Dagblaðið - 19.03.1980, Side 24
MÁLFUJTNNGURIMAU
HAUKS HEDARS f AFRÉ.
dráttur hef ur orðið á öðrum máium ríkissaksóknara vegna Landsbankamalsms
Undirbúningur málflutnings i
Landsbankamálinu svokallaða er nú
á lokastigi. Mun stefnt að því, að
málflutningur geti hafizt um miðjan
aprílmánuð og að málinu verði lokið
i vor fyrir sakadómi.
Landsbankamálið snýst um
þjófnað og skjalafals Hauks Heiðars,
sem var deildarstjóri ábyrgðardeildar
Landsbankans.
Við umfangsmikla lögreglu-
rannsókn málsins, þá er uppvíst varð
um þjófnaðinn og skjalafalsið, kom í
Ijós að fjárdrátturinn mun alls hafa
numið um 50 milljónum króna. Er þá
átt við misverðmætar krónur á ýms-
um árum þess sjö ára tímabils sem
fjárdrátturinn var framinn á. Við
framreikning hins stolna fjár til
núvirðis eru tölurnar fljótar að marg-
faldast.
Það eru starfsmenn ríkis-
saksóknara, sem að undirbúningi
málsins vinna og hefur orðið dráttur
á ýmsum öðrum málum vegna
Landsbankamálsins.
-A.St.
Varia þægilegt
Hann lœtur sér greinilega ekki allt fyrir brjósti brenna þessi ökumaöur. Hjóliö er aflþetta fór hjá. Hversu löglegur flutningur þessi er ómerktur, skal ósagt látið, en varla
minnstu gerð, en stiginn þeirri stœrstu. Aðrir ökumenn horfðu á Iforundran er bifhjól \ getur hann verið þœgilegur. DB-mynd Hörður.
SkákmótiðíLonePineíKarrfomíu:
Jón L13.- 4. sæti
—fyrirofan21
stórmeistara
„Ég kann langtum betur við þessi
hefðbundnu tímamörk sem hér er
teflt eftir heldur en hin þröngu tíma-
rnörk sent notuð voru á Reykjavikur-
skákmótinu. Að meðaltali hef ég
notað 2 klst. og 10 rnin. á fyrstu 30
leikina hér en á Reykjavíkurmótinu
fengum við aðeins eina og hálfa
klukkustund á þessa fyrstu 30 leiki,”
sagði Jón L. Árnason er DB ræddi
við hann i Lonc Pine i Kaliforniu í
morgun. >
Jón hefur farið af stað með
ntiklum glæsibrag á þessu geysisterka
skákmóti þar sem 23 stórmeistarar
eru meðal keppcnda. í gærgerði Jón
jafntefli við stórmeistarann
Quinteros frá Argentínu í 40 leikjum.
Tefid var sikileyjarvörn og lengi vel
tefldist skákin alveg eins og skák
Guðmundur Sigurjónssonar og
Browne i nýafstöðu Reykjavíkur-
móti, en þeirri skák lauk einmitt með
jafntefli.
Að loknum 3 umferðum eru efstir
og jafnir Sovétmeistarinn Geller og
Whitehead frá Bandarikjunum. Þeir
hafa báðir unnið allar sinar skákir og
eru með 3 vinninga. Jón L.. Árnason
og Quinteros frá Argentinu eru i 3.—
4. sæti með 2,5 vinninga.
Af öðrunt þekktum köppunt má
nefna að Bent Larsen hefur 1,5 vinn-
ing og góða sigurmöguleika i bið-
skák. Miles og Browne hafa báðir 1,5
vinning. Jón sagðist liklega mtmdu
inæta Larsen í 4. umferðinni.
Margeir Pétursson tapaði aftur 't
gær, _ nú fyrir stórmcistaranum
Ernrenevkov frá Búlgariu. Hefur
Margeir því 0,5 vinninga.
-GAJ
STJORNARUDAR LBTA
SAMNMGA V» IHAGNÚS
Stjórnarliðar niunu í dag leita
samninga við Magnús H. Magnússon
alþingismann (A) og setjast niður
með honum til að ræða hugsanlega
hækkun persónuafsláttar. frá því sem
fyrr var afráðið. Magnús hafði þá'
sérstöðu á þingi í gær að greiða at-
kvæði með útsvarpshækkun í 12,l°7o
gegn þvi að hækkunin yrði ekki látin
lenda á lágtekjufólki af fullum
þunga.
Persónuafslátturinn skiptir lág-
tekjufólk miklu við álagningu út-
svars. Svokallaður „ónýttur per-
sónuafsláttur” myndast, þegar per-
sónuafsláttur skattgreiðanda er hærri
en álagður tekjuskattur, og má nota
mismuninn til lækkunar útsvars. í
fjárlagafrumvarpi Sighvats Björg-
vinssonar var gert ráð fyrir, að per-
sónuafslátturinn yrði 400 þúsund
krónur á einstakling. Hækkun hans
mundi lækka útsvar lágtekjumanna,
sem hefðu ónýttan persónuafslátt.
Við atkvæðagreiðslú í gær var út-
svarshækkunin samþykkt með 20 at-
kvæðum stjórnarliða og Magnúsar
H. Á móti voru 11 þingmenn Sjálf-
stæðisflokks og 6 þingmenn
Alþýðuflokks. Hjá sátu stjórnar-
liðarnir Halldór Ásgrímsson (F),
Stefán Valgeirsson (F) og Albert
Guðmundsson (S). Felld var
breytingartillaga frá Jóhönnu
Sigurðardóttur (A) um, að svcit-
arfélögin feiigju 4% af söluskatti og
tekjur ríkisins yrðu lækkaðar ae
sama skapi. Tillagan fékk 18 at-
kvæði, en 21 var á móti, það eru
þingmenn Framsóknar og Alþýðu-
bandalags, Eggert Haukdal, Friðjón
Þórðarson og Pálmi Jónsson. Tillaga
frá Pétri Sigurðssyni (S), um að
sveitarfélögin fengju 2% af sölu-
skatti, var felld -HH.
frjálst, nJiáð daffhlað
MIÐVIKUDAGUR 19, MARZ 1980.
Verður ungf rú
alheimurvalin
áíslandi
árið 1981?
— íslandihefurverið
boðiðaðhalda Miss
Universe-keppnina
íslandi hefur verið boðið fyrstu
landa að halda fegurðarsamkeppni
Miss Universe eða Ungfrú Alheimur
árið 1981. Einar Jónsson, sem var upp-
hafsmaður fegurðarsamkeppni á ís-.
landi, fékk i gær bréf þess efnis.
Árið 1981 er 30 ára afmæli keppn-
innar og því vandað sérlega til hennar.
Sjónvarpað verður beint frá henni til
600 milljóna manna í 50 löndum.
Keppnin i ár verður haldin í Kóreu.
-I)S
Jan Mayen
eign íslands
— með sama hætti og
Svalbarðiereign
Noregs,segirtals-
maðursósíalíska
vinstriflokksins
Norskir stjórnmálamenn úr öllum
flokkum eru sammála um að þau
sjónarmið sem íslendingar setja fram
séu til umræðu. Meðal annars átta þeir
sig á að íslendingar gera kröfu til hafs-
botnsins umhverfis Jan Mayen og eru
andvigir því að Norðmenn komi á efna-
hagslögsögu í kringum hana.
Þetta kom fram i viðræðum við
stjórnmálamenn í norska stórþinginu í
gær. Stjórnmálamennirnir telja ólíklegt
að hægri flokkarnir muni reyna að
spilla fyrir ríkisstjórninni í viðleitni
hennar til þess að ná samkomulagi við
Islendinga.
Talsmaður sósíalíska vinstri flokks-
ins taldi að ef Norðmenn halda því
fram gagnvart Svalbarða að land-
grunnið þar sé framhald af landgrunni
Noregs, þá geti islendingar haldið því
fram með sama rétti að Jan Mayen sá á
landgrunni íslands. - JKR„ Osló / JH
Norðmenn vilja
ekkiskiptaáolíu
ografmagni
Norðmenn hafa ekki áhuga á að
kaupa vatnsaflsrafmagn i skiptum fyrir
oliu_að sögn Egil Helle í Noregi í gær.
Norðmenn eru sjálfir vel settir með raf-
magn og búast ekki við rafmagnsleysi á
næstu árum. -JKR.Osló/JH