Dagblaðið - 26.02.1980, Blaðsíða 13

Dagblaðið - 26.02.1980, Blaðsíða 13
> Iþróttir Iþróttir íþróttir Sigurður Sverrisson Innanhússmót UMSK Innanhússmól UMSK veróur lialdió í iþróltahús- inu afl Varmá dagana 1. og 8. marz nk. Mikil þált- laka er í mótinu en keppt verdur í öllum flokkum. Keppni hefst með leikjum í 5. flokki kl. 10 þann 1. marz. í leidinni má geta þess að Afturelding er i þjálfara- leit fyrir alla flokka félagsins. Þeir sem áhuga hafa á. verkefninu eru beflnir aO snúa sér til Elíasar Þor- geirssonar í sima 66610 eóa Rikharðs Jónssonar í síma 66348 eftir kl. 20 á kvöldin. Uruguaymaður gerist Úlfur Úlfarnir keyptu í siðustu viku leikmann frá Uruguay, Rafael Gilaso. Kaupverðið mun hafa verið um 100.000 sterlingspund. Gilaso þessi hefur ekki verið mjög ábcrandi jeikmaður en hlýlur að hafa leikið landsleik með Uruguay-mönnum — annars fengi hann ekki að leika í Englandi. Reglur um kaup á erlendum leikmönnum kveða svo á um að þeir verði að hafa leikið í landsliði. Aðeins einn leikur fór fram í Englandi í gærkvöld. Southend og Reading gerðu þá jafntefli, 2—2, í 3. deildinni. Eeik Tranmere og Wigan i 4. dcild var frestað. ÍSogÞrótturí blakinu íkvöld í kvöld verður i íþróttahúsi Kennaraháskólans leikur ÍS og Þróttar i I. deild íslandsmótsins í blaki. Upphaflega átti leikurinn að fara fram um siðustu! helgi en til þess að gefa Sjónvarpinu færi á upptöku blakleiks í nægu Ijósi var hann færður úr Haga- skóla. Leikir blakrisanna ÍS og Þróttar hafa i gegn- um árin oft verið skemmtilegir og tvísýnir og von-' andi verður svo í kvöld en lcikurinn hefst kl. 20.15. ; Kolbeinn Pálsson, Kristinn Stefánsson og Einar Bollason verða allir í eldlínunni í kvöld. Hörkuleikur íkörfunni Einn leikur fer fram í bikarkeppni KKÍ í kvöld og mætast þá B-lið KR, ef hægt er að nefna það svo, og Valsmenn. B-lið KR er eiginlega ekkert B-lið því i liðinu eru margir af beztu körfuknattleiksmönnum landsins í gegnum árin. „Stjörnufans” eins og ein- hver orðaði það, en eitthvað munu stjörnurnar hafa þyngzt frá þvi sem áður var en á leið sinni í 8-liöa úr- slitin hafa þær lagt að velli hiö unga og bráðefnilega liö Hauka úr Hafnarfirði og þvi næst 1. deildarlið Þórs og það á Akureyri. Ekki var í morgun Ijóst hvort þeir Tim Dwyer og Ríkharður Hrafnkclsson myndu leika með Val í| kvöld þar sem þeir eiga báðir yfir höfði sér leikbann. Útilokað var að fá það á hreint hvort þeir verða með í kvöld eður ei en það gæti skipl sköpum. Hvað sem því liður hefst lcikurinn kl. 20 í íþróttahúsi Haga- skólans og ætti að geta oröið um bráðfjöruga viður- eign að ræða. 1 Tvöfatt fleiri núenífyrra — í firmakeppni BTÍ, sem lauk nýlega Fyrirtækja- og stofnanakeppni Badmintonsambands íslands fór fram í TBR-húsinu sunnudaginn 27. janúar s>l. Um 60 fyrirtæki og stofnanir tóku þátt í keppninni að þessu sinni og er það nær tvöfalt fleiri en á sl. ári. Sýnir það bezt hve vinsæl þessi keppni er. Keppnin er útsláttarkeppni með því fráviki, að lið sem tapar í fyrsta leik, tekursæti i B-flokki. Sigurvegari 1980 varð Sölufélag garðyrkjumanna, en keppendur þess voru Kristján Benjamínsson og Jóhann Kjartansson og sigruðu þeir þá Harald, Kornelíusson og Pétur Hjálmtýsson, sem kepptu fyrir Úr og skart með 15:7 — 15:13. í B-flokki sigraði Endurskoðenda- skrifstofa Sigurðar Stefánssonar SÍS-b, 12:15 — 18:15 — 15:13. Keppendur fyrir endurskoðendaskrifstofuna voru þeir Magnús Elíasson og Bjarni Lúðvíksson, en keppendur fyrir SÍS-b voru Einar Jónsson og Eysteinn Björnsson. Keppt var um forkunnarfagra farandbikara. Einnig fengu fyrirtækin sem sigruðu i hvorum flokki, áletraða veggskildi til eignar. Eru allir verð- launagripirnir gefnir af Úra og skart- gripaverzlun Jóns og Óskars, Lauga- vegi 70. Meðfylgjandi mynd er af sigurveg- urum keppninnar. Frá vinstri eru sigur- vegararnir í B-flokki, Bjarni Lúðviks- son og Magnús Eliasson, en þeir kepptu fyrir Endurskoðendaskrifstofu Sigurðar Stefánssonar, siðan koma sigurvegararnir i fyrirtækjakeppni BSÍ, Kristján Benjamínsson og Jóhann Kjartansson, en þeir kepptu fyrir Sölu- félag garðyrkjumanna. HÖRKUKEPPNI í HAMRAGILI —á svigmóti ÍR um helgina Hafliði Harðarson, Á 124,68 Árni Guðlaugsson, Á 124,95 Árni Arason, Á 130,28 Kristinn Guðmundsson, Á 130,89 Kristján Jóhannsson, KR 131,52 Hjalti Jónsson, KR 132,49 Kristinn Kristinsson, Á 136,22 Karlaflokkur Árni Þór Árnason, Á 1 1,04 sek. Helgi Geirharðsson, Á 116,52 Ríkharð Sigurðsson, Á 120,36 Kristinn Sigurðsson, Á 121,76 Einar Úlfsson, Á 122,85 Einar Þór Bjarnason, ÍR 131,76 Arnór Guðbjartsson, Á 132,13 Egill lngibergsson, Br. 142,49 Stúlkur 13—15 ára Tinna Traustadóttir, Á 142,61sek Guðrún Björnsdóttir, Vík. 143,96 Róslind Sveinsdóttir, KR 158,33 Bryndís Kristinsdóttir, Á 161,78 Erla Leifsdóttir, ÍR 171,02 Linda Hauksdóttir, KR 171,78 Þórunn Egilsdóttir, Á 174,40 Halla Marteinsdóttir, KR 178,71 Guðríður Hauksdóttir, Á 187,70 Helga J. Bjarnadóttir, ÍR 189,39 Konur Ásdis Alfreðsdóttir, Á 117,91 sek. Halldóra Björnsdóttir, Á 125,84 Marta Óskarsdóttir, Á 131,44 Björk Harðardóttir, Á 133,75 Aðeins þessar fjórar luku keppni i kvennaflokki. Nokkuð var urn það að skráðir keppendur á mótinu mættu ekki til leiks og i flokki 15—16 ára drengja mættu ekki 13 af skráðum keppendum. Mótsstjóri var Helgi Hall- grímsson, en Þórir Lárusson sjálfur var límavörður. Svigmól ÍR fór fram í Hamragili um helgina og var mjög vel heppnaö. Geysilegur fjöldi þátttakenda var á mótinu og keppni i flokkunum fimm mjög spennandi viöast hvar. Árni Þór Árnason og Ásdís Alfreösdóttir sigruðu í flokkum karla og kvenna, en hér á eftir fara úrslit úr öllum flokkun- um. Drengir 13—14 ára Ásmundur Helgason, ÍR 115,11 sek. Gunnar Helgason, ÍR 120,21 Þórhallur Reynisson, Á 124,40 Hermann Valsson, ÍR 127,63 Rúnar Emilsson, Br. 133,17 Pétur Pétursson, Á 140,33 Edvin Árnason, Á 140,45 Egill Egilsson, Á 141,29 Einar Stefánsson, Vík. 143,68 Gunnar Valdimarsson, Á 146,47 Drengir 15—16 ára Haukur Bjarnason, KR 122,70 sek. Þórður Björnsson, Vík. 123,90 Örnóflur Valdimarsson, ÍR 123,90 (bróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Ásdls Alfreðsdóttir sigraði með yBrburðum I kvennaflokknum, en á þessari mynd er hún i svigkeppninni á íslandsmótinu á tsafirði í fyrra. DB-mynd Þorri. Bræðumir voru sterkir — Þór og Atli Thorarensen settu mikinn svip á unglingameistaramótið ífimleikum um helgina Unglingameistaramót Islands í fim- leikum fór fram um heigina og var góð þátttaka í öllum flokkum og virðist fimleikaíþróttin eiga vaxandi fylgi að fagna. Bræðurnir Atli og Þór Thorarensen voru atkvæðamestir á mótinu og börðust grimmilega um verðlaunin. Þór hafði heldur betur i baráttunni en báðir eru þeir mjög efni- legir. Úrslit úr mótinu fylgja hér á eftir. Úrslit í pilaflokkum. I. flokkur 15—16ára Atli Thorarensen Ármanni Óskar Ólafsson Ármanni Kristján Ársælsson Fylki II. flokkur 13-14 ára Þór Thorarensen Ármanni Guöjón Gislason Fylki Ingólfur Bragason Ármanni III. flokkur 11—12ára Eggert Guömundsson Ármanni Arnór Diegó Ármanni Þorvaldur Harðarson Ármanni IV. flokkur 10 ára og yngri Axel Bragason Ármanni Ragnar Ólafsson Fylki Úrslit í stúlknaflokkum l.flokkur 15-16 ára Brynhildur Skarphéöinsd. Björk Áslaug Óskarsd. Gerplu Jódís PétursdótlirGerplu II. flokkur 13-14 ára Jóna Einarsdóttir Gerplu Krístín Gíslad. Gerplu Katrin Guðmundsd. Gerplu III. flokkur 11—12 ára Hlíf Þorgeirsd. Gerplu Vilborg Víðisdóttir Gerplu Auöur Ketilsd. Björk IV. flokkur 10 ára og yngri Hlín Bjarnadóttir Gerplu Þuriöur Gunnarsd. Gerplu Ester Jóhannsd. Björk 34.00 stig 32.80 stig 30.60 stig 35.85 stig 32.10 stig 30.35 stig 27.40 stig 22.10 stig 21.20 stig 24.50 stig 18.00 stig 28.77 stig 26.22 stig 23.12 stig 21.80 stig 20.75 stig 17.38 stig 18.87 stig 14.87 stig 14.20 stig 13.20 stig 12.85 stig 12.23 stig í útslitakeppni sunnudaginn 24. febrúar komust 6 efstu í hverri grein, alls 20 manns og kepptu um meistaratitil á hverju áhaldi. Úrslit voru þessi: Stúlkur Stökk Jódís Pétursdóttir G. Brynhildur Skarphéöinsd. B. Áslaug Óskarsdóttir G. 14.85 stig 14.85 stig 14.70 stig Staðan í 2. deild karla Staðan í 2. deild íslandsmótsins i handknattleik er nú þannig eftir 16—15 sigur Aftureldingar gegn Þrótti um helgina. Fylkir 10 7 2 1 203—180 16 Þróttur 10 5 2 3 217—206 12 KA 9 5 2 2 193—182 12 Afturelding 9 5 2 2 173—166 12 Ármann 10 4 2 4 227—214 10 Týr 10 3 3 4 201—206 9 Þór, Ak. 9 2 0 7 192—206 4 Þór, Vm. 9 1 0 8 174—220 2 Tvblá Áslaug Óskarsdóllir G. Brynhildur Skarphéöinsd. B. Hallveig Jakobsdóttir Fylki Slá Jódís Pétursdóltir G. Brynhildur Skarphéöinsd. B. Áslaug Óskarsdóttir G Gótf Brynhildur Skarphéðinsd. B. Guörún B. Krístinsdóttir B. Rannveig Guömundsd. B. Piltar Dýna (gólfæfingar) Þór Thorarensen Á. Atli Thorarensen Á Ingólfur Bragason Á Bogahostur Atli Thorarensen Á Krístján Ársælsson F Þór Thorarensen Á Hríngir Þór Thorarensen Á Óskar Ólafsson Á. Atli Thorarensen Á Stökk Óskar Ólafsson Á Þór Thorarensen Á Atli Thorarensen Á Tvtelá Þór Thorarensen Á 13.10 stig 12.95 stig 10.60 stig 14.30 stig 14.00 stig 12.88 stig 15.67 stig 13.57 stig 12.80 stig 13.10 stig 11.50 stig 11.20 stig ll.OOstig 10.60 stig 10.40 stig 12.20 stig 12.10 stig 12.00 stig 14.60 stig 13.30 12.80 stig 12.30 stig Jón Ármann hinn nýi for- maður UMSK Um fyrri helgi fór 56. ársþing Ung- mennasambands Kjalarnessþings fram á Seltjarnarnesi og bar þar helzt til tiöinda að formaður sambandsins undanfarin ár, Páll Aðalsteinsson, lét af störfum og hinn nýi formaður sam- bandsins er Jón Ármann Héðinsson. Aðrir í stjórn sambandsins voru kosnir Þórunn ísfeld, Álfþór Jóhannsson, Kristján Sveinbjörnsson, Reinhard Reinhardsson. Tólf aðildarfélög eru innan vébanda UMSK og áttu 9 þeirra fulltrúa á þing- inu. Gestir þingsins voru þeir Þorsteinn Einarsson, íþróttaf ulltrúi ríkisins, Sveinn Björnsson varaforseti ÍSÍ, Hermann Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri ÍSÍ, Pálmi Gíslason, for- maður stjórnar UMFÍ, og Sigurður Geirdal, framkvæmdastjóri UMFÍ. Mörg mikilvæg mál voru tekin fyrir á þinginu og var lögð mikil áherzla á uppbyggingu aðstöðu og æfingabúða i Þrastaskógi, eflingu innanhéraðsmóta, fjölgun þjálfaranámskeiða og aukna þátttöku almennings i íþróttum. Eins og títt er hjá íþróttafélögum og héraðssamböndum voru fjármálin rædd vel og lengi en eins og öllum er kunnugt á íþróttahreyfingin öll í miklum erfiðleikum vegna fjárskorts. Forseti þingsins var Sigurgeir Sigurðs- son, formaður Gróttu á Seltjarnarnesi. Atti Thorarensrn Á Guöjón Gíslason F Svifrá Guðjón Gíslason F Atli Thorarernsen Á Óskar Ólafsson Á 11.50 10.50 11.60stig 11.40stig 10.70 stig Enn varð reynslu- leysi Fram að falli —töpuðu bikarleiknum gegn ÍS á síðustu mínútunum eftir að hafa leitt örugglega lengstaf Reynsluleysi varð hinum ungu Frömurum enn að falli er þeir töpuðu naumlega fyrir ÍS í 8-liða úrslitum bikarkeppni KKÍ í gærkvöld eftir að hafa haft forystuna nær allan leiktím- ann. Lokatölur urðu 81—77 ÍS í vil eftir að Fram hafði leitt 43—31 í hálf- leik. Mikill darraðardans var stiginn lokamínútur leiksins — að miklu leyti að óþörfu. Tvö stig vantaöi á skor IS á stigatöflunni, en þegar 51 sek. var eftir stóð 77—77 á Ijósatöflunni en i raun leiddi ÍS 79—77. Leikmenn vissu auðvitað ekkert um þetta og æðisgengin barátta upphófst. Jón Héðinsson „jafnaði” metin fyrir Frábær sundár- angur í Moskvu Frábær árangur náðist á sovézka sundmeistaramótinu sem haldiö var i Moskvu um helgina. Hápunktur móts- ins var vafalitið heimsmet Vladimir Salnikovs í 400 metra skriðsundi þar sem hann bætti eigiö met um 2/10 úr sekúndu. Hann synti vegalengdina á 3 min. 51,20 sek. og virðist líklegur til stórra afreka á ólympíuleikunum i sumar. Fjölamrgir keppendur frá austan- tjaldslöndunum kepptu á meistaramót- inu, en þó enginn frá A-Þýzkalandi. Vafalaust hefði metaregnið orðið enn Þessi mynd er af þeim Annette Poetzsch, sem vann gullverðlaun I listhlaupi kvenna og Lindu Fratianne er hlaut silfrið. Táraflóði Poctzsch ætlaði aldrei að linna eftir sigurínn. Allt að komast f fyrra horf íLakePlacid Allt er nú óðum að komast í fyrra horf i ólympiuþorpinu Lake Placid, en leikunum lauk þar sem kunnugt er á sunnudag. Á meðan á leikunum stóð 1 var bókstaflega öllu umturnað í þessum tæplega 3000 manna bæ og hann tók algerum stakkaskiptum. Umferðin um aðalgötu bæjarins er nú aftur orðin i eðlileg og allt verðlag er komið niður í það sem var áður en leikarnir hófust. Áætlað er að það muni taka um 4 vikur að ganga frá öllum aðbúnaði keppenda og megináherzla er lögð á að rýma skólahúsnæði það er blaðamenn höfðu til afnota meðan á leikunum stóð. Alis voru um 1700 fréttamenn og Ijósmyndarar í Lake Placid og ekki þarf neinn smáræðis útbúnað til að fullnægja þörfum þeirra. I næstu viku mun kennsla hefjast að nýju í skólahús- næðinu eftir 5 vikna fri er nemendur fengu vegna leikanna. Það var ekki fyrr en siðustu daga leikanna að strætakerfi leikanna virkaði almennilega en sem frægt er orðið £if endemum var allt flutnings- kerfi í molum framan af leikunum. Áhorfendur komust ekki til verustaða sinna og misstu oft af viðburðum dags- ins vegna skorts á strætisvögnum. Alls munu um 2000 manns hafa fengið endurgreitt andvirði miða sinna þar eð þeir komusl ekki til að sjá þá atburði er þeir höfðu greitt fyrir. Lausleg áætlun gerir ráð fyrir að kostnaður við leikana sé ekki undir 50 milljónum Bandaríkjadala eða sem svarar um 20 milljörðum islenzkra króna. skrautlegra ef sundfólk þaðan hefði verið á meðal keppenda því nú er svo komið að a-þýzku undravélarnar mega vart dýfa tánni í sundlaug án þess að setja heimsmet. Alexander Sidorenko setti Evrópu- met í 400 metra fjórsundi er hann synti á 4 mín. 21,97 sek. Frá- bær timi. Aðrir sýndu snilldartiIþrif i vatninu og þar á meðal má nefna Robert Zulpha, sem var aðeins 0,25 úr sekúndu frá heimsmeti David Wilkie í 200 metra bringusundi. Þessi 19 ára Rússi synti á 2 mín. 15,36 sek. og setti að sjálfsögðu nýtt sovézkt met met? þessum tilþrifum. Svetlana Varganova var einnig rétt við heimsmetið í 200 metra bringusundi kvenna. Hún synti á 2 mín. 29,36 sek. og var langfyrst og vel á undan landa sínum, heimsmethafanum Linu Kach- shite. Tvö sovézk met til viðbótar voru sett á meistaramótinu. Sergie Krasyuk synti 100 metra skriðsund á 52,25 sek. og Olga Klevakina synti sömu vegalengd á 58,38 sek. Á meðal annarra sigurvegara má nefna Evu Falyi frá Ungverjalandi, sem sigraði í 100 metra flugsundi kvenna á I mín. 24,60 sek. og varð fyrsti útlend- ingurinn til að vinna grein á sovézku meistaramóti. Sergei Koplyakov vann 200 metra skrið karla á I mín. 50,54 sek. og Yulia Bogdanova vann 200 metra bringusundið á 2 min. 11,37 sek. ÍSúr tveimur vítaskotum þegar51 sek. var til leiksloka og Framarar fengu knöttinn. Darrell Shouse sá að mestu leyti um að halda honum en reyndi síðan skot þegar 26 sek. voru til leiks- loka. Knötturinn fór i körfuspjaldið og hrökk þaðan út á gólf. Shouse náði honum aftur og reyndi síðan skot að nýju þegar 8 sek. voru til leiksloka. Enn brást honum bogalistin — þar hefði verið gott fyrir Fram að hafa bróður hans, Danny, í liði sínu. Stúdentar hófu leikinn en Þorvaldur Geirsson komst inn í sendingu en missti knöttinn út fyrir hliðarlínu í öllum látunum. Sex sekúndur eftir. „Látiði mig hafa boltann” öskraði stórskyttan Trent Smock. Það var umsvifalaust gert. Smock virtist ekki ætla að komast í gegnum vörnina. Fjórar. . .þrjár. . . tvær. . . ein og þá loks reið skotið af. Flautan gall við rétt á eftir en boltinn fór rakleiðis í körfuna. Leikmenn ÍS féllust í faðma og Smock var tolleraður af félögum sínum. Eftir leikinn kom hins vegar í ljós að ÍS hafði verið van- reiknuð tvö stig á töflunni svo sigurinn varð 4 stig í stað tveggja. Í raun var synd að Fram skyldi tapa þessum leik í gærkvöld. Fyrri hálf- leikurinn sá langbezti sem liðið hefur sýnt í allan vetur og leikmenn undir stjórn landsliðsþjálfarans Einars Bolla- sonar, sem hljóp undir bagga með þeim í þjálfaravandræðunum, börðust eins og grimmir hundar. Varnarleikurinn var mjög sterkur hjá Fram í fyrri hálf- leiknum og Þorvaldur Geirsson gætir Trent Smock eins og sjáaldurs auga sins. Eftir 4 min. var staðan 7—2 Fram í vil, 22—14 um miðjan fyrri hálfleik- inn og síðan 43—31 í hálfleik. Smock skoraði aðeins 12 stig í fyrri hálfleikn- um og varnarleikur Fram var þá sem fyrr mjög sterkur. Þó var Símon seinn i gang í leiknum en allir leikmenn Iiðsins börðust vel. ÍS saxaði fljótlega á forskotið í síðari hálfleiknum og eftir aðeins 3 mín. var hann kominn í 4 stig, 45—41. Framararnir gáfust ekki upp og náðu aftur góðu forskoti og þegar 7 mín. voru til leiksloka var munurinn 8 stig, 69—61. En þá hrökk allt í baklás hjá Fram.Þreytu fór aðgæta hjá leikmönn- um og er forskotið minnkaði þvarr sjál fstraustið óðum. Leikmönnum Þorvaldur Geirsson álli slórleik með Fram í gærkvöld. urðu á barnaleg mistök og smám saman náði ÍS að síga upp að hlið þeirra og loks fram úr. Það var öðrum fremur Trent Smock, sem var maðurinn á bak við sigur ÍS i gærkvöld. Hann var hreint út sagt frá- bær i síðari hálfleiknum og skoraði þá 32 stig. Hann átti varla feilskot allan siðari hálfleikinn og Framararnir áttu engin ráð til að stöðva hann er hann geystisl í sóknina blásandi eins og hvalur. Aðir leikmenn ÍS-liðsins voru eins og unglingar við hlið hans. Leikinn dæmdu þeir Gunnar Valgeirsson og Hilmar Viktorsson og varla verður annað sagt en að þeir hafi dæmt leikinn illa. Mikið um vitleysur og ósamræmi í dómum mikið. Ábyrgðarleysi að láta tvo svo óreynda dómara dæma saman. Ekki svo að skilja að mistök þeirra hafi bitnað meiraáöðrum aðilanum. Stig ÍS: Trent Smock 44, Ingi Stefánsson 9, Steinn Sveinsson 8, Jón Héðinsson 8, Bjarni Gunnar Sveinsson 6, Gunnar Thors 2, Gísli Gíslason 2 og Atli Arason 2. Stig Fram: Simon Ólafsson 21, Darrell Shouse 20, Þorvaldur Geirsson 19, Órnar Þráinsson 6, Björn Magnús- son 4, Björn Jónsson 3, Hilmar Gunnarsson 2 og Guðmundur Hall- steinsson 2. -SSv. URSLIT ÚR EVRÓPU Vegna mikilla þrengsla i blaðinu í gær gátum við ekki komið fyrir úrslil- unum úr hinum ýmsu deildum ■ Evrópuknattspyrnunni en bætum úr , þvi í dag og við skulum fyrsl líta á q úrslilin úr 1. deildinni á Ílalíu um' helgina. Ascoli—AC Milanó 0—0 Avellino—Pescara 2—0i Cagliari—I.azio I—1 Fiorenlina—Bologna 0—0 InterMilanó—Canlanzaro 3—1 Juvenlus—Tórínó 0—0 Perugia—Napólí 1—0 Roma—Udinese I—1 Alls voru gerð 13 mörk í leikjunum 9 á ítaliu og þykir það alls ekki svo slæml þar i landi þólt viðast hvar annars staðar þætti það hörmung. Inter Milanó virðist vera nær öruggt með meistaratitilinn í fyrsta skipti í mörg ár. Tórinó-risarnir Juventus og Tórinó skildu jafnir i markalau.su jafntefli og það þykir ekki tiðindum sæla þegar þessi lið eiga í hlut. Staða efstu liða á ítaliu er nú þessi: Inter Milanó 21 II 9 1 30—13 31 ACMilanó 21 9 7 5 19—12 25 Juventus 21 10 4 7 25—20 24 Perugia 21 6 11 4 21—18 23 Ascoli 21 7 9 5 18—17 23 Avellino 21 6 11 4 16—15 23 Frá Ítalíu skulum við halda yfir til Spánar, en þar er öllu meira lif í tuskunum. Las Palmas—Malaga 1 — I Atletico Bilbao—Burgos 1—0 Valencia—Sporting Gijon 3—1 Rayo Vallecano—Hercules 2—1 Barcelona—Real Sociedad 0—0 Almeria—Salamanca 2—0 Real Zaragoza—Real Madrid 0—I Real Betis—Espanol 2—0 Eftir þessa leiki er staðan á toppnum svona: Real Madrid 22 15 4 3 49—24 34 Real Sociedad 22 111! 0 34—13 33 Sporting G 22 11 4 7 36—26 26 Valencia 22 8 9 5 35—28 25 ■ A11. Bilbao 22 10 3 9 34—30 23 'LasPalmas 22 9 5 8 27—31 23 Þarna er því algert einvígi á milli Real Madrid og Real Sociedad, en athyglisvert er að síðarnefnda liðið hefur enn ekki tapað leik í 1. deildinni. Frá Spáni skulum við snara okkur yfir landamærin til Portúgals en I. deildarkeppnin þar er vel á veg komin. Úrslit I 19. umferðinni urðu þessi: Varzim—Sporting 0—0 Portimonese—Guimaraes 4—5 Vitoria Setubal—Porto 0—2 Benfica—Beira Mar 5—0 Boavista—Belenenses 2—1 Brag—Uniao de Leiria 0—0 Espinho—Estoril 2—1 Maritimo de Funchal—Rio Ave frestað Eftir þessa leiki er staða efstu lið- anna, sem hér segir: Porto 19 15 3 I 38—5 33 Sporting 19 15 2 2 42—13 32 Benfica 19 13 3 3 53—1 1 29 Boavista 19 10 4 5 33 — 18 24 Belenenses 19 1 0 4 5 22—18 24 Það gengur hálf brösulega hjá þeim félögum Eusebió Torres og Simoes hjá Estoril og liðið er nú á meðal neðstu liðanna i deildinni. Gamla félagið þeirra, Benfica, er hins vegar í toppbar- áttunni eins og venjulega. Og frá Portúgal skulum við loks halda norður á bóginn og skoða úrslitin í frönsku 1. deildarkeppninni. Úrslitin í henni urðu þessi: Brest—Nancy 3—3 Laval—Strasbourg 0—0 Lille—Bordeaux 0—I Lyons—Angers 0—I Marseilles—Valenciennes 3—6 Metz—Nice 2—2 Monaco—Nimes 0—0 Nantes—St. Etienne 2—0 Paris St. Germain—Lens 3—0 Sochaux—Bastia 3—0 Efstu liðin eftir 26 umferðir eru Monaco með 38 stig, Nantes og Sochaux með 37, St. Etienne 36 og Paris St. Germain með 32 stig. íþróttir

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.