Dagblaðið - 26.02.1980, Qupperneq 11
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 1980.
11
leyft sér. Olíumálaráðherra írans, Ali
Akhbar Moinfar, varaði landa sína
fyrir nokkru við andbyltingarmönn-
um sem tækju sér stöðu í biðröðum
verzlana til að láta þær sýnast lengri
en þær ella væru. Þó svo mikið verði
vart við ótta við andbyltingarmenn er
hann að öllum líkindum óþarflega
mikill. Húsmæður og aðrir þeir sem
annast matarinnkaupin hamstra allt
sem hamstrað verður og rúmlega
það. Bæði egg og smjör — vörur sem
ekki geymast til lengdar — er mjög
eftirsótt.
Þetta mikla hamstur fólks hefur
síðan leitt til alvarlegra ástands og þá
jafnvel vöruskorts. Nú mun vera
farið að vanta bæði kjöt, egg og oliu
til húsahitunar. Húsmæður í Teheran
láta sig hafa það að standa klukku-
stundum saman í biðröðum við verzl-
anir, síðan kaupa þær egg fyrir
nánast hvaða verð sem er. Hafa þær
ekki látið sér segjast af fullyrðingum
stjórnvalda um að aukið framboð
verði á eggjunum framvegis og dags-
skammturinn verði 450tonn.
í suðurhluta Teheran býr fá-
tækari hluti borgarbúa. Þar birtast
húsmæðurnar við dyr kjötbúðanna
strax við sólarupprás og bíða þess að
þær séu opnaðar. Hafa kjötkaup-
menn neyðzt til að taka upp óopin-
bera skömmtun á kjöti. Fær nú hver
fjölskylda ekki nema tvö kílógrömm
á viku.
Þessum fátæku fjölskyldum
mundi aldrei koma til hugar að
kaupa svo mikið kjöt á viku hverri til
eigin neyzlu. Hins vegar taka allir
sinn skammt til að selja hluta hans á
svörtum markaði. Kjötið í hverfum
betur stæðs fólks í Teheran er til
muna dýrara en í fátækrahverfunum.
Hins vegar er þá nægilegt magn
boðið fram af þvi.
Nokkur skortur hefur verið á oliu
til húsahitunar og hefur oliumálaráð-
herra Írans viðurkennt það opinber-
lega. Einkum hefur gengið erfiðlega
að skipuleggja dreifingu oliunnar
nægilega vel. Er þetta meðal annars
talið stafa af því að ýmsir erlendir
oliusérfræðingar hafa horfið frá íran
á síðustu mánuðum.
Hins vegar telja margir að olíu-
skortur á þessu sviði stafi einkum af
hamstri fólks. Nýlega var ákveðið að
hver íbúi fengi ekki nema sem svarar
20 lítrum af oliu á viku til húsahit-
unar. Flestir kaupa þennan skammt
stöðugt en nota hann aðeins til að
stútfylla þau ílát sem þeir hafa hand-
bær. Engin hætta er á því að nokkur
maður krókni af kulda i íbúarhúsum
í Teheran.
íranska ríkisútvarpið varar fólk
daglega við þvi að taka þátt í hvers
konar hamstri. Það sé líka óþarfi þar
sem nóg sé af öilum vörutegundum
fyrir alla. Byltingarráðið hefur
komið á fót sérstökum sveitum
lögreglumanna, sem eiga að koma i
veg fyrir óþarfa vörusöfnun og
óhæfilega hækkun á vöruverði. Fara
sveitir lögreglunnar um götur,
fylgjast með verði og hafa auga með
fyrirtækjum sem grunuð eru um að
hafa sérstakan hag af vöruskorti og
hækkuðu verðlagi.
Þeir sem gripnir eru eiga á hættu
að vörurnar sem þeir hafa undir
höndum séu gerðar upptækar, þeir
síðan dæmdir í sektir eða jafnve! í
hörðustu tilvikum að verða hýddir
opinberlega.
Þeir sem reka fyrirtæki og verzl-
anir eru þeir einu sem óttast þessa
nýju lögreglusveitir. Viðskiptavinirn-
ir eru hinir ánægðustu þar sem þeim
gefst þá kostur að kaupa þær vörur
sem gerðar hafa verið upptækar fyrir
mun lægra verð en áður.
(Information)
með frumvarpinu, en þar segir skýr-
um stöfum að kyndingarkostnaður á
Ísafirði sé 18,2% af ráðstöfunartekj-
um þegar oliustyrkur hafi verið dreg-
inn frá.
Hér er allmiklu hallað frá réttu
máli, þar sem borinn er saman olíu-
kostnaður í árslok 1979 og tekjur sem
svara til rniðs árs 1978. Hér er því I
1/2 árs munur í verðlagsgrundvelli.
Ef miðað er við 50% verðbólgu á ári
hefði mátt hækka ráðstöfunartekj-
urnar um 80%, þá hefði t.d. niður-
staðan orðið að kyndingarkostnaður
í árslok 1979 væri um 14% af ráð-
stöfunartekjum sem er vissulega
nógu slæmt, þó ekki sé reynt að rugla
þingmenn og almenning með ýkjum.
Áætlaðar niður-
greiðslur allt of
lágar
Eins og segir hér að ofan gerir
frumvarpið ráð fyrir að greiða niður
oliuhitunarkostnað um 59% og er
þessi kostnaður áætlaður 7—8 millj-
arðar króna. Þama virðast mikilvæg
atriði gleymast eða vera falin.
Nú er t.d. verð kílówattstunda til
hitunar frá Rafmagnsveitum ríkisins
rúmar 15 kr/kwst, en frumvarpið
gerir ráð fyrir að verð kílówatt-
stundar til hitunar með olíu greiðist
niður úr 23,70 kr/kwst niður í 9,68
kr/kwst. Einnig eru nokkrar hita-
veitur með hærra verð en 9,68
kr/kwst og flestar þeirra hitaveitna,
sem eru áætlaðar og í byggingu. Allt
þetta kerfi myndi raskast, ef nú ætti
að vera ódýrara að hita upp með olíu.
Ef eitthvert vit ætti að vera í
galskapnum yrði verð rafhitunar,
marktaxta til bænda og allra hita-
veitna að grciðast niður fyir oliuhit-
unarverðið. Einnig vantar hér
kostnað vegna niðurgreiðslna olíu til
raf magnsf ramleiðslu.
Þessar niðurgreiðslur gætu þvi til
samans orðið eitthvað á annan tug
milljarða á ári miðað við núverandi
verðlag. Erfitt gæti orðið að lækka
ríkisútgjöld svo sú upphæð lægi á
lausu.
Mögulegar af-
leiðingar frum-
varpsins
Eins og flestir hljóta að sjá mundi
þetta frumvarp kippa grundvellinum
undan flestum þam hitaveituáætlun-
um, sem nú eru á döfinni. Það hefur
komið í hlut sveitarstjórna í hverju
byggðarlagi að vinna að framgangi
hitaveitumála og yrði með þessu öll
hvatning burtu tekin.
Nógu miklir erfiðleikar hafa þegar
verið skapaðir að óþörfu með fávis-
legri dreifingu rafhitunar. Ákvörðun,
sem var i aðalatriðum pólitísk, og nú
virðist eiga að bæta gráu ofan á
svart.
Sem dæmi í þvi sambandi má
nefna, að ekki kemst nema um 1/4 af
hitagildi oliu i ofninn hjá notanda,
þegar olian er framleidd með disilvél-
um en með fjarvarmaveitu gæti þetta
hlutfall verið 3/4 eða meira.
Til eru hús hér á landi, sem hafa
verið hituð upp með slíkji raforku
síðastliðin 10 ár.
Ef miðað er við 450 m1 húsið, sem í
frumvarpinu segir að kosti í oliu um 1
milljón kr. á ári að hita upp, kostar
olian 3 millj. kr. á ári til framleiðslu
raforku til hitunar hússins. Notand-
inn mundi þurfa að borga 600—
700.000 kr. af þessum kostnaði í
báðum tilfellum.
Að vísu er hér um allöfgakennt
dæmi að ræða, en samt satt. Tii
allrar hamingju er nú með hinum
nýju orkuflutningslinum milli lands-
hluta dísilkeyrsla til raforkufram-
leiðslu til hitunar að verða liðin tíð.
Eftir verður sá skaði, sem þegar er
orðinn vegna rangra ákvarðana i hit-
unar- og raforkumálum á síðastliðn-
um áratug. Þar sem fjármunum
hefur verið brennt upp, sem betur
hefðu verið notaðir í fjarvarmaveitur
eða annað sem leyst gæti upphitun
húsa á hagkvæman hátt.
Frumvarpið gerir ráð fyrir niður-
greiðslu olíu til raforkuframleiðslu
með dísilvélum. Ekki verður betur
séð en hér sé verið að raska grund-
velli ákvarðanatöku rafveitna. Til
tekj
þega
i97»_8o „02. iarej.f.rl)in(t) 77 miL
I Ed
112- Frumv.rp tíl laga
“ m8Urgrei6slu ‘ uHu til upphitnnar húsa
| - -«....«,
ákveðin y uppSnTeuígfci'ðstn™ f™m w'nætta'út óteuXtoH?
, sssrska'vera' forr‘« a«i,:
.mrs^o w*;?d:ygz“\zTan‘r ibú8arhú~ ^ aPPbKe
i. ™ ^™'cran„tr:',oe,:inrhirfai
* Tnfrrara°V|Val“rheÍmÍla fyT^''í™™ógung‘hme °g 0nnarra hei,bri8Si
raforkuþörf ,'lnk ISl‘Ík.S'di!íltööv™,0rkU frá —»8 veröa »« ,eyi
samkvrtT'mgVsLY^vfs þTc ni'itLsTí cM hœUÍ skal ákve«a upphæð styrk
sem næst að sama hundraíshiuta oK ritf’er JerU 1 hVeg7“ lilfclli «reid<i ni«i
I rafmagns til úpphitSliarhÚMÍ"’.^"'^."^®* °Sk r,afvcilur nol“ 111 framleiSsl,
Styrkir skutu ekki ta.dir «i, tekna viÆagningu opinherra gjalda,
—Enginn, sem hefur möguleika * uppLl frá hHaveilU| 4 rí„ ý
^ „Veikleiki alls þessa kerfís er, aö sett er
falskt verö á orku til upphitunar, svo
komið er í veg fyrir viöbrögð, sem raunveru-
legur kostnaður ætti að hafa í för meö sér.”
þessa hafa vitleysurnar í þessum mál-
um komið fram i hærra raforkuverði
almennt og ekki verður séð ástæða til
að fela þær enn betur i gegnum bein
l'ramlög af almannafé.
Veikleiki alls þessa kerfis er að sett
er falskt verð á orku til upphitunar,
svo komið er i veg fyrir viðbrögð sem
raunverulegur kostnaður orku ætti
að hafa í för með sér.
Einstaklingur grípur auðvitað
tækifærið í dýrri húsbyggingu að
setja upp rafhitun, sem er ódýrari i
stofnkostnaði ef hann á kost á því.
Hann gerir sér ekki grillur út af þvi,
þótt hitun húss hans kosti 3—4
milljónir kr. á ári ef hann sleppur
sjálfur með 700.000 kr. á ári.
Erfitt er fyrir bæjaryfirvöld að
reka áróður fyrir hitaveitu, þegar
vandamál upphitunar er komið yfir á
rafmagnsveiturnar.
Einstaklingur leggur ekki út
kostnað við að klæða og einangra
hús sitt cða skera niður orkunotkun
til hitunar á annan hátt ef málið er
leyst með þvi að láta aðra borga hit-
ann.
Byrjað á
röngum enda
Það er fáránlegt, að á sama tíma
og svo öfgakenndar tillögur koma
fram um niðurgreiðslu tolla og sölu-
skattsfrírrar olíu til upphitunar, eru
hindranir lagðar í götu þeirra er vilja
leysa sin hitunarmál með því að skera
niður olíunotkun.
Allt efni og vinna sem til einangr-
unar húsa þarf er söluskatts- og tolla-
skylt. Sama cr um efni til hitaveitna.
Olíunotkun til húsahitunar er nú
um 100.000 tonn á ári og vegur þungl
í innflutningi okkar. Þetta er vanda-
málið, sem þarf og hægt er að lcysa.
Þeir einstaklingar og hópar er hart
hafa orðið úti vegna hækkaðs verðs
eiga rétt á stuðningi samfélagsins til
þess að leysa sín upphitunarmál.
Það verður samt ekki gert án þátt-
töku þessara einstaklinga og hópa
eins og yrði, ef umrætt frumvarp
næði fram að ganga.
Bergsteinn Gizurarson
verkfræðingur.
J v