Dagblaðið - 19.03.1980, Side 1

Dagblaðið - 19.03.1980, Side 1
6. ÁRG. — MIÐVIKUDAGUR 19. MARZ 1980 — 67. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 1 l.—AÐALSÍMI 27022. I ! I r I I I I I t I I I í ! I í I ! ! t I I I I I 1 Sjómannaverkfall á Vestfjöröum á miðnætti: „EKKISAMNINGAR HELDUR STfíÍÐ’’ „Það er sorglegt að sjá vestfirzka útvegsmenn eins og hunda í bandi á eftir Kristjáni Ragnarssyni formanni LÍÚ hér á fundum með sáttasemjara. Sömu mennina, sem svo mikið hafa gumað af sjálfstæði sínu og lands- fjórðungsins,” sagði Pétur Sigurðs- son forseti Alþýðusambands Vest- fjarða i viðtali við DB í morgun. „Útvegsmenn hafa. algjörlega neitað viðræðum og Kristján Ragn- arsson neitaði algjörlega viðræðum fyrir þeirra hönd, meira að segja þó hann væri spurður hvort frestun verkfalls eða afboðun mundi hafa þar einhver áhrif á,” sagði Pétur. ,,Við getum því engan veginn kallað þetta samningaviðræður, þetta er stríð.” Verkfall undirmanna á vestfirzku togurunum og bátunum hefur verið boðað frá og með næsta miðnætti. Krafizt er 1,5 prósentustiga hækk- un á skiptahlut. Úr 29,3% í 30,8%. Sjómenn vilja einnig fá greidda sér- staklega aukavinnu á frivöktum. Þar telja þeir sig leggja fram ógreidda vinnu, sem síðan komi útgerðinni til góða án nokkurs framlags frá henni. Krafizt er hærri greiðslu fyrir lóða- beitingu í akkorði og frís fæðis á tog- urum og bátum. útvegsmenn vilja engar viðræður þráttfyrirtilboð umfrestun verkfallseða jafnvei afboðun, segirPétur Sigurðsson forsetiASV Pétur Sigurðsson sagði það visvit- andi blekkingu hjá Kristjáni Ragn- arssyni að leggja fram falsaðar tölur um aflahlut á tveim siðustu mán- uðum, sem væru þeir beztu í sögunni. Kristján vissi að nú væri framundan skrap á fisktegundum sem lítið gæfu af sér. - ÓG Verið er að kanna dýpi i höfninni austan Ægisgarðs þar sem litlu trillurnar i eigu Reykvíkinga eiga að hafa aðstöðu. DB-mynd Sv. Þorm. Ný fargjöld í næturflugi til Kaupmannahafnar: Helmings- lækkun ef ferðazt eraðnóttu „Þessi brottfarartími frá Reykjavik skapast vegna Græn- landsflugs og það er r'étt aö bjóða þetta flug á þessu verði vegna þess aðþetta er náttúrlega ekki ákjós- anlegur ferðatími,” sagði Sveinn Sæmundsson, blaðafulltrúi Flug- leiða, er DB innti hann i morgun eftir ástæðum þess að Flugleiðir hafa nú ákveðið að bjóða upp á næturflug til Kaupmannahafnar í sumar á meira en helmingi lægra verði en almennu sérfargjöldin milli Kaupmannahafnar og Reykjavikur. Fargjaldið vérður 101.100 báðar leiðir en almennt sérfar- gjald er nú 204.100. Hið nýja far- gjald er i gildi frá kl. 20 til kl. 6. Það gildir minnst í 6 daga og mest í 30daga. Fyrsta ferðin verður 26. mai og verður brottför frá Keflavik kl. 20. 15 og komutimi til Kaup- mannahafnar kl. 23.45 aðstaðar- tima. Í fyrstu verður ein slik ferð i viku, á mánudagskvöldum héðan og á þriðjudagsmorgnum frá Kaupmannahöfn en eftir miðjan júní verða farnar tvær ferðir á ‘ viku. Flugleiðir bjóða upp á þess- ar ferðir út októbermánuð. - GA.I Fótbrotnaðiog lærbrotnaði Sextán ára piltur á Akureyri fótbrotnaði við ökkla og lær- brotnaði í umferðarslysi í gær. Pilturinn var á léttu bifhjóli og lenti i árekstri við bil á mótum Hjalteyrarvegar og Hyrarvegar. Þótti aðkoman á siysstað Ijót, en pilturinn mun hafa sloppið að öðru leyti en að framan getur. Slysið varð um hábjartan dag, kl. 14.30 og akstursskilyrði öll hin á- kjósanlegustu. - A.St. Smábátaaðstaða bætt: Stálprammi til skjóls —f lotprammar í smíðum „Það er stefnt að því að leysa ákveð- inn vanda í ár,” sagði Gunnar B. Guð- mundsson hafnarstjóri í Reykjavík í morgun er við spurðum hann um fram- kvæmdir til batnandi aðstöðu fyrir litlu trillurnar í Reykjavíkurhöfn. Verið er að kanna dýpi milli Grófarbryggju og Ægisgarðs nú þessa dagana. Gunnar sagði að veittar yrðu 30 millj. kr. til framkvæmda i ár. Byrjað væri á að styrkja vestari gömlu ver- búðarbryggjuna. Hafnarstjórn ætti stálpramma er ætti að veita eitthvert skjól. Þá yrði einnig komið fyrir flot- prömmúm, sem eru í smiðum. Svo sem kunnugt er misstu margir trillukarlar aðstöðu fyrir báta sína þegar fyllt var upp vestan Ægisgarðs vegna framkvæmda Slippfélagsins. Gunnar sagði að reynt yrði í áföng- um að láta 20—30 trillurfá aðstöðu austan Ægisgarðs sem fyrst. 1350milljóna kr. framkvæmdirá Suðumesjum — Keflavíkurflugvöllur tengdur hitaveitukerfinu um næstuáramót — sjá bls. 5

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.