Dagblaðið - 08.10.1979, Side 17
17
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 8. OKTÓBER 1979.
iþróttir íþróttir íþróttir íþróttir
Fyrírhafnarlrtill sigur Vals
gegn Jónslausum KR-ingum
—Reykjavíkurmeistarar í körf ubolta annað árið í röð eftir öruggan sigur á KR
Valsmenn unnu Reykjavíkur-
meistaratitilinn i körfuknattleik annað
árið i röð er þeir sigruðu KR-inga i
Laugardalshöllinni á laugardag 81-72.
Sigur Valsmanna var ekki miklum
erfiðleikum háður og KR-ingarnir án
Jóns Sigurðssonar voru eins og höfuð-
iaus her á köflum. Framarar náðu
þriðja sætinu þrátt fyrir tap gegn ÍS þar
en Ingi Stefánsson tryggði Stúdentun-
um sigur tveimur sekúndum fyrir leiks-
lok með skoti utan af kanti. Ármann
vermdi botninn á mótinu eins og fyrir-
fram var búizt við og liðið á greinilega
erfiðan vetur fyrir höndum í 1. deild-
inni. Bob Starr hefur marga efnilega
stráka í liðinu en það tekur tima að
hefla þá til.
Af þeim þremur leikjum, sem leiknir
voru á laugardag, vakti leikur KR og
Vals skiljanlega mestu athyglina enda(
var þar um úrslitaleik mótsins að ræða.
leikurinn var rólegur framan af og
taugaveiklun mikil i herbúðum beggja.
Valsmenn fengu óskabyrjun og komust
i 5—0 og skoraði Torfi Magnússon,
sem átti stórleik fyrir Val, öll þessi
fyrstu stig. KR jafnaði síðan metin 8—
8 og eftir það skiptust liðin á um að
hafa forystu. KR leiddi 24—21 þegar
rétt rúmar sex mínútur voru til loka
fyrri hálfleiksins en þá fylgdi i kjölfarið
sá kafli hjá Val sem gerði út um leik-
inn. Þeir keyrðu hraðann upp og tókst
að opna vörn KR hvað eftir annað upp
á gátt. Til að bæta gráu ofan á svart
fyrir KR-ingana hitti Torfi nær öllum
skotum sínum rakleiðis í körfuna og
þeir höfðu engin handbær ráð til að
stöðva hann.
Strax i upphafi síðari hálfleiksins
bættu Valsmenn enn frekar við for-
skotið og einhvem veginn hafði maður
það á tilfinningunni að KR tækist
aldrei að vinna upp þann mun sem
skildi liðin að í byrjun síðari hálfleiks-
ins. Valsmenn komust þá í 48—35 og
siðan munaði alltaf um 10 stigum á
liðunum til leiksloka. Sigurinn var
aldrei i hættu og undir lokin var kæru-
leysis farið að gæta hjá báðum aðilum.
Þótt Valsmenn ættu almennt góðan
dag er ekkert frá þeim tekið með því að
útnefna Torfa Magnússon ,,mann
leiksins”. Leikur hans var í einu orði
sagt frábær, hittnin mjög góð og send-
ingar hans margar hverjar gullfallegar.
Þó var það mikill Ijóður hjá Valsmönn-
um að aðeins fjórir leikmenn skyldu
skora i síðari háll leiknum og aðeins sex
menn allan leikinn — þar af einn með
aðeins 2 stig. Ekki má mikið út af
bera til þess að allt fari í handaskol-
um. Sömu mennirnir eru nær alltaf inn
á og breiddin virðist ekki mikil hjá
félaginu. Ríkharður var sprækur i fyrri
hálfleiknum og Þórir tók við hlutverki
hans í þeim síðari og skoraði stift úr
horninu. Dwyer var jafn leikinn í gegn
að vanda.
Hjá KR voru mikil kafiaskipti og
leikmenn áttu góða spretti, þó sjaldan
nema 1 eða 2 í einu. Garðar var mjög
atkvæðamikill framan af og siðan vart
söguna meir. Ágúst Lindal var lengst af
driffjöðurin .í leik KR svo og Eirikur,
sem átti góðan leik. Árni átti góða
spretti inn á milli og Geir náði sér vel á
strik í síðari hálfleiknum. Svertinginn í
liðiKR var mun skárri nú en gegn Fram
um fyrri helgi en á þó langt í land með
að geta talizt góður leikmaður. Án
þessarar hrikalegu hæðar sinnar væri
hann ekki merkilegur.
Stig Vals: Torfi 2'\ Dwyer 26, Þórir
10, Rikharður 9, Kristján "T, Sigurður
2.
Stig KR: Dakarsta 18, Geir 16,
Eirikur 9, Árni 8, Garðar Ágúst 4,
Birgir4, Bjarni 4, Þröstur2.
ÍS - Fram 78-77 (38-44)
Fyrsti leikurinn á laugardag var
viðureign ÍS og Fram. Það var jöfn
viðureign lengi framan af en góður
sprettur Framara undir lok fyrri hálf-
leiksins tryggði þeim 6 stiga forystu.
Upphaf síðari hálfleiksins var hins
vegar mjög gott hjá ÍS og á tiltölulega
skömmum tíma breyttu þeir stöðunni
sér í hag og um miðjan hálfleikinn voru
þeir komnir með 10 stiga forskot.
Undir lokin var talsverðrar þreytu farið
að gæta hjá þeim og þá söxuðu Fram-
ararnir ört á forskot þeirra og þegar
aðeins 9 sekúndur voru til leiksloka
tókst þeim að komast yfir á nýjan leik,
7n—76 og sigurinn blasti við þeim. ÍS
náði knettinum — Framararnir léku
„maður á mann” — en Inga Stefáns-
syni tókst að rifa sig lausan á hægri
vængnum og skot hans af löngu færi
sigldi ofan í körfuna til mikillar gleði
fyrir félaga hans.
Af leikmönnum ÍS voru tveir sem
stóðu algerlega upp úr og það voru
Gísli Gíslason, sem átti mjög góðan
leik, og Trent Smock. Gísli var allt í
öllu hjá ÍS og erfitt er nú að ímynda sér
llöið án hans. Hann heldur spilinu iðu-
lega gangandi með krafti sínum og yfir-
ferð og hittnin var í óvenju góðu lagi að
þessu sinni enda uppskeran eftir því.
Smock skoraði mikið en það er at-
hyglisvert hversu lítið hann skorar
undir körfunni. Flest skotin frá honum
koma utan af velli og hann er sérlega
hittinn af löngu færi. Undir körfunni
virðist ekki ganga eins vel hjá honum,
hverju svo sem um er að kenna. Aðrir
leikmenn hjá ÍS voru jafnir og Jón
Héðinsson var óvenju rólegur.
Framarar létu þjálfara sinn, John
Johnson, sem fór í fýlu um miðjan
síðari hálfleikinn, hafa allt of mikil
áhrif á sig og leikmenn virtust taka
leiknum eins og hverju öðru skyldu-
verki. í raun furðulegt þar sem Fram
átti enn möguleika á Reykjavíkur-
meistaratitlinum. Símon Ólafsson átti
góðan leik hjá Fram og þá var Þor-
vajþur Geirsson grimmur. Þessir tveir
ásamt Johnsvon voru allt i öllu hjá
Fram og það vakti furðu hversu lítið
Björn Jónsson var notaður. Hann stóð
sig geysilega vel gegn KR um fyrri helgi
en var nú lítið með. Fram og einkum og
sér í lagi ÍS virðast bæði sterkari en í
fyrra og þau ættu bæði að spjara sig
bærilega í úrvalsdeildinni í vetur. 1
raun er ákaflega erfitt að gera sér í
hugarlund hvaða lið muni falla niður
úr úrvalsdeildinni í vetur. Baráttan
verður enn harðari en í fyrra.
Stig ÍS: Smock 36, Gísli 20, Bjarni
Gunnar 7, Jón Héðinsson 4, Ingi 4,
Gunnar 3, Albert 2 og Atli 2.
Stig Fram: Johnson 31, Simon 20,
Þorvaldur 14, Björn Magnússon 6,
Hilmar 4 og Ómar 2.
ÍR - Ármann 103-90 (58-38)
„Við vorum slæmir en dómararnir
voru hálfu verri,” sagði þjálfari Ár-
menninganna, Bob Starr, eftir leikinn
og vissulega er nokkuð til í þessum um-
mælum hans. Leikurinn var i sjálfu sér
afar slakur og áttu Ármenningarnir þar
stóran hlut að máli því leikur þeirra var
oft á tiðum i algerum molum. ÍR hafði
leikinn í hendi sér allan tímann og það
var ekki fyrr en allt varalið þeirra var
íkomið inn á að munurinn minnkaði
eitthvað. Ekki bætti úr skák fyrir
Ármenninga að Danny Shous virtist
framan af í leiknum meinilla við að
gefa knöttinn — jafnvel þótt leikmenn
væru dauðafríir. Þegar hann s.vo gaf
knöttinn voru samherjar hans oft ekki
með á nótunum — gripu ekki í auð-
veldu færi. Þrátt fyrir yfirburði í hálf
leik tókst ÍR ekki að vinna nema með
13 stiga mun og má heimfæra það til
kæruleysis leikmanna.
Stig ÍR: Jón Indriðason 22, Mark
Christensen 20, Kristinn 12, Jón Jör.
11, Guðmundur 10, Kristján 8, Kol-
beinn 8, Stefán 6, Erlendur 4, Sigmar 2
— allir skoruðu. Fyrir Ármann: Shous
63, Kristján Rafnsson II, Ingvar 6,
Kristján Arinbjarnar 4, Davið 4 og
Gunnar 2.
- SSv.
keykjavikurmeistarar Vals 1979 með sigurlaunin eftlr átakalftinn sigur gegn KR.
DB-mynd Bjarnlcifur.
BATAR
Bátureins og myndin sýnir til afgreiðslu strax. Verð 1.580.000.
6 tonna bátur, eins og myndin sýnir, til afgreiðslu fljótlega. Áætlað verð 4,5
milljónir.
11 tonna bátur, eins og myndin sýnir, til afgreiðslu innan hálfs mánaðar. Bátur eins og myndin sýnir til afgreiðslu fljótlega. Áætlað verð 2.200.000.
Áætlað verð 12— 13 milljónir.
Allir bátarnireru QISLI JÓNSSON & CO. HF.
til syms hja okkur ,!££!£,"»35.