Dagblaðið - 18.03.1980, Qupperneq 24
Knut Frydenlund utanríkisráðherra Noregs:
„Ósigur norskrar utan-
ríkisstefnu veröi átök”
—milli ísiands og Noregs vegna norskrar efnahagslögsögu við Jan Mayen
—Frydenlund dregur ekki í efa rétt Noregs en viðurkennir vaxandi stuðning við
sjónarmið íslendinga á hafréttarráðstefnimni
„Það væri ósigur norskrar
ulanrikisslefnu og norrænnar
samvinnu ef norsk efnahagslögsaga
við Jan Mayen leiðir mikillar „krísu”
milli Noregs og íslands,” sagði Knut
Frydenlund í viðtali við DB i Noregi i
gær.
Frydenlund telur ekki vafa á rétti
Noregs að taka sér efnahagslögsögu
við Jan Mayen, en telur þó að
nauðsynlegt sé að komast að sam-
komulagi sem báðir aðilar geta sætt
sig við. Hann horfir til viðræðnanna
við Islendinga í apríl með mikilli
bjartsýni og telur að samkomulag
muni nást.
Þetta byggir hann m.a. á samtali
við Ólaf Jóhannesson utanríkis-
ráðherra á fundi Norðurlandaráðs i
Reykjavík á dögunum, þar sem hann
fann greinilegan samkomulagsvilja.
Hann játaði þó, að i samtalinu við
Ólaf hafi ekki verið rætt um efnis-
leiðir, þ.e. hvernig útfærslan gæti
verið.
Hann var spurður um norskar
fréttir, þar sem Ólafur Jóhannesson
dregur eignarétt Noregs á Jan Mayen
í efa. Hann sagðist ekki hafa lesið
þetta viðtal og vildi ekki tjá sig um
það þess vegna. Hann taldi æskilegt
að Norðmenn og fslendingar gerðu
heildarsamning um öll ágreiningsat-
riði svo sem hafsbotninn og
fiskveiðarnar, en taldi að vegna
aðstæðna gæti verið rétt að beina
viðræðunum að fisloimálunum,
þvi þar væri tímapressan mest áður
en loðnuveiðar hefjast vjð Jan Mayen
í sumar. Mörg önnur mál væru svo
flókin að heppilegt gæti verið að
semja um þau eftir lok hafréttar-
ráðstefnu S.Þ.
Frydenlund segir, að Norðmenn
muni i viðræðunum ganga út frá
miðlínureglunni, en norska stjórnin
átti sig þó á, að vaxandi áherzla á
sanngirnissjónarmið á hafréttar-
ráðstefnu S.Þ. styðji málstað
íslendinga.
J. Kr. Oslo/JH.
Ræntog
ruplaðá
höfuðborgar-
svæðinu
Skömmu eftir miðnætti i nótt
var kært yfir því frá húsi við
Sundlaugaveg að horfnar væru
150 þúsund krónur i peningum úr
íbúð. Er það mál nú í rannsókn.
En fleiri fingralangir voru á
ferð i nótt. Kl. 6.22 i morgun kom
i Ijós að farið hafði verið inn i
söluturn á Sólvailagötu 74. Þaðan
var stolið vindlingum fyrir um
fjórðung milljónar króna.
Skömmu fyrir kl. 8 kom svo i Ijós
innbrot i Garðasmiðjuna í Garða-
bæ. Ekki var Ijósl hverju stolið
hafði verið en lögreglumenn voru
ástaðnum. *A.Sl.
Gosinu við Leirhnúk lokið:
BUAST MA V® NÆSTD
TIRHÁIFTÁR
Frá Atla Rúnari Halldórs-
syni, blaðamanni DB, í
Reynihlíð við Mývatn:
Gosinu norðan Leirhnúks er nú
lokið og hámarki umbrotanna-ef náð
og síðan fjara þau út. Vísindamenn
munu almennt vera á þeirri skoðun
að búast megi við næstu hrinu eftir
sex til átta mánuði. Gæti hún þá
endað með gosi, þó slíkt sé ekki á
neinn hátt öruggt.
Vísindamenn vinna nú að mæling-
um á svæðinu hér i kring. Þegar er
komið i Ijós að mikil hreyfing hefur
orðið. Eysteinn Tryggvason jarð-
eðlisfræðingur vann einmitt að mæl-
ingum fyrir gosið. Hann hefur nú
hafið þær aftur og mun síðan bera
þær saman við fyrri mælingar á Leir-
hnúkssvæðinu. Þegar er vitað um
sprungur sem mynduðust, eins og til
dæmis norður undir Hrútafjöllum.
Þar er vitað um einstakar sprungur,
sem eru allt að 40 cm á breidd.
Eysteinn Tryggvason telur ekki að
afkastageta gufusvæðisins hafi
minnkað neitt til gufuöflunar fyrir
Kröfluvirkjun svo frá þvi sjónarmiði
sé ekki ástæða til annars en halda
áfram að vinna að henni.
Þar sem mikil hreyfing hefur orðið
á svæðinu umhverfis virkjunina
verður það endurmælt, áður en farið
verður í að mæla hvort einhver hreyf-
ing hefur orðið á sjálfu stöðvarhúsi
virkjunarinnar. -ARH/ÓG
Egit Amlieyfirmadur
lagadeildar norska
utanríkisráðuneytisins:
„í þágu ís-
landsað
semjaum
miðlínu”
Dagblaðið ræddi i gær við Agil
Amlie, yfirmann lagadeilar norska
utanríkisráðuneytisins. Amlie leggur
mikla áherzlu á að athugasemdir
Jóns Þorlákssonar frá árinu 1927
varðandi landnám norsku veður-
stofunnar á Jan Mayen gildi ekki um
landnám norska rikisins árið 1929.
Þvi hafi islenzk stjórnvöld látið undir
höfuð leggjast að bera fram athuga-
semdir við innlimun Jan Mayen i
Noreg.
Hann lcggur lika áherzlu á að Jan
Mayen sé ekki klettur, heldur eyja og
hafi því rétt til cigin efnahagslög-
sögu. Hann telur líka, að
meginlandsgrunnur landgrunns
íslands og Jan Mayen sé ekki sam-
liggjandi og þvi geti íslendingar ekki
sagt að Jan Mayen sé á landgrunni
Íslands. Hann viðurkennir þó að um
þetta megi deila.
Amlie telur að það sé i þágu
íslands að gera samning við Noreg
um miðlinu og sérstök réttindi fyrir
Íslendinga í norskri efnahagslögsögú
við Jan Mayen og það er vegna þess
að fái íslendingar hcilar 200 rnílur í
átl til Jan Mayen muni Danir fyrir
hönd Grænlendinga krefjast þess að
sama gildi um grænlenska lögsögu i
átt til Jan Mayen. Þá muni
íslendingar missa mikilvæg
loðnumið sem verði þá undir stjórn
Efnahagsbandalags Evrópu og falli
ckki undir samkomulag Norðmanna
og íslendinga um sérstök réttindi
Íslendinga í efnahagslögsögunni við
Jan Maycn.
J. Kr. Oslo/JH.
Verdandi sýslumaður ól dóttur
Það er ekki á hverjum degi sem sýslumaður liggur á fæðingardeildinni. Jafnréttið er þó alltaf að verða viðtækara hér á landi
og svo vildi til að verðandi sýslumaður Strandamanna fæddi dóttur á fæðingardeild Landspitalans á miðvikudag. Hjördís
Hákonardóttir er gegnt hefur embætti dómarafulltrúa hjá borgardómi tekur við sýslumannsembætti á Hólmavík 1. mai eða
þegar hún hefur jafnað sig eftir barnsburðinn. Dóttirin vó 16 merkur og mældist 56 cm, svo ekki er hún ócfnileg sýslumanns-
dóttirin. Hún er annað barn Hjördísar, en hún átti dreng fyrir. Sambýlismaður Hjördisar er Eyjólfur Kjalar. Hjördis sagði i
samtali við blaðamann DB i morgun að hún hlakkaði mjög til að fara til Hólmavikur og taka við embættinu. Er hún fyrsti
kvenmaðurinn hér á landi sem gegna mun embætti sýslumanns.
DB-mynd Bjarnleifur. -El.A.
frfálst, óháð dagblað
ÞRIÐJUDAGUR 18. MARZ 1980.
Skákmótið sterka
íLonePine:
JónLíhópi
6efstu
manna
— vann skák sína án
erfiðleikaígær
Jón L. Árnason hefur byrjað
glæsilega á hinu sterka skákmóti í I.one
Pine í Kaliforníu. Hann hefur unnið
tvær fyrstu skákir sícar og er einn af 6
efstu mönnum að loknum 6 umferðum.
Í hópi þeirra er þekktastur sovézki
stórmeistarinn Geller.
Jón tefldi í gær við Peters,
alþjóðlegan meistara frá Banda-
ríkjunum. Jón sagði í samtali vð DB í
morgun, að Peters hefði reynt vafa-
samtafbrigði í byrjuninni, afbrigði sem
stórmeistarinn Seirawan hefði stungið
upp á. Fékk Jón kóngssókn og betri
stöðu og vann örugglega í 34 leikjum.
Margeiri Péturssyni gekk ekki eins
vel og Jóni og tapaði hann fyrir Banda-
rikjamanninum DeFirmian eftir að
hafa verið skiptamun undir þegar skák-
in fór i bið.
Mikið hefur verið um óvænt úrslit á
mótinu og fáir af stigahæstu skák-
mönnunum eru i hópi efstu manna.
Þannig tapaði júgóslavneski
slórmeistarinn Gligoric í gær fyrir
kornungum Bandarikjamanni White-
head að nafni og Larsen rétt hékk á
jafntefli gegn óþekktum Bandaríkja-
ntanni eftir að hafa verið tveimur
peðum undir I endatafli.
Keppendur á mótinu eru 43. Þar af
eru 23 stórmeistarar. 3. umferð verður
tefld í dag og mætir Jón þá bandariska
stórmeistaranum Shankovich.
-GAJ.
Ríkiðlokaóídag:
Vínogtóbak
hækkar
um 12%
Vín og tóbak hækkar um 12% i dag.
Sumt vodka ívið meira eða um 14%.
Rikið er lokað í dag, en i fyrramálið
kostar viskíflaskan 12.500 kr. og
meira, t.d. Black Label fer upp i 13.700
kr„ romm kostar kr. 12.000—12.500,
brennivín kr. 9.000, gamalt ákavíti og
brennivin kr. 10.300, gin frá kr.
12.300, genever frá kr. 13.000, vodka
kr. 12.000 algengar tegundir, nema
tinda-vodka kr. 10.500.
Rauðvín kostar frá kr. 2.000—6.000
lúxustegund, hvitvín kr. 2.500—3.000,
rinarvín kr. 2.500—4.500.
Þá er sígarettupakkinn kominn upp i
1.015 kr.
-EVI.
LUKKUDAGAR:
18. MARZ: 8130
Kodak Pocket A-1 myndavél
Vinningshafar hringi
í síma 336?.2.