Dagblaðið - 18.03.1980, Qupperneq 13
KfcHUMI-eLMU
tSLANDS
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Árni Guðmundsson og Garðar Jóhannsson sækja að Tim Dwycr, sem iætur ekki sinn hlut fremur venju.
DB-mynd Hörður.
Hörkukeppni í 1. deild íBelgíu
Spcnnan eykst stöðugt í I. deildinni í
knattspyrnunni í Belgiu. Sjö umferöum er
ólokið og hafa fimm liö enn möguleika á
mcistaratitlinum. FC Brugge stendur þó bezt
að vígi. Hefur tveggja stiga forustu á
Standard Liege og er auk þess með sautján
sigurleiki gegn fimmtán sigurleikjum
Standard. l.okeren, sem um tíma hafði fjög-
urra stiga forustu, hefur gengið illa að
undanförnu og er komiö niður í þriðja sætið.
Þremur stigum á eftir FC Brugge.
í 27. umferðinni á sunnudag urðu úrslit
þessi:
Anderlecht — Antwerno” 3__|'
Wáierschei — FC Liege 4—0
Waregem — Beveren 1—0
Lokeren — Winterslag 1—2
Hasselt — Beerschot
Lierse — Charleroi
CS Brugge — FC Brugge
Berchem — Beringen
Standard — Molenbeek
1—2
3—0
2— 3
1—0
3— 1
Það var hörkuleikur i Liege, þegar
Brússel-liðið Molenbeek kom í heimsókn.
Racing White en Daring Molenbeek náði
snemma forustu. Wellens jafnaði og síðan
tryggðu Graf og Önal Standard sigur. Það er
reyndar grátlegt fyrir leikmenn Standard að
vera ekki í efsta sætinu. Liðið gerði aðeins
jafntefli á heimavelli gegnjjaðsta liði deildar-
innar, Hasselt, og tapaði útileiknum gegn því
næstneðsta, Charleroi.
^okeren hefur alvee mj«» ".Vigio eFtTr að
rPC!’vérjinn frægi, Wlodimierz Lubanski,
Imeiddist. Arnór Guðjohnsen skoraði fyrir
Lokeren á sunnudag en markið var dæmt af
þar sem knötturinn hafði farið aftur fyrir
endalínu áður en gefið var fyrir.
Staðan í
FC Brugge
Standard
I.okcren
Molenbeek
Anderlecht
l.iersc
CS Brugge
Beveren
Winterslag
FC Liege
Waterschei
Waregem
Beerschot
Antwerpen
n--.» -
oenngen
Berchem
Charleroi
Hasselt
Belgíu er nú þannig:
27 17 5 5
27 15
27 16
27 14
27 15
26 13
27 12
27 9
27 9
Þórir tryggöi Valsmönnum
íslandsmeistaratitilinn!
—„Rocket-man” átti st jðmuleik gegn KR í gærkvðld og skoraði 32 stig í 100-93 sigri Vals
Sjö umferðum er ólokiö — leiknar 34
umferöir.
Það er óhætt að segja að það hafi
öðrum fremur verið Þórir Magnússon
sem tryggði Valsmönnum íslands-
meistaratitilinn í körfuknattleik í gær-
kvöldi. Valur sigraði þá KR 100—93 í
úrvalsdeildinni og Þórir skoraði alls 32
stig. Af þeim voru 20 í síöari hálfleik og
reyndar skoraði hann 16 stig á fyrstu 9
mín. síðari hálfleiks og skipti þá engu
máli hvaöan hann skaut. Allt fór ofan í
körfuna og áhorfendur ætluðu vart að
trúa eigin augum er Þórir lyfti sér upp
af gólfinu og sendi knöttinn með hnit-
miöuöuöum skotum í körfu KR-inga.
Mcira að segja stórgóður leikur Keith
Yow, sem skoraði 45 stig, féll í
skuggann. Þessi frábæri leikur Þóris
kom á eins góðum tíma og hugsazt gat
Þjálfaranám-
skeið í
knattspyrnu
Almennt knattspyrnuþjálfara-
námskeið á vegum Tækninefndar
K.S.Í., verður haldið dagana 22. og 23.
marz nk. (laugard. og sunnud).
Aðalkennari þessa námskeiðs er
Jörgen Hvidemose, sem er þekktur
þjálfari í sinu heimalandi og víðar, og
starfsmaður Danska knattspyrnusam-
bandsins.
Hvidemose er fyrrverandi landsiiðs-
maður í knattspyrnu og lék m.a. hér á
landi.
Efni þessa nfimskeiðs verður
auglýst síðar, en námskeiðið er opiö
öllum þjálfurum, sem sótt hafa hin
ýmsu námskeið Tækninefndar og þeir
hvattir til að notfæra sér þá þekkingu
sem Hr. Hvidcmose lætur í té.
Þátttaka tilkynnist i síðasta lagi á
fimmtudag 20. marz til skrifstofu
K.S.Í. og er þátttökugjald kr. 10.000,-
Geimsteinn
sigurvegari
íbilljard
Firmakeppni íslands í snóker var
háð í Billjardstofunni Júnó um siðustu
helgi — opið mót, þar sem allir beztu
snókermenn landsins kepptu. Á laugar-
dag var keppt í riðlum — en á sunnu-
dag til úrslita.
Sigurvegari í kcppninni var Hljóm-
sveitin Geimsteinn, sem hlaut sjö
vinninga. Ágúst Ágústsson keppandi. í
næstu þremur sætum komu Dagblaðiö,
Tímaritið Skák og Hollywood, með sex
vinninga. Leikið var um annaö til
fjórða sætið. Hollywood varð í öðru
sæti, Sverrir Þórisson, Skák í þriðja
sæti, Jónas P. Erlingsson og DB í þvi
fjórða, Kjartan Friðþjófsson.
Verðlaun voru 100 þúsund fyrir fyrsta
sætið, 60 þúsund fyrir annað og 30
þúsund fyrir það þriðja.
Rut Stefnisdóttir var mótsstjóri og
(ókst með ágætum. í fyrsta sinn sem
kona er mótstjóri i billjarðkcppni hér á
landi.
Einvígi á Spáni
Keppnin um spánska meistaratitilinn
stendur eingöngu milli Real Sociedad,
sem mjög hefur komið á óvart á
keppnistímabilinu, og Real Madrid.
Þau eru jöfn að stigum eftir 25 um-
ferðir en Sociedad með betra marka-
hlutfall.
Úrslit í leikjum um helgina urðu
þessi:
Espanol — Las Palmas 0—1
Atlelien MaHM-J _ G—i
Sevilla — Valeneia 2—1
Malaga — Vallecano 1—3
Burgos — Barcelona 0—0
Sp. Gijon — Almeria 1—0
Hercules — Zaragoza 3— 1
Sociadad — Betis 0—0
Salamanca — Real Madrid 1—1
og fyrsta Islandsmeistaratignin á
löngum ferli var orðin staöreynd.
„Rocket man” fékk loks gullmedaliu
eftir 18 ára keppni í meistaraflokki.
Vissulega áttu Valsmenn sigurinn
skilinn en það hefur vafalitiö vcrið
erfitl fyrir Kristbjörn Albertsson, liðs-
stjóra Njarðvikinga og varaformann
KKÍ, að afhenda Torfa Magnús-
syni sigurlaunin.
Valsmenn hófu leikinn betur en
fljótlega jafnaðist hann og mátti vart á
milli sjá hvort liðið var sterkara.
^31501600 virkuðu þó i betri æfingu en
KR-ingar gáfu ekkert eftir. Eftir 8 mín.
leiddu Valsmenn 19—18, en síðan fór.
Ieiðir að skilja. Valsmenn náðu að auka
muninn í 1 i stig fyrir hlé og í hálfleik
var staðan 57—46 Val i vil.
Síðari hálfleikurinn hófst á
svipaðan hátt og þeim fyrri lauk.
Munurinn jókst hvorki né minnkaði og
eftir 5 mín. var staðan 73—62 og Yow
var þá kominn með sína 4. villu. Með
góðum spretti komut Valsmenn í 81 —
66 eftir 8 mínútna leik en KR-ingum
tókst með seiglu að minnka muninn i
10 stig, 81—91 þegar fimm og hálf
minúta var til leiksloka.
Þá skyndilega var eins og Valsmenn
slökuðu á of fljótt. KR-ingar skoruðu 6
stig i röð og eins og hendi væri veifað
var munurinn orðinn 4 stig, 91—87.
Fjóar mín. og 20 sek. eftir og allt gal
gerzt. Ætluðu Valsmenn að missa
sigurinn niður? Dwyer skoraði körfu
og breytti stöðunni í 93—87 en Keith
Yow svaraði fyrir KR og munurinn
aðeins fjögur stig og 3 min. og 17. sek.
eftir. Þá hins vegar kom
vendipunkturinn.
Fyrst skoraði Dwyer og siðan Jón
Steingrímsson fallega körfu og
munurinn var skyndilega orðinn 8 stig,
97—89 og rétt rúmar 2 min. eftir. Það
var of mikill munur til að brúa á
tveimur mín. og þegar Valsmenn fóru
að leika ,,upp á klukkuna” eins og
þeim er einum lagið var öll von úti fyrir
KR. Það var fyrirliðinn, Torfi Magnús-
son, sem skoraði 3 síðuslu stig Vals-
manna og tryggði þeim endanlega
sigurinn.
Það er ekki hægt að segja annað en
Valsmenn séu vel að sigrinum komnir
Liðið hefur sýnt jafnbeztu leikina i
vetur og á titilinn fyllilega skilinn.
Undir forystu Tim Dwyer hafa
Valsmenn yfirstigið allar hindranir og
fært félagi sinu fyrstu íslandsmeistara-
tignina í körfuknattleik.
Firmakeppni
íkörfubolta
Firmakeppni körfuknaltleiksdeildar
Ármanns verður haldin í næstu viku.
Þátttökugjald hefur verið ákveðið kr.
25.000 og fást allar nánari upplýsingar í
síma 77489 á milli kl. 18 og 20 á
kvöldin.
Ekki verður neitt tekið frá neinum
þótt Þórir Magnússon fái heiðurinn af
sigri Vals í gærkvöld. Körfur hans voru
á köflum hreint ótrúlegar og enginn
virtist geta stöðvað hann. Án efa lang-
bezti leikur Þóris í vetur. Kristján og
Torfi áttu mjög góðan Ieik svo og Jón
Steingrímsson en Rikharður var
nokkuð frá sínu bezta. Þá gerði
Jóhannes Magnússon góða hluti.
Dwyer batt liðið að vanda vel saman
og var geysilega sterkur í varnarfrá-
„Loksins” gæti Torfi Magnússon verið að hugsa, þar sem hann handleikur íslands-
bikarinn. DB-mynd Hörður.
Bikarslagur
íHöllinni!
— Valur og FH leika í átta liða úrslitum
Það fer nú að líða á síðari hlutann í
bikarkeppni handknattleikssambands
íslands. í kvöld kl. 19.00 veröur einn af
stórleikjum keppninnar. Þá leika Valur
og FH í átta-liða úrslitum og eru margir
á þeirri skoðun, að það liðið, sem
sigrar í leiknum í kvöid, hafi alla mögu-
leika á því að verða bikarmeistari 1980.
Auðvilað eru þó KR-ingar, Haukar og
KA-menn ekki á þeirri skoðun!
Sigurvegarinn i bikarkeppninni færrétt
i Evrópukcppni bikarhafa næsta hausl.
Á sunnudaginn léku FH og Valur i 1.
deildinni í Hafnarfirði og varð jafntefli
26—26 í heldur köflóttum leik, þar sem
varnarleikurinn var ákaflega slakur.
Það verður örugglega annað uppi á ten-
ingnum i kvöld. í fyrri leik liðanna í 1.
deild íslandsmótsins komu FH-ingar
verulega á óvart og unnu öruggan sigur
á Valsmönnum. Höfðu leikinn í hendi
sér allan tímann og sigruðu með fjög-
urra marka mun, 21 —17.
Bæði lið verða með sina sterkustu
leikmenn i kvöld og það má búast við
miklum bikarslag í HöIIinni. Það er að
Úrslitaleikurinn í Miinchen:
Breyting á
tilhögun fararinnar
Valsmenn og Ferðaskrifstofan Úr-
val hafa ákveðið að lengja förina á úr-
slitaleik Vals og Grosswallstadt um
einn dag þannig að förin tekur rúma
tvo sólarhringa en ekki einn eins og
áður var fyrirhugaö. Fólki gefst þá
tækifæri til að fara í búðir auk þess,
sem hægt verður að sjá leik i
uunáesiigunni í knattspyrnunni — 1.
deildinnii V-Þýzkalandi.
Ferðaáætlunin nú er ákveðin
þannig, að flogið verður frá Keflavík
kl. 17.00 föstudaginn 28. marz og beint
til Múnchen, þar sem úrslitaleikurinn í
Evrópukeppninni vérður háðyr. Kl.
15.30 á laugardag leika TSV Múnchen
1860 og Schalke 04 í Bundeslígunni í
knattspyrnunni — en kl. 19.15 verður
úrslitaleikurinn þar sem Valsmenn
leika við Evrópu- og Þýzkalands-
meistara Groswallstadt. Á sunnudag
verður svo haldið beint heim aftur.
Verð er kr. 184.700 og hægt að fá
greiðsluskilmála. í því er innifalið
gisting með morgunmat, góð herbergi,
flutningur til og
Aðgöngumiðar á báða leikina og
flutningur til og frá þeim. Fararstjórar
verða Jóhann Ingi Gunnarsson, lands-
liðsþjálfari og Ólafur H. Jónsson,
landsliðsmaðurinn kunni, sem um ára-
bil lék í Vestur-Þýzkalandi.
miklu að keppa — sæti í Evrópukeppn-
inni næsta leiktímabil. Vikingur hefur
þegar tryggt sér sigur í 1. deild og leikur
í Evrópukeppni meistaraliða — en
undanfarin tvö ár hefur Víkingur
sigrað í bikarkeppni HSÍ. Er nú ekki
lengur í keppninni — tapaði óvænt
fyrir Haukum í Hafnarfirði.
köstunum, þótt hann ætti erfitt með
að stöðva Yow.
KR-ingar léku þenna leik alls ekki
illa en mótstaða var einfaldlega of
mikil fyrir þá. Yow var mjög sterkur og
með hann i liði sinu næsta haust eiga
KR-ingar eftir að gera harða hrið að
titli Valsmanna. Jón Sigurðsson var
nokkuð seinn i gang, en átti góðan
siðari hálfleik þó svo að honum yrðu á
mistök, sem ekki sjást oft hjá honum.
Garðar var góður en aðrir leikmenn
náðu ekki sínu bezta fram.
Dóntarar voru þeir Sigurður Valur
Halldórsson og Guðbrandur
Sigurðsson og dæmdu þeir ágætlega.
Stig Vals: Þórir Magnússon 32, Tim
Dwyer 28, Kristján Ágústss. 15, Torfi
Magnússon 11, Jón Steingrimsson 6,
Rikharður Hrafnkelsson 4 og Jóhannes
Magnússon 4.
Stig KR: Keith Yow 45, Jón
Sigurðsson 24, Garðar Jóhannsson 12,
Geir Þorsteinsson 6, Birgir Guðbjörns-
son 4, Árni Guðmundsson 2.
-SSv.
„Við vinnum þrefalt”
— sagði fyrirliði Vals, Torfi Magnússon, eftir leikinn í gær
,,Það er stórkostleg tilfinning að
vera loks orðinn íslandsmeistari eftir
18 ára baráttu," sagði Þórir Magnús-
son inni i búningsklefa Valsmanna eftir
leikinn. „Þetta var erfiður leikur og við
máttum aldrei slaka á — þá voru KR-
ingarnir reiðubúnir að taka völdin. Við
stóðumst þá miklu pressu sem var á
okkur og sýndum það að við erum
heztir. Við höfum æft geysilega vel og
þessi mikla æfing ásamt góðri sam-
heldni hefur fært okkur titilinn. Nei,
við hættum ekki núna og vinnum
þriðja titilinn á miövikudag."
Náðum takmarkinu
„í kvöld sást bezt hversu Valsliðið er
sterkt. Strákarnir þurftu ekki á mér að
halda i kvöld. Þeir léku svo vel og
sýndu sínar beztu hliðar, en enginn þó
eins og Þórir, sem hitti ótrúlega. Það
hefur hjálpað okkur mikið að við
höfum haldið óbreyttum mannskap í
tvö ár á meðan menn hafa verið að
koma og fara hjá hinum félögunum,”
sagði Tim Dwyer kampakátur eftir
leikinn. „Ég er óhræddur fyrir leikinn
gegn ÍS á miðvikudag t bikarúrslitun-
um en ÍS-liðið helur leikið vel að und-
anförnu. Við reynum að sjálfsögðu
okkar bezta en ég Iofa engu.”
„Það er æðisleg tilfinning að verða
íslandsmeistari i fyrsta sinn,” sagði
Ríkharður Hrafnkelsson við DB eftir
leikinn. Við vorum dálítið taugaspennt-
ir i leiknum og hann var erfiður, en að
sjálfsögðu stefnum við að þreföldum
sigri nreð sigri yfir ÍS á miðvikudag. Ég
held að liðið hafi í kvöld sýnt styrkleika
sinn er við náðum okkur aftur á strik
eftir að hafa slappað af aðeins of
snemma. Þá finnst mér gaman hversu
frábærum leik Þórir náði í kvöld."
„Við vinnum þrefalt"
„Það er góð tilfinning að vera
orðinn meistari,” sagði Torfi Magnús-
son, fyrirliði Valsmanna, þar sem hann
handlék íslandsmeistarabikarinn í bún-
ingsherberginu eftir leikinn. „Þessi
leikur var i sjálfu sér ekki erfiðari en
aðrir leikir. Við komum ákveðnir til
leiksins og sýndum hvað við eruni
sterkt lið. Við vinnum örugglega þrc-
falt. Við höfum unnið ÍS i öllum leikj-
unum til þessa og förum ekki að breyta
út af vananum nú.”
-SSv.
Lokastaðan
Lokastaðan i úrvalsdeildinni i körfu-
knattleik varð sem hér segir:
Valur 20 16 4 1813—1685 32
Njarövík 20 15 5 1692—1581 30
KR 20 11 9 1672—1608 22
ÍR 20 10 10 1813—1833 20
ÍS 20 6 14 1707—1805 12
1565—1750 4
Kampakátir Islandsmeistarar Vals eftir sigurleikinn i gærkvöld.
DB-mynd Hörður.