Dagblaðið - 08.04.1980, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 1980.
5
Fær annar Eskf irðingur viðumefnið „ríki”
Salta beinlaus þorskflök og
se//a grímmt tf/ Ítalíu
—Allt verður að gulli í hðndum þriggja Eskfirðinga sem byrjað hafa nýja verkunaraðferð
,,Það er ekki mest um vert að afla
sem allra mest, heldur hitt að nýta
þann afla sem úr sjó er dreginn á sem
allra beztan hátt,” sagði Ingvar Þ.
Gunnarsson útgerðarmaður og fisk-
verkandi á Eskifirði, sem í fyrra hóf
að verka saltfisk á nýjan og áður
óþekktan máta og selur á mjög góðu
verði til ítaliu og víðar.
Ingvar Þ. Gunnarsson rekur nú út-
gerðar- og verkunarstöðina Þór sf.
með þeim Þóri Björnssyni skipstjóra,
miklum aflamanni, og Eiríki Þorkels-
syni, fósturbróður Ingvars, sem er al-
vanur netamaður og vanur öllum við-
gerðum sem i útgerð og verkun eru
nauðsynlegar.
Þeir félagar hafa byggt 400 fer-
metra fiskverkunarhús við Eski-
fjarðarhöfn og þykir húsið hið
myndarlegasta og mikið i það borið.
M.a. eru á útiveggjum skrautmyndir
er minna á sjósókn og er slikt sjald-
séð. Hefur allt gengið að óskum hjá
þeim þremenningum, enda þeir sam-
hentir mjög. Allt er nýtt í húsi þeirra
og í fyrra hófu þeir brautryðjenda-
starf með nýrri verkunaraðferð á
saltfiski, sem náð hefur miklum vin-
sældum.
Nýja verkunaraðferðin er i þvi
fólgin að fiskurinn er flakaður og öll
sen fréttaritari DB á Eskifirði. ,,Þar
var Ingvar Þ. Gunnarsson, knálegur
maður og fram úr hófi ósérhlífinn.”
Eftir vinnu við sildina keypti
Ingvar sér 6 tonna bát og var í veri í
Borgarfirði eystra yfir sumartímann
og saltaði afla sinn sjálfur.
Fyrir nokkrum árum jók hann við
sig og Jékk Þóri Björnsson og Eirik
fósturoróður sinn Þorkelsson til sam-
starfs. Þeir keyptu Vött, 100 tonna
bát og er Þórir skipstjóri. Síðan kom
unaraðferð á þorski þá sem koma skal. Flökin fara til Hamborgar með skipi en
þaðan með lest til ttaliu og eru mjög eftirsótt. Þorskhausana og dálkana kaupa
Italir einnig, svo og lifrina og söltuðu hrognin. DB-myndir Emil Thorarensen.
Tngvar lagar sjálfur kafnð fyrtr
fólkið. Hann lætur slfkt ekki á sig fá,
þó hann hafi á árinu 1979 greitt um 70
milljónir króna f vinnulaun. t kaffistofu
verkunarhússins eru riamottur á gólfi
og þar fer enginn inn á slorugum skón-
um.
Fiskverkunarhúsið nýja á Eskifirði með fallegum skreytingum.
bein tekin úr honum. Söltuðu flökin
eru að lokum sett í 25 kg öskjur og
seld til Ítaliu og víðar fyrir mjög gott
verð.
Einnig herða þeir félagar allá
þorskhausa og dálka og senda á
Ítalíumarkað og fá 5 — 600 kr. fyrir
kilóið. í húsinu er og öll lifur er að
berst nýtt og hrognin söltuð. Allt fer
á ítaliumarkað.
ingvar Þ. Gunnarsson kom til
Eskifjarðar 1%2 til búsetu. Þá var
síldin í algleymingi og fólkið frjáls-
legt og fram úr hófi duglegt. Börnin
voru vel klædd og vel upp alin.
,,Ungum manni tók ég sérstaklega
eftir i kaffiferð minni á eitt síldar-
plananna,” sagði Regína Thoraren-
fiskverkunarhúsið glæsilega og allt
virðist verða að gulli i höndum
þeirra.
Ekki kæmi á óvart þótt lngvar
færi að hafa fleiri járn í eldinum sem
óskyld væru útgerð. Vera má að hans
bíði viðurnefnið Ingvar ríki á Eski-
firði áður en langt um liður.
- A.St. /Regína, Eskifiröi.
Unnið að pökkun. Flökin eru sett I 25 kg öskjur. „Þessar umbúðir eru mjög til
góðs,” sagði Ingvar. „Loksins fá menn það á tilfinninguna að þeir séu með mat-
væli i höndunum er þeir handleika saltfisk.”
N
Felixstowe
alla mánudaga
Weston Point
annan hvern
mióvikudag
m
Odýrustu
hljómtækjasettin
á markaðnum
Utvarp með 4 bylgjum — plötuspilari
kassettusegulband og 2 hátalarar
SJONVARPSBUÐIN HUÓMTÆKI
Gerð 3050
Magnari 50 vött
299.500, k