Dagblaðið - 18.03.1980, Side 20
20 ■
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 18. MARZ 1980.
LúAvik Krístján Sigurðsson, Goðheim-
um 18 Reykjavík, lézt miðvikudaginn
5. marz. Hann var fæddur í Reykjavik
23. ágúst 1956. Foreldrar hans voru
Petrina Benediktsdóttir og Sigurður
Kristinsson, en hann er látinn. Lúðvík
er ókvæntur og barnlaus. Hann var
jarðsunginn frá Fossvogskapellu í gær.
Bjart vaður, suðiœg átt og heldur
hlýnandi veður, skýjað, en úr-
komulítið um vestanvert landið, en
‘léttskýjaö austanlands.
veour klukkan sex I morgun,
Reykjavfli austsuöaustan 3, alskýjað
og 3 stig, Gufuskálar vestsuðvestan.
5, rigning og súld og 4 stig, Galtarviti
sunnan 4, alskýjað og 5 stig, Akureyri
sunnan 3, léttskýjað og 1 stig, Raufar-
höfn suðvestan 4, láttskýjað og -2
stig, Dalatangi logn, léttskýjað og -1
stig, Höfn í Hornafirði norönorövest-
an 2, léttskýjaö og -1 stig og
Stórhöföi í Vestmannaeyjum aust-
suðaustan 5, skýjað og 4 stig.
Þórshöfn ( Færeyjum skýjað og 5
stig, Kaupmannahöfn hálfskýjað og -
2 stig, Osló léttskýjað og -7 stig,
Stokkhólmur él á siöustu
klukkustund, London slydda og 1
stig, Hamborg alskýjað og 1 stig,
París skýjað og 5 stig, Madríd létt-
skýjað og 0 stig, Lissabon rigning og
11 stig og New York rigning og 8 stig.
AncSlát
Krislinn Marius Þorkelsson lézt mánu-
daginn 10. marzað Reykjalundi. Hann
var fæddur í Reykjavík 17. ágúst 1904.
Foreldrar hans voru Elín S. Jónsdóttir
og Þorkell Benjamínsson. Ungur fór
Kristinn að vinna hjá Kol og salt hf.
Þar vann hann j>ar til fyrirtækið var
lagt niður. Þá hóf hann vinnu hjá
Ríkisskip og vann þar til heilsan fór að
bresta. Kristinn var kvæntur Sigurlínu
Sch. Hallgrímsdóttur, en hún lézt 18.
júní 1976. Kristinn og Sigurlína eign-
uðust 6 börn og ólu upp dótturdóttur
sína, Sigurlinu. Kristinn átti einn son
áður, Daniel.
Sólborg Einarsdóttir, Bergstaðastræti
17 Reykjavík, lézt fimmtudaginn 13.
marz. Útför hennar fer fram frá Foss-
vogskirkju fimmtudaginn 20. marz kl.
15.
Páll B. Einarsson, Goðheimum 15
Reykjavik, lézt að Hátúni 10B sunnu-
dagin 16. marz.
Ingibjörg Guðmundsdóttir frá Patreks-
firði lézt að Hrafnistu laugardaginn 15.
marz.
Sigfús Ásgeir Pálsson, Skólabraut 63
Seltjarnarnesi, lézt að heimili sínu
sunnudaginn 16. marz.
Magnús Magnússon, Efstasundi 80
Reykjavik, lézt í Borgarspítalanum
laugardaginn 15. marz.
Guðrún I.ovísa Marinósdóttir, Greni-
völlum 24 Akureyri, lézt á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri sunnudaginn
16. marz.
Stefán Einarsson, Samtúni 2 Reykja-
vík, lézt að heimili sínu sunnudaginn
16. marz.
Guðrún Sigurbjörnsdóttir ljósmóðir
frá Hrappsstöðum, Kársnesbraut 115
Kópavogi, verður jarðsungin frá Foss-
vogskirkju fimmtudaginn 20. marz kl.
13.30.
Guðrún Sveinsdóttir frá Hvammstanga
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 19. marz kl. 13.30.
Jarðsett verður frá Hvammstanga-
kirkju föstudaginn 21. marz kl. 14.
Gissur H. Jónsson frá Bolungarvik.
Hraunbæ 4 Reykjavík, verður jarð-
sunginn frá Fossvogskirkju miðviku-
daginn 19. marz kl. 10.30.
Útivistarferðir
Föstud. 21. mar/..
Húsafell, afmælisferð, Útivist 5 ára. Gönguferðir við
allra hæfi, skiðaferð á Ok. Fararstj. Jón I. Bjarnason
og Kristján M. Baldursson.
Páskaferðir, 5 dagar.
Snæfellsnes, gist i ágætu húsi á Lýsuhóli. sundlaug.
hitapottur. Göngur á jökulinn og um ströndina.
Kvöldvökur. Fararstj. Kristján M. Baldursson.
öræfí, gisl á Hofi. Hugsanlega gengið á Öræfajökul.
einnig léttar göngur. Fararstj. Erlingur Thoroddsen.
Farseðlar og upplýsingar á skrifst. Utivistar. Lækjarg.
óa.sími 14606.
Árshálídir j
Fjáreigendafélagið í
Reykjavík og Fjáreignar-
félagið í Kópavogi
halda sameiginlega árshátiðsina föstudaginn 21. marz
i félagsheimili Fáks. Borðhald hefst kl. 21 með köldu
veizluborði. Dansað verður til kl. 2 e.m.
, Aðalfundir
Aðalfundur
knattspyrnudeildar
Stjörnunnar
í Garðabæ
verður haldinn fimmtudaginn 20. marz næstkomandi.
Hefst hann í barnaskólanum klukkan 20.00.
Minningarkort
Fríkirkjusafnaðarins
i Reykjavik.fást hjá eftirtöldum aðilum:
Kirkjuverði Frikirkjunnar i Fríkirkjunni. Rcykjavikur
Apóteki. Margréti Þorsteinsdóttur. Laugavegi 52. simi
19373. Magneu Ci. Magnúsdóttur. Langholtsvegi 75.
simi 34692.
Ráðstefna um
manneldismarkmið
Manneldisfélag Islands og Manneldisráð Islands
boða til ráðstefnu næstkomandi laugardag.
þann 22. marz kl. I e.h. undir heitinu
MANNELDISMARKMIÐ. Ráðstefnan verður
haldin i stofu 101. Lögbergi. Háskóla Islandsog hefst
hún kl. I e.h. og lýkur kl. 6 sama dag. Gestur
ráðstefnunnar verður prófessor Björn Isaksson. for
stöðumaður næringafræðistofnunar Sahlgrenska
sjúkrahússins i Gautaborg. Prófessor Björn tsaksson
er hér á ferð sem sérfræðilegur ráðunautur um mat
vælarannsóknir fyrir Rannsóknastofnun land
búnaðarins, Háskóla Islands og Rannsóknastofnun
fiskiðnaðarins. Erindi hans á ráðstefnunni nefnist:
Rcynsla Svia af setningu manneldismarkmiða. Aðrir
frummælendur ráðstefnunnar verða: Laufey Stein
grimsdóttir. næringarfræðingur: Hvers vegna
nienneldismarkmið á Islandi. Jón Óttar Ragnarsson.
dósent: Manneldismarkmið i Bandaríkjunum. Vigdis
Jónsdóttir skólastjóri: Manncldisstefna Norðmanna
og Jónas Bjarnason. dósent. Manneldismarkmið og
matvælastefna.
Eftir stutt kaffihlé verða hringborðsumræður þar
sem rætt verður hvort æskilegt og timabært sé að
setja manneldismarkmið á Islandi og í hvcrju slik
markmið væru fólgin. Við hringborðið eiga sæti
læknar.matvælafræðingar og húsmæðrakennarar á
samt fulltrúum matvælaframleiðslu. landbúnaðarins
og neytenda.
Allir sem áhuga hafa á þessu málefni eru hvattir til
að fjölmenna á fundinn.
Rotaryklúbbur
Reykjavíkur 45 ára
I ár er Rótarýklúbbur Reykjavikur 45 ára og
jafnframt er þess minnzt að 75 ár eru liðin frá
stofnun Alþjóða Rótarý-hreyfingarinnar.
Af þvi tilefni samþykkti Rótarýklúbbur“Reykj^
vikur að heiðra minningu I uó\ .-toT.
aðalræðismanns en hann var frumkvöðull að
stofnun Rótarýklýbbs Reykjavikur. og þar með að
landnámi hreyfingarinnar á Islandi. Luðvig Storr var
af þessu tilefni útnefndur Paul Harris félagi. en þaðer
æðsta heiðursveiting Rótarýhreyfingarinnar.
Á árshátíð Rótarýklúbbs Reykjavíkur þ. 22.
febrúar sl. veitti frú Svava Storr. ekkja Luðvigs. þess
ari viðurkenningu móttöku.
Skólataska
tapaðist
Svört leðurskólataska tapaðist i Breiðholti aðfaranótt
föstudags. Taskan er með axlarbandi og i henni dýr-
mætar bækur eiganda sinum. Nafn eiganda er i
töskunni. Upplýsingar i sima 77642.
Jökarannsóknarfélag
íslands
Fundur verður haldinn i Domus Medica þriðju
daginn 25. marz 1980 kl. 20.30. Fundarefni: I. Sig
finnur Snorrason jarðfræðingur flytur erindi með
skuggamyndum. Jöklar á Mýrum og Vatnsdalslón.
2. Kaffidrykkja.
.3. Sigurður Þórarinsson sýnir skuggamyndir af hafis
við Island o.fl. Stjórnin.
Skipadeild Sambandsins
Skip Sambandsins munu ferma til íslands á næstunni
sem hér segir:
ROTTERDAM:
Helgafell..................................26/3
Helgafell..................................10/4
Helgafell..................................24/4
ANTWERP:
Helgafell..................................27/3
Helgafell..................................11/4
Helgafell..................................25/4
GOOLE:
Helgafell..................................24/3
Hclgafell...................................8/4
Helgafell..................................22/4
KAUPMANNAHÖFN:
Hvassafell*................................28/3
Hvassafell.................................17/4
GAUTABORG:
Hvassafell................................ 26/3
Hvassafell.................................15/4
LARVIK:
Hvassafell.................................25/3
Hvassafell.................................14/4
SVENDBORG:
Hvassafell................................ 27/3
Disarfell...................................1/4
Hvassafell................................ 16/4
„Skip".................................Ca. 20/4
HANGÖ/HELSINKI:
Disarfell..................................26/3
Disarfell..................................25/4
GLOUCESTER, MASS.:
Skaftafell.................................18/3
Jökulfell...................................8/4
Skaftafell.................................18/4
HALIFAX, KANADA:
Skaftafell. . . ...........................21/3
Jökulfell..................................11/4
Skaftafell................................ 21/4
Kvenfélag Bæjarleiða
Félagsmálafræðsla verður á fundinum þriðjudaginn
18. marz kl. 20.30 að Síðumúla 11. Mætið vel.
Samtök \
herstöðvaandstæðinga
efna til samkeppni
um veggspjald
Hinn 10 mai nk. eru fjörutiu ár siðan brezkur her sté
hér á land og varð það upphaf hersetu sem Islendingar
hafa mátt búa viðæ siðan.
I tilefni þessa efna Samtök herstöðvaandstæðinga
til samkeppni um veggspjald (plakat) er túlki þennan
atburð og þann slóða, sem hann dró á eftir sér. á
myndrænan hátt.
Skilafrestur verður þvi miður fremur knappur. eða
til 5. mai, þareð ætlunin er að kunngera niðurstöður
dómnefndar, sem er skipuð Kjartani Guðjónssyni list
málara, Árna Bergmann ritstjóra og Hjálmtý Heiðdal
teiknara, þann 10. mai. Jafnframt er fyrrhugað að
efna þá til sýninga á innsendum tillögum.
Veitt verða þrenn verðlaun: I. verðlaun nema kr.
300.0000,- en 2. og 3. verðlaun kr. 100.000.
Samtök herstöðvaandstæðinga hafa i hyggju að
fjölfalda þá tillögu sem hlýtur fyrstu verðlaun til
dreifingarogsölu.
Sagt upp,
bauðframog
steypti
stjórninni
Listi stjórnar og trúnaðar-
mannaráðs í Félagi starfsfólks í
veitingahúsum kolféll í kosning-
um til stjórnar félagsins. Hlaut
listinn 108 atkvæði. Listi fram
borinn af Sigurði Guðmundssyni
o.fl. bar glæsilegan sigur úr být-
um, hlaut 183 atkvæði.
Sigurður Guðmundsson, dyra-
vörður á Loftleiðahótelinu, var
annar tveggja starfsmanna félags-
ins. Komu upp deilur og væringar
milli starfsmannanna og lyktaði
þeim með að Sigurði var sagt upp
störfum hjá félaginu, og reyndar
hinum starfsmanninum líka.
Stóðu þá stjórnarkosningar fyrir
dyrum og ákvað Sigurður og hans
lið sérframboð. Stendur Sigurður
nú með pálmann í höndunum og
er formaður félagsins.
í hinni nýju stjórn með Sigurði,
sem er starfsmaður á Loftleiða-
hótelinu verða: Málfríður Ólafs-
dóttir hjá Lifeyrissjóði félagsins,
Matthildur Einarsdóttir, Hótel
Loftleiðum, Guðlaug Þórarins-
dóttir, Umferðarmiðstöðinni,
Sjöfn Þorgeirsdóttir, Nausti, Vig-
dis Bjarnadóttir, Hótel Sögu, og
Ingibjörg Guðmundsdóttir, Aski.
Fráfarandi formaður er Kristrún
Guðmundsdóttir.
- A.St.
GENGIÐ
Erindi um lífeyrissjóðs-
mál hjá B.S.R.B.
Kristján Thorlacius formaður BSRB mun flytja erindi
um lífeyrissjóðsmál aðGrettisgötu 89, miðvikudaginn
19. marzkl. 20.30.
Kristján á sæti i stjórn Lifeyrissjóðs starfsmanna
rikisins og er ástæða til þess að hvetja félagsmenn til
þess að koma og fræðast um þessi viðkvæmu og
þýðingarmiklu mál. Ástæða er til að minna á að ný
verið hefur stjórn sjóðsins tekið ákvörðun um verð
tryggingu lifeyrissjóðslána og sýnist sitt hverjum
um ágæti þeirrar ráðstöfunar.
Kristján mun að’auki fjalla um aðildarrétt að
sjóðnum, stofnun biðreiknings.iðgjöld og réttindi
sjóðfélaga og maka. Einnig um ávöxtun sjóðsins. lána
réttindi og lánaskilmála.
Fyrirlestur um rekstur
og stjórnunaraðferðir
bókasafna
Dr. Ann E. Prentice. rektor bókavarðaháskólans i
Knoxville Tennessée, USA, flytur opinberan fyrir-
lestur i boði félagsvísindadeildar Háskóla Islands
þriðjudaginn 18. marz 1980, i stofu 201 i Lögbergi.
húsi lagadeildar háskólans. Fyrirlesturinn hefst kl.
20.30 og er öllum heimill aðgangur.
Fyrirlesturinn fjallar um nýjungar í stjórnunarafr
ferðum og rekstri bókasafna.
Dr. Prentice hefur ritað mikið um stjórnun og fjár
mál safna, m.a. gáfu bandarísku bókasafnasamtökin.
American Library Association út bók hennar Public
Library Finance árið 1977, og önnur bók hennar,
sem grundvölluð er á doktorsritgerö hennar kom út
1973 og heitir: The Public Library Trustee: Images
and Performance on Funding. Einnig hefur hún verið
ritstjóri timaritsins Public Library Quarterly.
Hvítabandskonur
Fundur verður haldinn miðvikudaginn 19. marz að
Hallveigarstöðum kl. 20. Athugið breyttan fundardag
og tima.
Gefin voru saman i hjónaband af séra
Halldóri Gröndal Laufey Danivals-
dóttir og Tómas Ibsen Halldórsson.
Heimili ungu hjónanna er að Melgerði
33 Kópavogi.
Ljósmyndastofa Suðurnesja.
Gefin voru saman i hjónaband i
Útskálakirkju af séra Ólafi Oddi
Jónssyni Ólöf Guðmundsdóttir og
Jónatan Ingimarsson. Heimili ungu
hjónanna er að Reynisstað, Garði.
Ljósmyndastofa Suðurnesja.
Gefin voru saman i hjónaband i lnnri-
Njarðvikurkirkju af sér Birni Jóns-
syni Bryndis Hákonardóttir og'
Guðmundur Pálmason. Heimili ungu
hjónanna er að Vesturgötu 8, Keflavík.
Ljósmyndastofa Suðurnesja.
Kvenfélagið Seltjöm
— skemmtifundur
Skemmtifundur kvenfélagsins Seltjörn verður haldinn
þriðjudaginn 18. marz kl. 20.30 í félagsheimilinu á
Seltjarnarnesi. Gestir fundarins verða konur úr kven
félaginu i Bessastaðahreppi.
Kvenfélag Breiðholts
Fundur verður haldinn miðvikudaginn 19. marz kl.
20.30 i anddyri Breiðholtsskóla. Fundarefni:
Tízkusýning á vegum Módelsamtakanna. Allir vél-
komnir.
Þriðji fræðslufundur
Hjarta- og æðaverndar-
félags Reykjavíkur
Hjarta- og æðaverndarfélag Reykjavíkur heldur þriöja
almenna fræðslufund sinn á Hótel Borg (Gyllta sal).
fimmtudaginn 20. marz 1980 kl. 17.15. Fundarefnið
verður að þessu sinni endurlifgun. Einkum og aðallega
verður fjallað um endurlifgun eftir brátt hjartaáfall.
Dagskrá fundarins verður þannig:
1. Erindi um endurlifgun. Dr. Árni Kristinsson
læknir.
2. Kvikmynd um blástursaðferð og lifgun úr
dauðadái.
3. Sýnikennsla i blástursaðferð og hjartahnoði.
Fundarmönnum gefst kostur á að taka þátt i
sýnikennslunni og spyrja og fræðast um viðfangs
efnið.
Fyrri tveir fræðslufundir félagins á vetrinum hafa
tekizt mjög vel. Á fyrsta fundinum var fjallað um
hcilablæðingu og hjarta- og æðasjúkdóma en á öðrum
fundinum var fundarefnið áhættuþættir hjarta og
æðasjúkdóma. Á báðum fundunum var fullt hús og
sýndu fundarmenn mikinn áhuga á viðfangsefnunum
og spurðu margra spurninga.
GENGISSKRÁNING Ferðamanna-
NR. 53 - 17. MARZ1980 su»ide»rir
Einingkl. 12.00 Kaup Sala Sala
1 Bandaríkjadollar 409,20 410,20* 45V2*
1 Storlingspund 893,10 895,30* 984,83*
1 Kanadadollar 345,20 346,10* 380,71*
100 Danskar krónur 7035,15 7052,35* 7757,58*
100 Norskar krónur 8046,40 8066,10* 8872,71*
100 Sœnskar krónur 9373,50 9396,40* 10336,04*
100 Finnsk mörk 10542,30 10568,10* 11624,91*
100 Franskir frankar 9406,90 9429,90* i . 10372,89*
100 Belg. frankar 1353,85 1357,15* 1492,86*
100 Svissn. frankar 22879,50 22935.4Ú* 25228,94*
100 Gyllini 19975,60 20024,40* 22026,84*
100 V-þýzk mörk 21946,90 22000,50* 24200,55*
100 Urur 47,34 47,46* 52,20*
100 Austun. Sch. 3066,30 3073,80* 3381,18*
100 Escudos 819,20 821,20 903,32*
100 Pesetar 588,00 589,40* 648,34*
100 Yen 164,06 164,46* 180,90*
1 Sérstök dráttarróttindi 521,98 523,26*
* Breyting frá síðustu skráningu. Sknsvarí vegna gengisskróningar 22190.
Fatamarkaður
Hjálpræðishersins
Tekið verður á móti góðum notuðum fötum dagana
17.—22. marz.
est