Dagblaðið - 08.10.1979, Side 20
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 8. OKTÓBER 1979.
Iþróttir
Iþróttir
I
20
Iþróttir
Iþróttir
Brian Clough hótar að hætta
hjá Evrópumeisturum Forest!
—Liðið er nú í ef sta sæti í 1. deildinni ensku ásamt Manchester United. Liverpool komst á skrið á ný
Evrópumeistarar Nottingham Forest
sigruðu spútniklið Úlfanna, 3—2, í
hörkuskemmtilegum leik á City |
Ground í Nottingham á laugardag.
Lengi vel leit út fyrir öruggan sigur
Foréstog eftir aðeins 37 mín. stóð 3—0
fyrir heimaliðið. Fyrsta markið var
furðulegt. John Robertson gaf fyrir á,
fjórðu mín. og bakvörður Úlfanna.j
Parkin, spyrnti knettinum. Honura
tókst ekki betur upp en að hann spyrnti
knettinum beinl í höfuðið á Trevor
Francis — og boltinn hrökk í markið
óverjandi fyrir Paul Bradshaw. Mikið
heppnismark. T'okkru síðar felldi
F.mlyn Hughes, fyrirliði Úlfanna, einn
sóknarmanna Forest innan vítateigs.
Vítaspyma, sem Robertson skoraði
örugglega úr. Þriðja mai k Forest
skoraði Gary Birtles á 37. mín. —
glaesimark. Rétt fyrir hálfleik tókst
John Richards að laga stöðuna i 3—1
með miklum þrumufleyg. Úlfarnir
voru betri í síðari hálfleiknum en
tókst þó ekki að jafna metin. Peter
Daniel skoraði úr vítaspyrnu á $6. min. I
og spenna mikil . lokaníínúturnar.'
Forest hélt þó féiígnum hlut. Trevor
Francis lék fyrsta leik sinn með Forest á
leiktimabilinu — kom meiddur og
brenndur lieim i ágúst frá gervigrasvell-
inum i Detroit í Bandaríkjunum og var
lengi frá vegna þeirra meiðsla en kom á
ný í liðið eftir tvo leiki með varaliðinu.
Nottingham Forest cr nú í efsta'
sætinu í 1. deild ásamt Man. Utd. en
samt er þar ekki allt eins og skyldi. i
síðustu viku hótaði framkvæmdastjór-
inn, Brian Clough, að hætta ef stjórn
félagsins skipti sér af rekstri hans og
Peter Taylor á fclaginu \ stjórnar-
fundi lenti formaðut inn, Stuart
Dryden, sem leggur allt sitt traust á
Clough í minnihluta — níu manna
stjórn — þegar slaka fjárhagsstöðu
félagsins bar á góma. Um það sagði
Clough:
,,Ef þeir halda að einhver annar geti
greitt fyrir nýja stúku upp á 2,5 millj-
ónir punda, búið til sigurlið, og ráðið
hann fyrir minna en 30 þúsund pund,
þá vildi ég komast að því leyndarmáli.
Ef einhver minnsti vafi er á í hugum
stjórnarmanna að við stjórnum félag-
inu ekki eftir beztu getu þá legg ég til aðj
þeir fái einhvern annan til þess."
Þetta voru orð Brian Clough og hann
var reiður — maðurinn sem tók við
Forcst í 2. deild fyrir fjórum árum og
hefur gert liðið að Evrópumeistara.
United efst
Man. Utd. vann auðveldan sigur á
nýliðum Brighton á Old Trafford á
laugardag og náði við það aftur efsta
sætinu í I. deild, hefur betri markamun
en Forcst en bæði lið hafa 14 stig. Stevc
Coppcll skoraði fyrra mark United á
26. mín. og á 5mín. skoraði Lou
Macari eftir aukaspyrnu. Áhorfendur
voru rúmlega 52 þúsund og það vakti
mesta athygli í leiknum að markvörður
Brighton, Eric Steele, var bókaður fyrir
að slá samherja sinn, Gary Williams,
eftir varnarmistök. Dómarinn ræddi
einnig við Williams vegna atviksins.
Lið Man. Utd. var óbreytt sjötta leik-
inn i röð — Joe Jordan hefur ekki
leikið síðan hann meiddist í leiknum
við Aston Villa 8. septembcr. Geta má
þcss að fyrir helgi bauð Man. Utd. 400
þúsund pund í Dave Thomas hjá Ever-
ton. Úlfamir hækkuðu þá boð sitt i
Thomas og Everton leyfði Thomas,
sem lck í enska landsliðinu hér á árum
áður, að velja til hvors félagsins hann
færi. Thomas valdi Úlfana en ekki var
getið hvort hann hefði leikið með þeim
gegn Forcst á laugardag.
En það er nú vi .t kominn tími til að
lita á úrslitin á laugardag.
1. deild
Arsenal — Man. City 0—0
Aston Villa — Southampton 3-0
Coventry — Everton 2—1
C. Palace — Tottenham 1 — 1
Derby County — Bolton 4—0'
Leeds — Ipswich 2—1
Liverpool — Bristol City 4—0
Man. Utd. — Brighton 2—0
Middlesbro — WBA 2—1
Norwich — Stoke 2—2
Nottm. Forest — Wolves 3—2,
2. deild
Bristol Rov. — Notts Co. 2—3
Bumley — Chelsea 0—1
Cambridge — Swansea 0—1
Cardiff — Luton 2—1,
Fulham — Wrexham 0-2'
Oldham — Orient 1-0
Preston — Birmingham 0—0
Shrewsbury — Leicester 2—2
Sunderland — Charlton 4—0
Watford — QPR 1—2
West Ham — Newcastle 1 — 1
3. deild
Brentford — Barnsley 3—1
Bury — Southend 1 — 1
Carlisle — Wimbledón I —1
Chester — Plymouth 1—0
Chesterfield — Oxford 2-2
Colchester — Reading 1 — 1
Exeter — Blackpool 1—0
Gillingham — Blackburn 1-2
Millwall — Grimsby 2—0
Rotherham — Sheff. Utd. 1—2
Sheff. Wed. — Mansfield 0—0
Swindon — Hull 0—0
4. dcild
Aldershot — Bradford 3—1
Bournemouth — Hartlepool 2—1
Crewe — Doncaster 1—2
Halifax — Newport 2—1
Northampton — Tranmere 2—1
Peterbro— Huddersfield 1—3
Portsmouth — Darlington 4-3
Port Vale — Lincoln 1—2
Scunthorpe— Walsall 2—2
Stockport — Hereford 2—1
Wigan — Torquay 0-3
York — Rochdale 3—2
Crystal Palace missti af efsta sætinu i
1. deild eftir jafnteflið við Tottenham.
Raunverulega var Palace-liðið heppið
að tapa ekki i þessari innbyrðisviður-'
eign Lundúnaliðanna. Strax á fjórðu
mín. náði Argentinumaðurinn Ricardo
Villa forustu fyrir Tottenham með
þrumufleyg af 25 metra færi. Rétt á
eftir átti Gerry Armstrong skot i þvcr-
slá Palace-marksins en hann var vörn
Palace erfiður i leiknum. Leikurinn var
nijög skemmtilegur á að horfa fyrir 45
þúsund áhorfendur og 15 mín. fyrir
leikslok tókst Palace að jafna. Vara-
maðurinn lan Walsh, sem komið hafði
inn á tveimur mínútum áður, sendi
knöttinn i mark Tottenham. Palace er
eina liðið i deildunum sem ekki hefur
tapað leik á þessu leiktímabili.
Liverpool
náði sér á strik
Eftir tvo tapleiki í röð gegn Forest og
Dynamo náðu Englandsmeistarar
Liverpool sér vel á strik gegn Bristol
City. Fréttamaður BBC sagði þó ,,að
I.iverpool-liðið hefði verið mjög, mjög
gott, þegar það lék vel í ieiknum — en
hins vegar líka ákaflega slakt á sínum
löku köflum.” David Johnson skoraði
fyrir Liverpool á 3ju mín. og þeir
Kenny Dalglish og Ray Kennedy komu
Liverpool i 3—0 fyrir hálfleik. Þó átti
liðið slakan kafla í fyrri hálfleiknum.
Ritchie og Royle komust báðir fríir að
marki Liverpool. Áttu aðeins Ray
Clemence eftir en tókst ekki að skora
hjá honunt. í síðari hálfleiknum tókst
McDermott loks að senda knöttinn i
mark Bristol-liðsins á 80. mín. eftir að
hafa átt tvisvar skot i þverslá í leiknum.
Dalglish átti lika stangarskot.
Norwich tapaði fyrsta stiginu á
heimavelli gegn Stoke og átti reyndar
lengi i erfiðleikum að hala jafntefli í
land. lrwine náði forustu fyrir Stoke á
13. min. og þannig stóð þar til Kevin
Bond jafnaði úr vítaspyrnu á 5"\ mín.
Stoke komst aftur yfir með vítaspyrnu
Paul Richardson en Kevin Reeves jafn-
aði.
Loks vann Villa
Þá kom að því að Aston Villa sigraði
í leik og þá var það mjög góður sigur á
Southampton. Villa hafði ekki unnið
siðan 22. ágúst. Liðið hafði umtais-
verða yfirburði gegn Dýrlingunum. Nýi
leikmaðurinn, Des Bremner, sem
keyptur var frá Hibernian, skoraði
Brian Clough til hægri ásamt aðstoðarmanni sinum, Pcter Taylor.
fyrsta markið. Síðan þeir Dennis
Mortimer, sem átti stórleik, og Alan
Evans i síðari hálfleik úr vítaspyrnu
eftir að Ken Swain hafði verið felldur.
Jimmy Rimmer hafði sáralitið að gera i
marki Villa.
Arsenal og Man. City gerðu jafntefli
i slökum leik á Highbury að viðstödd-
um 35 þúsund áhorfendum sem höfðu
lítið við að gleðjast nema sólskinið.
Frank Stapleton misnotaði auðvelt
tækifæri fyrir Arsenal snemma leiks en
i lok hálfleiksins varð markvörður
Iiðsins, Pat Jennings, að taka á honum
stóra sinum. Varði frá McKenzie og
Stepanovic með örstuttu millibili.
lan Wallace var á skotskónum hjá
Coventry — skoraði bæði mörkin gegn
Eéerton, I—0 í hálfleik, en Andy King
skoraði mark Everton. lpswich náði
forustu með marki Paul Mariner
gegn Leeds. Það nægði þó ekki. Trevor
Cherry jafnaði og sigurmark Leeds
skoraði Kevin Hird úr vítaspyrnu.
Derby vann stórsigur á Bolton og lék
prýðilega. John Duncan skoraði tví-
vegis, svo og Paul Barlett. Þá tapaði
West Bromwich enn einu sinni — nú i
Middlesbrough. Mickey Burns og
David Armstrong, viti, skoruðu fyrir
Boro en Owen eina mark WBA.
Hawley byrjaði vel
John Hawley, sem Sunderland
keypti frá Leeds i síðustu viku fyrir 200
þúsund sterlingspund, byrjaði vel með
sínu nýja félagi. Skoraði þrennu gegn
Charlton og Sunderland er nú aftur
komið i hóp efstu liða 2. deildar. New-
castle heldur forustu eftir jafntefli í
Lundúnum gegn West Ham. David
Cross náði forustu fyrir heimaliðið en
Peter Withe jafnaði fyrir Newcastle.
Ekkert mark var skorað í síðari hálf-
leik. Queens Park Rangers vann at-
hyglisverðan sigur i Watford. Mercer
náði forustu fyrir lið Elton John en það
nægði ekki. Allen og Roeder skoruðu
fyrir QPR. Framkvæmdastjóri QPR,
Tommy Docherty, var við yfirheyrslur í
Derby í síðustu viku. í greinaflokki,
sem fyrrum ritari Derby skrifaði i eitt
ensku blaðanna, ræddi hann um fjár-
glæfra og fjárdrátt hjá Derby. Aum-
ingja Docherty mun þó ekkert við það
mál riðinn — hann hefur víst nóg á
sinni könnu þó slíkt bætist ekki við.
Staðan er nú mjög skemmtileg í 2.
deildinni — litill munur á efstu liðun-
um en Luton missti af möguleika að
komast i efsta sætið, tapaði i Cardiff.
Bishop skoraði tvívegis fyrir Cardiff en
Bob Hatton eina mark liðsins frá hatta-
borginni frægu.
í 3. deild er Sheff. Utd. efst með 14
stig. Rotherham og Millwall koma
næst með 14 stig. í efstu sætunum í 4.
deild eru tvö af frægustu liðum Eng-
lands gegnum árin, Portsmouth, með
20 stig, og Huddersfield, með 19 stig.
Staðan í 1. og 2. deild er nú þannig:
l.deild
Man. Utd. 9 6 2 1 16—5 14
Nottm. For. 9 6 2 1 P—8 14
C. Palace 9 4 5 0 15—5 13
Norwich 9 5 2 2 17—10 12
Wolves 8 5 1 2 16—11 11
Southampton 9 4 3 2 15—10 11
Middlesbro 9 4 2 3 11—8 10
Liverpool 8 3 3 2 14—6 9
Leeds 9 2 5 2 11 — 10 9
Coventry 9 4 1 4 14—18 9
Arsenal 9 2 4 3 11—9 8
Bristol City 9 2 4 3 8—11 8
A. Villa 9 2 4 3 10 8
Man. City 9 3 2 4 9—13 8
Everton 9 2 3 4 11 — 15 i
Ipswich 9 3 1 5 9—14 i
Derby 9 3 1 5 8—13 7
Tottenham 9 2 3 4 11—20 7
Brighton 9 2 2 5 11 — 16 6
WBA 9 1 4 4 10—15 6
Stoke 9 2 2 5 12—18 6
Bolton 9 1 4 4 ■'—15 6
2. deild
Newcastle 9 5 3 1 15—9 13
Wrexham 9 6 0 3 12—9 12
Luton 9 4 3 2 17—9 11
Leicester 9 4 3 2 18—13 11
QPR 9 5 1 3 13—9 11
Notts Co. 9 4 3 2 10—6 11
Sunderland 9 4 3 2 12-8 11
Chelsea 9 5 1 3 10—8 11
Cardiff 9 4 3 2 9—9 11
Preston 9 3 4 2 12—9 10
Birmingham 9 3 4 2 11 — 11 10
Oldham 9 3 3 3 12—10 9
Swansea 9 3 3 3 11 9
Cambridge 9 2 4 3 10—10 8
Watford 9 2 4 3 9—11 8
West Ham 9 3 2 4 7—10 8
Fulham 9 3 2 4 13 — 17 8
Bristol Rov. 9 2 3 4 13—18 7
Shrewsbury 9 2 2 5 10—12 6
Charlton 9 1 3 5 ■’—16 5
Burnley 9 0 4 5 8-14 4
Orient 9 0 4 5 8—15 4
- hsím.
Dortmund efst
Borussia Dortmund gerði sér lítið
fyrirog sigraði Vfb Stuttgart á útivelli á
laugardag, I—2. Liðið heldur því
tveggja stiga forustu í vestur-þýzku
Bundeslígunni. Úrslit á laugardag
urðu þessi.
Gladbach-Frankfurt 4—I
Braunschweig-1860 Múnchen 0—0
Dússeldorf-Bochum I—4
Bayern-Kaiserslautern 2—0
Hamborg-Köln 3—0
Stuttgart-Dortmund 1—1
Schalke-Bremen 3—0
Hertha-Duisburg 0—1
I.everkusen-Uerdingen 1—I
Staða efstu liða er nú þannig:
Dortmund 8 6 1 1 19—10 13
Hamborg 8 5 1 2 18—8 11
Bayern 8 4 3 1 12—7 11
Stuttgart 8 4 2 2 14—9 10
Frankfurt 8 5 0 3 15—11 10
Tveggja stiga forusta
Celtic í úrvalsdeildinni
Jóhannes Eðvaldsson átti góðan leik með Celtic á laugardag
Þrátt fyrir gífurlega pressu, einkum
lokakaflann, tókst Skotlandsmeistur-
um Celtic ekki að sigra Partick í úrvals-
deildinni á laugardag. Skozki landsliðs-
markvörðurinn hjá Partick, Alan
Rough, átti frábæran leik I marki.
Leiknum var iýst beint i BBC og Celtic
var mun betra liðið i leiknum. Jó-
hannes Eðvaldsson lék allan leikinn og
kom mjög við sögu bæði í vörn og
sókn. Fór upp í horn- og aukaspyrnum.
Þulur BBC tók sérstaklega fram að Jó-
hannes hefði lcikið vel í fyrri hálfleikn-
um — siðustu 35 mín. var lýst.
Eftir áttundu umferðina á laugardag
hefur Celtic tveggja stiga forustu á liðið
sem er i öðru sæti — og það sem áhang-
endum liðsins þykir meira um vert
fimm stiga forustu á Rangers.
Úrslit á leikjunum á laugardag urðu
þessi: Dundee Utd. — Rangers 0—0
Hibernian — Morton 1 — 1
Kilmarnock — Dundee 3—1
Partick — Celtic 0—0
St. IVIirren — Aberdeen 2—2
Eftir sex tapleiki í röð hlaut
Hibernian stig — og var nærri sigri
gegn Morton. Strak skoraði bæði mörk
St. Mirren en Arcibald og Harper fyrir
Aberdeen. Lið Celtic á laugardag var
þannig skipað: Latchford, Sneddon,
McGrain, Aitken, Eðvaldsson, Con-
roy, McClusky, Davidson, Doyle,
McAdam og Provan. Í síðari hálfleik
kom Bobby Lennox i stað Davidson og
rétt í lokin kom Jim Casey i stað
McGrain, sem meiddist og var borinn
af velli.
Staðan eftir 8 umferðir er þannig:
Celtic 8 5 3 0 20—9 13
Morton 8 5 1 2 21-13 11
Kilmarnock 8 4 2 2 10—12 10
Aberdeen 8 4 1 3 18—10 9
Partick 8 3 3 2 9—8 9
Rangers 8 3 2 3 13—11 8
Dundee Utd. 8 2 2 4 11 — 14 6
St. Mirren 8 2 2 4 12—19 6
Dundee 8 2 1 5 13—23 5
Hibernian 8 1 1 6 9—17 3
- hsím.