Dagblaðið - 08.10.1979, Síða 13

Dagblaðið - 08.10.1979, Síða 13
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 8. OKTÓBER 1979. 13 „ Viljum losna við þjóðvega- aksturshrað- ann afgötum Kópavogs... ,,Við keppum að því takmarki að losa okkur við aksturshraða, sem gildir á þjóðvegum, af götum Kópavogs,” sagði Eðvarð Árnason lögregluvarð- stjóri í Kópavogi er við ræddum við hann eftir að hafa fylgzt með radar- hraðamælingum Kópavogslögreglunn- ar á föstudaginn. DB var á það bent að radarmælingar i Kópavogi færu fram með nokkuð öðrum hætti en i Reykjavík. Bíllinn sem radarmælingatækið er tengt við er ekki hafður i felum heldur geta þeir ökumenn sem opin augu hafa við aksturinn séð bílinn nokkru áður en bíll þeirra fer inn i geisla mælitækisins og hafa því möguleika til að sjá að sér varðandi ökuhraða og fara að settum reglunt. „Þaðerekki takmark okkaraðsekta menn, heldur að halda ökuhraðanum niðri,” sagði Eðvarð. „Alls staðar held ég að billinn með radartækið sjáist áður en farið er inn i geislann nema þegar ökuhraði er mældur á Nýbýla- vegi frá austri til vesturs. Það sem við erum að reyna að gera er að halda öku- hraðanum við það sem umferð gatn- anna í Kópavogi þolir. Þvi miður eru brögð að því að ökumenn aki með þjóðvegahraða hér i þéttbýlinu og slíkt getur haft afdrifarikar afleiðingar,” sagði Eðvarð. Hann kvað götur Kópavogs vera sér- lega varhugaverðar. Óviða eru gang- stéttir og skólabörn og aðrir gangandi vegfarendur sækja því inn á sjálfar ak- brautirnar. Gangbrautarskorturinn kallar á miklu nánara samstarf öku- manna og vegfarenda. „Þrátt fyrir þetta er betra ástand i Kópavogi en víðast annars staðar i sambærilegum kaupstöðum hvaðslysa- tíðni snertir,” sagði Eðvarð. „Þó eru það alltaf einhverjir slæmir ökumenn scm skera sig úr og eftir þeim erum við að seilast m.a. með radarmælingun- um.” Innan skamms verða sett upp merki við allar innkeyrslur til Kópavogs sem Lögreglumennirnir Valdimar t.h. og Þröstur t.v. Á milli þeirra er radarmælingatækió sem sýnir hraða umferðarinnar hverju sinni. Kóvarð Árnason varóstjóri við kortió á lögreglustööinni þar sem merkt eru öll um- ferðaróhöpp er veróa í kaupstaónum. ...og tryggja öryggi á gang- brautunum” „Sérstakur kafli í baráttu okkar fyrir bættri umferð í Kópavogi er að fá öku- menn til að virða gangbrautirnar,” sagði Eðvarð Árnason varðstjóri. „Það kemur þvi miður fyrir að öku- menn virða þær ekki, jafnvel þær sem hafa Ijósvita þannig að rautt Ijós kemur á umferð um götuna þegar gangandi vegfarandi ætlar yfir.” Eðvarð benti á að nú væri sá tími sem börn væru nýbyrjuð skólagöngu. Þar lærðu þau yngstu að treysta „græna karlinum” á umferðarljósvit- anum. Til að umferðin gangi slysalaust verða ökumenn að virða rétt þeirra og annarra til að komast yfir götu. Öku- menn eru fljótir að finna þegar „svin- að” er á þeim sjálfum en þeir ættu helzt að vera jafnfljótir að finna þegar þeir eru að .jSvina” á öðrum vegfar- endum. Meðan við ræddum við Eðvarð varð- stjóra var hringt til hans og honum til- kynnt um bíl sem ók yfir gangbraut á Borga holtsbraut gegn rauðu Ijósi. Barn sem var á gangbrautinni átti fótum fjör að launa. Ökumaðurinn hvarf af vettvangi, í þetta sinn með skrekkinn. Á Nýbýlavcginum a fostudaginn. Þarna cr réttilega stöóvaó fyrir gangandi umfcrð á akbraut. Til vinstri i fjarlægð má sjá lög- rcglubilinn mcð radarmælingatækið. Hann ættu allir ökumenn að geta séð áður cn þeir koma i geisla mælingatækisins haft þeir augun opin við aksturinn. DB-mynd Hörður. sýna greinilega að algjör hámarkshraði í bænum er 50 km á klukkustund. Á sömu stöng eru ökumenn aðvaraðir um að radar-hraðamælingar fari fram i bænum. Þegar við bætist að mælinga- bíllinn er ekki hafður í felum ætti öll- um ökumönnum að vera kleift að fara um Kópavog á settum hraða og komast um án sekta fyrir ökuhraða. En svo er þó aldeilis ekki. Við sett- umst i lögreglubílinn um stund á föstu- dag er hann var við mælingar á Nýbýla- vegi til austurs. Fyrir komu timabil þar sem bíll var stöðvaður fyrir of hraðan akstur á hverri mínúlu. Lögreglumenn sögðu að um morguninn hefðu þeir verið á sama stað í eina klukkustund og þá var 21 ökumaður kærður fyrir of hraðan akstur. Enginn hlaut kæru fyrr cn ökuhraði hans var kominn yfir 60 km á götu þar sem 50 km hámarks- hraði er leyfður. Sá scm hraðast ók var á n9 km hraða á götu þar sem mikil gangandi'umferð er, engar gangstéttir og víða merktar gangbrautir vegna skólabyggingar'sem leið margra liggur til. Það kostur ökumann 12 þúsund krónur að fá mælingu milli 60 og 70 km hraða á klukkustund, 15 þúsund að ntælast á 70—80 km hraða og 23 þús- und að mælast á 80—90 km hraða og siðan ökuleyfissvipting. Oadge fyrsti litli lúxusbíllinn frá Ameríku Nú í fyrsta sinn getum við borðið hinn margfalda verðlaunahafa DODGE OMNI frá bandarísku CHRYSLER-verksmiðjunum. DODGE OMNI er fimm manna, fimm hurða, framhjóladrifin fjöl- skyldubíll. í DODGE OMNI er 4 cyl. 1,7 lítra vél, sjálfskipting, vökva- stýri, útvarp og önnur amerísk þægindi. ísland er eina landið utan Bandaríkjanna sem fengið hefur DODGE OMNI afgreiddan, vegna metsölu bílsins í framleiðslulandinu. DODGE OMNI er bíll framtíðarinnar - lítill, spameytinn og dug- mikill fjölskyldubíll. — Látið ekki happ úr hendi sleppa, tryggið ykkur DODGE OMNI strax í dag. CHRYSLER "||T )fl nn nn 9/il bL Ji )U iJ bJ SUOURLANDSBRAUT 10. SÍMAR; 83330 - 83454 Ö Ifökull hf.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.