Dagblaðið - 03.01.1980, Page 14

Dagblaðið - 03.01.1980, Page 14
14 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 1980. Ræður forseta íslands og forsætisráðherra: „Á íslandi hefur ævintýri gerzt” Á Islandi hefur mikið ævintýri gerzt á einum eða tveimur mannsöldrum, sagði forseti íslands, dr. Kristján Eldjárn, í áramótaræðu sinni. Það þyríti að brýna fyrir ungu kynslóðinni, sem ekki hefði horft á ævintýrið gerast nenta að litlu leyti, svo að ekki gleymdist. Nú riði á, að á þessu ævintýri yrði gott fram- hald, ,,og svo mun verða”, sagði dr. Kristján. Þótt óvíst væri um taumhaldið í svip, skyldu menn halda trú sinni á landið, atorku, vit og giftu þjóðarinnar. Nýta yrði möguleikana' til farsællar framtíðar og fagurs mannlífs. íslendingar ættu að fara að orðum Jóns Sigurðssonar og vikja eigi, sem bæri að skilja svo, að ekki skyldi æðrast eða örvænta, þótt eilthvaðgæfi á bátinn. í ræðu forseta kom frani, að hann mun af „persónulegum ástæðum” ekki gefa kost á sér til endurkjörs næsla sumar eins og sagði frá i DB í gær. Forsetakosningar verða því væntanlega sunnudaginn 29. júní og nýr forseti tekur við I. ágúst. Benedikt Gröndal forsælis- ráðherra sagði í áramótaræðu sinni á gamlárskvöld meðal annars að hið bliða væri - blandað stríðu í lifi þjóðarinnar. Nú gæfi á bátinn, en samt hefðu menn vafalaust aldrei haft meira að bíta og brenna. Bene- dikt hvatti til trausts á Alþingi en sagði, að einnig þar gætti kaldrar — sagði forseti íslands — forsætisráðherra segir að þrýstihópar haldi niðri kjörum láglaunafólks undiröldu sérhagsmuna og þrýstihópa. Styrkur einstakra hags- munahópa væri slíkur, að nú virtist vera óhugsandi að veita hinum Iægst- launuðu úrbætur, sem ekki væru strax komnar alla leið til hinna hæst-' launuðu. Forsætisráðherra sagði, að deilur um krónur, sem væru ekki til, yrði að setja niður, en snúa sér að skiptingu þess, sem til væri. Hann hvatti til sátta íþjóðlífinu. -HH. l)r. Krislján Kldjárn, forseli íslands. pr DB-mynd: Bj.Bj. MIKID UM DYRDIRI BÚSTAÐAKIRKJU Það var mikið uni dýrðir i Bústaða- kirkju sl. laugardag, þegar sóknar- presturinn, séra Ólafur Skúlason dóm- prófaslur, varð fimmtugur. Sóknar- börn hans héldu hönum samsæti i safnaðarheimilinu og vottuðu þar séra Ólafi og fjölskyldu hans virðingu sina og vinátlu. Gjafir voru séra Ólafi ekki færðar frá söfnuði sínunt aðrar en sú sem myndin er af: þegar hann kom til kirkj- unnar síðdegis voru þar fyrir utan börn og unglingar úr söfnuðinum með fimmtíu kyndla og mynduðu eldborg fyrir prestinn og fjölskyldu hans. 18 fengu fálkaorðu og heiðursmerki hennar Frétlatilkynning frá orðurilara. Forseti íslands sæmdi á nýársdag eflirtalda menn heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu: Frú Aðalheiði Bjarnfreðsdóltur, for- ntann Starfsmannafélagsins Sóknar, riddarakrossi, fyrir félagsmálastörf. Ármann Kr. Einarsson, rilhöfund, riddarakrossi, fyrir félagsmálastörf og ritstörf fyrir börn og unglinga. Arngrim V. Bjarnason, fv. aðalfull- trúa, Akureyri, riddarakrossi, fyrir félagsmálastörf. Ásgeir Ólafsson, forstjóra, riddarakrossi, fyrir störf að tryggingamálum. Friðrik Ólafs- son, formann Alþjóðaskáksam- bandsins, stórriddarakrossi, fyrir skáklist. Guðmund Magnússon, reklor Háskóla islands, riddara- krossi, fyrir embættisstörf. Gunnar Sigurjónsson, verkstjóra, riddara- krossi, fyrir félagsmálastörf. Frú Hrefnu Tynes, fulltrúa, riddara- krossi, fyrir æskulýðs- og félagsmála- störf. Dr. Jakob Magnússon, fiski- fræðing/fiddarakrossi, fyrir störf að fiskirannsóknum. Dr. Jón Gíslason, fv. skólastjóra, stórriddarakrossi, fyrir slörf að skóla- og menningar- málum. Séra Jón ísfeld, fv. prófasl, riddarakrossi, fyrir félagsmála- og fræðslustörf. Jón Sætran, raftækni- fræðing, riddarakrossi, fyrir störf á sviði verkmenntunar. Frú Mariu Markan Östlund, söngkonu, slór- riddarakrossi, fyrir tónlistarstörf. Markús Guðmundsson, skipstjóra, riddarakrossi, fyrir sjómennsku. Pál Sigurðsson, ráðuneylissljóra, riddarakrossi, fyrir störf í þágu heil- brigðisntála. Pélur Sigurðsson, for- stjóra Landhelgisgæslunnar, sljörnu stórriddara, fyrir störf á sviði land- helgismála og almannavarna. Snæ- björn Jónasson, vegamálastjora, riddarakrossi, fyrir embættisstörf. Þórhall Ásgeirsson, ráðuneylisstjóra, sljörnu stórriddara, fyrir embæltis- störf. .......... ' ......................................................""" ' FRANSKIHEIMURINN Ég gleymdi að hlusla á þáttinn uomsmál, sem var á dagskrá út- varpsins rétt fyrir klukkan níu í gær- kvöldi. Ástæðan var sú að ég vandaði mig svo mikið við sjónvarps- glápið vegna þessara skrifa. Annars hef ég ekki látið þáttinn um dómsmál fram hjá mér fara svo lengi sem ég man eftir mér, hafi ég á annað borð verið nærri útvarpstæki. Ég fékk hinsvegar fullstóran skammt af fræðslu um laser geisla fyrir minn smekk í þættinum um Nýjustu tækni og vísindi. Ljóst er á öllu að hvorki vísindamenn né fáfróður almenningur hefur enn gert sér grein fyrir þeim möguleikum sem þessi ágæti geisli býður upp á. Klukkan níu átti Stikilsberja-Finn- ur að vera í sjónvarpinu með Mickey Rooney i aðalhlutverki. Ég beið spenntur eftir því að sjá hvernig Hollywood sérfræðingarnir árið 1939 hefðu meðhöndlað þessa sígildu sögu Mark Twain. i Ijós kom að ég var með úrelta dagskrá í höndunum. Sýningu þessarar kvikmyndar var frestað. i stað þess kom skemmtiþáttur frá Eurovision á frönsku, tekinn upp i Lausanne í Sviss. Hann var til styrktar bágstöddum börnum. Þetta var góður þáttur. Ég var aftur á móti ails ekki viðbúinn slíku efni og kannski var svo um fleiri. Líklega töpum við Íslendingar miklu á því hve litið samband við höfum við franska menningu og franska heim- inn, sem er býsna stór. Margt sem þar fer fram er víst orðið afskaplega bjagað, þegar það hefur farið í gegnum engilsaxneska síu frétta- stofa í London og New York. -ÓG. -

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.