Dagblaðið - 19.03.1980, Qupperneq 23
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 19. MARZ 1980.
(i
Útvarp
23
Sjónvarp
»
Fleiri hugmyndir um f ramhaldsmyndaflokk bíða svars frá jjtvarpsráði:
AUÐUR HARALDS, EDDA BJÖRGVINS OG HELGA
THORBERG SNÚA HLUTVERKUM KYNJANNA VIÐ
— í nýjum f ramhaldsmyndaf lokki sem bíður eftir græna Ijósinu
ver Þorlákssyni og Jónasi Jónassyni.
Auði Haralds rithöfund þekkja víst
allir nú, eftir að hún gaf út bókina
Hvunndagshetjuna. Auk þess hefur
hún skrifað fyrir timaritið Samúel og
Þjóðviljann. Þessar þrjár' úrvals-
konur ættu þvi að geta samið
skemmtilega þætti og því verðum við
bara að vona að útvarpsráð gefi þeim
grænt ljós og helzt karlþremenning-
Auflur Haralds.
DB-mynd RagnarTh.
Helgu Thorberg, Eddu Björgvins-
dóttur og Auði Haralds um nýjan
framhaldsmyndaflokk fyrir sjón-
varp. Ekki var neitt ákveðið á
þessum fundi um það hvort sjónvarp-
ið tæki þessu tilboði. Eins og skýrt
var frá i DB fyrir stuttu hafa þeir
Egill Eðvarðsson, Björn Björnsson
og Hrafn Gunnlaugsson einnig lagt
fram sínar hugmyndir um framhalds-
þætti en eins og kunnugt er sömdu
þeir þættina Undir sama þaki sem
sýndir voru hér fyrir þremur árum.
Það er því undir útvarpsráði komið
hvor framhaldsflokkurinn verður
sýndur — eða hvort það verða báðir.
„Þessir þættir fjalla um þrenn
hjón. Hugmyndin er að hlutverk
kynjanna snúist við, karlarnir verði
heimilisfeður og geri verk kvennanna
og konurnar verði fyrirvinnur,”
sagði Helga Thorberg er hún var
spurð um efni þáttanna sem verða
alls sex. „Við þrjár höfum lagt fyrir
útvarpsráð lauslega skrifað handrit
en það verður ekki fullskrifað fyrr en
við höfum fengið grænt ljós.
Það er brennandi áhugi hjá okkur
fyrir þessu efni en ég tek það fram að
við erum ekki boðberar einhverrar
kvennahreyfingar. Við ætlum aðeins
að leyfa fólki að skoða þessa mynd af
|muni þá koma til með að leika í þátt-
unum — eða ætlið þið kannski að
gera þaðsjálfar?
„Nei, ég býst ekki við að við gerðum
það. Það mun reyna mjög mikið á
karlpeninginn i þessum hlutverkum.
Þetta er ekkert ákveðið ennþá. Það
eru fleiri þættir i boði hjá sjónvarp-
inu og við komumst ekki lengra eins
og stendur. Við ætlum samt að halda
þessu vakandi áfram. Við bíðum
bara í startholunum eftir svari frá út-
varpsráði. Hjá okkur er þetta
nokkuð klárt. Okkur langar að reyna
að fá tilbreytingu og lika það að sýna
hlutina í gegnum auga konunnar og
að það sjónarmið fái að koma
ifram,” sagði HelgaThorberg.
Ætlunin hjá sjónvarpinu er að taka
upp framhaldsmyndaflokk 1 sumar
— eftir sumarfrí, og sem sýndur
verður næsta haust. Helga Thorberg
er leikkona að mennt og hefur oft
komið fram í sjónvarpi. Síðast sáum
við hana í jólastundinni okkar þar
sem hún lék jólasveinakonu. Edda
Björgvinsdóttir er einnig leikkona og
sennilega þekktust sem Thúrilla
Júhansen frá Færeyjum í þáttunum
Úllen dúllen doff. Hún hefur m.a.
samið efni i þá þætti ásamt manni
sínum Gísla Rúnari Jónssyni, Rand-
Á föstudag í síðustu viku var lögð
fyrir útvarpsráð hugmynd frá þeim
Helga Thorberg.
DB-mynd RagnarTh.
hlutverki kynjanna um leið og við
ætlum að skemmta fólki,” sagði
Helga ennfremur.
— Verða þættir þessir þá i léttum
dúr?
,,Já, það er ætlunin.”
— Ereitthvaðákveðið meðhverjir
Edda Björgvinsdóttir.
DB-mynd Ragnar Th.
Velja verður á
hugmyndanna
—tvö ný leikrit tekin upp fyrir
sumarf rí sjónvarpsins
„Það hefur ekkert verið fjallað
ítarlega um þessa framhaldsmynda-
flokka i útvarpsráði en ég á von á að
það verði gert fljótlega,” sagði Hin-
rik Bjarnason, forstöðumaður Lista-
og skemmtideildar sjónvarpsins, er
hann var spurður um hvort eitthvað
hafi verið ákveðið með hugmynd-
irnar tvær sem nú liggja fyrir hjá út-
varpsráði.
„Það verður litið á þessar tvær
hugmyndir saman.”
— Er möguleiki á því að hægt
verði aðgera báða myndaflokkana?
„Nei, það held ég ekki. Það verður
að velja á milli. Annars er engin
ákvörðun til um það að gera eigi
framhaldsmyndaflokk. Það eru bara
þessar hugmyndir sem komið hafa
fram,” sagði Hinrik Bjarnason.
Aðspurður um eitthvað nýtt á
næstunni sagði Hinrik. „Það er
ýmislegt í undirbúningi. Það verða
tekin upp tvö leikrit fyrir sumarfrí,
annað eftir Davíð Oddsson og hitt
eftir Steinunni Sigurðardóttur. Það
verður svona sitthvað á næstunni.
Óli H. Þórðarson verður með einn
þátt í viðbót í kringum páska.
Það fer að koma vorbragur á þetta
hjá okkur. Við verðum með nokkra
þætti með öðru sniði með blönduðu
efni, t.d. verðum við með jazzþátt
með Guðmundi Ingólfssyni og félög-
um og eitthvað í þeim dúr," sagði
Hinrik. Það verða örugglega margir
sem sakna munu þáttanna hans Óla,
Á vetrarkvöldi, en þeir þættir hafa
\
milli
Hinrik Bjarnason, forstöflumaflur
I.ista- og skemmtideildar sjónvarps-
ins. DB-mynd Ari.
verið sérstaklega skemmtilegir og
fjölbreyttir. Við verðum bara að
vona að vorþættirnir verði jafngóðir.
LÉTTSTEIKTUR RÁÐHERRA
Fyrirheit höfðu borizt um það, að
„grilla” ætti Ragnar Arnalds fjár-
málaráðherra i beinni útsendingu
sjónvarps í gærkvöldi. Matreiðslu-
meistari var Ingvi Hrafn Jónsson
þingfréttamaður sjónvarps og
hjálparkokkar ritstjórarnir Ellert B.
Schram og Jón Baldvin Hannibals-
son.
Þegar upp var staðið var ekki gott
að dæma um það, hver hafði grillað
.hvern. Fjármálaráðherrann hafði
sum sé ekki snúizt eðlilega á grillteini
ritstjóranna. Hann varðist skotum
þeirra með málþófi svo þeir komu
litlum vörnum við. Þátturinn ein-
kenndist af alræmdri þrætubókarlist
pólitikusa. Og hverju erum við skatt-
greiðendur bættari, sem þó borgunt
brúsann? Varla neinum ósköpum.
Þarna sátu þrir flokkspólitískir
fulltrúar, Aiþýðuflokks, Alþýðu-
bandalags og Sjálfstæðisflokks.
Hvers á Framsóknarflokkurinn að
gjalda? Hví fékk hann ekki að senda
sinn ritstjóra?
Að þrætu pólitíkusanna frátalinni
var þingsjáin uppbyggjandi. Ingvi
Hrafn hefur farið vel af stað sem
sjónvarpsfréttamaður, enda þjálf-
aður af dagblaði. Megum við fá
meira að heyra.
Dagskrá sjónvarpsins lauk með
góðri smásögu. Smásöguformið er
vel sniðið að sjónvarpi. Ólíkl er það
þægilegra að eiga von á einni slíkri en
sextiu framhaldsþáttum í húsbænda
og hjúastíl. Það vill þvi til að nóg er
að horfa á tiunda hvern þátt i siíkum
serium til þess að halda samhenginu.
- JH
Úr myndinni Svo mæli ég sem aðrir mæla, sem sjónvarpið sýnir okkur i kvöld kl.
21.15.
SVO MÆLIÉG SEM AÐRIR MÆLA
—sjónvarp í kvSld kl. 21,15:
Táknmál í tjá-
skiptum bama
„Þetta er fróðleg mynd handa öllum
þeim sem þykir vænt um börn,” sagði
Bogi Arnar Finnbogason þýðandi um
myndina „Svo mæli ég sem aðrir
mæla,” sagði barnið sem sjónvarpið
sýnir í kvöld.
„Myndin fjallar um táknmál það
sem ungbörn nota til að tjá sig hvert við
annað áður en þau ná valdi á töluðu
máli.
Hubert Montagner prófessor i lif-
fræði við háskólann í Besanpon í
Frakklandi fylgdist um nokkurra rnán-
aða skeið með atferli barna á dagheint-
ili og filmaði þau með falinni kvik-
myndatökuvél. Hann rannsakaði
einnig viðbrögð foreldranna gagnvart
börnum sinum. Auk þess gerði hann
ýmsar líffræðilegar rannsóknir á dag-
legum sveiflum í hormónastarfsemi
barnanna og foreldra þeirra, einkum
þeirra hormóna sem valda streitu,”
sagði Bogi Arnar.
- DS
Húsísveft
Til greina getur komið að leigja stórt íbúðarhús í
sveit næsta sumar eða lengur ef um semst.
Fjarlægð frá Reykjavík ca 135 km. Húsið hentar
vel félagasamtökum sem dvalarheimili. Hitaveita
er í húsinu. Þeir sem hafa áhuga á frekari upp-.
lýsingum vinsamlegast sendi bréf merkt „Hús í
sveit” til auglýsingadeildar blaðsins.
Í 1
■