Dagblaðið - 19.03.1980, Page 5

Dagblaðið - 19.03.1980, Page 5
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 19. MARZ 1980. 5 1350 MIUJON KR. FRAMKVÆMUR Asudurnesium Kef lavíkurfliigvöllur tengdur hitaveitukerfinu um næstu ármót Hitaveita Suðurnesja stendur nú í umfangsmiklum framkvæmdum til undirbúnings þess að öll hús á Kefla- víkurflugvelli bætist inn á veitukerfi hitaveitunnar. Á Fitjum, eða rétt við mót Reykjanesbrautar og Hafnaveg, har sem ekið er til Keflavíkurvallar af Reykjanesbraut, er verið að reisa dælustöð og grunn þriggja tanka, sem samtals eiga að geyma tiu þúsund tonn af vatni. Fjórði tankurinn verður reislur á Keflavikurflugvelli til miðlunar þar. Framkvæmdir þessar kosta sam- kvæmt áætlun um 1350 milljónir króna. Mun dælustöðin kosta 735 milljónir af því en tankarnir á 7. hundrað milljóna króna. Dælustöðvarhúsið verður einnar hæðar hús auk kjallara. í því verður út- búnaður, sem mun dæla vatni frá tönkunum þremur, sem við dæluhúsið munu rísa, inn á allt veitukerfið og upp til Keflavíkurflugvallar. Ingólfur Aðalsteinsson hita- veitustjóri tjáði DB að vonir stæðu til að byggð Keflavíkurflugvallar tengdist hitaveitukerfinu á Suðurnesjum um næstu áramót. Mun Keflavikurflug- völlur fá álika mikið vatn frá hita- veitunni og allar aðrar byggðir, er hún nær til, fá samanlagt. Jafngildir heita- vatnsmagn Keflavíkurflugvallar 50 megavöttum. Ingólfur sagði að frá Svartsengi kæmi vatnið til dælustöðvarinnar á Fitjum 125 stiga heitt. 1 dælustöðinni verður vatnið kælt og dælt út í kerfið. Ingólfur sagði engin teikn þess á lofti að vatnsmagn Hitaveitu Suðurnesja yrði ekki nægilegt. Séð hefði verið þannig fyrir borunum að vatnsmagn væri fengið áður en útvíkkanir hefðu orðið á kerfinu. -A.St. Grunnar tveggja tankanna af þremur. Smiði sjálfra vatnsgeymanna er nú i útboði. Tankarnir verða þrfr á Fitjum, en sá fjórði á Keflavfkurftugvelli. „Látum fs- íandhafa Jan Mayen” r —segir norskur stuðningsmaður Islendinga í Jan Mayen-málinu f norska blaðinu Dag og Tid Dagblaðinu hefur borizt skeyti og blaðaúrsklippa frá norskum stuðningsmanni Islendinga, í Jan Mayen málinu, Geir Sör-Reime. Geir segir i skeytinu að hann hafi séð að Dagblaðið hafi skrifað um að íslendingar eigi Jan Mayen sögulega séð. Hann skrifaði sjálfur grein i norska blaðið Dag og Tid i haust og þar segir hann m.a.: ,,Af tilviljun varð Jan Mayen hluti af Noregi. Norðmenn hafa um nokkura ára skeið notað staðinn fyrir veðurathuganir og þar er fjar- skiptastöð fyrir norska herinn. Nú vilja fiskveiðiáhugamenn og aðrir fá yfirráðarélt yfir hafinu í kringum eyjuna og þar með hlula af 200 mílna fiskveiðilögsögu íslands. Það er fullmikið af því góða að krefjast hlutdeildar i íslenzku efna- hagslögsögunni. Eins og við vitum veiða íslendingar ekki of mikið af fiski og því er það réttlátt að þeir hafi sina efnahagslögsögu heila og óskipta.” I lok greinar sinnar segir Geir Sör- Reime: ,,Því ekki að gefa íslendingum Jan Mayen. Binduni endaá þessa norsku „íshafsyfirgang- semi” frá 1920.Leyfum Íslendingum Vatn á hálencfi íslands: Ónothæftað stórumhluta í rannsókn sem fór fram á vatni á vinsælum ferðamannastöðum hér á landi í sumar kom i Ijós að verulegur hluti vatnsins var gallaður eða óneyzluhæfur. Sérstaklega var ástand- ið slæmt í baðvatnsmálum, en einnig slæmt hvað varðaði drykkjarvatn. Fyrir rannsókninni stóð Kolbrún Haraldsdóttir heilbrigðisráðunautur og gaf Heilbrigðiseftirlit ríkisins út helztu niðurstöður hennar nú á dögunum. Rannsakaðir voru 7 staðir, Þórs- mörk, Landmannalaugar, Hveravellir, Nýidalur, Herðubrciðarlindir, Jökuls- árgljúfur og Skaftafell. Ástandið var bezt á siðasttald.i staðnum en verst á Hveravöllum. Var ekki talið ólíklegt að í vatnsbrunn á svæðinu seitlaði frárennsli frá húsi sauðfjárveikivarna. Baðvatnið í lauginni á staðnum reyndist einnig ónothæft. Ástandið var einnig slæmt i Jökuls- árgljúfri, i Þórsmörk, í Nýjadal og í Landmannalaugum. Herðubreiðar- lindir sluppu hins vegar nokkuð vel. -DS. Albertvinsæl- asturáJaðri Starfsmenn Vatnsveitunnar á Jaðarsvæðinu í Reykjavík efndu til skoðanakönnunar um forsetafram- bjóðendur þá sem þegar hafa boðið sig 'fram. Úrslit fóru þannig: Albert Guðmundsson fékk óalkvæði, Guðlaugur Þorvaldsson 4, Pétur Thorsteinsson 0, Rögnvaldur PálssonO, Vigdis Finnbogadóttir 4, og auður seðill var 1. -DS. að eiga 200 milurnar i friði. Gefum Íslendingum allan rétt yfir Jan Mayen.” -KLA. Ved eit tllfelle blei Jan Mayen ein del av Noreg. I dei femti ára oya har vore norsk har ho vore nytta til vervarsling og som mill- tær sambandsstasjon. Ná vil altsá flskarorganlsasjo- nane og andre ha ráderett over store havomráde kring derrne vulkaneya, tU dels lnn 1 islandsk 200-mils sone. Grindavflc: „Ekki ruðzt inn á farandverkafólkið” —segir Eriing Kristinsson lögregluþjónn ,,Að lögreglan haft ruðzt inn hjá farandverkafólkinu, þar sem það hélt kveðjuhóf á föstudagskvöldið í hraðfrystihúsinu að Þórkötlustöðum, er hrein fjarstæða,” sagði Erling Kristinsson, lögregluþjónn í Grinda- vik, i samtali við Dagblaðið í gær. Hann hélt áfram og sagði að aðeins lítið brot væri satt af þvi sem Benedikt Sverrisson farandverka- maður hefði sagt í viðtali við DB á mánudag um hvemig lögreglumenn hefðu borið sig þar að- Það að kvört- un um hávaða hefði aðeins komið frá Lofti Jónssyni, skrifstofustjóra frystihússins, ætti ckki fót fyrir sér. Fimm farandverkamenn utan hinna rúmlega 20, sem voru að skemmta sér hefðu verið við vinnu til miðnættis og áttu að byrja að vinna strax kl. 8 næsta dag. Einn af þeim, verk- stjórinn, sem jafnframt er hús- vörður, kvartaði og hann og annar með honum fóru til Reykjavíkur til þess að hafa einhvern svefnfrið. Eriing sagði að 2 lögreglumenn hefðu komið í Þórkötlustaði rétt eftir kl. 12 á föstudagskvöld og beðið fólkið vinsamlega um að lækka i segulbandinu, sem í heyrðist út á götu. Ekkert gerðist. Næst komu 3 lögregluþjónar um kl. 1. Var fólkinu þá bent á að ekki væri leyfilegt að vera með hávaða eftir kl. 11.30 á kvöldin. Á staðnum voru auk farand- verkamannanna gestir svo alls voru þarna um 30 manns. Þá sagði Erling að einn farand- verkamaðurinn hefði orðið hinn versti og haldið því fram að þeir hefðu fullt leyfi til þess að skemmta sér áfram. Gleðskapurinn hélt lika á- fram. Lögreglumenn sáu þá hvert stefndi og kvöddu til 5 manna liðsauka frá Kefavík. Siðan komu 8 lögreglumenn aftur um kl. 2. Fluttir í járnum, glerbrotum rigndi yfir ,,Þrír farandverkamenn voru handjárnaðir og fluttir í fanga- geymslur lögreglunnar, þar sem þeir voru hafðir i járnum þangað til af þeim var runnin mesta reiðin,” sagði Erling. Hann sagði að mikil vonzka hefði gripið um sig hjá samkvæmisgestum og mesta mildi að ekki hefði hlotizt slys af. Stólum og flöskum var kastað, jafnvel út um rúður á vcrbúðinni og að lögreglumönnum, svo aðglerbrotum rigndi yfir þá. Eins og frá hefur verið skýrt i DB hættu 12 islenzkir karlmenn og 9 út- lendar stúlkur vegna óánægju með aðbúnað o. fl. Var þetta kveðjuhóf þeirra. -EVI.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.