Dagblaðið - 03.11.1979, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 03.11.1979, Blaðsíða 1
5. ÁRG. — I.AUGARDAGUR 3. NÓVEMBF.R 1979 — 243. TBI.. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVF.RHOLTI 11.—AÐALSÍMI 27022. Hinn flokkurinn stofnaður í Reykjavík: „ Við viljum bjór og kossa á almannafæri” — Arftaki Fram- boðsflokksins býðurframí Reykjavík og boðarfélags- legan anarkisma ogfrjálst kannabis Slofnaður hefur verið nýr flokkur í Reykjavík og mun hann bjóða fram lista í Reykjavík vegna alþingiskosn- inganna. Flokkurinn nefnist Hinn flokkurinn og stendur ungt fólk á aldrinum 20—25 ára að stofnun hans. Formælendur flokksins, þeir Hafliði Skúlason og Magnús Lárus- son, sögðu að bæði alvara og grín væri að baki flokksstofnuninni og líta mætti á flokkinn sem arftaka Framboðsflokksins sáluga eða O- flokksins sem bauð fram í þing- kosningunum árið 1971. Hinn alvarlegi þáttur flokks- stofnunarinnar felst í stefnuskrá flokksins sem má orða í einni setn- ingu: Féiagslegar umbætur í víðasta skilningi þeirra orða. „Við látum okkur engu varða hagkerfið, verð- bólguna eða iðnaðarmálin,” sögðu þeir félagar, „enda er nóg af mönn- um sem fást við það. í brambolti okkar 'við verðbólguna hefur hinn félagslegi þáttur þjóðlífsins gleymzt. Við leggjum áherzlu á frístunda- frelsi. Ríkisvaldið gerir of mikið að því að hugsa fyrir fólk. Það er í sífelldum mömmuleik. Við erum hlynntir bjór, bjórkrám og kannabis- efnum. Afnema á lög sem segja að fólk megi ekki vera drukkið eða alls- bert á almannafæri og kyssast á götum úti ef það langar til. Við deilum á kerfið og það van- máttuga lýðræði sem við búum við. Það er lítil leið til þess að koma sinum málum á framfæri, nema í gegnum gömlu flokkana sem eru stíflaðar klíkusamkundur. Það má segja að stefna okkar sé félagslegur anarkismi og við berj- umst fyrir rétti barna og upp úr. Við hugsum líka um þá sem ekki hafa fengið kosningarétt, unglingana sem Formælendur Hins flokksins, Magnús Lárusson og Hafliði Skúlason. DB-mynd Ragnar Th. vafra um götur með flösku i hendi. Stuðningsmenn okkar eru upp til hópa ungt fólk sem aldrei hefur kosið áður eða aðeins einu sinni. Þetta fólk er óánægt með gamla flokkakerfið og við viljum kanna hvort menn geti farið i framboð án kapitals. Það má búast við þvi núna að tiLtölulega margir komi til með að skila auðu i kosningunum en við teljum okkur vera hin virku auðu at- kvæði. Endanlegur listi flokksins verður ákveðinn á mánudag. Aðeins verður boðið fram í Reykjavík vegna hins stutta tíma sem er til stefnu. Fari svo að við fáum mann á þing þá munum við -berjast fyrir því að menn fái að vera í friði svo lengi sem þeir skaða ekki náungann. Menn hafa hins vegar rétt til þess að skaða sjálfa sig ef þeir sjálfir vilja. Kjörorð flokksins verður: Kjósið okkurekki, kjósið Hinn flokkinn.”Iti Stífleitað kynferðis- afbrota- manni — leitaðiákonur ogböm Umfangsmikil leit var hafin síðdegis í gær að manni i vesturhluta Reykjavíkur. Bárust kærur um að hann hefði leitað bæði á konur og börn. Heita má að á stuttum tima haft stór hluti vesturbæjarins verið „gróf- kembdur” t leit að manninum en lög- regian hafði, að því að hún taldi, dá- góða lýsingu á honum. Leitin hafði ekki borið árangur um sjöleytið. Leit átti að halda áfram i gærkvöldi. Maðurinn hafði ekki ógnað neinum eða valdið meiðslum en leitað ákveðið á konur og cinnig reynt að fá börn til fylgdar við sig. -A.Sl. Guðmundur H. ísérframboð? Stuðningsmenn Guðmundar H. Garðarssonar voru á fundum í allan gærdag. Hvetja þeir Guðmund til þess að fara í sérframboð fyrir Sjálf- stæðisflokkinn í Reykjavik. Nokkrar þreifíngar hafa verið um möguleika á öðrum tilfærslum á listanum en þeirri að Pétur Sigurðsson færi í sæli Ellerts B. Schram, sem DB sagði frá í gær. Um tíma var rætt um að Birgir Ísleifur Gunnarsson gæfi eftir þriðja sætið samkvæmt prófkjörinu. Var þá gert ráð fyrir að Ragnhildur Helgadóttir flyttist í það sæti úr 7. sætinu sem hún hlaul í prófkjörinu. Sagt er að Birgir ísleifur hafi lýst sig reiöubúinn ef flokkurinn teldi það styrkjalistann. Þegar til kom var Ragnhildur ekki samþykkt breytingu í þessa átt. Varð því ekkert úr, a.m.k. ekki enn sem komiðer. Þrátt fyrir tal um breytingu, sem lyfti Guðmundi H. Garðarssyni ofar á listann, mun hún ekki í augsýn. -BS. genr nreint fyrir sínum dyrum Það er góður siður að gera hreint fyrir slnum dyrum. Ein plágan semfylgir vetrar- komunni er fallandi laufblöð af trjám. Dauð laufblöð út um allt eru örugg merki um árstlmann — og þau gera Ufið erfiðara þeim sem vilja hreint og fagurt umhverfi. Konan, sem Hörður (jósmyndari rakst á I gœr, var / óða önn að gera hreint fyrir slnum dyrum. I dag þarf hún að grlpa kústinn aftur. Það er nóg eftir af laufi á trénu. ■ARH. Hrífsaði skjöl í dómsmálaráðu- neyti og hljóp út — þjófurinn fannst en skjölin ekki Ungur maður, sem ber sérstætt ættarnafn, kom í dómsmála- ráðuneytið i gærmorgun og óskaði eftir að fá Ijósrit af skjölum er vörðuðu umsókn hans um íslenzkan ríkisborgararétt og um nafn- breytingu. Var orðið við ósk mannsins, enda höfðu óskir hans um áðurnefnd atriði verið samþykkt af viðkomandi ráðuneytum. Ungi maðurinn laumaðist á eftir stúlkunni sem Ijósritaði skjólin. Tvö skjalanna vör uöuumsókn hans, en hin tvö voru afrit af bréfum milli ráðuneyta. Þegar ljósritun var lokið hrifsaði ungi maðurinn skjölin af stúlkunni og hljóp út. Tveir vaskir fulltrúar ráðuneytisins veittu honum eftirför. Er þeir komu út sáu þeir á eftir pilti fyrir húshornið og var hann þá á reiðhjóli. Var frekari eftirför gagns- laus fulltrúum á tveimur jafnfljótum. Lögreglan hóf síðan leit að kauða og stóð hún í nokkra klukkutíma unz maðurinn fannst vestur á Rcynimel. Kvaðst hann þá ekkert um skjölin vita og voru þau ekki komin i leitirnar siðdegis i gær. Hjalti Zóphóníasson fulltrúi í dómamálaráðuneytinu sagði að stuldur þessara skjala væri ekki óbætanlegur. Alvarlegra væri að at- burður sem þessi gæti hent, þvi oft væru þýðingarmeiri skjöl í meðferð í skrifstofum ráðuneytisins. -A.St. Vilmundur opnar kerfið — hefur sent stærstu stof nunum dómsmála tilmæli um sérstaka upplýsingamiðlun „Það er ekki verið að draga úr neinu heldur þvert á móti að auka upplýsingastreymi,” sagði Vilmund- ur Gylfason dómsmálaráðherra í við- tali við DB vegna tilmæla er hann hefur sent nokkrum stærstu stofnun- um innan dómsmálakerfisins. Til- mælin hljóða á þá leið að stofnanirnar skipi sérstakan mann til að annast upplýsingastreymi frá stofnunum, eins konar blaðafulltrúa. „Þess er farið á leit við stofnanirnar að ávallt sé fyrir hendi maður sem upplýsingar getur gefið um mál sem um er spurt,” sagði ráðherrann. „Hugmyndin er að auka , á upplýsingastreymi ef til liðkunar megi verða.” Dagblaðið rak sig á breytt fyrir- komulag hjá yfirmönnum lög- reglunnar í Reykjavík i gær er spurzt var fyrir um ákveðið mál. Var vísað til ákveðins upplýsingafulltrúa sam- kvæmt nýjum fyrirmælum að ofan. Dagblaðið bar það undir dóms- málaráðherra hvort breyta ætti þeim hætti að varðstjórar hverju sinni og aðrir yfirmenn lögreglu gæfu upp- lýsingar um orðna atburði og hann svaraði: „Það er ekki verið að afturkalla neitt það er tíðkazt hefur. Allt það á að vera óbreytt. Hugmyndin er að auka möguleika á upplýsingum með því að ávallt sé maður fyrir hendi er upplýsingar geti gefið ef verða mætti til liðkunar mála,” sagði ráðherrann. Eftir þvi sem DB veit bezt þá eru borgardómur, sakadómur, sak- sóknari ríkisins, lögreglan og rannsóknarlögreglan þær stofnanir eða meðal þeirra stofnana, sem ráðherrann hefur sent áðurgreind til- mæli. -A.St.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.