Dagblaðið - 01.12.1979, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 1979.
ÞAÐ ÞYfHRAÐ BERJAST
Auður Haralds
Hvunndagshetjan. Þtjár öruggar aöferöir til að
eignast óskiigetin böm. Iðunn 1979.296 bb.
Auður Haralds er rúmlega þrítug.
Hún er Reykvíkingur, blaðamaður
og ógift móðir þriggja óskilgetinna
barna. Hvunndagshetjan er fyrsta
bók hennar, en vonandi ekki sú
síðasta. í þessari bók talar Auður í
eigin persónu og segir frá lífi sínu
fram á skrifandi stund, með mis-
mikilli áherslu á einstökum tíma-
bilum.
Ekki bara
kynferðismál
Á kápusiðu og í fyrsta kafla
bókarinnar lætur Auður að því liggja
að bókin sé skrifuð sem svar við
þeirri algengu spurningu fólks,
hvernig henni hafi dottið í hug, og
hvernig hún hafi farið að því, að
eignast þessi óskilgetnu börn. Frá
barneignunum, aðdraganda þeirra
og kringumstæðum öllum, segir að
vísu í bókinni, en hún er samtímis
annað og meira. Þess er ekki getið
hver hafi gert kápumynd en hún er
ákaflega villandi og gefur beinlínis
ranga hugmynd um efni bókarinnar.
Hún gefur í skyn að bókin fjalli fyrst
og fremst um kynferðismál, ogeinnig
að Auður hafi slysast til að eignast
börnin vegna þess að sú ákveðna
tegund getnaðarvarna sem myndin
sýnir hafi brugðist. Aðferðirnar þrjár
séu sem sagt fólgnar í því að nota
þessar getnaðarvarnir. Þetta á sér
ekki nokkra stoð i sjálfri bókinni, og
er varla hægt að skilja öðruvísi en
sem sölubragð hjá forlaginu. Að mál
kvenna og kynferðismál séu eitt og
hið sama er þvi miður algengur for-
dómur, og raunar einn af þeim sem
Auður kveður niður í bók sinni.
Dýrkeypt
reynsla
Hvunndagshetjan skiptist í þrjá
meginhluta. Fyrsti hlutinn sem er
þeirra miklu lengstur heitir „Tvær
öruggar aðferðir til öflunar óskil-
getinna barna”, og segir þar frá
æskuárum Auðar og uppeldi i
Reykjavík á sjötta áratugnum,
breytingu hennar úr barni í konu, og
að lokum frá barneignunuiii tveimur.
Öll er frásögn Auðar borin uppi af
óvanalega sterkri félagslegri vitund.
Hún sýnir greinilega fram á hvernig
það er þjóðfélagið sem mótar ein-
staklinginn og treður honum í á-
kveðin hlutverk, og að þar eru ekki
nein óljós náttúrulögmál að verki. Á
bernskuheimili Auðar mátti aldrei
tala um neitt sem skipti máli. Ef
örlaði á sjálfstæðri hugsun hjá henni
var hún annaðhvort kölluð fifl eða
afgreidd með nokkrum vel völdum
málsháttum. Foreldrar hennar leggj-
ast á móti því að hún fari í langskóla-
nám, þar sem markmið kvenna í líf-
inu hljóti að vera það eitt að
giftast. Þótt hún neyðist til að láta af
draumum sínum um nám og ferðalög
er í henni þrjóska sem gerir að hún
semur sig aldrei að hinu hefðbundna
kvenhlutverki. En það er ekki fyrr en
eftir tvær misheppnaðar sambúðar-
tilraunir, eftir að hafa eignast tvö
böm og orðið að reyna svik
barnsfeðranna og ábyrgðarleysi
þjóðfélagsins gagnvart einstæðum
mæðram, að hún gerir sér raunveru-
lega grein fyrir þeirri kúgun, sem hún
hefur orðið fyrir. Nokkuð dýrkeypt
reynsla það, en líklega ekkert
einsdæmi.
Hetja eða hóra
Annar hluti bókarinnar heitir
„Tilurð hvunndagshetju og þriðja
aðferðin”. Segir þar frá viðbrögðum
umhverfisins, hins almenna borgara,
gagnvart einstæðri konu eins og
henni með tvö óskilgetin börn. Hún
er að öllu leyti talin afbrigðileg,
annaðhvort hetjan eða hóran, nema
hvort tveggja sé. Hún eignast þriðja
barnið í trássi við barnsföðurinn sem
heimtar fóstureyðingu. Eitt af þvíat-
hyglisverðasta við frásögn Auðar er
það hverníg'henni tekst að koma
saman öllum þráðum. Þar eru engir
lausir endar, engum spurningum
ósvarað. Hún eignast ekki börnin af
neinum sérstökum hugsjónaá-
stæðum, heldur einfaldlega vegna
jjess að hún getur ekki notað þær
getnaðarvarnir sem á boðstólum eru,
og fóstureyðing finnst henni jafn-
gilda morði.
m.a. við að svara þeirri spurningu af
hverju hún gifti sig ekki. Hún segir:
„Ég gifti mig ekki af því að sjálfs-
virðing mín og sjálfstæði era eineggja
tviburasystur og sé önnur styggð
finnst hinni sér ögrað. Ég er orðin
eins og nýlenduríkin smáu sem eftir
langa baráttu vilja ekki verða lepp-
ríki annarra.” (268). Þrátt fyrir
margháttaða erfiðleika, sárindi og
félagslega útskúfun velur Auður að
vera frjáls. í stað þolanda er hún
■ orðin að geranda i sínu eigin lifi,
þ.e.a.s. að svo miklu leyti sem
aðstæður frekast leyfa.
Alvarlegt
uppgjör
Saga hennar er því ekki bara svar
við spurningu um barneignir, heldur
fyrst og fremst saga um bælingu og
upfreisn, um lífsbaráttu þess sem er
öðruvísi.
Hún er alvarlegt uppgjör við for-
dóma og lífslygi íslensks samtíma,
eitt það hugrakkasta og beinskeytt-
asta sem ég hef lesið. í þessari bók
leggur Auður allt undir, foreldra sína
og fjölskyldu, jafnt sem barnsfeður
og elskhuga, að ógleymdri sjálfri sér
og börnunum sínum þremur. Hún
gerir uppskátt um fjölmörg svið
mannlegs lífs (eða eigum við heldur
að segja kvenlegs lífs) sem aldrei er
talað um á opinberum vettvangi.
Bókin er vel og fjörlega skrifuð, af
fádæma yfirsýn og vel að merkja án
beiskju. Það er langt síðan ég hef
lesið jafnáhrifamikla og einlæga bók.
Hafi Auður Haralds hjartans þökk
fyrir trúnaðinn.
Hjónaband
eða frelsi
Bók
menntir
í þriðja og síðasta hlutanum, sem
ber nafnið „Núna” leitast Auður
HELGA KRESS
JÖLASKÓR
Nr. 1
TviHtk
Nr. 18—23
Kr. 11J00.-
Nr.2
BNgm/bNtt
Nr. 22-20
Frékr. 11.474.-
Nr.3.
TvUMr
Ljótk/dökkk
Nr. 22-27
Kr. 11.474.
Nr.4.
Rautt/baige
Nr. 22-26
MBdð innlegg
Frikr. 13.998.
SKÚGLUGGINN
RAUÐARÁRSTÍG 16.
SÍM111788. PÚSTSENDUM
DOMU OG HERRA
JYRTING
HAI^pgpiÐSLUSTOFAN
LAUGATEIG 28. S. 37640
ÚTBOÐ
Áburðarverksmiðja ríkisins óskar eftir tilboðum í
stálþil og festingar fyrir bryggju í Gufunesi.
Tilboð skulu hafa borist Áburðarverksmiðjunni í
síðasta lagi þriðjudaginn 8. janúar 1980 kl. 12.
Útboðsgögn eru fáanleg á skrifstofu verk-
smiðjunnar í Gufunesi, sími 32000, án gjalds.
Fíberbretti
á eftirtaidar brfreiöar
Bronco-hliðar
Barracuda Spoilerar ú
Dodge Vegu
Opel Escort
Vega o.fl.
húdd-scope og ristarlok ú margar teg.
Britax Rall-jakkur
Hagstætt verð.
Speglar og margt fl.
OPfÐ 1-6.
BÍLASPORT
LAUGAVEG1168. S/M/.28870.
lokað
KL 12.00 í DAG
• ‘íií Verzlunarmannafélags
Samk-mt -^fnnÍka íslands á aö l«ka
Reykjavíkur og VPhádegi i dag. h f verzlanir
' - ”•
s,::: er athygB
félagsins. —
VERZLUNARMANNAFÉLAG
REYKJAVÍKUR