Dagblaðið - 08.04.1980, Page 3
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 1980.
3
Sími
45133
—Leikurinn hefði átt að fara f ram í hlutlausu landi
K.Ó. hringdi:
Ég vil lýsa furðu minni á því að úr-
slitaleikurinn i Evrópukeppninni
skyldi fara frani i Þýzkalandi, þ.e.
heimalandi mótherja Valsmanna frá
Grosswallstadt.
Af úrslitum leikja i Evrópukeppn-
inni er Ijóst að 5—6 marka munur
felst í því að leika á heimavelli.
Þannig má minna á að Valur sigraði
Atletico Madrid á heimavelli með 3
marka rnun en tapaði á útivelli nteð
3 marka mun. Þannig má segja að
Grosswallstadt hafi haft 5 marka for-
skot á Valsmenn áður en leikurinn
hófst.
Enginn efast þó um að Grosswall-
stadt er sterkara lið en Valur en
munurinn á þessum liðum væri alls
ekki nteiri en 2—4 mörk ef leikið
hefði verði í hlutlausu landi, t.d. i
Svíþjóð.
Þetta hefðu forráðamenn íslenzks
handknattleiks gjarnan mátt hafa i
huga, og þessari tilhögun áttu þeir að
sjálfsögðu að mótmæla. Ég veit að
UST61IR UFOfiun
þessi tilhögun á úrslitaleik i Evrópu-
keppninni er ekkert einsdæmi en
óréttlætið er ekkert minna fyrir það.
Á hlutlausum velli hefðu Valsmenn
aldrei hlotið jafnniðurlægjandi rass-
skell og þeir óneilanlega fengu i þess-
ttm leik.
Eftir frábæra frammistöðu í
keppninni frani að úrslitaleiknum
állu leikmenn Vals það skilið af for-
ráðamönnum íslenzks handknattleiks
að þeir sæju til þess að úrslitaleikui
inn færi fram á jafnréttisgrundvelli
en gæfu ekki mótherjununt 5 mörk i
forskot eins og þeir raunverulega
gerðu nteð því að fallast á þessa órétt-
lálti lilhögun.
„Kflir frábæra frammislöðu í keppn-
inni fram að úrslilaleiknum állu leik-
menn Vals það skilið af furráða-
mönnum islenzks handknaltleiks að
þeir sæju til þess að úrslitaleikurinn
færi fram á jafnréttisgrundvelli,"
segir hréfritri. l)B-mynd Bjarnleifur.
Vill hluta
þýfisins
til baka
Hafsleinn Pélursson, Selfossi,
hringdi:
Síðastliðinn laugardag var brotizt
inn í bílinn minn þar sem hann stóð
við Tónabíó. Úr honum var meðal
annars stolið flugtösku með flugskír-
teini, flugdagbók og fleiru sem er al-
veg ómissandi fyrir mig en verðlaust
fyrir alla aðra. Ég vil eindregið
mælast til þess af þeim er þetta tók að
hann skili þessum hlutum þýfisins til
baka, öðru má hann halda.
Hringið
istíria
Rúnar Valdimarsson, 8 ára: Einu sinni
var er skemmtilegast og auglýsingarnar
eru lika mjög skemmtilegar.
Gunnlaugur Rafn Björnsson, II ára: I
Hertogastræti er frábærlega
skemmtilegur þáttur. Tommi og Jenni
eru líka skemmtilegir.
Seljum alls konar
hamrað, glært og
reyklitað gler.
•
Leitið ekki langt
yfir skammt, úrval-
ið er hjá okkur. Nú
er rétti tíminn til
að fá sér LIST-
GLER.
LIST
GLER
Smiðjuvegi \
7
SigurOur Valdimarsson, II ára: Mér
finnsf Einu sinni var skemmtilegast.
Stundin okkar er lika ágæt en
íþróttirnareru fúlar.
íslenzka Biblíuþýðingin:
Páll Sigurjónsson, 10 ára: Tommi og
Jenni eru skemmtilegasiir. íþróttirnar
eru líka skemmtilegar, sérstaklega þeg-
ar skíðamyndir eru sýndar. Stundin
okkar finnst mér ekkert sérstök.
Hjalti Atlason, 9 ára: Lassi er lang-
skemmtilegust.
Fegrið heimilið með LISTGLERI
— blýlagt gler i ótal mynstrum og
litum.
Tilvalið i svalahurðir, forstofu-
hurðir, útihurðir og alls konar
glugga til skrauts og nytja.
Vinnum gler eftir pöntunum með
stuttum afgreiðslufresti — Hring-
ið eða komið og kynnið ykkur
liti, mynstur og verð.
Gerum föst verðtilboð.
Athugið: Blýlagt gler má tvöfalda
i verksmiöju eða setja fyrir innan
tvöfalt gler.
Nýjung: Úrval af fallegum ljósa-
krónum með blýlögðu LIST-
GLERI
Kristinn F. Eiríksson, 10 ára:
Vestrarnir eru skemmtilegastir og
íþróttirnar eru líka ágætar.
Punktiiiinn gjör-
breytti merkingunni
Raddir
lesenda
Ragnheiður Björnsdóttir, Hvera-
gerði, hafði samhand við Daghlaðið:
Eitt er það atriði sem mig langar að
koma á framfæri vegna þess að nú er
verið að vinna að nýrri Biblíuútgáfu.
Það eru orð Jesú á krossinunt
þegar hann segir við ræningjann:
„Sannlega segi ég þér: í dag skaltu
vera með mér í paradis,” sem ég vil
gera að umtalsefni. Þessum orðum
gat ég sent barn aldrei trúað og svörin
sem ntaður fékk voru alltaf þessi: Þú
átt ekki að spyrja. Þú átl bara að
trúa. Vegna þess að enginn gat skýrl
þessa setningu fyrir mér hafnaði ég
Bibliunni þegar sem barn.
Það er svo ekki fyrr en nokkrum
áratugum scinna að dönsk hjúkr-
unarkona, vottur Jehóva, bankar á
dyrnar hjá mér og þegar ég spyr hana
út i þessa setningu segir hún að
punkturinn sé á vitlausum stað og
það breyti setningunni mjög. Hún
ætti að vera svona. „Sannlega segi ég
þér i dag. Þú skali vera með ntér í
paradís.”
Þetta finnst mér ntjög athyglisvert
og leysir úr þeirri spurningu sem ég
var að glima við sem barn. Mér finnst
þetta atriði því vel þess virði að leið-
rétta i nýju Biblíuútgáfunni.
FLYTJUM UM PASKANA
að Smiðjuveg 7 Sími 45133
Rassskellur Valsmanna var ósanngjam:
Úrslitaieikurinn fór ekki fram
á jafnréttisgrundvelli
Spurning
dagsins
Hvað finnst þér
skemmtilegast í
sjónvarpinu?