Dagblaðið - 08.10.1979, Side 15

Dagblaðið - 08.10.1979, Side 15
DAGBLAÐID. MÁNUDAGUR 8. OKTÓBER 1979. 15 Leifur Dungal viö störf sin. Beðið eftir mjólkurúthlutun i flóttamannabúðum Rauða krossins i Salisbury. inu. Þar virðist hvíta fólkið hafa allt til alls og það er óþægilegt að verða Einn af viðskiptavinunum. Eins og sjá má á stórum maganum þjáist barnið af næringarskorti. stöðugt vitni að þessari tvískiptingu á ferðum manns á milli. Það sem truflar mann mest er hve litið maður getur gert. Verkin eru eins og dropi í hafið. Það sem þetta fólk þarf eru ekki vestrænar lækningar heldur almenn menntun, sérstaklega hvað varðar ræktun, og pólitísk breyt- ing. Það er e.t.v. frekari ástæða til þess að fara og hjálpa þessu fólki á ökrun- um. Beita á fyrirbyggjandi ráðstöfun- um svo sem bólusetningu en fáránlegt að flytja vestræna lækna á þetta svæði með allar sínar græjur, sem síðan er engin aðstaða fyrir.” Lærdómsrík f ör „Mér finnst ég hafa lært heilmikið í þessari för. Ekki endilega í læknis- fræði, heldur á því að kynnast þessu elskulega fólki og menningu þess. Hvort maður hefur orðið að gagni er önnur saga. Rétt er að geta þess að lokum að matvælaaðstoð Rauða krossins þarna tekst virkilega vel. Rauði krossinn eyðir árlega milljónum svissneskra franka i þessa matvælahjálp. Það er þvi synd ef almennar safnanir vegna bráðra þarfa eins og til flóttafólksins i SA- Asíu ganga ekki nógu vel, því þá þarf að skerða það fé, sem notað er til hjálpar t.d. í Rhódesíu.” -JH. Vöm-og brauópeningar- Vöruávísanir Peningaseðlar og mynt Gömul umslög og póstkort FRÍMERKI Alltfyrirsafnarann Hjá Magna Sí5 DUNANM JASSI LAUGARÁSBÍðl Jasstónleikar f Laugarásbfói 4.10. á vegum Jassvakningar. Rytjendur John McNeil, trompet; Bill Bickford, gftar; Tom Warrington, bassi, og Mike Hyman, trommur. Gott starf Tónleikar þessir voru öðrum þræði fjögurra ára afmælistónleikar Jass- vakningar. Sá félagsskapur hefur gert býsna vel á þessum fjórum árum og I virðist ekki ætla að fara verr af stað í byrjun þessa starfsárs. Það er boðið upp á meiri viðburði í jassheimi Reykjavíkur en margra borga af hennar stærð, þótt nær liggi þjóð- braut. Þökk sé Jassvakningu. Þeir voru ekkert að tvínóna við hlutina, John McNeil og félagar, og hófu leikinn á blues af plötunni Faun sem þeir léku inn á í apríl siðastliðn- um. Hressileg byrjun sem kom við- stöddum þegar í gott skap. Efnis- skráin var svo aðallega uppbyggð a( ýmsum lögum af tveimur plötum sem John McNeil hefur leikið inn á. Flest laganna hefur hann samið sjálfur. Einna eftirtektarverðust fundust mér lögin Blue Samba og Faun, af sam- nefndri plötu. Þeir héldu uppi feikna góðri stemmningu hljómleikana á enda og hlutu verðskuldaðar þakkir áheyrenda. Tónlisf Jassarfleifð í kynningu þessara tópleika var John McNeil veittur sá vafasami heiður að vera kallaður „arftaki Miles Davies”. Sem betur fer sannaði pilturinn það rækilega á þessum tón- leikum að hann er ekki arftaki neins tiltekins jassleikara. Hann er afar sjálfstæður en á sér að sjálfsögðu fastar rætur i hinni ríku jasshefð þjóðar sinnar. Hann byggir leik sinn á þessari arfleifð og leitar ekki fanga i einhverjum ímynduðum tónheimi frumstæðrar tónlistar eins og sumir forverar hans hafa reynt síðustu árin. John McNeil er snjall trompietleikari með góða tækni og viðfelldinn tón. Hann verður tvímælalaust að teljast einn af mestu jasstrompetleikurum þessa og næsta áratugs. Einvalalið Félagar hans eru einnig hver öðrum snjallari; Bill Bickford gítar- leikari, sem neytir töfra rafmagnsins aðeins i sinni einföldustu mynd og styður meðleikara vel án þess að glata nokkru af sjálfstæði sínu. Mike Hyman, bráðsnjall trommuleikari, sem hefur þegar áunnið sér virðingu færustu manna i heimi jassins. Síð- astan en ekki sístan ber aðnefna Tom Warrington bassaleikara. Hann bar ægishjálm yfir félaga sína, síbyggj- andi upp sveifluna og samhljóminn en samt eins og einleikari allan tim- ann, án þess að draga athyglina bein- linis frá heildinni. Ég tel hann með allra bestu jassleikurum sem ég hef heyrt til. í heild voru þetta stórgóðir tón- leikar og vonum við að eftir upphaf- inu fari þetta starfsár Jassvakningar. - EM SONY ER TOPPURINN Betamax myndsegul- band. Frábœrt verð: 999.000. Myndaleiga á staðnum. Setjum upp fyrir fjölbýlishús. JAPÍS HF. Lækjargötu 2 - Simi 27192. Amerísk gæðadekk - úrvals snjómynztur mjög hagstætt verð Gúmmívinnustofan ttSS' Super snjómynziur 155X12(600X12) 20.400 165X13(645X13) (590X13) 21.700 B70X14U75X 14) (Volvó) 21.200 C78X 14(695X14) 25.500 195/75 X 14 (CR7814) (ER7814) 24.400 GR78XI4 30.400 G60X14 33.800 BR78X 15(860X15) (600X15) 21.800 F78X 15(710X15) 22.300 FR78X15 27.600 GR78X15 31.200 HR78X15 (700X15) (Jeppa) 31.900 LR78X 15 (750X15) (Jeppa) 34.500 Sendum gegn póstkröfu um land allt 12X 15(Bush Track) 66.800 125X12 með nöglum 18.000 520X 10 Yokohama 13.600 Michclin 135X 13(Fiat 127) 17.850 155X13 29.800 205X16 Michelin (Range Rover) Flestar stærðir sólaðra hjólbarða

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.