Dagblaðið - 08.10.1979, Page 16

Dagblaðið - 08.10.1979, Page 16
16 • DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 8. OKTÓBER 1979. Úrheitum málum SIGURDUfí A. MAGNUSSON (til vinstri! i hlutverki Bouchers fréttaritara Times i Balkanlöndunum. Tii hægri er leikarinn Minas Kristiðis sem fer með hiutverk forsætisráðherrans Elevþeriosar Venizelos. Sigurður A. Magnús- son leikur í kvikmynd Sigurður A. Magnússon rithöfund- ur leikur hlutverk blaðamannsins Bouchers í þriggja klukkustunda langri kvikmynd leikstjórans Pandelis Voulgaris um frægasta stjórnmálamann Grikkja á þessari öld, Elevþeríos Venizelos. Stjórn- málamaður þessi var forsætisráð- herra Grikklands á árunum 1910— 20, einhverjum mestu umbrotaárun- um í seinni tímá sögu Grikkja. Sigurður var fararstjóri i Grikk- landi siðastliðið sumar og fékkst þá við kvikmyndaleikinn jafnhliða því að liðsinna ferðalöngum. Blaða- maðurinn sem hann leikur var frétta- ritari Times i Lundúnum í löndum Balkanskagans. Hann var náinn vinur og ráðgjafi Venizelosar og hafði veruleg áhrif á gang mála i Grikklandi fyrir fyrri heimsstyrjöld. Leikstjóri myndarinnar, Voulgaris, er mörgum vel kunnur hér á landi frá því hann var gestur kvik- myndahátíðar Listahátíðar 1978. Á þeirri hátíð var sýnd mynd hans, Happy Day, sem var um fangabúðir grisku herforingjastjórnarinnar á ár- unum 1967—74. — Myndin sem Sigurður A. Magnússon leikur í er mesta stórvirki Grikkja í kvikmynda- gerð til þessa. Upphaflega var gert ráð fyrir því að hún kostaði sem svarar þrjú hundruð milljónum is- lenzkra króna í framleiðslu. Nú er hins vegar Ijóst að myndin verður mun dýrari. íjarðhltann „Ætli það heiti ekki einna helzt að ég sé hér reddari, ég er eina mann- eskjan við stofnunina sem ekki er jarðvisindalærð og mun vinna við skrifstofustörf, þýðingar, útgáfu- starfsemi og kallast svo ef til vill blaðafulltrúi líka,” sagði Sólveig Jónsdóttir sem hætti blaðamennsku á Tímanum um síðustu mánaðamót eftir 12 ára blaðamennsku. Nú er hún tekin til starfa við jarð- hitadeild Orkustofnunar, aðallega við jarðhitaskólann, sem er í tengsl- um við Háskóla Sameinuðu þjóð- anna. Sólveig mun einnig hafa nokkur afskipti af erlendum nemendum skól- ans sem koma frá fjarlægum löndum og þurfa að aðlagast þjóðfélaginu hér, auk námsins. „Nei, ég hætti ekki vegna erfið- leikanna á Timanum núna heldur hentar vinnufyrirkomulagið hér mér betur,” sagði hún. Starf blaðamannsins er oft fjöf breytt Hér tekur Sólveig Jóns- dóttir viðtal — ef til vill við páfa- gaukinn á öxl hennar. Fólk Símon ívarsson og Siegfried Kobilza á hljómleikaferö um landiö: „Það hefur verið góðmennf9 „Þessi hljómleikaferð okkar hefur gengið mjög vel. f>að hefur að visu ekki verið sérlega fjölmennt hjá okkur en mjög góðmennt og viðtök- urnar verið ágætar,” sagði Simon ívarsson gttarleikari i samtali við Dagblaðið. „Ég vissi það fyrirfram að það þarf anzi mikið til að rífa upp áhugann fyrir klassiskri gítartónlist svo að ég var viðhúinn þvi að við lékjum ekki i troðfullum sölum.” Með Símoni í hljómleikaförinni er Siegfried Kobilza, Austurríkismaður sem að sögn Símonar þykir mjög efnilegur í heimalandinu. „Siegfried á að leika innan skamms á hljómleik- unt í Vín sem sjónvarpið þar stendur fyrir,” sagði Símon. „Þetta er mikill heiður þegar á það er litið að fram- boðið á hljómlistarmönnum er mjög mikið þarna ytra. Simon bætti því við að fyrir nokkru hefði Siegfried Kobilza farið i tónleikaferð unt Austurríki og hlotið geysilega góðar undirtektir, svo góðar að sums staðar varð að færa tónleika hans i stærri sali svo að allir gætu hlýtt á hann sem heyra vildu. Ruglað verðskyn „Við erum búnir að fara víða um landið síðan þessi tónleikaferð okkar hófst um mánaðamótin,” sagði Símon. „Við byrjuðum í Vestmanna- eyjum þar sem við ætluðum að selja aðgöngumiðann á 1500 krónur. Við hækkuðum verðið síðan í 2500 krónur eftir að fólk sagði okkur að við værum raunar að gefa vinnu okkar. Hér hækkar allt svo ört að verðskynið hjá mér er alveg ruglað. Hvort við högnumst á þessari ferð? Simon Ivarsson (tH vinstri) og Siegfried Kobilza á tónleikum i Norræna húsinu. Þar voru fjölmennustu hljómleikar þeirra til þessa. Í gærkvöld skemmtu þeir i Óðali. DB-mynd Ragnar Th. Sigurðsson. Nei, en við vinnum fyrir feröakostn- aðinum. Svo h.iálpar það að við ger- um einn þátt fyrir íslenzka sjónvarp- ið. Þar fáum við öruggar tekjur.” Lokatónlcikar Símonar og Sieg- frieds að þessu sinni eru í Félags- stofnun stúdenta á föstudagskvöldið kemur. Daginn eftir halda þeir síðan áleiðis til Vínarborgar. Sínton kvaðst í viðtalinu við DB vonast til að ljúka lokaprófi i Vin í vetur. Að því loknu liggur leiöin til Basel i Sviss þar sem hann býst við að verða við nám í tvö ár til viðbótar. Það tekur sannarlega tímann sinn að læra almennilega á gítar. Pressing Imminent In Small But $$ lceland RKYKJAVIK prcssinii píant is cvpcctcd ti' hcopcr- ativc bdorc ncxt ('hristmas. rcsult ot invcstmcnt h\ ;t consortium vvhicli ncliulcs tuo ot thc countrv's top klisk companics. I alkinn antl lcclan- dic Rccordiutis.' By HALl.DOR iNGI ANDRKSSON lccland's l'irst SCí Rccords. Stcinar is owncd h\ thc major rctail chain Karnah. uhich impoi ts and rctails rccords alongsitlc Icclatulic l'ashions and chMhinii. Sincc it was scl up m 1975. Stcmar Halldór Ingi skrif- ar i Billboard Bandaríska músíktímaritið Bill- board birtir i nýjasta tölublaði sínu alllanga grein um íslenzka hljóm- plötumarkaðinn og helztu útgáfu- fyrirtækin hér á landi. Þar er greint frá þeim erfiðleikum sem útgefendur eiga í þessa dagana, svo og innflytj- endur erlendra hljómplatna, og litil- lega minnzt á plötupressuna sem til stendur að setja upp hér á landi. Höfundur þessarar greinar er Hall- dór Ingi Andrésson poppskrifari Morgunblaðsins. „Það kom mér á óvart hversu mikið pláss þessi fyrsta grein mín í Billboard fær,” sagði Halldór í sam- tali við DB. Það hefur orðið að samkomulagi að ég sendi fréttabréf til blaðsins á svo sem ársfjórðungs fresti og sendi fréttir ef eitthvað sér- stakt er að gerast sem forvitnilegt þætti á alþjóðavettvangi. ” Halldór sagði að Billboardmönn- um hefði mest komið á óvart hið svimandi háa verð sem er á hljóm- plötum hér á landi. Halldór Ingi Andrésson. Verð er- lendra hljómplatna á íslandi kom Billboardmönnum á óvart Billboard er eitt virtasta tímarit sinnar tegundar i heiminum. Sérstak- lega þykja vinsældalistar blaðsins ábyggilegir. Það kemur út vikulega og segir fyrst og fremst fréttir úr bandaríska tónlistarheiminum, svo og annars staðar frá úr heiminum.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.