Dagblaðið - 03.01.1980, Page 15
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 1980. 15
DAGBLAÐSINS & VIKUNNAR 1979
Vinsældavalsins að niður l'alla liðirnir
Hljóðfæraleikari ársins og
Lagahöfundur ársins.
Stjörnuniessa Dagblaðsins og
Vikunnar verður haldin uni niiðjan
l'ebrúar. Þar veita sigurvegarar
Vinsældavalsins verðlaununi sinum
viðtöku og taka lagið. Messan er haldin
tæpum mánuði síðar cn venja er. Nánar
verðurgreint l'rá henni i fréttum siðttr.
Atkvæðaseðillinn i Vinsældavali Dag-
blaðsins og Vikunnar er nokkuð seinna
á ferðinni þetta árið en áður. Á undan-
förnum árum hefur það sýnt sig að þátt-
takan í valinu hefur verið hverfandi lítil
fyrr en að jólum og áramótum afstöðn-
um. Þá hefur einnig verið ákveðið að
seinkna Stjörnumessu blaðanna þar til i
febrúar. Þvi var engin ástæða að keppast
við að Ijúka valinu mörgum vikum áður.
en að uppskeruhátíðinni sjálfri kemur.
Nokkrar breytingar eru á atkvæða-
seðlinum frá þvi í fyrra og hittifyrra.
Stærsta breytingin er sú. að ekki er
lengur unnt að greiða atkvæði um vin-
sælustu útvarps- og sjónvarpsþættina.
Þá hefur liður. sem bar nafnið Hljóð-
færaleikari ársins, verið felldur niður.
Hann fór i taugar margra. sem helzt
vildu geta gefið gitarleikurum atkvæði
sín í sérstökum lið. trommuleikurum i
öðrum og svo framvegis.
Þriðja og síðasta breytingin á inn
lenda hluta vinsældavalsins er sú að
liðurinn Tónlistarmaður ársins er tekinn
inn i dæmið og settur fremstur. Þar er
hægt að greiða atkvæði þeim hljóðfæra-
leikurum. söngkonum. söngvurum. eða
jafnvel hljómsveitum. sem hafa skarað
fram úr á árinu. Erlendis er þessi liður i
mörgum kosningum og nefnist þar
„Artist of the Year.”
Þær breytingar verða á erlenda hluta
Gunnar Þórðarson hefur tvivegis verið kjörinn hljóðfæraleikari ársins og lagahöfundur ársins af
lesendum Dagblaðsins og Vikunnar. Hér tekur hann lagið á Stjörnumessu 1979.
DB-myndir: Árni Páll.
Sé hægt að tala um einhvern ákveðinn sigurvegara heils vinsældavals, þá átti Sigrún I Ijálmtvsdóttir þann
heiður tvimælalaust skilið á síðustu Stjörnumessu. Hér er hún ásamt gömlum félaga sínum. Agli Olafs-
syni.
Vinsteldavaí DB og Vihunnar
Innlendur Tónlistarmaður ársins 1. markaður Söngvari ársins 1. Vinsœldaval Dagbiaðsins og Vikunnar 1979 Nafn:
2. 2.
O Q
O. Hlfómsveit ársins 1. O. Sönghona ársins 1. Aldur: Heimili:
2. 2.
3. 3.
Hljómplata ársins 1. Lagársins 1. Hlfómsveit ársins 1. Söngvari ársins 1.
2. 2. 2. 2.
3. 3. 3. 3.
Lagahöfundur ársins 1. Textahöfundur ársins 1. Söngkona ársins 1. Hlfómplata ársins 1.
2. 2. 2. 2.
3. 3. 3. 3.