Dagblaðið - 08.10.1979, Page 19
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 8. OKTÓBER 1979.
19
öttir
íþróttir
iþróttir
Iþróttir
íþróttir
istari
nenn
ígærkvöldi
slaka á hörkunni stundum. Þorbjöm
Jensson var að öðrum ólöstuðum
beztur í vörninni. Stefán Gunnarsson
'átti góðan leik bæði t vörn og sókn þó
svo að hann skoraði ekki.
Mörk Víkings: Sigurður Gunnarsson
7/2, Erlendur Hermannsson 5, Páll
Björgvinsson 3, Ólafur Jónsson 3, Þor-
bergur Aðalsteinsson 2 og Steinar !.
Mörk Vals: Þorbjörn Guðmundsson
5, Stefán Halldórsson 5/5 Steindór
Gunnarsson 2, Björn Bjarnason 2, Þor-
björn Jensson 2, Bjarni Guðmundsson
2 og Gunnar Lúðvíksson !.
-SSv.
KevKjaviKurmeistarar vtKings iv/v-
DB-mynd Bjarnleifur.
Viggó tryggði sigur Barcelona
með þrem síðustu mörfcunum
—Sjö þúsund áhorf endur í Barcelona ærðust af fögnuði þegar Barcelona sigraði
Calpisa 24-23—spænsku meistarana 1975—1978.
Viggó sló í gegn, skoraði sjö mörk og þar af þrjú síðustu mörkin í leiknum
Landsliðsmaðurinn kunni í hand-
knattleiknum, Viggó Sigurðsson, sló
heldur betur í gegn í spánska hand-
boltanum í gær. Var aðalmaðurinn hjá
Barcelona, þegar liðið sigraði einn
hættulegasta mótherja sinn, Calpisa
frá Alicante í iþróttahöllinni miklu í
Barcelona. Eins marks sigur, 24—23,
og Viggó skoraði þrjú síðustu mörkin í
leiknum. íþróttahöllin var þéttskipuð
áhorfendum — um sjö þúsund manns
— og þeir ærðust alveg af fögnuði i
leikslok. Hrópuðu þúsundum saman
nafn íslendingsins — og leikmenn
Barcelona ætluðu beinlínis að kæfa
Viggó i fagnaðarlátunum eftir að
sigurinn var í höfn. Hreint ótrúlegar
sérí60þús.
dollara
Björn Borg nældi sér í 60.000 dollara
í gær, þegar hann varð sigurvegari
fimm-manna alþjóðlegu tennismóti
Rotterdam í Hollandi. Borg sigrað
Bandarikjamanninn Eddie Dibbs
úrslitum 6—3 og 6—0. Algjörir yfir-
burðir. í undanúrslitum sigraði Borg
vinstri handar manninn Roscoe
Tanner, Bandarikjunum, 3—6, 6—1 og
6—2 í hörkuleik — en í úrslitum
Wimbledonmótsins i sumar sigraði
Borg Tanner í úrslitum í fimm lotu leik.
Hins vegar sló Tanner Borg úr á banda-
ríska meistaramótinu í haust.
Hollendingurinn Tom Okker og Tim
Gullikson, USA, léku einnig á mótinu í
Rotterdam um helgina.
Marsh vann
íMasters
Ástralíumaðurinn Graham Marsh
varð sigurvegari í British masters golf-
keppninni í Woburn á Englandi. Lék
holurnar 72 á 282 höggum og hlaut 22
þúsund dollara í fyrstu verðlaun.
Næstir komu Isao Aoki, Japan, og
Neil Coles, Bretlandi, á 284 höggum —
aðeins einu höggi á eftir Marsh. Tony
Jacklin, varð fjórði með 286 högg — en
hann hafði forustu eftir tvær umferðir
ásamt Marsh. Lék hins vegar tvær sið-
ustu umferðirnar á 74 höggum hvora.
senur i iþróttahöllinni — einhverri
glæsilegustu iþróttahöll í Evrópu, þar
sem úrslitaleikir B-keppninnar voru
háðir í vor og ísland lék þar um þriðja
sætið.
Calpisa frá Alicante er þekktasta
handknattleiksfélag Spánar og varð
spánskur meistari fjögur ár i röð frá
1975 til 1978 en í vor sigraði Atletico
Madrid. Það var þvi mikil spenna fyrir
leikinn i Barcelona og áhorfendasvæð-
in þéttskipuð, þegar leikurinn fór fram.
Leikurinn var mjög harður framan af
og liðin skiptust á um forustu. En síðan
náði Calpisa yfirtökunum og komst i
12—8. Leikmenn. Barcelona gáfust þó
ekki upp og tókst að jafna í 12—12
fyrir hálfleikinn.
Sama spenna var í siðari hálfleiknum
en þó virtist stefna i sigur Calpisa.
Þegar aðeins tæpar þrjár mínútur voru
til leiksloka var staðan 23—21 fyrir
Calpisa. En þó tók Viggó til sinna ráða
— skoraði þrjú síðustu mörkin í leikn-
um, það síðasta rétt fyrir leikslok, og
það nægði til sigurs því leikmönnum
Calpisa tókst ekki að skora. Eitt mark
Viggós i lokin var úr vitakasti og það
var mikið álag að taka vítakast á þeim
tíma — við þá gífurlegu spennu, sem
var í íþróttahöllinni.
Viggó Sigurðsson var markhæstur
leikmanna Barcelona i leiknum —
skoraði sjö mörk, þar af tvö úr víta-
köstum. Þegar Barcelona hafði mis-
notað þrjú vítaköst í leiknum var Viggó
falið það hlutverk að taka þau — og
skoraði úr tveimur þeim síðustu. Hann
var hetja Barcelona i gær — kom fram
i sjónvarpi og útvarpi eftir leikinn, og á
íþróttasíðum dagblaðanna í morgun
var hann í aðalhlutverki. Áhugi á hand-
knattleik er gífurlegur i Barcelona og
að sögn íslendinga, sem sáu leikinn í
gær, var Viggó næstum tekinn í
dýrlingatölu hjá Barcelonabúum eftir
frammistöðu sina. Þeir skafa ekki utan
af hlutunum, Spánverjarnir, þegar
hrifningin nær tökum á þeim.
Þremur umferðum er nú lokið í 1.
deildinni spænsku. Barcelona er i efsta
sæti ásamt meisturum Atletico Madrid.
Bæði lið hafa sigrað í fyrstu þremur
leikjunum. Eru meðsexstig. í deildinni
eru 12 lið og er almennt talið að Barce-
lona, Atletico Madrid og Calpisa berj-
ist um meistaratitilinn.
í fyrsta leik sínum sigraði Barcelona
Granhollers með 24—18 á heimavelli.
Áhorfendur voru rúmlega 5000 en
Granhollers er frá borg skammt frá
Barcelona. Það er þekkt lið — sigraði
meðal annars Dankersen í úrslitum í
Viggó Sigurðsson — tryggði Barcelona sigur.
Evrópukeppni bikarhafa fyrir
nokkrum árum en þess ber þó að geta
að úrslitin voru á Spáni. í leiknum við
Granhollers skoraði Viggó þrjú mörk.
Hann skoraði einnig þrjú mörk i
öðrum leik Barcelona, sem var gegn
Jaen frá Granada. Barcelona vann þá
stórsigur á útivelli 31—22 — mikil-
vægur sigur, því í liði Jaen eru margir
kunnir leikmenn frá Madrid. Hand-
knattleikur hefur verið í gífurlegri sókn
á Spáni siðustu árin — óviða í Evrópu,
sem meiri áhugi erá þessari íþrótt.
-hsím.
Fyrsta tap
Lokeren
— en Standard vann
góðan siguríBelgíu
Lokeren, liðið, sem þeir Arnór
Guðjohnsen og Skotinn James Bett,
leika með í Belgíu tapaði sínum fyrsta
leik á keppnistímabilinu í gær. Heldur
samt forustu sinni — hefur 13 stig en
Standard Liege og Molenbeek hafa
einnig 13 stig eftir átta umferðir.
Standard vann góðan sigur á útivelli í
gær — sigraði Beringen 4—1 og lið
Ásgeirs Sigurvinssonar hefur nú tekið
stefnu á belgíska meistaratitilinn i
fyrsta skipti í mörg ár. Belgíska knatt-
spyrnan verður áreiðanlega mjög
spennandi í vetur en meistarar Beveren
og Anderlecht hafa enn ekki náð sér
verulega á strik.
Úrslit í gær urðu þessi.
Molenbeek-Winterslag 3—1
Waterschei-Hasselt 4—0
Antwerpen-Lierse 3—1
Charleroi-Beerschot 0—1
FC Brugge-Lokeren 2—0
Waregem-Anderlecht 1 — 1
Bevcren-Berchem 2—1
FC Liege-CS Brugge 5—1
Beringen-Standard 1—4
HALLUR
SÍMONARSON.
Inter
íefstasæti
Inter Milano náði forustu í 1. deild-
inni ítölsku í gær, þegar liðið sigraði
Bologna á útivelli. Efsta liðið fyrir um-
ferðina, Torino, náði aðeins jafntefli á
heimavelli í FIAT-borginni frægu.
Úrslit.
Bologna-Intcr 1—2
Catanzaro-Avellino 0—0
Lazio-Perugia I — I
AC Milano-Juvcntus 2—1
Napoli-Roma 3—0
Pescara-Ascoli 0—0
Torino-Fiorentina 1—1
Udinese-Cagliari I—1
Staða efstu liða
lnter
Torino
AC Milano
Juventus
Napoli
Spennan
eykst í
Frakklandi
Spenna jókst í 1. deildinni frönsku
um helgina, þegar St. Etienne tapaði
fyrir Lens. St. Etienne er þó enn efst
með 18 stig eftir 11 umferðir. Monaco
er í öðru sæti mcð 17 stig. Nantes hefur
15 stig en síðan koma meistarar Stras-
bourg, Lille og Nimes með 14 stig.
Úrslit.
Lval-Nimes 3—1
Monaco-Strasbourg 4-1
Brest-Angers 0—1
St. Germain-Nice 2—2
Lens-St. Etienne 4—3
Metz-Lille 2—0
Lyons-Bastia 1—1
Marseilles-Bordeaux 1—1
Sochaux-V alencienne 0—1
Nantes-Nancy 2—0
Úrslit i Portúgal í gær urðu þessi. Benfica-Estoril 4—1
Porto-Beira Mar 3—0
Rio Ave-Guimaraes 1—1
Setubal-Leiria 1—0
Portimonense-Belenen 1—2
Braga-Sporting Lissabon 2—3
Espinho-Varzim 2—0
Ekki var leikið á Spáni í gær vegna Evrópukcppni landsliða á miðvikudag — Spánverjar leggja alla áherzlu á að
komast þar í úrslit.