Dagblaðið - 26.02.1980, Blaðsíða 7

Dagblaðið - 26.02.1980, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 1980. 7 Erlendar fréttir REUTER New Hampshire: Carterspáð25% meira fylgien Kennedy Síðustu spár fyrir forkosningarnar i New Hampshire í Bandaríkjunum virðast benda til þess Jimmy Carter forseti vinni þar öruggan sigur yfir' helzta andstæðingi sínum, Edward Kennedy öldungadeildarþingmanni. Forkosningar fyrir val á frambjóð- endum flokkanna bandarísku fyrir for- setakosningarnar eru þar í dag. Er Carter spáð fjórðungi meira fylgi en Kennedy. Tilnefningar til óskarsverðlauna: Dustin Hoffman og Sally FieM tafín líklegust Dustin Hoffman er nú tilnefndur til óskarsverðlauna í fjórða sinn fyrir bezta karlhlutverkið en þau frægu verðlaun verða afhent við hátíðlega athöfn hinn 14. apríl næstkomandi. Þykir Hoffman hafa góða möguleika til útnefningar fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Kramer vs. Kramer Þar leikur hann fráskilinn mann sem berst fyrir því að fá umráðarétt yfir syni sínum. Hoffman hefur áður verið tilnefndur fyrir hlutverk sín í kvikmyndunum The Graduate, Lenny og Midnight Cowboy. Sally Field er minna þekktur leik- ari en Hoffman. Hún þykir einna lík- legust þeirra sem tilnefndar hafa verið til óskarsverðlauna fyrir aðal- hlutverk kvenna. Er það fyrir hlut- verk sitt sem Norma Rae i sam- nefndri kvikmynd sem fjallar um verkalýðsbaráttu í baðmullarverk- smiðju í suðurríkjum Bandaríkjanna. Er hún byggð á sannsögulegum grunni. Dustin Hoffman Kvikmyndimar Kramervs. Kramer og All That Jazz hlutu flestar tilnefn- ingar til hinna ýmsu verðlauna, eða níu hvor. Roy Scheider sem leikur aðalhlut- verkið í AU That Jazz hlaut einnig út- nefningu sem bezti leikarinn. Meðal annarra má nefna Peter Sellers fyrir hlutverk sitt sem ólæs garðyrkju- maður í Being There, Jack Lemmon í China Syndrome, A1 Pacino í And Sustice For All. Af kvenleikurum sem keppa við .Sally Field má nefna Jane Fonda fyrir hlutverk sitt I China Syndrome. Hún fékk verðlaunin i fyrra, Jill Clayburgh í Starting Over, Bette Midler í kvikmyndinni The Rose sem byggð er á ævi söngkonunnar Janis Joplin Og Marsha Mason í kvik- myndinni Chapter two. Bæði síðast- talda kvikmyndin og Starting Over fjalla um skilnað og síðara hjóna- band eða samband aðila. Jill Clayburgh STOÐUGAR KANN- ANIR A AÐ AF- GANISTAN VERÐI HLUTLAUST RÍKI Bandarísk stjórnvöld hafa stöðugt verið í sambandi við ráðamenn í Moskvu að undanförnu og kannað hvort einhver fótur sé fyrir því að Brésnef forseti Sovétríkjanna hafi raunverulegan hug á að leysa deiluna um Afganistan með friðsamlegum hætti og koma siðan í veg fyrir erlenda ihlutun þar. Bandaríkjamenn segja þó að þess sjáist lítil merki, þrátt fyrir itar- legar athuganir á ræðu sem hann hélt í Moskvu í síðustu viku um málið. Þar þóttist Thomas Watson sendiherra Bandaríkjanna i Moskvu merkja einhver merki þess að forsetinn vildi ganga til samninga á grundvelli tillagna Breta og annarra Efnahagsbandalags- rikja um að Afganistan yrði hlutlaust ríki en nokkur stórveldi ábyrgðust hlut- leysi þess. Fulltrúar Jimmy Carters Bandarikja- forseta sögðu i gær að engin hvatning hefði komið frá sérfræðingum í Moskvu um að Brésnef hefði áhuga á samningum á þessum grundvelli. Er þá átt við einhvers konar samninga eins og Austurríki gekkst undir árið 1955 er friðarsamningar voru gerðir í Vin. Þá lofaði Austurríki því að vera hlutlaust ríki um aldur og ævi og í staðinn tóku risaveldin ábyrgð á sjálfstæði landsins. Brésnef forseti sagði i ræðu sinni að Sovétrikin væru reiðubúin að flytja her sinn á brott frá Afganistan svo skjótt sem tryggt væri að allri erlendri íhlutun væri bægt þar frá. Við skulum láta Bandarikin og nágrannariki Afganistan tryggja slíkt ástand og þá verður ekki lengur þörf fyrir sovézkan her í Afganistan. Hann var búinn að vera i haldi kólómbiskra skæruliða i þrjú ár þegar hann slapp loks. Maðurinn heitir Richard Starr liðsmaður i friðarsveitum Bandaríkjanna. Hann er á miðri myndinni hér að ofan. Sá er drýgstan þátt átti i að losa Starr úr prfsundinni var dálkahöfundurinn frægi, Jack Anderson, sem tók persónulega að láni 250 þúsund dollara til að greiða lausnargjaldið sem skæruliðarnir kröfðust. Andrei Gromyko utanrikisráðherra Sovétrfkjanna brá sér nýlega til Indlands eftir að Indira Ghandi tók þar við völdum eftir kosningasigur sinn. Var erindi Gromykos að skýra út fyrir Indiru hvers vegna Sovétmenn hafi talið sér nauðsynlegt að senda herlið sitt inn i Afganistan. Einhver árangur virðist hafa orðið af ferð utanrfkisráðherrans þar sem indverski forsætisráðherr- ann hefur farið sér hægt f að gagnrýna stjórnina i Moskvu. Teheran: SAMEINUÐU ÞJOÐA NEFNDIN YFIRHEYRIR —fómardýr leynilögreglu keisarans ræða við hana í dag Hin alþjóðlega nefnd sem er í íran á vegum Sameinuðu þjóðanna mun i dag ræða við nokkur af fórnardýrum leynilögreglu keisarans. Nefndin, sem er i landinu til að kanna hugsan- leg brot keisarans fyrrverandi og manna hans gagnvart írönsku þjóð- inni, hóf störf sin í gær. Þá könnuðu þeir ýmiss konar skjöl, sem lögð voru fyrir þá af írönskum stjórnvöldum auk annarra aðila bæði innan og utan írans. Nefndin lauk starfi sínu í gær með ríkulegum kvöldverði á hóteli þvi sem hún dvelst á í Teheran. í nefndinni, sem er skipuð af Kurt Waldheim, aðalritara Sameinuðu þjóðanna, eru lögfræðingar frá Alsír, Frakklandi, Sri Lanka, Sýr- landi og Venezuela. Fyrri fregnir hermdu að góðar horfur væru á því að bandartsku gísl- unum fjörutíu og níu, sem eru í haldi stúdentanna í bandarísku sendiráðs- byggingunni í Teheran yrði sleppt úr haldi þegar nefnd Sameinuðu þjóð- anna mundi ljúka störfum. Bani-Sadr, forseti írans, gaf þó ekkert slíkt i skyn er hann flutti ræðu af vegg við sendiráðsbygginguna i gær. Var forsetinn herskár mjög i ræðu sinni og virtist ekki fara hnifur- inn á milli skoðana hans og stúdent- anna í sendiráðinu. Bani-Sadr hefur þó gagnrýnt þá áður en að því er virðist ekki hlotið neinn stuðning Khomeinis trúarleiðtoga við það. Einn stúdentanna sem ráða sendi- ráðsbyggingunni las yfirlýsingu þar sem sagði að þeir mundu ekki láta neitt tækifæri ónotað til að berjast gegn bandarískum yfirráðum. Eru horfurnar fyrir að gíslarnir verði látnir lausir nú taldar daufari en oft áður og krafa stúdentanna um fram- sal keisarans og auðæfa hans enn í fullu gildi, ef svo ætti að verða.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.