Dagblaðið - 26.02.1980, Side 15
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 1980.
15
Lokakeppni NHRA1979
„Lélegt grip og mikið spól”
Keppnistlmabili bandarfsku kvart-
mílusamtakanna, NHRA, lauk í
október síðastliðnum með elleftu stór-
keppninni á árinu. Keppnin sem
nefndist Winston World Finals var
haldin á Ontario Motor Speedway i
C'aliforniu en þar hefur þess> keppni
verið haldin siðastliðin tíu ár, eða allt
frá því að kvartmílubrautin þar var
byggð. Ontario Motor Speedway kvart-
mílubrautin er talin vera sú besta i
Bandarikjunum vegna þess hversu slétt
hún er og svo vegna þess að gripið i
brautinni er jafnan eins gott og á
verður kosið. Það hafa jafnan verið
hrá hestöfl sem ráðið hafa sigrum á
þessari braut og því hafa keppendur
jafnan lagt mikla áherslu á að hafa
hestana sina vel spræka þegar í loka-
keppnina kemur. Fyrir sjö árum tókst
Mike Snivel, fyrstum manna, að aka
kvartmíluna á minna en sex sekúndum
og fyrir.fjórum árum setti Don Garlits
gildandi heimsmet sitt i kvart-
míluakstri á þessari sömu braut. Met
Garlits var 5.63 sek. og hefur það
staðið óhaggað siðan. í sömu
spyrnunni og Garlits setti tímamet sitt
setti hann einnig hraðamet í kvart-
míiunni. Fór hann þá yfir endalinuna á
421.15 km/klst. hraða.
Flestir keppendanna i loka-
keppninni gerðu fastlega ráð fyrir að
Ontario Motor Speedway kvart-
mílubrautin væri jafn góð og
undanfarin ár en það var þó ekki.
Brautin var mjög hál og misstu
keppendurnir bilana iðulega upp i spól.
Mikill munur var á brautunum og var
það sú hægri sem var verri. Það
heyrði til undantekninga ef bíll sem
keppti á hægri brautinni sigraði.
Undir lokin voru keppendumir hættir
að reyna að spyma ef þeir lentu á henni
og var það þvi auðveldur sigur fyrir
keppandann á vinstri brautinni. Hlut-
kesti er látið ráða hvor keppandinn fær
að velja sér braut og má því segja að
úrslit keppninnar hafi að miklu leyti
ráðist af hlutkestinu. Helgina fyrir
lokakeppnina hafði verið haldin
kappaksturskeppni á dísildráttarvélum
á brautinni og vildu margir kenna
dráltarvélunum um hversu litiðgripvar
í brautinni. Tveimur vikum fyrir loka-
keppnina hafði NHRA verið með aðra
keppni, Fall Nationals keppnina, sem
haldin var i Seattle. Þar höfðu orðið
óvenjumargar bilanir á kúplingum og
veltur sem menn röktu til of mikils
grips á brautinni. Þvi ákváðu keppnis-
stjórnar NHRA að sleppa þvi að
sprauta sérstökum efnum, sem auka
grip, á Ontario Motor Speedway.
Top Fuel flokkur
Að þessu sinni voru það aksturs-
hæfni og rétt stilltar kúplingar sem
réðu sigri i atvinnumannaflokkunum,
en ekki hrá hestöfl. Gamla kempan,
Don Garlits, sýndi það og sannaði að
enginn stendur honum á sporði í kvart-
míluakstri. í aðalkeppninni felldi hann
keppinauta sina hvern á fætur öðrunt
úr keppninni en i lokaspyrnunni lenti
hann á móti Rob Bruins. Bruins var þá
þegar búinn að tryggja sér meistaratitil-
inn í stigakeppni NHRA fyrir allt árið.
Og þegar Bruins fékk að velja sér braut
kaus hann að sjálfsögðu vinstri braul-
ina sem var mun betri. En Garlits
ætlaði ekki að gefast upp fyrr en í fulla
hnefana og sýna að hann hefði lært
eitthvað á 29 ára keppnisferli. Byrjaði
hann á þvi að setja ballest aftan á bil
sinn, til þess að hann myndi ná betra
gripi. Garlits gætti þess að billinn spól-
Keppinautar Bob Gliddens hafa einungis
fengið að sjá þessa hlið bilsins hans, þ.e.
afturendann á honum, um leið og hann
hefur stungið þá af.
aði ekki mikið i upphafi spyrnunnar og
náði Bruins þá góðu forskoti. Þegar
brautin var hálfnuð var Garlits þó bú-
inn að ná honum og á endanunt skaust
hann frani fyrir Bruins og sigraði. Besti
timi Garlits í keppninni var 6.06 sek. og
hraði hans var 404.27 km/klst. Það var
þó Shirley Muldowney sem náði mesta
hraða keppninnar eða409.75 km/klst.
Funny Car flokkur
Gordie Bonin átti auðveldan dag í
keppninni þvi hann lenti alltaf á vinstri
brautinni i keppninni. Sigur hans i
lokakeppninni var f yrirha fnarlít ill.
Besti tími Bonins í keppninni var 6.40
sek. og tími hans 394.76 km/klst.
Sigurvegarinn i stigakeppninni þetta
árið varð Reymond Beadle. Aðal
keppinautur hans um heimsmeistara-
titilinn var Don Prudhomme sem hefur
sigrað í stigakeppninni fjögur árin þar
á undan. En að þesssu sinni gekk
honum illa og féll Prudhomme úr
keppninni í fyrstu umférð.
Pro Stock flokkur
Úrslitin i stigakeppninni í þessum
flokki voru ráðin fyrir mörgum mán-
uðtim. Bob Glidden hefur verið algjör-
lega einráður i flokknum á Plymouth
Arrow bil sinum og unnið allar keppnir
sent hann hefur tekið þált í. Loka-
keppnin var engin undantekning og átti
Glidden auðvelt með að vinna hana.
Besti tínii Gliddens i keppninni var 8.60
sek. á 264.33 km/klst. hraða.
Jóhann Kristjánsson.
Sigurvegarinn i Funny Car flokknum, Gordie Bonin, kveikir í afturdekkjunum undir
Bubble Up Firebirdinum f einni spyrnunni.
Mótorhjólin voru að vanda mjög spræk en i mótorhjólaflokknum sigraði Jim
Bernard á 7,98 sek. Bernard keppti á Yamaha hjóli.
Ray Cook bar sigur úr býtum i Stock flokki (Standard flokkur) þegar hann vann Jeff
Powers á 428 Cobra Jet Mustangnum. Cook var með hina frægu 426 Hemi vél i
Dodginum sfnum. Timi Cooks var 11,55 sek.
í Top Fuel flokki sigraði Don Garlits þrátt fyrir að hann keppti á verri brautinni.
THE OLD MAN smoked TiisltfigSTjTT
caught 3ncJ.pass.ed Rob Brums in íhe freewheeling
Borgarspítalinn
LAUSAR STÖÐUR
SJúkraþjálfarar
Lausar eru til umsóknar stöður sjúkraþjálfara í
Borgarspítalanum. Um er að ræða fastar stöður
og sumarafleysingar.
Umsóknir á þar til gerðum eyðublöðum skulu
sendar yfirsjúkraþjálfara fyrir 10. marz n.k.
Reykjavík 24. febrúar 1980.
Borgarsphaimn
Ein með öllu: Loke MIG
argonsuðuvél. Sýður ál. stál og
járn.
A rgonsuðuvélar hafa reynzt
frábærlega vel. Örfáum vélum
óráðstafað úr vœntanlegri
sendingu. Kynntu þér kjörin
sem viðgetum boðið.
Fylgstu með tímanum, fáðu
hér eina með öllu.
0. ENGILBERTSSON HF
Auðbrekku 51.
Kópavogi, simi 43140.
VÉLAVERKSTÆÐI
SMIÐJUVEGI 9 A - KÓP. - SÍMI444451
• Endurbyggjum vélar
• Borum blokkir
• Plönum blokkir og head
• Málmfyllum sveifarása, tjakköxia
og aöra slitfleti m/ryðfríú harðstáli
• Rennum ventla og ventilsæti.
• Slípum sveifarása.
SÍMI
44445
FULLKOMIÐ MÓTOR- OG REIMIMIVERKSTÆOI
Sænska skáldið og sálfræðingurinn
Tomas Tranströmer
kynnir skáldskap sinn í Norræna húsinu
miðvikudaginn 27. febrúar kl. 20.30.
Allir velkomnir
N0RRÆNA HÚSIÐ