Dagblaðið - 26.02.1980, Side 23
23
Sjónvarp
9
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRUAR 1980.
Utvarp
' A
Sjónvarp:
Nýr íslenzkur framhalds-
myndaflokkur með haustinu?
,,Já það er rétt að við erum þrir
með hugmyndir um að gera nýjan
framhaldsmyndaflokk i sumar. Allt
er jietta þó enn á umræðustigi,”
sagði Egill Eðvarðsson i samtali við
DB. Egill, Björn Björnsson og Hrafn
Gunnlaugsson hafa í huga að gera
nýjan framhaldsmyndaflokk í léttum
dúr ekki ósvipaðan og þættirnir
Undir sama þaki sem sýndir voru hér
fyrir tæpum þremur árum. Útvarps-
ráð á þó enn eftir að gefa samþykki
sitt fyrir þessum ráðagerðum þeirra
þremenninga.
„Ætlunin er að fá einhverja menn
til að skrifa handrit þáttanna. Það
eru fjölmargar hugmyndir uppi en
þetta er allt saman. mjög skammt á
veg komið. Þegar við gerðum
þættina Undir sama þaki var það
talið mjög hagstætt og kom mjög vel
út fjárhagslega fyrir sjónvarpið. Við
munum þvi reyna að fikra okkur á-
fram,” sagði Egill.
„Við skoðuðum um daginn
þættina Undir sama þaki og þóttu
þeir vera frekar barnalegir. Við
ætlum þvi nú að reyna aftur og reyna
betur. Ennþá hefur ekkert verið farið
út i að finna heppilegt form á
þættina. Þetta eru bara tillögur sem
eru að fara frá okkur. El'þetta hlýtur
undirtektir þá tekur tíma að skrifa
efnisþráð, finna leikara, leikmyndir
og fleira.”
— Ykkur hefur ekki dottið i hug að
gera framhald af Undir sama þaki?
,,Jú, á sínum tíma vildum við gera
átta þætti i viðbót af þeim þáttum.
En það var ekki samþykkt. Núna er
of langt um liðið síðan þættirnir voru
sýndir.”
— Verður Undir sama þaki sýnt
aftur?
„Nei, þetta efni fékk góðar
viðtökur á sínum tíma en ég held ekki
að það sé grundvöllur til að sýna það
aftur.”
—Áttu von á því að þessi hugmynd
ykkar verði samþykkt i útvarpsráði?
„Nei, ég á ekkert frekar von á
þvi,” svaraði Egill Eðvarðsson. Við
hin verðum bara að biða og vona
með þeim Agli, Birni og Hrafni.
-ELA.
Hrafn Gunnlaugsson, Egill
Eðvarðsson og Björn Björnsson
fengu verðlaun fyrir vinsælasla
sjónvarpsþátlinn á Stjörnumessu DB
og Vikunnar árið 1978. Það var
þátturinn Undir sama þaki. Nú hafa
þeir félagar í hyggju að gera annan
þátt — eða þætti — og betri.
DB-mvnd RagnarTh.
lof ar—það er að segja útvarpsráð
UM FRÍKIRKJU í REYKJ AVÍK—útvarp kl. 11,00 í fyrramálið:
r r
FRIKIRKJANI
HUNDRAÐ ÁR
„í fyrra erindi mínu skildi ég við
fyrsta íslenzka fríkirkjuprestinn, séra
Lárus Halldórsson, þegar hann var
kominn til Reykjavikur," sagði séra
Kolbeinn Þorleifsson í samtali við DB.
í fyrramálið kl. 11.00 flytur
Kolbeinn siðara erindi sitt og nefnist
það: Um fríkirkju i Reykjavík. ,,í
þessu erindi segi ég frá
fríkirkjuprestum og orgelleikurum
safnaðarins. Ég ræði um orgelið í fri-
kirkjunni sem er merkilegasta orgelið
og eitt af fáum sinum líkum i
veröldinni.
Ég segi einnig frá tengdasyni séra
Lárusár, séra Sigurbirni Ástvaldi
Gíslasyni i Ásum. Hann frarn-
kvæmdi að mörgu leyli hugsjónirséra
Lárusar í kirkjumálum hér á landi.
I fyrra erindi mínu fjallaði ég um
upphaf frikirkjuhreyfingarinnar á
íslandi og stofnun fríkirkjunnar á
Eskifirði. Einnig fjallaði ég um það
mál sem reis milli séra Lárusar og
kirkjuyfirvalda í Reykjavík út af af-
brigðilegu kirkjustarfi hans upp úr
1880.
Ég er aðeins að fjalla um þetta nú
i tilefni af þvi að 80 ár voru í fyrra
síðan frikirkjan var stofnuð og að
100 ár eru síðan borgarafundurinn
var á Eskifirði þar sem samþykkt var
Séra Kolbeinn Þorleifsson flyltir
siðara erindi sitt um
fríkirkjuhreyfinguna á íslandi í fyrra-
málið. Séra Kolbeinn starfar nú að
fræðimennsku. Hann var sóknar-
prestur á Eskifirði i 4 ár.
DB-mynd Bjarnleifur.
að séra l.árus segðisig úr lögum við
þjóðkirkjuna og stofnaði fríkirkiu."
sagði séra Kolbeinn Þorleifsson.EI.A.
MEIRA FYRIR BÖRNIN
Barnaefni er að aukast í sjónvarp-
inu og er það vel. Þó má gera betur.
Teiknimyndin um Tomma og Jenna
er vel þegin, sérstaklega af því að hún
skýrir sig sjálf án oröa. Það hefur oft
viljað brenna við, að slíkar erlendar
teiknimyndir færu fyrir ofan garð og
neðan vegna þess að þeim fylgdi
erlent tal og íslenzkur texti á
skjánum.
Vart er hægt að búast við þvi að
börn undir 9—10 ára aldri hafi veru-
legt gagn af slíku. Það verður þvi að
mælast til þess að íslenzkt tal sé sett
inn á myndirnar þar sem því verður
við komið.
Vetrariþróttir hellast yfir okkur á
hverju kvöidi vegna ólympíuleikanna
i Lake Placid. Slíkt er að vísu eðlilegt
og vist hafa margir gaman af. En öllu
má ofgera. Að fá yfir sig meira en
klukkutímaprógram af einni stökk-
keppni er fullmikið af því góða. Það
hlýtur að mega klippa þættina sem
hingað koma. Nægilegt hlýtur að
vera að sýna okkur þá tiu beztu og
síðan Islendinga detta út úr keppn-
inni ef þvi verður við komiö.
Botninn var sleginn i sjónvarps-
kvöldið með fyrri hluta þáttar um
málarann Marc Chagall og fögru
konuna hans, Bellu. í sjónvarps-
kynningu var sagt að gaman væri að
þessu leikriti en gamanið fór alveg
fram hjá mér. Ég barðist við
löngunina að slökkva á tækinu áður
en kæmi að dagskrárlokunum og lét
undan freistíngunni.
-JH.
Ögmundur Jónasson fréttamaður.
DB-mynd Ragnar Th.'
UMHEIMURINN - sjónvarp kl. 22,30:
MANNRÉTTINDI0G
ÁSTANDIÐ í ÍRAN
— meðal efnis í þættinum
,,Ég mun fjalla um Mið-Ameríku í
þættinum og í þvi sambandi ræða við
Sigurð Hjartarson sagnfræðing. Einnig
mun Margrét Bjarnason, formaður
íslandsdeildar Amnesty International,
skýra stuttlega frá mannréttinda-
brotum í Mið-Ameríku,” sagði
Ögmundur Jónasson fréttamaður sjón-
varpsins i samtali við DB þegar hann
var spurður um þátt sinn Umheimurinn
sem er á dagskrá sjónvarpsins i kvöld
k 1.22,30.
,,Þá mun ég ræða um ástandið i íran
litillega og í þriðja og síðasta lagi
verður rætt um ýmislegt sem menn
leggja til grundvallar þegar þeir fella
dóma um rikisstjórnir og meta málefni.
í því sambandi ræði ég við Hannes
Hólmstein Gissurarson og Kjartan
Ólafsson,” sagði Ögmundur ennfrem-
ur.
Umheimurinn er fimmtiu minútna
langur þáttur.
-ELA.