Dagblaðið - 18.03.1980, Síða 6

Dagblaðið - 18.03.1980, Síða 6
6 r DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 18. MARZ 1980. Til sölu: REE32500 • Desk-top offset duplicator V* Komori offsetprentvél Ryobi Offset fjölritari árgerð 1970. Stærð 50,8 x 68 cm Hraði 8000 pr. klst. Prentvörur sími 53872 7 Norrænir starfs- menntunarstyrkir Menntamálaráðuneyti Danmerkur, Finnlands, Noregs og Sviþjóðar munu á námsárinu 1980—81 veita nokkra styrki handa Islendingum til náms við t'ræðslustofnanir i þessum löndum. Er stofnað til styrkveitinga þessara á grundvelli ályktunar Norðurlandaráðs frá 1968 um ráðstafanir til að gera fslenskum ungmennum kleift að afla sér sérhæfðrar starfs- menntunar á Norðurlöndum. Styrkirnir eru einkum ætlaðir: 1. þeim sem lokið hafa iðnskólaprófi eða hliðstæðri starfsmenntun á is- landi en óska að stunda framhaldsnám f grein sinni. 2. þeim sem hafa hug á að búa sig undir kennslu i iðnskólum eða iðnskóla- kennurum sem vilja leita sér framhaldsmenntunar og 3. þeim sem óska að leggja stund á iðngreinar sem ekki eru kenndar á ts- landi. Varðandi fyrsta flokkinn hér að framan skal tekið fram, að bæði koma til greina nokkurra mánaða námskeið og lengra framhaldsnám fyrir þá sem lokið hafa sveinspróH eða stundað sérhæfð störf f verksmiðjuiðnaði, svo og nám við listiðnaðarskóla og hliðstæðar fræðslustofnanir. Að þvf er varðar finnsku og norsku styrkina kemur og til greina önnur sérhæfð starfsmenntun sem ekki er unnt að afla hér á landi. Styrkir þeir sem i boði eru nema I Danmörku 10.000 d.kr., I Noregi 10.700 n.kr., i Sviþjóð 8.000 s.kr. og i Finnlandi 8.000 mörkum og er þá miðað við styrk til heils skólaárs. Sé styrkur veittur til skemmri tima breytist styrkfjárhæðin I hlutfalli við tfmalengdina. Til náms 1 Danmörku verða væntanlega til ráðstöfunar fjórir fullir styrkir, þrír í Finnlandi, niu f Noregi og fimm f Svfþjóð. Umsóknum um framangreinda styrki skal komið til menntamálaráðuneyt- isins, Hverfisgötu 6,101 Reykjavfk, fyrir 15. april nk. í umsókn skal m.a. skýrt frá náms- og starfsferli og tekið fram hvers konar nám umsækjandi hyggst stunda, hversu lengi og við hvaða námsstofnanir. Fylgja skulu stað- fest afrit prófskirteina og meðmæli. Umsóknareyðublöð fást I ráðuneyt- inu. Tekið skal fram að umsækjendur þurfa sjálfir að tryggja sér námsvist. Menntamálaráðuneytið, 13. mars 1980. TILVALIN FLRMINGARGJÖF <r------------------------------— Pftll Hftllhiörnsson jiJi i Uiiftr/i ORÐ OGAKALL Foreldrum fermingarbarna er sérstaklega bent á bokina til fermingargjafa. BÓKIN ER TILEINKUÐ ISLENSKFtl ÆSKU. Ungmenni ættu að kynna sér ábendingar hennar, því mesta hamingja þeirra er að finna Jesu Krist - og fá að njóta handleiðslu hans um alla ævidaga. Höfundurinn. Nokkrír liðsmenn I sveitum skæruliða, sem berjast gegn Sovétmönnum f Afganistan. Bandaríkin: Kjósendur fylgja spamaðarráðum forsetans Bandarískir þingmenn eru nú að athuga tillögur Jimmy Carters Banda- ríkjaforseta um ýmsan sparnað í ríkis- rekstrinum til að vinna á móti verð- bólgunni, sem orðin er 18% vestra. Þingmennimir segjast hafa orðið varir við að kjósendur geti vel sætt sig við sparnaðaraðgerðir í þessu skyni svo framarlega sem það komi ekki niður á ýmsum mikilvægum aðgerðum í þeirra næsta nágrenni. Er þá átt við fjár- framlög eins og til gjaldþrota stórborga og aðrar slíkar viðkvæmar ráðstafanir. Þingmennirnir segjast vera að drukkna í bréfum, símskeytum og sim- tölum frá kjósendum, sem séu því mjög fylgjandi að tillögur forsetans séu sam- þykktar á þinginu. Jimmy Carter sagði i ræðu sem hann hélt yfir ýmsum sér- fræðingum i stórborgarmálefnum í gær að nú þyrfti bandaríska þjóðin að færa fórnir. Þjóðaröryggi krefðist þess og auk þess ógnaði hin mikla verðbólga bandarískum venjum og siðum. Samkvæmt tillögum forsetans er gert ráð fyrir að fjárlög ríkisins verði lækkuð um þrettán til fjórtán milljarða dollara. Auk þess er gert ráð fyrir tíu centa skatti á hvert bensíngallon. Verður það fé tekið sem sérstakur innflutningsskattur eða gjald við greiðslu með kreditkortum. Jimmy Carter sagði að aðerðir hans í sparnaðarskyni mundu ekki koma niður á hinum fátæku eða öðrum þeim sem orðið hefðu illa úti í verðbólgunni. Ekki eru allir sammála forsetanum í þessum efnum. Bandaríkjaforseti tók þó fram að þegar á málið væri litið í heild þá væri ekki um að ræða neina „sykurbrauðs”-leið til lausnar verðbólgunni. Sú leið sem fara yrði væri erfið og yið verðbólgunni væri aðeins til beizkt meðal en engar sykur- húðaðar pillur. Italir selja írak tæki sem gera plútóníum Italir hafa selt Irak tæki, sem frant- leitt geta plútóníum, sem síðan má nota til að framleiða kjarnorkuvopn, segir í bandariska blaðinu The New York Times í morgun. Er fregnin þar höfð eftir stjórnarheimildum í Washington. Ekkert hefur verið sagt um þetta mál opinberlega að svo komnu máli. Það munu vera bandarískir leyni- þjónustustarfsmenn sem skýrt hafa frá því að tengsl Ítalíu og íraks á kjarn- orkusviðinu séu mjög náin. Eru þetta staðfestingar á sams konar fregnum, sem borizt hafa annas staðar frá. Er talið að ítalir hafi lagt fram tillögur um þessa samvinnu gegn því að fá olíu- kaupasamninga við jrak til langs tima. Samkvæmt samningnum ætla ítalir að selja írak ýmiss konar flókinn og nýtizkulegan kjarnorkutæknibúnað auk þess að veita írönskum vísinda- mönnum og tæknimönnum þjálfun á ítaliu. Bandarískir visindamenn segjast hafa mestar áhyggjur af þeirri ákvörðun Itala að selja til írak sérein- angrað rannsóknartæki, sem ætlað er til að meðhöndla geislavirk tæki og gerir kleift að vinna plútóníum. Panama: Læknadeilur ollu frestun uppskurðar Deila sem reis á miili lækna frá Panama og bandariska skurðlæknis- ins, sem kom til að framkvæma að- gerðina á íranska keisaranum fyrr- verandi, varð til þess að hætt var við aðgerðina í fyrradag. Þásneri keisar- inn aftur af sjúkrahúsi í Panamaborg og hélt í þyrlu til heimilis síns á eyj- unni Contadora. Vakti ákvörðun þessi um að hætta við uppskurðinn mikla athygli því áður hafði verið fullyrt að fjarlægja þyrfti miltað úr keisaranum vegna þess að það hefði stækkað mjög og auk þess þjáðist keisarinn af ýmsum öðrum einkenn- um krabbameins. Heimildir í Panamaborg herma að deilan hafi risið vegna þeirrar •ákvörðunar panamskra yfirvalda að ^engir læknar nema frá Panama fengju að koma nærri sjúkrabeði keisarans fyrrverandi nema þá bandaríski skurðiæknirinn Debakey, sem þó átti aðeins að fá heimild til að fylgjast með og veita ráðleggingar. Debakey læknir er sagður hafa krafizt þess að gera aðgerðina sjálfur. Hlns vegar á forustumaður panömsku læknanna að hafa sagt að engin þörf væri á að framkvæma hana. „Hans hátign er eins heil- brigður og Tarsan,” er haft eftir honum. „Hins vegar ef þörf verður á að gera aðgerð þá verður hún fram- kvæmd af Panamalækni.” Lækn- arnir urðu því næst sammála um að fresta aðgerðinni og i gær var gefin út tilkynning þar sem segir að keisarinn hafi verið of máttfarinn til aðgangast undir mikla aðgerð.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.