Dagblaðið - 03.11.1979, Síða 24
FJÖLDIÍSLENDINGA NOTAR
KREDITKORT í LEYFISLEYSI
—nú fást þau eftir réttum leiðum en „auðvitað” af skornum skammti
„Sérstaklega þarf að sækja um
leyfi gjaldeyrisyfirvalda hér til þess
að fá og nota kreditkort,” sagði
Sveinn Sveinsson, deildarstjóri hjá
Gjaldey riseftirliti Seðlabankans, i
viðtali við DB. Umsækjandi verður
að sýna fram á brýna nauðsyn þess
að hann fái slíkt kort eða mjög veru-
legt hagræðiséað þvi fyrir hann.
Upphflega var gert ráð fyrir því að
þeir gætu fengið kreditkort sem
störfuðu erlendis að einhverju leyti
og þá í sambandi við gjaldeyrisafl-
andi störf. Meðal annars var haft í
huga að menn sem færu utan til þess
að selja útflutningsvöru eða semja
um sölu hennar væru ekki nákvæm-
lega tima- eða staðbundnir vegna
skorts á gjaldeyri.
Eins og stendur eru engin ákvæði í
lögum um þessi „undrakort” i
augum íslendinga. Þau skapa ekki
aðeins lánstraust heldnr einnig gjald-
Sigurvegarinn
íkeppni DB um
SUMARMYND79:
ÍSLENZK-
UNGVERSKUR
FRANSMAÐUR
— fæddur íÞýzkalandi
,, Þakka þér fyrir, hann á eftir að
.koma sér vel, þessi,” sagði Philippe
Patay á lýtalausri íslenzku þegar hann
tók við 1. verðlaunum i Ijósmyndasam-
keppni Dagblaðsins um
SUMARMYND ’79 úr hendi Sigfúsar
Cassatta í Fókusí gær.
Philippe hefur í sumar dvalizt i
Frakklandi en er nýlega kominn heim
og þá notuðu DB-menn tækifærið til
að afhenda honum verðlaunin fyrir
snilldarmynd sína af dauðri kind i
Hekluhrauni.
Philippe Patay ætlar að búa á
íslandi í vetur með islenzkri konu sinni,
Sigríði Arnarsdóttur. Hann er Frakki
— að vísu fæddur í Þýzkalandi af ung-
verskum foreídrum — og hefur verið
með annan l'ótinn á íslandi undanfarin
4—5 ár við að sýna frönskum ferða-
mönnum landið. Fram að þessu hefur
Philippe unnið fyrir ýmsar ferðaskrif-
stofur en hyggst nú hasla sér völl sjálf-
Kredftkort — Þeir sem hafa þau þurfa ekki að leggja fram reiðufé þegar þeir kaupa >öru eða þjðnustu, ef
seljandi tiðurkennir kortið. Seljandinn bðkfxrir einungis nafn mannsins og númer kortsins. Slðar meir til-
kynnir hann um viðskiptin og upphxðin sem um ræðir er dregin frá innistæðu á reikningi kortseigandans.
eyri sem annars er háður skömmtun,
eins og kunnugt er.
Nú verða settar reglur um kredit-
kort í reglugerð samkvæmt lögum
um gjaldeyrisviðskipti. Hingað til
hafa aðeins fáir mehn fengið heimild
gjaldeyrisyfirvalda til að hafa kredit-
kort. Skipta þeir nokkrum tugum,
hafa ekki náð hundraði.
Mjög þekkt erlend fyrirtæki og
bankar láta íslendingum ekki í té
kreditkort nema þeir sýni heimild út-
gefnaaf gjaldeyrisyfirvöldum.
Talsverður hópur íslendinga hefur
fengið kreditkort án leyfis gjaldeyris-
yfirvalda og notar þau. Strangt tekið
hafa þeir beinlínis brotið gildandi
reglur um gjaldeyrisviðskipti með því
að opna bankareikning erlendis án
heimildar.
Ljós er og að eitthvert gat er á
skilaskyldu á gjaldeyristekjum ef
menn gera upp slíka reikninga fram
hjágjaldeyriseftirlitinu. -BS.
Philippe Patay, sigurvegarinn I Ijósmyndasamkeppni DB i sumar, tekur við VIVITAR VI litstœkkaranum úr hendi Sigfúsar
Cassatta. DB-mynd: Ragnar Th.
stætt.
DB óskar honum til hamingju með
sigurinn og sömuleiðis þeim Hlyn
Ólafssyni í Vestmannaeyjum og
Guðjóni Bjarnasyni i Reykjavík en þeir
unnu önnur og þriðju verðlaun: 6 og 13
daga háfjallaf erðir með Úlfari
Jakobsen. Þeir hyggjast báðir fara í
ferðir sínar á næsta sumri — og þá er
aldrei að vita nema þeir sendi DB
myndir úr ferðunum.
Ekki viljum við gleyma að þakka
öllum öðrum þátttakendum i
keppninni um SUMARMYND DB ’78.
Hin mikla þátttaka í keppninni gerði
hana að glæsilegustu ljósmyndasam-
keppni DB frá upphafi — þangað til
næsta sumar.
ÓV.
Sveinn Sæmundsson blaöafulltrúi Flugleiða:
Flugvélaskortur í
nóvembermánuði
„Þetta er nú ekki eins ákveðið og
ráða má af fréttinni í Morgun-
blaðinu,” sagði Sveinn Sæmundsson
blaðafulltrúi Flugleiða er DB spurði
hann.um leigu DC-8 þotu félagsins til
Air Alsír í 14 mánuði með áhöfnum.
„Ég sagði blaðamanni Morgun-
blaðsins að þarna væri um jafna
möguleika að ræða, hvort af verður
eða ekki.”
Er Sveinn var spurður hvort ekki
yrði skortur á flugvélum á áætlunar-
leiðum Flugleiða frá íslandi vegna
leiguflugs vélanna sagði hann það
ljóst að nóvembsr yrði erfiður, eða
meðan pílagrímaflugið stendur yfir.
Eftir það myndi ástandið batna.
DC—10 þotan er í pílagrímaflugi
og DC-8 þotan TF--FLB er nú í píla-
grímaflugi fyrir Air Alsir. Önnur
Boeing 727 þota félagsins fór í fyrra--
dag til Guatemala í leiguflug fyrir
Avia Teca. Eftir eru því DC-8 þotan
TF FLF, sem sinnir Luxemborgar- og
Bandaríkjaflugi með DC-8 vél Air
Bahama, og hin Boeing 727 vélin sem
sinnir Evrópufluginu.
Dregið hefur verið úr flugi yfir N-
Atlantshafið og sagði Sveinn það
ekki gilda eingöngu um Flugleiðir.
Önnur flugfélög hefðu orðið að grípa
til sama ráðs vegna fargjaldastríðsins
á leiðinni. Evrópuflugið verður hins
vegar svipað, að öðru leyti en því að
ekki verður flogið til Gautaborgar
eða Stokkhólms. „Önnur Boeing-
vélin á að geta annað þessu flugi,”
sagði Sveinn.
Önnur Arnarflugsvélin er í pila-
grímaflugi og hin er í leiguflugi í
Bretlar.di en ekki liggja fyrir verkefni
fyrir þær vélar eftir 1. desember.
Ákvarðanir um verkefni eru þó oft
teknar með litlum fyrirvara.
Flugleiðir og Finnair buðu i
sameiningu í Fokkervélar af gerðinni
200 og eru þau mál í athugun en
engin ákvörðun tekin. Flugleiðir eiga
nú tvær Fokkervélar af gerðinni 200
— en lagastí
desemberað
loknu
pflagrímaflugi
en þrjár af gerðinni 100. Þær
fyrrnefndu eru búnar aflmeiri
mótorum, sem henta betur í fjalllendi
eins og hér. „Verði af kaupum á 200
vélunum,” sagði Sveinn, „má búast
við því að vélarnar af gerðinni 100
verði seldar.”
Miklar bilanir hafa tafið
Flugleiðir að undanförnu og félagið
hefur verið óheppið með leiguvélar
þannig að erftðlega hefur gengið að
halda áætlun. Að pílagrímaflugi
loknu verður hins vegar nóg af flug-
vélum á markaðnum og þá verður
auðveldara að fá leiguflugvélar ef á
þarf að halda.
-JH.
írfálst, úháð dagblað
LAUGARDAGUR3. NÓVEMBER 1979
Dagblaðsbíó
á morgun
í Dagblaðsbíóinu í Hafnarbíói kl.
þrjú á morgun, sunnudag, verður sýnd
myndin Allir elska Benji. Það er
bráðskemmtileg litmynd um ævintýri
hundsins Benji. Myndin er með
íslenzkum texta.
Þorkell gengur upp tröppurnar I hinu
fornfálega porti við Fjalaköttinn.
DB-mynd: Bj.Bj.
Kosiö iim
köttinn
— „hræ” Fjalarkattar-
ins til sýnisídag
Vilt þú láta verja tveim milljörðum
króna af þínu fé til þess að gera upp
Fjalaköttinn? Þessari spurningu varpar
eigandi „kattarins” fram við þá sem
gera vilja sér ferð til þess að skoða
hræið í dag.
Eigandi hússins Aðalstrætis 8, Þor-
kell Valdimarsson, þarf að greiða
hundruð þúsunda í skatta vegna eignar-
innar. Óverulegan hluta hússins er unnt
að nýta til útileigu gegn gjaldi. Hinn
hlutinn er og verður óhjákvæmilega
nj'tjalaus. Húsið er svo illa farið að það
myndi kosta hundruð milljóna að gera
það algerlega upp.
Ekki má byggja á hinni skattlögðu
lóð vegna skipulagsyfirvalda. Ekki má
rifa húsið vegna sjónarmiða þeirra sem
telja að hræið skuli vernda. Vonlaust er
fyrir eigandann að láta gera við húsið.
Dæmið er þannig, að sögn Þorkels
Valdimarssonar, að sennilega neyðist
borgin til þess að gera húsið upp á
kostnað skattborgaranna. „Það getur
vel verið að einhverjir telji að þess sé
ekki langt að biða að ég verði eignalaus
og geti ekki greitt álagðan eignaskatt
eða fasteignagjöld vegna Fjalakattar-
ins. Þá virðist einfalt mál að hirða
Fjalaköttinn fyrir ekki neitt.”
Málið er, að sögn Þorkels, ekki
alveg svona einfalt. Hann segist vilja
vita hvort hinum almenna borgara
sýnist það rétt meðferð á peningum
sínum að sóa þeim i að gera gamlan
húskofa þokkalegri útlits. „Vera má að
öðrum komi þetta meira við en mér,
sem er þó einn borgaranna, þótt mér
finnist réttur minn ótrúlega lítill i sam-
bandi við Fjalaköttinn og reyndar fleiri
eignir í Reykjavík,” sagði Þorkell
Valdimarsson. -BS.