Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 08.10.1979, Qupperneq 22

Dagblaðið - 08.10.1979, Qupperneq 22
Bláfelds- skólaúlpur dúnvatteraðar (Hollofic) fástí verzlunum um allt land Bláfeldur Síðumúla 31 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 8. OKTÓBER 1979. Söguþræðin- um gefið á kjaftinn CONCE KTONE (n* mt /fizæsAj' Kassettur Beztu kaup landsins Heildsölubirgðir 1 spóla 5 spólur 60minútur Kr. 800.- Kr. 3.800.- 90 mínútur Kr. 1000.- Kr. 4.800.- buðin SKIPHOLT119 SIMI29800. -EINKARITARASKÓLINN • Veitir nýliðum starfsþjálfun og öryggi. • Endurhæfir húsmæður til starfa á skrifstofum. • Stgðlar að betri afköstum, hraðari afgreiðslu. - Sparar yfirmönnum vinnu við að kenna nýliðum. • Tryggir vinnuveitendum hæfari starfskrafta. • Tryggir nemendum hærri laun, betri starfsskilyrði • Sparar námskostnað og erlendan gjaldeyri. w MIMIR, Brautarholti 4 -Sími 11109 (kl. 1-7 e.h.) Þrumu- 1 m gnýrinn ' TF Robert p Dennis þeytir plötunum með eldingarhraöa og kynmr nýjar I videospólur Providence: Forsjónin Leikstjóri: Alain Resnais. Handrit: David Mercer. Aflaiikjtverk: Dirk Bogarde, John Gielgud, Fltan Burstyn og David Wamer. Frakkland 1977, anskt tal, danskur texti. Sýningarstaflur Mánudagsmynd Hóskólabiós. Líkt og með fleiri myndir Alain Resnais er erfitt að skilja Forsjónina. Hún virðist ekki hafa neinn söguþráð og áhorfandanum er alveg látið eftir að kafa í efni myndarinnar. Myndin leggur margar gátur fyrir áhorfand- ann en gefur aftur á móti engar lausnir. Myndinni er þvi líkt farið og erfiðu pússluspili þar sem sérhver eining kemur á móti hverju atriði myndarinnar sem öll saman gefa heildarmynd. Til þess að eiga nokkra möguleika i að pússla Forsjóninni saman þarf að sjá myndina nokkrum sinnum. Undirritaður hefur aðeins séð myndina tvisvar og er þar af leið- andi mjög stutt á veg kominn með pússluspilið og hefur því kosið að upplifa myndina í stað þess að skilja. Söguþráður Myndin sýnir okkur gamlan rit- höfund, Langham að nafni, sem er aðdauða kominn. Hann er dauðvona að skrifa bók sem hann byggir á endurminningum sínum. Hann svið- setur ýmis atriði úr sínu eigin lífi i huganum. Þar eru synir hans tveir, Claude og Woodford, í aðalhlutverk- um ásamt eiginkonu Claude, Sonju. Einnig kemur eiginkona hans mikið við sögu í gervi ástkonu Claude sem heitir Helen. Eins og áður segir er engin saga sögð og áhorfandinn á bágt með að fá heila brú i það sem birtist á tjaldinu. En i lok myndarinn- ar kemur fram að þetta hafa verið hugarórar Langham en ekki draumur eins og í Bunuelmyndunum. Þá er hægt að koma með tillögur að þvi sem við sáum og heyrðum. Líklega er hugsanagangur Langhams endur- speglun á tilfinningum hans gagnvart áðumefndum persónum. En það er aðeins ein mynd af mörgum sem hægt er að pússla saman úr þessum flóknu myndbrotum. Kvik myndir Friðrik Þ. Fridriksson Til umhugsunar Án þess að kafa djúpt í hugar- flækjur Langhams (efni myndarinn- ar), því hér gefst ekki tækifæri fyrir slíkt, er rétt að benda á nokkur atriði sem kynnu að auðvelda áhorfandan- um að fá eitthvað út úr myndinni. Langham hefur enga stjórn á hugar- flugi sínu og þar af leiðandi þarf áhorfandinn að vera viðbúinn að per- sónurnar segi allt annað en hann á von á. Til dæmis talar Sonja einu sinni til rithöfundarins og kvartar yfir því að hún sé ekki persóna heldur aðeins hugarsmíð hans. Langham fer einnig sjálfur í persónur sinar, t.d. þegar Claude skýtur Woodford til bana. Þá er Langham Woodford vegna þess að Claude segir við hann áður en hann hleypir af: ,,Þú hlýtur að hafa notið þess að kvelja móður mína.” Þannig notar Resnais texta til þess að tákna aðra persónu, en undir- strikar þetta siðar með því að klippa frá hendinni af liki Woodfords á höndina á rithöfundinum Langham. Þessi hamskipti persónanna eru al- geng og hinn talaði texti yfirleitt það eina sem áhorfandinn geturstuðzt við til þess að vita hvaða persóna á í hlut. Það kemur fram að hjónaband Lang- hams hefur verið algerlega í molum og að kona hans, Molly, sem Helen er tákn fyrir, hefur framið sjálfs- morð. Langham er því þjáður af samvizkubiti vegna framkomu sinnar við hina látnu eiginkonu sína. Það er eftirtektarvert að Langham lætur aldrei neitt kynlíf milli persóna sinna blómstra en það bendir til þess að það hafi ekki verið uppá marga fiska í hans eigin hjónabandi. Þannig má túlka endalaust flest atriði myndar- innar og eflaust verður Forsjónin mikið þrætuepli kvikmyndafræðinga þegar fram líða stundir. Alain Resnais Resnais er fæddur árið 1922 í Frakklandi. Hann byrjaði að gera kvikmyndir eftir síðari ueimsstyrjöld og vakti athygli fyrir óvenjulega efnismeðferð þegar hann gerði myndir um listamenn eins og Van Gogh. Hann tilheyrði litlum kvik- myndahópi menntamanna sem í voru m.a. Agnes Varda og Cris Marker. Resnais hefur alla tíð haft nána sam- vinnu við þekkta rithöfunda um gerð kvikmynda sinna. Þar má nefna Marguerite Duras, sem gerði hand- ritið að „Hiroshima Mon Amour”, en sú mynd tryggði Resnais sess i kvikmyndasögunni. Þá gerði rithöf- undurinn Robbe-Grillet handritið að „L’Année Derniére á Marieenbad” en sú mynd líkist Forsjóninni í formi og uppbyggingu. Resnais hefur alla tíð farið ótroðnar brautir í kvik- myndagerð sinni og þar af leiðandi þótt mjög torskilinn eða líkt og Guð- bergur Bergsson orðar það i skáld- sögu sinni, Önnu: ,,Sé söguþræðin- um gefið á’ann ruglast kerfið og snýst i margbrotinn skáldskap sem stendur fastur I hænuhaus lesand- ans.” Þarna speglar sig rithöfundurinn Clive Langham — sem Helen. mvndin er af ciginkonu hans, Molly, sem áhorfendur þekkja i myndinni

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.