Dagblaðið - 01.12.1979, Blaðsíða 17

Dagblaðið - 01.12.1979, Blaðsíða 17
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 1979. 17 Tbo/íteia SEX SG- PLÖTUR Á JÓLA- MARKAÐ Erlendu vinsældalistamir:_____' GARY NUMAN ENN Á FERD Hljómplötur með ljóðalestri eru fremur sjaldgæfir gripir hér á landi. Óskar Halldórsson las nýlega inn á eina slíka tuttugu ljóð eftir um fimmtán höfunda. Þetta er þriðja Ijóðaplatan sem SG-hljómplötur gefa út. Sú fyrsta hafði að geyma allt það sem hljóðritað hafði verið með ljóðum Steins Steinars og kom út fyrir tólf árum. Hún er löngu uppseld. Seinni platan hefur að geyma upplestur Lárusar heitins Pálssonar á ýmsum ljóðum. Plata Lárusar var tímamótaverk hjá SG- hljómplötum því að hún var hundraðasta LP plata útgáfunnár. Þá er nýkomin út plata sem tekin var upp á afmælishljómleikum Guðrúnar Á. Símonar söngkonu síðastliðið vor. Auk Guðrúnar sjálfrar kemur hópur tónlistarmanna fram. Meðal laga á plötunni er hinn margfrægi Kattadúett Rossinis, sem Þuríður Pálsdóttir syngur með Guðrúnu. Katla Maria er kornung söngkona, sem nýlega söng inn á sina fyrstu hljómplötu fyrir SG-útgáfuna. Öll eru lög plötunnar spænsk með textum eftir Guðmund Guðmunds- •son afa söngkonunnar ungu. Óíafur Gaukur stjórnaði upptökum á plötu þessari. Undirleik annast nokkrir kunnir hljóðfæraleikarar. Siðast en ekki sízt er að geta tvöfaldrar jólaplötu sem kemur á markaðinn áður en langt um líður. Hún hefur að geyma efni sem áður hefur komið út hjá SG-hljómpIötum Flytjendur eru 25 einsöngvarar og kórar. Þetta er eina jólaplatan, sem DB er kunnugt um að komi út í ár hér á landi, þegar frá eru taldar endurútgáfur á eldri plötum. -ÁT- Fimm þeirra sex hljómplatna sem SG-útgáfan sendir frá sér fyrir þessi jól eru komnar út. Að vanda kennir þar margra grasa; ein hefur að geyma harmónikuleik, önnur ljóðalestur og hinar söng af ýmsu tagi. Harmóníkuplatan er með Einari Kristjánssyni. Hann leikur á tvöfalda nikku lög frá þvi um aldamót. SG-hljómpIötur hafa á undan- förnum'árum gefiðút röð af einsöngs- plötum. Sú tiunda er nú komin út. Þar er á ferðinni Þorsteinn Hannes- son tónlistarstjóri útvarpsins. Lögin sem hann syngur voru hljóðrituð í út- varpssal. Guðrún Á. Símonar á hljómleikum síðastliðifl vor. Alls fyllti hún Há- skólabíó fimm sinnum er hún hélt upp á fjörutiu ára söngafmæli sitt. Ljósm.t Emelía. Ein skærasta stjarna Englendinga þessa dagana er Gary Numan, söngv- ari hljómsveitarinnar Tubaway Army. Lag hans, Complex, er á hraðri uppleið í Iandi Engla og Saxa; var í síðustu viku í 26. sæti og er nú númer ' sjö á vinsældalistanum. Fróðir menn telja að Complex haft mesta möguleika til að ýta Jam-lag- inu Eton Rifles af toppinum. — Það hefur nú setið þar í þrjár vikur. Þá er því jafnframt spáð að nýjasta lag hljómsveitarinnar Queen, Crazy Little Thing Called Love, eigi eftir að komast hærra en í fjórða sæti enska listans. En það getur margt gerzt óvænt í enska poppheiminum á styttri tíma en einni viku. 1 Bandarikjunum sitja söngkon- urnar Barbra Streisand og Donna Summer sem fastast á toppnum. Ekkert lag virðist geta hnikað No More Tears (Enough Is Enough) þaðan á næstunni. Eagles eiga mestum vinsældum að fagna í Hong Kong þessa vikuna. Það lag sem siglir hraðast upp á við hjá Kínverjunum er Tusk, titillag nýj- ustu plötu Fleetwood Mac. Þjóðverjarnir eru lítið fyrir breyt- ingar á topp tíu líkt og venjulega. Ekkert nýtt lag kemst þar upp að þessu sinni. Smá tilfærslur eru á lög- unum í sjötta til tiunda sæti. -ÁT í Hollandi virðast vinsældir Nott- ingham Forest fara dvínandi þessa dagana, — að minnsta kosti lagsins We Got The Whole World, sem liðið syngur. Á leið upp listann er lagið It’s All In The Bible, sem sungið er af Snoopy. Það er nú í tiunda sæti list- ans. GARY NUMAN hefur átt miklum vinsældum að fagna I Englandi á árinu. Hann vakti fyrst á sér athygU með laginu Are Friends Electric, sem hann flutti með hljómsveitinni Tubeaway Army. Vinsælustu litlu plötumar ENGLAND 1. (1 IETON RIFLES.............................Jam 2. (2) WHEN YOU’RE IN LOVE WITH A BEAUTIFUL WOMAN. Dr. Hook 3. (3) STILL............................Commodores 4. (4) CRAZY LITTLE THING CALLED LOVE........Quoon 5. (11) ONE 8TEP BEYOND....................Madnosa 6. (9) NO MORE TEARS.....Barfora Streisand og Donna Summer 7. (29) COMPLEX..........................Gary Numan 8. (12) LADIES NIGHT..................Kool Et The Gang 9. (10) KNOCKEDIT OFF..................B.A. Robartson 10. (23) QUE SERA Ml VIDA..............Gibson Brothers BANDARÍKIN 1. (1) NO MORE TEARS .. .Barbra Streisand og Donna Summer 2. (2) BABE...................................Styx 3. ( 3) STILL...........................Commodores 4. ( 8) PLEASE DONT GO..........KC & The Sunshine Band 8. (4) HEARTACHE TONIGHT....................Eagles 6. (11) ESCAPE (THE PINA COLADA SONG)..Rupert Holmes 7. ( 5) POP MUZIK...............................M 8. (6) DIM ALL THE LIGHTS..............Donna Summer 9. (10) SHIPS..........................Barry Manilow - 10. (7) YOU DECORATED MY LIFE...........Kenny Rogers HOLLAND 1. (8) WEEKEND...........................Earth & Fire 2. (1) CRAZY LITTLE THING CALLED LOVE........Queen 3. (3) WE BELONG TO THE NIGHT.............ENen Foley 4. (2) WE GOT THE WHOLE WORLD.......Nottingham Forest 6. (4) GIMME GIMME GIMME.....................ABBA 8. (9) SHE'S IN LOVE WITH YOU............Suzy Quatro 7. (7)OH YESIDO.............................. Luv 8. (18) GET UP AND BOOGIE..............Fraddie James 9. (6) MESSAGEIN A BOTTLE....................Police 10. (14) IT'S ALLIN THE BIBLE................Snoopy HONG KONG 1. (3) HEARTACHE TONIGHT....................Eagles 2. (1) POP MUZIK.................................M 3. (4) IF YOU REMEMBER ME.............Chris Thompson 4. (6) PLEASE DONT GO...........KCCrTha Sunshina Band 8. ( 7) GOOD GIRLS DONT...................Tha Knack 8. (2) GOOD FRIENDS....................Mary McGregor 7. (8) ONEWAY OR ANOTHER....................Blondie 8. (9) ARROW THROUGH ME......................Wings 9. (18) TUSK...........................Fleetwood Mac 10. (10) BAD CASE OF LOVING YOU..........Rofoert Palmer VESTUR-ÞÝZKALAND 1. (1) WE DONT TALK ANYMORE......Clfff Richard 2. (2) IWAS MADE FOR LOVING YOU.......Klss 3. ( 3) I DONT LIKE MONDAYS....Boomtown Rats 4. (4) BRIGHT EYES...............Art Garfunkel 8. (6)1—2 — 3 — 4 RED LIGHT......................Teens 6. (8) DONT BRING ME DOWN .......................ELO 7. (6) BORN TO BE ALIVE.................Patrick Harnandez 8. ( 7 ) EL LUTE..............................BoneyM 9. (9) BOY OH BOY................................Racey 10. (10) VOULEZ VOUS.............................ABBA

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.