Dagblaðið - 01.12.1979, Blaðsíða 21

Dagblaðið - 01.12.1979, Blaðsíða 21
TORFI DAGBLADIÐ. LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 1979._ AÐFÁSÉR KUPPINGU Þegar við veljum okkur klippingu er margt sem taka verður með í reikninginn. í fyrsta lagi verðum við að athuga hvað er í tízku og hvað af því kemur til greina fyrir okkur sjálf. Klippingin þarf ekki aðeins að eiga vel við andlitsfall okkar heldur einnig líkamsbyggingu. Ef þú ert t.d. há- vaxin(n) og hefur mjög stutt hár sýnistu hærri, aftur á móti drægi sítt hár þig niður. Sama er að segja um þverveginn. Leiðinlegast er samt að sjá konur sem eru miklar um mjaðmir og grannar um axlir með stutt hár, því þær líta út eins og Hallgrímskirkjuturn — breiðar að neðan og mjókka eftir því sem ofar dregur. Til þess að forðast að gera slík mistök verðum við að vera reiðubúin að gera okkur grein fyrir því að enginn er fullkominn og að við höfum öll einhverja galla. Þegar við höfum komizt að raun um þessa galla ætti að vera auðvelt fyrir okkur að breiða yfir þá með klæðaburði og hárgreiðslu. Þess vegna ætti enginn að skipta um greiðslu eða klippingu án þess að íhuga vel hvað það er sem hæfir bezt. Ekki segja: Ég er orðin(n) svo leið(ur) á hárinu á mér, mér er alveg sama hvernig það er klippt. Það getur varla orðið verra en það er. Slíkt er ekki skynsamlegt því að hár hvers einstaklings býður upp á marga mögulei ka. Gott er að gera sér grein fyrir þvi, áður en máður lætur kHppa sig, hvernig klæðnað kUpp- ingin á við, hvernig umhverfi við verðum í og hvernig fólk við umgöngumst. Allt þetta hefur mikið að segja til þess að okkur líki sjálfum sem bezt við kUppinguna því yfirleitt líkar okkur betur við nýja greiðslu eftir því sem fleiri dást áð henni. Vel snyrt hár er mjög snar þáttur í lífi fólks, bæði hvað snertir atvinnu og tilfinningalíf. At- hugun var gerð á því í stórverzlun i Bandaríkjun- um hvort snyrtilegt hár afgreiðslufólks hefði eitt- hvað aðsegja. Niðurstaðan varðsúaðviðskipta- vinir sneru sér frekar að afgreiðslufólki sem var með snyrtilegt hár. Hitt er augljóst að fyrir and- lega velferð okkar er nauðsynlegt að vera með vel snyrt hár í samræmi við aldur, klæðaburð og likamsbyggingu. Til að hárið líti ávallt vel út þarf að halda því vel við á milli þess sem farið er á hársnyrtistofu. Húseigendur - Húsbyggjendur Smfðum eldhúsinnréttingar, fataskápa, sólbekki o.fl. eftir yðar vaU, gerum föst verðtilboð. Hafið samband við sölumann sem veitir allar upplýsingar. Höfum einnig til sölu nokkur sófaborð á verksmiðju- verði. T résmiða verks tæði Valdimars Thorarensen, Smiðshöfða 17 (Stórhöfðamegin), sfmi 31730. ER CEYMIRIHN i ÓLAGI ? HLÖDUM ENDURBYGGJUM GEYMA Góft þjónusta - sanngjarnl verð ' Kvöld og nelgarþjónusla s 51271 -51030 RAFHIEDSIAN sf ALFASKEIÐ 31 SÍMI 51027 BÓLSTRUNIN MIÐSTRÆTI5 Viðgerðir og klæðningar. Falleg og vönduó áklæöi. Simi 21440, heimasími 15507.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.