtækisins.
„Áhuginn er kominn frá bæði inn-
og útflytjendum, sem hafa skipt við
okkur, og mundi henta betur að
sumu leyti að flytja flugleiðis. Þetta
helur verið í athugun í mjög langan
tíma og er í mjög rólegum farvegi,
mál sem við vinnum svona með
skiparekstrinum.
Við höfum verið að athuga ýmsar
leiðir í rólegheitunum og munum
siðar meta hverjar eru beztar. En að
því er ekki nærri komið,” sagði
Björgúlfur.
- DS
30 ARA ÞJ0NUSTA
1979
1949
SENDIBILASTODIN H.F.
BORGARTÚNI21
kr. 118.000-
afsláttur fyrir hópa m/10 manns eða fleiri
25.-29. okt.
Löng og góð helgi í Dublin
(fimmtudagur til mánudagskvölds)
Irska pundið um 10%
hagstæðara en það
breska og afsláttur fyrir
Islendinga í mörgum stærstu
verslunum Dublinborgar.
Golfunnendur reka smiðshöggið
á vertíðina með heimsókn á iða-
græna golfvelli Irlands, sem
þykja með þeim bestu í heimi.
írsku krárnar og
hinn margrómaði
bjór heimamanna
á hverju götuhorni.
Innifalið í verði flug, hótel m/morgunverði og íslensk fararstjórn,
sem m. a skipuleggur skoðunarferðir um borgina og vísar tón-
listarunnendum á frábær írsk þjóðlagakvöld.
Samvinnuferóir-Landsýn
Austurstræti 12 - simar 27077 og 28899