Dagblaðið - 01.12.1979, Blaðsíða 10

Dagblaðið - 01.12.1979, Blaðsíða 10
10 mBum 'Útgefandi: DagtAaOifl hf. Framkvæmdastjóri: Svelnn R. EyjóHsson. Ritstjóri: Jónaa Krístjánsson. RitstjómarfuVtníi: Haukur Halgason. Fréttastjórí: ómar Valdknarsson. Skrífstofustjóri ritstjómar: Jóhannas Raykdal. (þróttir: HaMur Sfmonarson. Manning: Aflabtainn Ingólfsson. Aflstoðarf róttastjóri: Jónas Haraldsson. Handrít: Ásgrfmur PAteson. Blaflamenn: Anna Bjamason, Ásgeir Tómasson, Adi Rúnar Hafldórsson, Atli Stainarsson, Bragi Sig- urflsson, Dóra Stafánsdóttir, Elín Afcartsdóttir, Gissur Sigurflsson, Gunnlaugur A. Jónsson, Ólafur Geirsson, Sigurflur SvarTÍsson. Hönnun: Hilm^r Karisson. Ljósmyndir: Ami Pád Jóhannsson, Bjamlaifur Bjamlaifsson, Hörflur VHhjólmsson, Ragnar Th. Slg urðsson, Svalnn Pormóflsson. Skrífstofustjóri: ólafur Eyjótfsson. Gjaldkerí: Práinn Poríaifsson. Söhistjóri: Ingvar Sveinsson. Draifing- arstjórí: Már E. M. HaMdórsson. Ritstjóm Slflumúla 12. Afgraiflsla, áskriftadaMd, augtýsbigar og skrifstofur Pvarhoiti 11. Aflalsfimi blaflsbis ar 27022 (10 Ifnur) Satning og umbrot: Dagblaflifl hf., Sfflumúla 12. Mynda- og plötugarfl: HHmir hf., Sfflumúla 12. Prentun: Arvakur hf., Skaifunni 10. Askriftarvarfl á mánuflf kr. 4000. Varfl í lausasóki kr. 200 aintaklfl. Notum kosningaréttinn Kosningabaráttu lýkur senn og kjós- endur kveða upp dóm sinn. Kosninga- rétturinn er beittasta vopn almennings. Á kjördegi er ábyrgðinni skotið til hans. Minnumst þess, að í stórum hlutum heims hefur alþýða manna engan á- kvörðunarrétt í þessum málum. Við berum þá skyldu að notfæra okkur tjáningarfrelsi og lýðræði. Dagbláðið hefur um nokkurt skeið verið eins konar símstöð, þar sem forystumenn allra flokkanna hafa sent hver öðrum sendingar. í blaðinu hefur verið meginvettvangur slíkra skoðanaskipta. Nú er komið að kjósandanum að lýsa úrslitum. Dagblaðið hefur alla tíð gagnrýnt fjölmargt í ríkjandi flokkakerfi og sagt kost og löst á forystu- mönnum og stjórnmálaflokkum. Skoðanakönnun Dagblaðsins fyrir tæpri viku sýndi, að fjölmargir eru mjög óánægðir með stjórnmálaflokkana. Yfir fímmtungur kjósenda var þá enn óákveðinn, auk þess sem átta komma fímm af hundraði vildu ekki svara spurningunni um, hvaða lista þeir hygðust kjósa. En það leysir engan vanda að sitja heima á kjördegi. Til að nota þá möguleika, sem lýðræðið veitir, svo takmarkaðir sem þeir eru, er það skylda allra, sem vettlingi geta valdið, að fara á kjörstað og láta frá sér heyra. Kjósendur ættu þá að velja þann flokkinn, sem þeim finnst skástur, þegar á allt hefur verið litið. Sætti þeir sig ekki nógu vel við einhverja toppmenn fram- boðslistans, sem þeir kjósa,geta þeir breytt röð á listanum. Kjósandi getur sett töluna 1, 2 eða 3 og svo framvegis fyrir framan nafn þess, sem hann vill færa upp um sæti. Ástæða er til að mæla með þessari aðferð, sem er jákvæð, fremur en hinum möguleikanum, að strika yfir nafn einhvers í toppsæti sem er neikvæð aðferð. Kjósandi verður að gæta þess að gera atkvæði sitt ekki ógilt með því að setja einhver önnur merki á kjör- seðilinn en kross og breytingu á röð. Ef kjósandi telur sig alls ekki sannfæringar sinnar vegna geta kosið neinn framboðslistann, getur hann skilað auðu. Það er mun áhrifameiri aðferð en að sitja heima. Dagblaðið vonast til, að miklar stjórnmálaum- ræður í blaðinu síðustu vikur hafi orðið mörgum hjálplegar við að gera upp hug sinn, þótt eitthvað af öllu því magni hafi sjálfsagt þótt leiðinleg lesning. Nú eiga stjórnmálaflokkarnir aðgefakjósendum frið til að hugsa ráð sitt. í samræmi við þá nauðsyn hefur Dag- blaðið ekki tekið við flokkspólitískum greinum til birtingar í blaðinu í dag, þótt hart hafi verið að sótt, heldur tekur blaðið fyrir málefni, sem ekki eru reyrð í flokkspólitískar viðjar. Þegar kjósandinn hefur hugsað ráð sitt, ætti hann að kjósa sem fyrst á morgun, sunnudag, þar sem kjör- stjórnir hafa heimild til að láta ekki kjósa nema í einn dag og veður geta reynzt válynd. íslendingar hafa getað stært sig af mikilli kjörsókn í þingkosningum. Styrkur lýðræðisins felst í sem mestri þátttöku almennings. Kosningar eru mjög ,,spennandi” að þessu sinni. Vegna þeirra fjölmörgu, sem voru enn óákveðnir, þeg- ar síðdegisblöðin gerðu skoðanakannanir sínar, er ekki unnt að spá með neinni nákvæmni um úrslitin. Fyrri kosningar hafa sýnt, að oft ráða fá atkvæði úrslitum í einstökum kjördæmum. Þeir, sem njóta hins mikilvæga kosningaréttar, ættu ekki að láta það fyrir sig koma, að þá þurfi að iðra þess næstu árin að hafa ekki notfært sér réttinn. DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 1979. t Hungríö jaðrar viö þjóöarmorö —þriðjungur fólks í heiminum fær ekki næga fæðu til að ganga mettur til hvflu að kvöldi 8 í Kambódíu er hungursneyðin óhugnanleg en þessi fjölskylda er éin af hinum „heppnu” sem sloppið hefur úr landi og á þvi nokkra von til að komast af. Fyrir utan veitingahúsið standa tvö börn og gleypa í sig matarlei far sem hrotið hafa af borðum þeirra heppnu innan dyra. Þau eru tæplega meira en átta til tíu ára gömul. Það tekur börnin ekki nema andartak að klára matarbitann sem þau kræktu sér í enda er vissara að vera snar í snúningum þegar maður er hungrað og hrakið barn i Bogota, höfuðborg Kólombíu í Suður-Ameríku. Þjónarnir á veitingahúsinu vilja ekki að gestir þeirra missi matarlystina við að sjá börnin borða upp úr rusla- tunnunum eða aðrar leifar. Sultur og næringarskortur er ekkert sérstakt vandamál í Kólombíu eða annars staðar í Suður-Ameríku. Eitt af þeim ríkjum sem frá náttúrunnar hendi er einna hæfast til að brauðfæða íbúa sína er nú að falli komið vegna hungurs og annarra hörmunga. Þar er átt við Kambódíu en hörmungarnar þar eru íslendingum í fersku minni eftir að sýndar hafa verið fréttamyndir þaðan og frá flóttamannabúðum í ná- grannaríkjunum. Einnig hefur Kambódía og ástandið þar mjög verið í fréttum. Talið er að þriðjungur íbúa heimsins fái ekki nægan né nógu næringarríkan mat. Þau eru mörg litlu börnin sem verða að fara að sofa hvert kvöld án þess að hafa fengið magafylli. En við vorum að ræða um börnin í Bogota í Kólombíu. Ef tvímenning- arnir sem borðuðu leifarnar við veit- ingahúsið hefðu verið gripnir hefði þeim vafalaust verið refsað; i bezta falli af þjónum hússins sjálfum sem hefðu látið nægja að tukta þau til. Einnig hefði líka getað komið til að lögreglan yrði kölluð til og síðan handtekið sökudólgana. Því er nefnilega þannig farið að oft á tíðum er refsivert að tryggja sér nægart. mat. Sama gildir um fullorðna og hina ungu sem jafnvel eru einnig heimilislausir og hungraðir. Mörg þeirra barna sem fæðas' í Suður-Ameríku eru ekki eða fá ekki tækifæri til að berjast fyrir mat sínum. Rithöfundurinn Juan Carlos Martelli skýrði frá því árið 1975 að um það bil 83 börn létust af hungri og vannæringu i Suður-Ameriku á hverri mínútu. Hin fullorðnu þar væru aðeins þau börn sem tekizt hefði að lifa af hörmungarnar. Rit- höfundurinn komst að þeirri niður- stöðu að þarna færi fram hreint þjóðarmorð. Ástandið í Suður-Ameríku og víðar í heiminum hefur ekki batnað svo neinu nemi síðan skáldið skrifaði þetta. Síðustu tölur benda til þess að um það bil fimmtán milljónir barna frá aldrinum 0 til 5 ára látist af hungri eða vannæringu. Níu af hverjum tíu þessara dauðsfalla eiga sér stað í þróunarríkjum þriðja heimsins. Þar er fátítt að fólk fái nægju sína af mat. Eins er þessu farið víða annars staðar í þriðja heiminum. Hart er til þess að vita að allar tæknilegar og jarðræktarlegar for- sendur eru fyrir þvi að sjá öllum jarðarbúum fyrir nægum góðum mat. Á Vesturlöndum er meira að segja svo komið að fleygja verður mat þar sem ekki tekst að selja hann á því verði sem bæði seljandi og kaupandi geta sætt sig við. Rikis- stjórnir Bandaríkjanna og fleiri landa greiða bændum til dæmis stórfé á hverju ári fyrir að taka jarðarskika úr ræktun og fyrir fleiri aðgerðir til að draga úr matvælaframleiðslu. Orsakir hungurs i heiminum eru fyrst og fremst efnahagslegar. Þar sem þjóðir heims búa við svo marg- vísleg og ólík ytri skilyrði er ekki nærri alltaf fært að flytja nægileg matvæli þaðan sem þau eru til í óhófi og til þeirra heimshluta sem þarfnast þeirra sárlega. Hægt er að taka dæmi sem tengist okkur íslendingum og raunverulega hefur reynt á. Nígeriumenn hafa hvað eftir annað sýnt áhuga á að kaupa frá okkur önnur matvæli en skreið. Vegna veðurfars í Nigeriu og tækniþróunar þar er ekki hægt að bjóða Nígeríumönnum upp á fryst matvæli svo neinu nemi. Til tals kom því að íslendingar gætu selt þangað ódýrar vörur í niðursoðnu formi. Hráefni til þess er nægilegt hér á landi. Þegar til kom var aftur á móti enginn grundvöllur fyrir viðskiptum þarna á milli. Það verð sem Nígeríu- menn töldu sér fært að greiða var svo lágt að heppilegra var fyrir okkur að nýta hráefnið til mjölvinnslu sem síðan er selt til dýrafóðurs í Evrópu og víðar. Alls staðar þar sem fæðuskortur ríkir verða börnin verst fyrir barðinu á vandanum. Þar af leiðandi veldur næringarskorturinn stöðugum víta- hring vandamála. Vegna hungurs ná börnin ekki fullum þroska þegar á fullorðinsaldur kemur. Framtak þjóðanna verður því stöðugt minna en ella og framfarir hægari en þyrfti að vera. Hungrið og eymdin verða því framtíðarvaldhafi í ríkjum þriðja heimsins eða í það minnsta lengur við völd þar en þyrfd ef allt væri eins og beztmætti verða.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.