Dagblaðið - 18.03.1980, Page 1
I
6. ÁRG. — ÞRIÐJUDAGUR 18. ÍVIARZ 1980 — 66. TBU.
RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLVSINGAR OG AFGREIÐSl A ÞVERHOLTI 11.—AÐALSÍMI 27022.
Stofnun nýs f lugfélags
f Luxemborg til umræðu
—með aðild Flugleiða—Flugleiðamenn og háttsettir embættismenn í
samgöngu- og utanríkisráðuneyti ræða við stjómvöld í Luxemborg
Enn einu sinni hefur skotið upp
kollinum hugmyndin um stofnun nýs
flugfélags í Luxemburg með aðild
Flugleiða. Samkvæmt óstaðfestum
fréttum er þetta eitt af umræðuefn-
um í viðræðum íslenzkra stjórnvalda
við stjórnvöld i Luxemburg, sem
fram fóru i síðustu viku. Þeim var
fram haldið í gær.
Háttsettir embættismenn í íslenzka
samgönguráðuneytinu og utanríkis-
ráðuneytinu hafa rætt við hliðstæða
embættismenn í Luxemburg. Auk
þeirra hafa stjórnarmenn Flugleiða
hf. og aðilar i flugrekstri i Luxem-
burg tekið fullan þátt í viðræðum
þessum.
Ráðuneytisstjórar og deildarstjór-
ar í fyrrgreindum ráðuneytum ræddu
þessi mál í fyrri viku. ! fyrradag fóru
svo Sigurður Helgason forstjóri, Örn
Ó. Johnson stjórnarformaður og
Sigurgeir Jónsson, aðstoðarbanka-
stjóri Seðlabanka íslands, til Luxem-
burg til framhaldsviðræðna. Alfreð
Eliasson, stjórnarmaður Flugleiða,
fór svo utan í morgun. Deildarstjóri
samgönguráðuneytisins, Birgir Guð-
jónsson, tekur einnig þátt í við-
ræðunum nú.
Það er með öllu óvist að hlutur
Flugleiða hf. í flugfélaginu Cargolux
verði notaður sem framlag i hugsan-
legu nýju flugfélagi á sviði farþega-
flugs. Hitt er ljóst, að farþegaflug
milli Bandarikjanna og Luxemburg
er brýnt hagsmunamál fyrir báða við-
ræðuaðila.
Vissar ívilnanir af hálfu stjórn-
valda i Luxemburg, meðal annars
eftirgjöf á sköttum og gjöldum af
ýmsu tagi, eru til athugunar í þess-
um viðræðum.
Aðrir möguleikar til eflingar
Atlantshafsflugi Flugleiða hf. eru
vissulega til umræðu og ekkert er enn
ákveðið um hvaða leiðir verða farnar
i þessu gagnkvæma hagsmunamáli
íslandsog Luxemburg.
- BS
Valsmenn Islandsmeistarar
Valsmenn urðu íslandsmeistarar í körfuknattleik í fyrsta skipti í
sögu félagsins er þeir sigruðu KR-inga í síðasta leik íslandsmótsins í
Laugardalshöllinni í gœrkvöld með 100 stigum gegn 93. Valsmenn
voru vel að sigrinum komnir og á þessari mynd sjást viðbrögð vara-
manna og liðsstjóra liðsins ásamt fylgismanna er flauta dómara gall í
leikslok. DB-mynd Hörður.
— Sjá nánar íþróttir í opnu.
Vagnst jórar vilja Volvo! r
VIL KANNA MAUD NANAR
segir formaður stjómar SVR
,,Mér finnst fráleitt að taka
ákvörðun um að kaupa eina tegund
af strætisvögnum án þess að kanna
ofan i kjölinn fyrst öll tilboðin sem
bárust,” sagði Guðrún Ágústsdóttir,
formaður stjórnar SVR.
Á fundi stjórnar SVR í gær var
borin upp tillaga frá vagnstjórum og
sjálfstæðismönnum í stjórninni um
kaup á Volvobilum með y firbyggingu
frá Bílasmiðjunni. Tilboð frá Volvo
var eitt af 40 tilboðum, sem bárust í
smiði 40 strætisvagna næstu fimm
árin.
„Tilboð Volvo-verksmiðjanna er
21 milljón hærra en tilboð frá-Ikarus
verksmiðjunni. Auk þess er i
tilboðinu gert ráð fyrir innlendum
verðhækkunum þannig að eitthvað
verður þetta hærra i restina.
Auðvitað vilja vagnstjórarnir
eins og aðrir vinnandi menn hafa sín
vinnutæki sem allra bezt en spurning
er hvort vérjandi er að eyða 21
milljón aukalega i strætisvagn, þegar
ekki er sýnt að þeir ódýrari séu ó-
þægilegri.
Þess vegna bar ég fram þá tillögu
að ákvörðun yrði frestað til þess að
fara nánar ofan í saumana á þessu.
Volvo-bílarnir eru af nýrri tegund og
ég vil fá að vita hverju munar,” sagði
Guðrún Ágústsdóttir.
-DS.
Ágreiningur
stjórnarliða
um útsvarið
Hækkun útsvarsins stóð svo í þing-
flokki Framsóknarflokksins i gær að
afgreiðslu málsins var frestað.
Þó er reiknað með að stjórnarliðar
nnini allir skila sér við atkvæða-
greiðslu, þegar á hólminn kemur og
samþykkja útsvarshækkun í tólf
prósent.
Til stóð að afgreiða málið í gær. I
þingflokki Framsóknar komu þá upp
andstöðuraddir og efasemdir.
Var það ráð tekið að skjóta af-
greiðslu málsins á frest og verður það
liklega afgreitt i dag eða á morgun.
Um ræðir breytingartillögu frá
stjórnarliðum, úr öllum flokkum
stjórnarinnar, þess efnis að sveitar-
félög megi fara í 12%, ,,ef þörf gcrist”.
-HH.
Kosin sátta-
nefndímáli
Eggerts
Haukdal
,,Á fundinum kom fram ein-
lægur vilji til að ná samkomulagi.
Það vantaði ekki,” sagði Jakob
Hafstein, formaður fulltrúaráðs
Sjálfstæðisflokksins i Árnessýslu
i samtali við Dagblaðið í morgun
um aðalfund fulltrúaráðsins i
Árnessýslu sem haldinn var
síðastliðinn sunnudag. Jafnframt
sagði Jakob að hefði gcngið alltof
hægt að finna lausn á því vanda-
máli scm sérframboð Eggerts
Haukdal hefði skapað.
Ingólfur Jónsson fyrrverandi
ráðherra var gestur fundarins og
að sögn Jakobs Hafstein kom
mál Eggerts Haukdal til tals á
fundinum.
Á fundinum var kosin sátta-
nefnd og er henni ætlað ,,að
finna flöt á þessu máli sem menn
geta sætt sig við”, að sögn
Jakobs.
-GAJ