Dagblaðið - 08.10.1979, Síða 33

Dagblaðið - 08.10.1979, Síða 33
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 8. OKTÓBER 1979. Tónlistarmyndir: AÍIt i lagi með krakkana —um nýja heimildarmynd um hljóm- sveitina Who—The Kids Are Alright Tónlistarmyndir eru frekar fáséðar þér á landi. Þá er ekki átt við dans- og söngvamyndir heldur hljómleika- myndir eða myndir um ákveðna tón- listarmenn þar sem tónlist þeirra skipar stærsta þáttinn. Margar ástæður liggja hér að baki. í fyrsta lagi eru flestar tónlistarmyndirnar stuttar og þær fáu sem ná fullri lengd eru mjög misjafnar að gæðum. Þó koma inn á milli mjög góðar myndir. Af myndum síðari ára má nefna WOODSTOCK (1970), GIMME SHELTER (1970), sem fjallaði um hljómleika Rolling Stones í Altmont 1969, MONTERY POP, sem er frá samnefndri útihátíð 1967, og THE LAST WALTZ (1978), sem er um lokatónleika hljómsveitarinnar The Band. Þetta eru hreinar tónleika- myndir en einnig er um að ræða mikinn fjölda mynda þar sem tón- listin skipar stóran sess þótt um annan efnisþráð sé að ræða. Má þar nefna myndir eins og THAT’LL BE THE DAY, AMERICAN GRAFF- ITI, 200 MOTELS og ZABRISKE POINT, þótt flestir kannist líklega best við gömlu Presley myndirnar og hinar svokölluðu „Beach Party” myndir, sem voru fjöldaframleiddar fyrr á árum. dregur nafn sitt af lagi á plötunni My Generation, hefur víðast hvar fengið þokkalega dóma. Þegar myndin var frumsýnd í Cannes í maí sl. hélt hljómsveitin stóra tónleika þar skammt frá til kynningar á henni. Nú er myndin komin í almenna dreifingu og virðist ganga þokkalega. En Who eru með fleira i pokahorn- inu en heimildarmyndina. Nýlega kom á markaðinn myndin Quadro- phenia sem er byggð á samnefndu verki þeirra og eru The Who fram- leiðendur myndarinnar. Hún fjallar um unglinga og vandamál þeirra á árunum upp úr 1960. Fulltrúar uppreisnar- gjjarnrar æsku Á þessum tíma voru miklar breyt- ingar hjá breskri æsku. Eirðarleysi var áberandi og ýmsir harðir klikuhópar stofnaðir. Allt þetta lýsti vel spenn- unni og óvissunni meðal ungling- anna. Og einn stærsti hlutinn í þess- IfwiLr Heimildarmyndin um WHO Nýlega kom fram á sjónarsviðið heimildarmynd um feril hljóm- sveitarinnar the Who og nefnist hún THE KIDS ARE ALRIGHT. The Who er ein af langlífustu rokkhljóm- sveitum Breta. Myndin rekur feril þeirra allt frá stofnun hljómsveitar- innar 1963 til 1978. Við gerð myndar- innar var notað mikið af gömlum filmum af þeim félögum, m.a. frá Woodstock, Monterey og The Isle of Wight popphátíðinni. Allt þetta er svo tengt saman með viðtölum við þá félaga en allan þennan tíma urðu engar mannabreytingar í hljómsveit- inni. Raunar gerðist sá hörmulegi at- burður skömmu eftir prufusýningu myndarinnar að trommuleikari hljómsveitarinnar, Keith Moon, fannst látinn á heimili sínu. Hugmyndin að myndinni kom fram 1975 þegar leikstjórinn Jeff Stein hitti Peter Townshend í hótel- herbergi sínu skömmu fyrir frum- sýninguna á kvikmyndinni Tommy í New York. „Þegar ég hitti Towns- hend,” sagði Stein, „sagðist hann ætla að bakka mig upp eins og hann gæti. Ég hafði ekki leikstýrt neinni mynd i fullri lengd áður en hafði alist upp með Who og þeir voru hluti af minni kynslóð. Ég held að þeir hafi heldur viljað gefa mér lausan tauminn við gerð myndarinnar heldur en Ken Russell (sem leikstýrði Tommy). Síðan vafðist upp á þetta.” Miklar vinsældir Næsta ár fór að mestu í ferðalög og leit að efnivið í myndina fyrir Stein. Einnig var tekið upp töluvert af nýju efni og m.a. voru tónleikar settir á svið. The Who settu tilkynn- ingu í Radio Capitol og á örskömm- um tíma voru 1000 unglingar mættir. Hljómsveitin tók síðan nokkur lög sem voru kvikmynduð fyrir mynd- ina. THE KIDS ARE ALRIGHT, sem Kvik myndir BakkirHjaltason ari ný-menningu var tónlistin. Titill- inn Quadrophenia merkir persónu- leiki sem er klofinn í fernt og var ætlun Townsend að hver í hljóm- sveitinni túlkaði eina hliðina. í mynd- inni er þessusnúið upp á söguhetjuna Jimmy sem er ungur „Mod”. Aðal- óvinur hans og félaganna eru „The Rockers” en sífelldar deilur eru milli þessara flokka. Er myndin sögð ná nokkuð vel tíðarandanum en vera frekar bresk i eðli sínu. Enda má segja að Who hafi verið fulltrúar breskrar æsku. En hljómsveitin Who hefur ekki sagt skilið við kvikmyndir. Þeir stofnuðu kvikmyndaframleiðslu- fyrirtæki, keyptu hluta í upptökuveri og framleiða nú myndir af fullum krafti. Ein sú nýjasta er McVicar sem nýlega var frumsýnd og fer söngvari hljómsveitarinnar með aðalhlut- verkið ásamt Adam Faith. Raunar er Roger Daltrey ekki ókunnur kvik- myndaleik því hann lék aðalhlut- verkið í Tommy og Liztomania ásamt minni hlutverkum í myndum eins og The Legacy. Þess skal getið að búið er að kaupa bæði THE KIDS ARE ALRIGHT og QUADROPHENIA til landsins. Iraytlw *p« rtial OPIÐ KL. 9-9 Ii Alar ■kraytingar unnar af fag- , mðnnmw. 'BIOVie AMXHR V HAFNARSTRÆTI Slmi 12717 Smáauglýsingar BIAÐSINS Þverholli11 sími 2 70 22 Opið til kl.10 í kvöld

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.