Dagblaðið - 08.10.1979, Page 9

Dagblaðið - 08.10.1979, Page 9
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 8. OKTÓBER 1979. Erlendar fréttir Spánn: Hægri og vinstri menn berjast Til mikils bardaga kom milli hægri og vinstri sinnaðra öfgamanna í borg einni á Norðaustur Spáni í gær. Var barizt með byssum og bensínsprengjum þar til lögreglan skakkaði leikinn. Þrír særðust i átökunum, þar af einn lögreglumaður. 9 Heimsókn páfa til Bandaríkjanna: IHALDSSEMIHANS OLU VONBRIGÐUM ímóti getnaðarvömum, á móti fóstureyðingum ogá móti kvenprestum Páfi hélt í morgun áleiðis til Rómar eftir vikulanga ferð um Bandaríkin þar sem honum hefur hvarvetna verið vel tekið. Heimsókn hans lauk með messu i Washington, þar sem komu færri en búizt var við vegna kalds haustveðurs í borginni. Jóhannes Páll páfi II olli mörgum kaþólskum Bandaríkjamönnum von brigðum með yfirlýsingum sinum í málum sem varða getnaðarvarnir, fóstureyðingar og þátttöku kvenna í starfi kirkjunnar. Páfi lýsti yfir andstöðu kaþólsku kirkjunnar við getnaðarvörnum og fordæmdi fóstureyðingar. Hann sagði ekki rétt að konur tækju að sér störf presta innan kirkjunnar. Nunna ein bandarísk ávarpaði páfa vegna þessa og sagði að konur hefðu þjáðst nóg undir stjórn kaþólsku kirkjunnar. Átaldi hún þáfa fyrir stefnu hans í þessum málum. Páfi hlustaði á orð nunnunn- ar og blessaði hana siðan. Afstaða páfa til mála eins og getnaðarvarna er talin munu valda verulegum klofningi innan kaþólsku kirkjunnar í Bandaríkjunum. Munu frjálslyndir illa sætta sig við til dæmis algjört bann við notkun getnaðar- varna. Telja kunnugir að vegna þess- ara mála og geti komið til alvarlegra átaka á milli frjálslyndra og ihalds- samra kaþólikka. Ródesíudeilan: SMITH MÆTT- URí LONDON- Á MÓTISÍD- USTU TIL- LÖGUM BRETA Enn einu sinni hefur andstaðan gegn tillögum Breta til sátta í Ródesíu/Zimbabwe deilunni brotizt út. Nú er það Ian Smith leiðtogi hvíta minnihlutans, sem mest lætur að sér kveða. Hefur hann lýst því yfir að hvítir ibúar Ródesíu/Zimbabwe geti ekki sætt sig við ákvæði í tillögum Breta, sem fjalla um öryggissveitir sem taka eiga við af herliðinu, sem hvítir foringjar stjórna núna. Talsmenn Nkomo og Mugabes foringja skæruliða sem berjast gegn stjórn Muzorewas biskups forsætis- ráðherra Zimbabwe/Ródesíu, hafa sagt að þeir séu andvígir ákvæðum i stjórnarskrártillögunum, sem fjalla um rétt hvítra manna til lands og réttinda til ríkisborgararéttar þeirra sem flutzt hafa til landsins eftir 1965. lan Smith hefur verið ráðherra án stjómardeildar í stjórn Muzorewas biskups siðan sú stjórn kom til valda. í ræðu í Salisbury fordæmdi hann til- lögur Breta og sagði þær hinar verstu sem komið hefðu fram til þessa. Samkvæmt þeim fengju forsætis- ráðherrar landsins nær algjört einræðisvald um að útnefna foringja og dómara í landinu. Muzorewa biskup hefur þegar samþykkt tillögur þær sem Carring- ton lávarður, utanríkisráðherra Breta, lagði fyrir fund deiluaðila. Þar er meðal annars gert ráð fyrir að hvítir menn hafi 20% allra þingsæta, þó þeir séu ekki nema 4% íbúa landsins. Þeir verða þó sviptir neitunarvaldi því, sem þeir hafa nú samkvæmt gildandi stjórnarskrá. Þriggja er saknað eftlr brunann mikla I oliubirgðastöð við Duisburg i Vestur- Þýzkalandi í fyrri viku. Þar brunnu tutitugu og þrír oliutankar og milljónir lítra af oliu. Ekki er vitað um orsakir brunans. „ Við byrjuðum árið 1979 með Ayds og þannig ætlum við að halda áfram ” Hvernig Ayds verkar Liz og Joanna Lawrence eru mxðgur. Hvorug þeirra var feit en báðar máttu við því að missa fáein kíló. Þær voru báðar ákveðnar í því að byrja árið 1979 fallega grannar. Svo að þær tóku að fækka við sig hitaeiningum í byrjun desember og héldu matarlystinni í skefjum með aðstoð Ayds — líka um jólin! Og þær nutu máltíðanna með hinum i fjölskyldunni. Hvernig fóru þær að þessu? Liz: „Ég þurfti að losa mig við 3—4 kíió. Þessi fáu aukakiló voru nóg til þess að ég var svolítið feitabolluleg í bikinibaðfötunum mínum þegar ég heim- sótti systur mina í Kaliforniu siðasta sumar. Ég ákvað því að prófa Ayds. Ástæðan til þess að mér geðjast svo vel að Ayds er sú að mér finnst gaman að borða og ég vil njóta máltíðanna með fjölskyldunni. Ayds hjálpar mér að borða minni skammta og forðast fitandi fæðu.” Joanna: „Ég er nýbyrjuð að vinna sem ijósmyndafyrirsæta ég varð að losa mig við 7—8 kíló til þess að passa í nr. 10, sem er þaö númer sem fyrirsætur nota. Það krefst heilmikillar orku að þjóta um á milli Ijósmyndara og maður verður að borða almennilega. Hvers vegna Ayds verkar Ayds hjálpar til að hafa hemil á matarlystinni. Það hjálpar til að borða hita- einingasnauða fœðu og forðast fitandi mat. Það er eina leiðin til að grennast og halda áfram að vera grannur. Og — vegna þess að það tekur tima að venj- ast nýjum matarsiðum — fæst Ayds i pökkum sem innihalda fjögurra vikna birgðir. Hver skammtur inniheldur 25 hitaeiningar. Og það er einmitt það sem Ayds gerir — það hjálpar mér að borða almennilega.” Það er álit margra vísindamanna að þegar blóðsvkurinn minnkar, segi heilinn: „Ég er svangur!" Augljóslega gerisl þella oftast skömmu fyrir tenjulegan matmálslíma en það gelur líka gerzl á milli mála. I'.l' þú horðar eill eða Itii Ayds (gjarnan með heilum drykk sem hjálpar þér að melta þaðl hálftima lyrir mállið. eyksl hlóðsykurinn og matarlystin minnkar.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.