Dagblaðið - 08.10.1979, Side 35
GGNA
hf .
Auglýsingapantanir og nánari
upplýsingar í síma 4.21.16.
Svikið undan skatti
—en upp koma svik um síðir
Svört vinpa nefnist danskt sjón-
varpsleikrit sem sjónvarpið sýnir á
mánudagskvöld. Leikritið segir frá
fjórum iðnaðarmönnum, seni allir
starfa hjá því opinbera. Þeir stunda
aukavinnu i fristundum sinum og
svíkja tekjurnar undan skatti. Hinn
daginn verður slys i aukavinnunni og
einn mannanna ferst.
Hinir vilja að sjálfsögðu að ekki
komist upp um athæfi þeirra og þeir
hafa aðeins fjögurra stunda frest til að
láta líta svo út sem maðurinn hafi farizt
á hinum vinnustaðnum.
Leikrit þetta er mjög athyglisvert en
það fjallar um sama hlut og iðnaðar-
menn hér á landi eru að þinga um þessa
dagana á Hótel Sögu. Það virðist tölu-
vert algengt bæði hér á landi og annars
staðar að iðnaðarmenn reyni að svikja
undan skatti og er leikritið nokkuð góð
lýsing á þvíliku athæfi.
Sjónvarpsleikritið frá danska sjón-
varpinu er byggt á leikriti eftir þýzka
leikskáldið Hans Xaver Kroetz. Leik-
stjóri er Hans Chr. Nörregaard og með
aðalhlutverk fara Ebbe Langberg,
m*
Svört vinna nefnist sjónvarpsleikrit sem sjónvarpið sýnir á mánudagskvöld og er
þessi mynd úr leikritinu.
Preben Kaas, Claus Strandberg og
Birger Jensen.
Þýðandi myndarinnar, sem er tæp-
lega klukkustundar löng, er Dóra Haf-
steinsdóttir.
-ELA
VERSLUNARMENN!
Tryggið ykkur
auglýsingaaðstöðu á
fjölfarnasta stað Reykjavíkur
Biðstöð S.V.R. Hlemmi.
SVÖRT VINNA - sjónvarp kl. 21.05
í biðsalnum hefur Skyggna hf.
komið fyrir sýningarskjá
með auglýsingum
og upplýsingum þar sem
auglýsendum gefst kostur á
að birta auglýsingar
90-300 X á dag.
Ath! Takmarkað auglýsingarými.
Búast má við að Popphornin fái nýj-
an blæ með tilkomu vetrardagskrár og
gæti það orðið til að þau færðust
framar i dagskránni. Dóra Jónsdóttir,
sem séð hefur um föstudagspopphorn,
er hætt en óvist er hver tekur við henn-
L______________________________
Nýjasta plata Eagles verður með þeim hljómplötum sem Þorgeir bregður á fóninn í
Popphorni í dag.
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 8. OKTÓBER 1979.
r
Þeir félagar Páll Heiðar og Sigmar að störfum viö Morgunpóstinn.
MORGUNPÓSTUR - útvarp kl. 7.25:
Nýrödd og ný skrífstofa
—hjá félögum í Morgunpöstinum
Eins og flestir hafa eflaust heyrt er Sigurður var á námskeiði hjá þeim hjáleiga”. Margir _nýir fréttaritarar
komin ný rödd í morgunpóstinn. Her-
dís Þorgeirsdóttir er nú hætt með þeim
Páli Heiðari og félaga Sigmar en
Sigurður Einarsson tannsmiður kom-
inn i staðinn.
félögum í vetur í dagskrárgerð og fær
hann því að spreyta sig þennan mánuð.
Sigmar og Páll Heiðar hafa fengið
eigin skrifstofu á Skúlagötunni og hafa
skírt hana „Neðri smáfuglaaðstaða —
hafa bætzt við erlendis og því hafa þeir
morgunpóstsfélagar von um að efnis-
val frá ýmsum löndum fari að verða
fjölbreytt.
- ELA
P0PPH0RN - útvarp kl. 16.20:
Breytinga að vænta f poppi
Þorgeir Ástvaldsson er með sitt
vanalega Popphorn á dagskrá útvarps-
ins í dag kl. 16.20. Þar sem jólaplötu-
flóðið er hafið sagðist Þorgeir hafa
haft úr nógu að velja. Hann ætlar að
taka tvær plötur sérstaklega fyrir og
eru það nýjustu plötur Santana og
Eagles.
Eldra efni sagðist Þorgeir svo vera
með í bland, bæði frá þessum hljóm-
sveitum og öðrum. Vinsældalistann
ætlar Þorgeir að líta á og spila eitthvað
af lögum af honum. Lumma dagsins
verður að vanda og ýmislegt fleira
skemmtilegt.
ar poppi eða hvort það verður fellt
niður.
Popphornið í dag er fjörtíu og fimm
mín. langt. - ELA
KVENNAMÁLEFNI - sjónvarp kl. 22.10:
KVINNURNAR
ÍSOVÉT
1 kvöld kl. 22.10 sýnir sjónvarpið
finnska heimildarmynd um konurnar
hinum megin við járntjaldið. Myndin
er gerð í samvinnu við ríkisútvarp
Ráðstjórnarríkjanna. Lenin brýndi
fyrir rússneskum konum, eftir að
októberbyltingin leystist, að taka
fullan þátt í framleiðslunni við hlið
karla því að það eitt myndi tryggja
réttindi þeirra. Það leysti rússneskar
Jtonur undan aldagamalli áþján.
Þróunin hefur orðið sú að konur í
Sovétrikjunum vinna nú úti eins og
karlar, auk þess sem þær þurfa að
bera hitann og þungann af heimilis-
störfum. í Sovét eru nú á degi hverj-
um um 2000 hjónaskilnaðir og 61%
þeirra að ósk eiginkonunnar.
Það er orðin sama sagan í Rúss-
landi og á Vesturlöndum: Konur
treystascrekki lengur iil að eiga nema
c tt harn ' riðja ivert jonabanj
endar í skilnaði. Kvenfólk í Rúss-
landi er farið að gera kröfur til
menntunar fyrir sjálft sig og þar ríkir
nú jafnrétti í Iaunum.
Þrátt fyrir það eru konur í miklum
meirihluta í láglaunuðum störfum.
Nú hafa rússnesk yfirvöld áhyggjur
af því að þjóðinni fjölgi ekki nóg og
ýmislegt er það sem verður að gera.
Ennþá vantar vinnuafl i Sovét en á
meðan rússneskar konur neita að eiga
nema eitt barn verður ekki úr því
leyst.
Margt kemur fram í myndinni í
kvöld sem lýsir vel kvennamálunum
þarna fyrir austan og ætti ekki að
skaða okkur Vesturlandabúa að sjá
hvernig þær taka á hlutunum, þessar
rússnesku.
Þýðandi myndarinnar, sem er
fimmtíu min. löng, er Trausti Július-
son en þulur er Katrín Árnadóttir. - ELA
Rússncskar konur vru ekki af baki dottnar og krefjast jafnvel meira af yftrvölduin sins
lands en Vesturlandakonur gera.
Fjölbreyu SlMI ( MÍMI ER
og skemmtilegt tungumálanám.
10004