Dagblaðið - 08.04.1980, Síða 1
iríálst
úháð
daghlað
6. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 1980 — 80. TBL.
RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 11,—AÐALSÍMI 27022.
Þœr eru nokkuð sérkennilegur farkostur, þessar svissnesku flugvélar sem lentu ú
Reykjavlkurflugvelli ú púskadag. Hlutverk þeirra er að verða ýmsum þeim að liði
sem berjast l hinum ýmsu heimshornum. Þær koma hér stundum við til þess að taka
ÍK'
jr~:
*5Z
Eins og sjú mú var snjör með minnsta móti I Hllöarfjalli um púskana. A mynd-
inni mú sjú stólalyftuna, hluta af toglyftunni og i heinu framhaldi afstólalyftunni
mú sjú keppnisbrckku þeirra Akureyringa í svigi, en hún hefur nýlega hlotið
viðurkenningu FJ.S. til keppni l alþjóðamótum. DB-mynd Þorri.
DB á skíðalandsmótinu
íHlíðarfjalli um páskana
— sjá íþróttir bls. 14-19
eldsneyti, þótt þœr hafi með sér aukaeldsneytistanka, svo sem sjú mú. Þessar eru ú
leiðinni til einhvers rikja Suður-Ameríku. Pilatus C er nafn vélanna. Þœr eru mjög
hraðfleygar. Venjulega eru tveir flugmenn um borð, en í ferjuflugi eraðeins einn.
DB-mynd Bjarnleifur.
MIKIÐ AÐ GERAI
INNANLANDSFLUGI
,,Það má segja að flugið hafi geng-
ið Ijómandi vel yfir páskana. Í gær
t.d., sem er einn stærsti dagurinn i
innanlandsflugi, voru litlar sem engar
tafir, fyrir utan eina vél sem þurfti að
snúa við frá ísafirði. Það voru fimm
þotuferðir til Akureyrar í gær.
Fokker Friendship fóru ftmm ferðir
til ísafjarðar, Fimm til Húsavikur,
þrjár til Egilsstaða, tvær til Patreks-
fjarðar, Vestmanriaeyja og Sauðár-
króks. Samtals voru farnar 25 ferðir í
gær til og frá Reykjavík,” sagði
Sveinn Sæmundsson blaðafulltrúi
Flugleiða í samtali við DB í morgun.
„Farþegar í gærdag voru 2081. Á
laugardag var flogið áætlunarflug og
nokkrar aukaferðir. Skírdagur var
einnig stór dagur og eiginlega má
segja að það hafi verið mikil traffik
og mikið um að vera alla dagana,"
sagði Sveinn.
Sömu sögu var að segja af Arnar-
flugi. Þar gekk flugið einnig mjög
vel. Arnarflug fór 14 ferðir til og frá
Rcykjavik um páskana. Var flogið til
Siglufjarðar, Hólmavíkur, Flateýrar,
Stykkishólms, Suðureyrar og Vest-
mannaeyja, svo eitthvað sé nefnt.
Arnarflug flaug alla dagana nema á
laugardag en þá var ófærl. Á páska-
dag flugu þrjár vélar frá Arnarflugi
með erlenda ferðamenn til Vest-
mannaeyja.
- EI.A
Cartersleit
stjórnmálasam-
bandi við íran
— sjá erl. f réttir
ábls.9
Flóttafólkið
hangirítrjánum
— sjá erl. fréttir
á bls. 8
Kópavogurvill
eignast
Fífuhvamm
— sjá bls. 13
Færannar
Eskfirðingur
viðurnefnið
„ríki”
— sjá bls. 5
Landbúnaðar-
vörurfluttar
inníland offram
leiðslunnar
— sjá DB á neytenda-
markaði
— bls. 4
15 ára piltur
beiðbana
fumferðinni
— sjá bls. 6
Eimskip af krafti ígámaflutninga:
EIMSKIP FÆKKAR
ÁHÖFNUM SÍNUM
Forstjóri Eimskipafélags íslands
hf., Hörður Sigurgestsson, kallaði
forustumenn félaga yfirmanna á
skipum félagsins á sinn fund fyrir
páskahelgina og tilkyrmtl'þeim að bú-
ast mætti við nokkurri fækkun
áhafna hjá félaginu. Megi því búast
við uppsögnum hjá lyrirtækinu á
næstunni.
„Það er rétt að forstjórinn kallaði
okkur á sinn fund og skýrði okkur
frá því sem framundan væri hjá fyrir-
tækinu varðandi breytingar á skipá-
stóli þess,” sagði Ingólfur Ingólfs-
son, formaður Vélstjórafélags
Íslands, í viðtali við DB í gærkvöldi.
„Þarna virðist um verulega stefnu-
breytingu að ræða hjá Eimskipa-
félaginu og skildist mér,” sagði Ing-
ólfur, ,,að um yrði að ræða einhverja
fækkun skipa jafnhliða endurnýjun
og stækkun. Mætti samfara þessu
búast við einhverjum tímabundnum
eða varanlegum fækkunum áhafna
hjá félaginu.”
Hörður Sigurgestsson, forstjóri
Eimskipafélags íslands, sagði í sam-
tali við DB i gærkvöldi, að þessar til-
kynningar til félaga sjómanna á skip-
um þeirra væru framkvæmdar fyrst
stefnubreyt-
ingískipa-
kaupum
fækkunog
stækkunskipa
félagsins
og fremst til öryggis og einnig til að
uppfylla lagaskilyrði. „Mál varðandi
skipakost félagsins eru'nú sem áður í
endurskoðun og viljum við vera við-
búnir öllu,” sagði Hörður.
„Fyrst og fremst voru tilkynning-
arnar um fækkun áhafna gerðar í
Ijósi þess að við erum með tvö af
skipum okkar á sölulista, Álafoss og
Kljáfoss,” sagði forstjórinn.
Samkvæmt heimildum DB er Eim-
skip að stiga hér skref i þá átt að taka
upp nútíma flutningahætti, með
gámum, á skipum sérsmiðuðum til
þeirra flutninga. Búizt er við að
áhöfnum fækki um fjórar til sex. í
þeini eru ellefu til iuttugu og þrir
jriienn. Eimskipafélag íslands á nú á
þriðja tug skipa að öllu leyti eða að
hluta. -ÓG